Morgunblaðið - 27.05.2005, Page 37

Morgunblaðið - 27.05.2005, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 2005 37 MINNINGAR símanum. Þannig er Gísla best lýst. Hann var mikill vinur vina sinna, ein- lægur og gladdist yfir litlu. Þessum síðustu samskiptum okkar Gísla skaut upp í kollinn á mér, þegar mér barst sú harmafregn að Gísli vinur minn og frændi væri látinn. Ekkert nema tómleiki blasir við á svona stundu. Æskuvinur er hrifsaður frá okkur í blóma lífsins. Það var bara einn Gísli. Hann var sérstakur og engum líkur. Hann hafði afburða hæfileika í öllu sem hann tók sér fyrir hendur, hvort sem það var í líkamlegu eða andlegu at- gervi. Hann varð snemma efnilegur íþróttamaður og átti mikilli vel- gengni að fagna á sínum knatt- spyrnuferli. Hann þurfti síðan að leggja skóna á hilluna vegna meiðsla. Þegar Gísli var annars vegar, var ekkert hálfkák á hlutunum. Ef hann á annað borð ætlaði að leggja stund á eitthvað, þá lagði hann sig allan í það. Alveg sama hvað það var. Með þetta í huga reikar hugurinn aftur í tímann þegar við sátum við eldhús- borðið á æskuheimili Gísla á Hafn- argötunni. Við spiluðum fótbolta með þremur fimmeyringum, þar sem markmið var að senda alltaf á milli tveggja þangað til að í mark var náð. Mér er minnisstæð baráttan og leikgleðin í Gísla. Hann hafði þennan einstaka hæfileika og ástríðu til að gera alltaf sitt besta. Hann hafði óbilandi metnað sem ávallt smitaði út frá sér. Okkar leiðir lágu saman í gegnum bridsinn, eftir að knattspyrnuferli Gísla lauk. Það voru fagnaðarfundir þegar við félagarnir komum saman, og við nutum hverrar stundar, hvers augnabliks í okkar ófáu bústaðar- ferðum gegnum árin. Gísla hafði góða nærveru, hafði þann háttinn á að ávarpa mann sem ,,minn“. Það undirstrikaði einlægni Gísla og hjartalag hans. Nú er félagi Gísli horfinn á braut. Eftir stendur söknuður og minning- in um sómadreng, minningin um mann sem var útvörður drengskapar og vináttu. Ég votta Rósu og Torfa, Magnúsi og hans fjölskyldu og öðrum að- standendum mína dýpstu samúð. Hjálmtýr R. Baldursson. Gísli Torfason starfaði við Fjöl- brautaskóla Suðurnesja í 25 ár, fyrst sem stærðfræðikennari og frá árinu 1992 einnig sem námsferilsstjóri. Í því starfi fólst meðal annars umsjón með eldri nemendum skólans. Líf hans snerti marga. Hann sinnti ýms- um öðrum ábyrgðarstörfum innan skólans í gegnum árin og leysti öll verk af alúð og lagni. Gísli var bráðgreindur húmoristi og einstaklega hjartahlýr. Honum þótti vænt um nemendur skólans og sýndi þeim mikla umhyggju. Nem- endur gengu alltaf fyrir. Hann leit- aði að sterkum hliðum nemendanna og fann þar ósjaldan eitthvað sem hægt var að byggja á til að fleyta þeim áfram, jafnvel þó öðrum virtist að í algjört óefni væri komið. Nem- endur skólans, bæði núverandi og fyrrverandi, hafa haft samband við skólann undanfarna daga til að minnast Gísla. Einn skrifaði í tölvu- skeyti: „Það var alveg sama hvaða hindranir maður var búinn að búa til sjálfur, Gísla tókst alltaf að hjálpa manni að jafna þær út.“ Hann var einnig góður samstarfs- maður, jákvæður og ósérhlífinn og hugsaði í lausnum. Með góðlátlegri stríðni og gríni skapaði hann þægi- legt andrúmsloft á kennarastofunni. Hann lét okkur vita hversu vænt honum þótti um okkur og það er okk- ur nú mikils virði. Hann var okkur fyrirmynd í því sem öðru. Fyrir fáum dögum hélt hann dyrunum opnum fyrir mig og sagði: „Fæ ég ekki prik fyrir þetta?“ Ég svaraði: „Gísli minn, þú átt orðið svo mörg prik að þau hrúgast upp.