Morgunblaðið - 27.05.2005, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 2005 53
DAGBÓK
lifun
tímarit um heimili og lífsstíl – 04 2005
s v e i t o g b o r g
s u m a r b l ó m i n n i o g ú t i
p u l l u r o g p ú ð a r á p a l l i n n
l u k t i r o g ö n n u r l ý s i n g
a t h y g l i s v e r t s u m a r h ú s a r k i t e k t s
í t a l s k u r m a t u r á í s a k ö l d u l a n d i
r ó s i r o g m e l g re s i m e ð m e i r u
Tímaritið
Lifun fylgir
laugardagsblaði
Morgunblaðsins
fyrir fagurkera á öllum aldri
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Listmuna- og hand-
verkssýning stendur yfir 27., 28. og
30. maí frá kl. 13–17 alla dagana. Ás-
geir Ásgeirsson, klassískur gítarleik-
ari, tekur á móti gestum. Í dag er há-
tíðarbingó kl. 14, Inga Backman og litli
kórinn í Neskirkju, kl. 15 veislukaffi.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–14, Smíði/
útskurður kl. 13–16.30, bingó kl. 13.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, böðun, hárgreiðsla, fótaaðgerð,
frjálst að spila í sal.
Dalbraut 18–20 | Kl. 9–11 kaffi og dag-
blöð, kl. 9–12 baðþjónusta, kl. 9–16.45
hárgreiðslustofan opin, kl. 11.15–12.15
matur, kl. 14.30–15.30 kaffi.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Fé-
lagsvist spiluð í kvöld, föstudag kl.
20.30 í Gjábakka.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Opið
í Garðabergi frá kl. 12.30–16.30.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar. Kl. 10.30 létt ganga
um nágrennið. Frá hádegi spilasalur
opinn. Kl. 12 leggur Gerðubergskórinn
í ferðalag um Norðurland, m.a. Akur-
eyri, Húsavík, Blönduós og fl.
Félagsþjónustan Hraunbæ 105 | Kl. 9
amenn handavinna – bútasaumur, út-
skurður, hárgreiðsla og bað, kl. 10
fótaaðgerð, kl. 12 hádegismatur, kl. 14
bingó, kl. 15 kaffi.
Hraunsel | Moggi rabb og kaffi kl. 9,
leikfimi í Bjarkarhúsinu kl. 11.30,
bridge kl. 13, dansleikur 60 ára og
eldri kl. 20.30.
Hvassaleiti 56–58 | Frjáls aðgangur
að opinni vinnustofu – postulínsmáln-
ing. Hádegisverður. Fótaaðgerð-
arstofa s. 588 2320. Hárgreiðsla
s.517 3005.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er öll-
um opið. Gönuhlaup kl. 9.30. Bridge í
Betri stofu kl. 13.30. Fundur um fé-
lagsstarfið kl. 14. Skráning í hópa og
námskeið næsta haust. Kosning í not-
endaráð. Vorsýning opin kl. 13–16.
Upplýsingar í síma 568 3132.
Norðurbrún 1, | Kl. 9–12 myndlist, kl. 9
hárgreiðsla, kl. 14 leikfimi.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og
fótaaðgerðir, kl. 9.15–14.30 hannyrðir,
kl. 11.45–12.45 hádegisverður. Kl.
13.30 sungið við flygilinn við undirleik
Sigurbjargar, kl. 14.30–16 dansað við
lagaval Sigvalda. Gott með kaffinu.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.45, leirmótun og hárgreiðsla kl. 9,
morgunstund og fótaaðgerðir kl.
9.30, leikfimi kl. 10. Bingó kl. 13.30.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Æfing fermingar-
barna kl. 16.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Kirkja
unga fólksins, samkoma kl. 20:00,
bænastund kl. 19:30 fyrir samkomu.
Allir velkomnir. www.filo.is.
Mezzó-sópran söngkonan Dóra
Steinunn Ármannsdóttir og Kolbrún
Sæmundsdóttir píanóleikari halda
einsöngstónleika í Langholtskirkju á
morgun. kl. 16. Dóra Steinunn
þreytir nú í vor burtfararpróf í ein-
söng frá Söngskólanum í Reykjavík
og eru tónleikarnir liður í því.