“ „Já, ég veit það,“ sagði Gísli. Ég held að hann hafi vitað hvað okkur þótti vænt um hann og hve mikils við mátum hann. Gísli var mér ekki aðeins góður samstarfsmaður heldur einnig náinn vinur frá unglingsárum og reyndist mér afar vel þegar ég þurfti á hjálp að halda. Skólinn hefur misst einn sinn besta mann og samfélag okkar einn af sínum bestu sonum. Mestur er þó missir fjölskyldu og ástvina. Elsku Rósa og Torfi. Guð veri með ykkur í erfiðri raun. Minningin um góðan dreng lifir. Fyrir hönd Fjölbrautaskóla Suð- urnesja, Oddný Harðardóttir skólameistari. Líf okkar er fullt af andstæðum og líklega koma þær hvergi jafn glöggt fram sem í gleði og sorg. Á það vor- um við svo illyrmislega minnt laug- ardaginn 21. maí sl. Skólaslit FS, stærri hópur en nokkru sinni – hátíð í bæ og gleði svífandi yfir vötnum. Sem hendi væri veifað snýst gleði- stundin upp í andhverfu sína og helsi hinnar þyngstu sorgar leggst yfir. Hann Gísli Torfa er allur. Svo snöggt, svo óvænt, svo fjarlægt. Í tómleikanum hvá menn dofnir og skilja hvorki upp né niður. Hægt og hljótt kvikna spurningar um tilgang lífsins, réttlætið eða öllu fremur óréttlætið. En svo leitar hjartað huggunar með því að draga upp myndir af Gísla í starfi og leik. Smám saman færist bros yfir og maður ornar sér við ljúfar hugsanir af einstökum manni. Og það hefði hann viljað. Gísli Torfason var enginn venju- legur maður. Í raun afreksmaður á flestum sviðum. Afburða námsmað- ur. Landsliðsmaður í handbolta og fótbolta. Bridgemeistari og skák- meistari. Svo eitthvað sé nefnt. Hann var í raun einn þeirra sem gat allt sem hann vildi. Í hinni fjöl- breyttu flóru hæfileika valdi Gísli sér þann starfsvettvang að vinna með ungu fólki. Það var í raun hugsjón hans enda maðurinn einn þeirra er kalla mátti kennara af Guðs náð. Hundruð nemenda sáu loksins hjá honum ljósið í talnaflækjum stærð- fræðinnar því Gísli bjó yfir þeim meginkostum hins góða kennara að setja mál sitt fram á einfaldan, skýr- an og hvetjandi hátt. Þá ekki síður varð hann vinsæll sem ráðgjafi um námsval en í raun miklu meira. Margir nemendur leituðu í smiðju hans til að sækja sér styrk og ljós. Fundu þar traustan vin, hlýjan, ráðagóðan og iðandi af húmor. Þess- ir sömu eiginleikar birtust á kenn- arastofu eða hvar sem Gísli Torfa fór. Nú hefur hann kvatt okkur. Skarðið er stórt og vandfyllt. Sökn- uður mikill. En í anda Gísla ber okk- ur að hugsa um hið jákvæða og skemmtilega sem tengist minning- unni um hann. Og er þar af gnægð að taka. Í raun verður ekki til hans hugsað öðruvísi en að láta sér líða vel og jafnvel örlar á brosi. Þannig vil ég kveðja Gísla Torfason. Rósu, konu hans og besta vini, Torfa, augasteini þeirra og ætt- mennum öllum votta ég dýpstu hlut- tekningu. Blessuð sé minningin um Gísla Torfason. Hjálmar Árnason. Í dag kveðjum við Gísla Torfason, samstarfsmann okkar og vin. Gísli var að ljúka 25. starfsári sínu við Fjölbrautaskóla Suðurnesja þegar hann var kallaður burt, aðeins fimm- tugur að aldri. Gísli og Rósa hófu störf við skólann þegar hann var enn í mótun og verður framlag þeirra hjóna til skólans seint fullþakkað. Gísli starfaði við skólann sem stærð- fræðikennari og síðar náms- ferilsstjóri þar sem hann var ráðgjafi og talsmaður nemenda. Þessum störfum sinnti hann af einstakri alúð og metnaði og þar nýttust gáfur hans og mannkostir vel; rökhugsun og greind í stærðfræðinni en næmi og samkennd í ráðgjafastarfinu. Gísli naut ómældrar virðingar og vin- sælda meðal nemenda skólans sem og samstarfsmanna sinna. Allir þeir sem lærðu stærðfræði undir hand- leiðslu hans eða leituðu til hans eftir góðum ráðum voru sammála um hæfni hans og færni en ekki síst þá mannúð og tilfinningar sem hann lagði í störf sín. Við sem kynntumst Gísla og störf- uðum með honum minnumst hans fyrst og fremst sem góðs vinar. Hann var fjölskyldumaður, íþrótta- maður, húmoristi og hrekkjalómur. Hvert okkar á margar minningar um Gísla; um skemmtilegu sögurnar, uppörvandi orð í erli dagsins, góðlát- legu hrekkina og jafnvel faðmlag þegar hann sá að þess var þörf. Við sendum Rósu og Torfa okkar innilegustu samúðarkveðjur um leið og við minnumst Gísla með þakklæti og virðingu. Starfsfólk Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Gísli Torfason var ljúflingur. Góð- ur félagi er glæddi umhverfi sitt töfr- um, einlægni og gleði. Örvaði feg- urðina í kringum okkur með húmor og hlýju. Honum var skammtaður naumur tími en var trúr verki sínu. Í augum hans voru allir jafnir – að okkar mati snerist allt líf Gísla um eina spurningu og eina spurningu aðeins: Hvað er fólgið í því að vera manneskja? Gísli lifði og starfaði í anda þeirrar fullvissu „að samlíðunin er upp- spretta hins æðsta söngs“. Honum var annt um fólk og sýndi þá sam- hygð en var dulur sjálfur. Þessar andstæður í fari hans gerðu allt fas hans hrífandi og laðaði fólk að hon- um. Hann var sannur vinur og það er mestur mannkosta. Við söknum vin- ar í stað. Hugur okkar er hjá Rósu og Torfa. Alda, Elísabet, Hulda, Jórunn, Karen, Kristrún, Sara, Svanhildur og Þórunn. Það er ekki orðum aukið að ég hef þekkt hann Gísla frá því hann fædd- ist. Hann var yngri bróðir Magga Torfa, vinar míns, og allir ólumst við upp á Hafnargötunni í Keflavík. Fljótlega fór þessi litli drengur að leika sér með bolta, og fyrr en varði var hann farinn að æfa bæði knatt- spyrnu og handbolta. Gísli var góður leikmaður, lék bæði með meistara- flokki Keflavíkur og landsliði Íslands í knattspyrnu. Þegar ég hóf minn þjálfaraferil var Gísli fyrsti maður- inn sem ég valdi í liðið. Gott var að hafa Gísla í liðinu sínu, hann var skarpgreindur og hafði skoðanir á því hvernig vinna ætti leikina. Á þessum árum var Gísli enn í námi og skipti námið hann miklu máli, og þegar próftímabil hófst bað hann um frí á æfingum til að læra og var það auðfengið. Það var síðan fyrir 25 árum að við Gísli urðum einnig samstarfsfélagar, þegar Gísli ásamt Rósu konu sinni réð sig til starfa hjá FS. Það var mik- ill happafengur fyrir skólann að fá þennan frábæra kennara. Gísli var allan sinn starfsferil einn vinsælasti kennari skólans, enda bara hann hag nemenda sinna og árangur þeirra mjög fyrir brjósti. Ég kynntist því af eigin raun þegar ég bað Gísla að að- stoða dóttur mína með stærðfræði. Við þeirri bón var ljúflega orðið. Ég vildi ólmur greiða strax fyrir kennsl- una en Gísli tók það ekki í mál. Eftir nokkrar þrætur sagði hann: „Jú, þú mátt borga mér, en ekki fyrr en að verki loknu ef góður árangur sést á prófseinkunn.“ Dóttir mín segir að Gísli hafi kennt henni mikilvægustu lexíu sem kennari getur kennt nem- anda, og það er að hafa trú á sjálfum sér. Ég efast ekki um að aðrir hafi sömu sögu að segja. Gísli var líka mikill húmoristi og fljótur til að sjá skondnu hliðarnar á málunum. Mér er minnisstætt eitt sinn er við ræddum saman þegar sonur minn var nemandi hjá okkur í FS og ég var eitthvað að tuða um að það væri miklu sniðugra fyrir hann að fara að læra eitthvað annað en að verða íþróttakennari eins og ég. Þá fékk Gísli blik í augun og sagði við mig: „Fyrirgefðu, Guðni, en er lífið búið að vera svona leiðinlegt hjá þér að þú vilt ekki að sonur þinn feti í þín fótspor?“ Gísli var mikill fjölskyldumaður og hjá honum var fjölskyldan alltaf í fyrsta sæti. Það kom best fram í orð- um hans ekki alls fyrir löngu: „Ef fjölskyldan mín hringir og þarf á mér að halda, þá stend ég upp og fer heim alveg sama hvernig ástandið hér í vinnunni er.“ Hann var mjög stoltur af fjölskyldu sinni og ljómaði alltaf þegar hann talaði um Torfa son sinn, m.a. árangur hans í körfuknatt- leik og væntanlega útskrift hans úr Verzlunarskólanum. Síðastliðinn laugardag voru síðan haldin skólaslit í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Þar átti að afhenda mér, Gísla og Rósu konu hans gullmerki skólans fyrir 25 ára starf. Við Gísli höfðum mikið gaman af því að fá gullmerki fyrir að mæta í vinnuna. Gísli sagði að við skyldum láta Rósu sjá um að þakka fyrir okkar allra hönd, því eins og hann orðaði það: „Heima hjá okkur Guðna eru það konurnar okkar sem sjá um að tala.“ Þegar kallið kom frá skólameistara um að tími væri kominn til að taka á móti viðurkenningunni kom Gísli ekki. Hann hafði fengið kall frá æðri stað. Ég vil þakka þér, Gísli minn, fyrir allar okkar samverustundir. Betri vin og samstarfsfélaga er ekki hægt að hugsa sér. Þín verður sárt saknað. Elsku Rósa, Torfi, Magnús og aðr- ir aðstandendur, við Erla og börnin sendum ykkur innilegustu samúðar- kveðjur okkar. Megi góður guð styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Minningin um góðan vin mun lifa að eilífu. Guðni Kjartansson. Lífið er hverfult. Vinur minn og samstarfsmaður til margra ára er horfinn. Ekki datt mér í hug þegar ég hitti þig í síðustu viku í Fjöl- brautaskóla Suðurnesja að þetta væri í síðasta sinn sem ég sæi þig. Þá heilsaðir þú hlýlega að vanda og varst í essinu þínu að ræða um, þó merkilegt sé, verð á traktorum. Þú varst fljótur að sjá það sem var óvenjulegt og skondið og gast miðlað því til annarra á skemmtilegan hátt. Langur samstarfsferill okkar geymir margar minningar. Húmor- inn þinn var sérstakur en aldrei var honum beitt af illgirni. Í minning- unni er viðurnefni sem þú gafst mér forðum og þó það festist ekki við mig þá er þess enn minnst og vekur bros. Þetta var á haustönn og einn af ný- nemunum var að spyrja um mig. Þú svaraðir að bragði ,,Já, Bigga síld, hún er hér einhvers staðar.“ Nem- andinn var forviða mjög og vék sér að næsta aðila sem leit út fyrir að geta svarað og spurði hvort hér væri kennari með nafnið Bigga síld. Nem- andann hitti ég fyrir nokkrum árum og við hlógum mjög að þessu. Þó þú hefðir gaman af spila- mennsku þá harðneitaðir þú að spila við mig Ólsen, Ólsen eftir að ég blekkti þig þannig að mér tókst að vinna spilið. Það var ekki hinn sanni keppnisandi í þínum huga. Eftir á gerðir þú samt grín að sjálfum þér fyrir að láta mig fara svona með þig. Nemendum varstu stoð og stytta og oft tókst þú upp á einhverju óvenjulegu til að fá þá til að vinna í tímum. Eitt skipti varstu með hóp sem var ekki tilbúinn að reikna. Þú veðjaðir við þá að ef þeir yrðu á und- an þér að reikna ákveðinn fjölda dæma þá myndir þú bjóða þeim upp á kók og prins póló, annars yrðu þeir að bjóða þér. Nemendur tóku til við að reikna af kappi og þú reiknaðir dæmin á töfluna. Þú varst rétt búinn að ljúka við síðasta dæmið þegar fyrsti nemandinn sagði ,,búinn“. Hópurinn stóð sig að sjálfsögðu með prýði í lok annar. Það var gott að fá að kynnast þér og vinna með þér. Þín verður sárt saknað en minningarnar munu lifa áfram. Elsku Rósa og Torfi, ég sendi ykk- ur mínar innilegustu samúðarkveðj- ur. Þín er ljúft að mega minnast, mikið gott var þér að kynnast og gaman var að fá að finnast og festa vináttunnar bönd er við tókumst hönd í hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Sigríður Bílddal. Sumum liggur meira á en öðrum. Taka lífshlaupið fastari tökum. Ganga ótrauðir til hvers og eins sem þeim er boðið. Láta sig ekki vant við látna þegar þeirra er vænst. Slíkir menn koma meiru í verk en aðrir. Sama hvar niður er borið. Hvort sem það er á velli kappleikja þar sem hraðinn er í fyrirrúmi. Í kennslustofu þar sem óþreyja æsk- unnar ríkir. Í félagsstarfi þar sem bregðast þarf við hinu óvænta, eink- um þar sem æskan á í hlut. Sumum lætur betur að vinna með ungum en öðrum. Eða öllu heldur að geyma æskumanninn innra með sér og kalla hann fram eftir þörfum. Kappsemi æskumannsins er kostur þegar vel er á haldið. Gísli Torfason verður minnisstæð- ur fyrir þessa eiginleika. Þann marg- breytileika sem jafnan einkenndi hann. Hin sterku tengsl sem hann myndaði við æskuna og aldrei náðu að rofna. Unglinginn sem sífellt var á reiki við hlið hins vaxna og ábyrgð- arfulla manns og æskufólkið horfir nú á eftir sem félaga og vini. Að baki kappsemi sem stundum mátti halda að ætti sér engin tak- mörk bjó rólyndur, gamansamur og elskulegur einstaklingur sem tæpast mátti aumt sjá. Einstaklingur sem var sérstaklega boðinn og búinn til liðsinnis gerðist þess þörf. Heimilið á Lágmóanum bar þessum eiginleik- um ákaft vitni. Var gjarnan opið vin- um og kunningjum þegar knúið var dyra. Um tveggja áratuga skeið er stunda að minnast. Gistinátta áður en lagt var upp í flugför að morgni og stutt úr Njarðvíkunum á flugvöll. Eða setu í stofusófanum eða garðs- horninu þegar gott var að geta látið sig hverfa úr erli líðandi dags um litla stund. Nú hefur honum enn og aftur legið á. Að þessu sinni til mikilvægari verka en áður. Flugið var tekið með óvæntum hætti. Eins og þeirra er oft vandi sem hafa mikið umleikis og mörgu að sinna. Þórður Ingimarsson. Gísli Torfason er dáinn. Eitt sím- tal, fjögur orð. Og skyndilega hefur birta vorsins á sér haustblæ og dökk ský hrannast upp í sólskininu. Kenn- arinn, vinurinn, íþróttakappinn og hvunndagshetjan hefur lokið leik í blóma lífsins. Hvílík harmafregn. Þegar leiðir skilja jafn óvænt og skyndilega sem raun ber vitni, sitj- um við í sorg og undrun og grátum í vanmætti okkar. Fráfall Gísla er þungt áfall fyrir okkur öll en þó eink- um Rósu og Torfa, fjölskyldu hans og ættingja. Megi þau finna styrk í ljúfum minningum um góðan dreng og góðan föður. Fráfall hans er einn- ig áfall fyrir nemendur hans, sam- starfsmenn og skólasamfélagið okk- ar, sem enn hefur orðið fyrir þungu og óvæntu höggi. Við bræðurnir þekkjum ekki til- veruna án Gísla Torfasonar. Hann var leikfélagi, nágranni og vinur svo langt sem við munum og einn þeirra sem fyrstur kemur upp í hugann þegar góðs manns er getið. Blessuð sé minning Gísla og hafi hann þökk fyrir samfylgdina. Karl, Eiríkur og Guðmundur Hermannssynir. Stærðfræðingurinn Knöttur svart og hvítt. Okkar maður sigrar. Sigurbrosið í augunum. Manntafl svart og hvítt. Sigrar suma okkar. Sigurbrosið í augunum. Reiknað og hugsað. Hugsað og reiknað. Hver tækling. Hver fyrirgjöf. Hvert peðið fer. Hvert drottningin fer. Ekki verður allt hugsað. Ekki verður allt reiknað. Þá maður verður peð á skákborði lífsins og sér ekki næsta leik. Leikfléttan kom öllum á óvart. Þarna lék einhver á alla. SJÁ SÍÐU 38

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.