Á efnisskránni eru íslenskir ljóða-
söngvar eftir Sigvalda Kaldalóns,
Árna Thorsteinson og Karl O. Run-
ólfsson og auk þess lög eftir unga
nútímahöfunda, Dagbjörtu Jóns-
dóttur, samnemanda Dóru Stein-
unnar við Söngskólann og Hreiðar
Inga Þorsteinsson. Dóra Steinunn
syngur einnig söngva úr söng-
leikjum eftir Kurt Weill og Óperu-
draugnum eftir Andrew Lloyd
Webber, en þar kemur samnemandi
Dóru Steinunnar við Söngskólann,
Bjarni Atlason barítón til liðs við
söngkonuna. Þá flytur hún einnig
aríur úr óperum eftir Mozart og
Rossini.
Dóra Steinunn hefur stundað
söngnám frá 1998 við Söngskólann í
Reykjavík hjá Ólöfu Kolbrúnu Harð-
ardóttur og Kolbrúnu Sæmunds-
dóttur. Hún hefur sótt „master-
class“ námskeið, m.a. hjá Kristni
Sigmundssyni og Jónasi Ingimund-
arsyni og hjá Robin Stapleton, þar
sem hún fékk tækifæri til að syngja
fyrir Dame Kiri Te-Kanawa.
Dóra Steinunn hefur sungið með
Nemendaóperu Söngskólans, m.a.
Súsönnu í Brúðkaupi Fígarós eftir
W.A. Mozart, Prakkarann í L’enfant
et les sortiléges eftir Maurice Ravel
og Maddalenu í Rigoletto eftir G.
Verdi. Í Íslensku óperunni hefur
hún m.a. sungið Stúlkuna í Stúlk-
unni í vitanum, eftir Þorkel Sigur-
björnsson og 3. dreng í Töfraflaut-
unni eftir W.A. Mozart. Með
Sumaróperu Reykjavíkur söng hún
Norn í Dido og Æneas eftir Henry
Purcell og Amore í Krýningu Popp-
eu eftir Monteverdi. Hún tók þátt í
frumflutningi á óperunni Gretti eftir
Þorkel Sigurbjörnsson á Wagner
ungmennahátíð í Bayreuth sl. sumar
og flutningi á Elijah eftir Mendels-
sohn í haust í Carnegie Hall undir
stjórn Garðars Cortes.
Íslenskir ljóðasöngvar,
söngleikjalög og aríur
Brosgretta.
Norðu
♠G9
♥ÁKG10 S/Allir
♦K63
♣K432
Vestur Austur
♠D10874 ♠K652
♥D72 ♥653
♦D105 ♦842
♣G7 ♣D106
Suður
♠Á3
♥984
♦ÁG97
♣Á985
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 tígull
Pass 1 hjarta Pass 1 grand
Pass 3 grönd Pass Pass
Pass
Vörnin hefur yfirleitt það forskot á
sagnhafa að sjá strax hvernig legan er í
lykillitum. Þegar legan er sagnhafa í
hag, getur verið skynsamlegt að þyrla
upp ryki með óvæntri spilamennsku til
að leiða sagnhafa af eðlilegri braut. Við
höfum skoðað nokkur slík dæmi á síð-
ustu dögum og hér er enn eitt af svip-
uðum toga.
Vestur kemur út með spaða gegn
þremur gröndum. Sagnhafi reynir gos-
ann í borði, en drepur svo kóng austurs
með ás. Nú er spaðinn galopinn, svo
sagnhafi þarf að hirða níu fyrstu slag-
ina, sem er einfalt með því að svína í
hjartanu.
En suður er góður spilari, sem ekki
vill setja öll eggin í sömu körfuna
strax. Hann ákveður að prófa tígulinn
fyrst, taka kóng og ás. Kannski kemur
drottningin önnur úr vestrinu og þá má
fá fjóra slagi á tígul með því að svína
fyrir tíu austurs.
Nú skulum við setjast í sæti vesturs.
Hann horfir á ÁKG10 í hjarta í borði
og sjálfur á hann drottningu þriðju.
Ekki gæfulegt. Þegar sagnhafi fer að
fikta í tíglinum ætti vestur því að setja
upp gildru með því að láta drottn-
inguna falla undir tígulkónginn. Sagn-
hafi mun ganga í þá gildru með bros á
vör – fara inn í borð á hjartaás og svína
tígulníu.
En þá breytist hið einlæga bros í
grettu.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
JPV-útgáfa hefur sent frá sér í kilju
bókina Ellefu mínútur eftir Paulo
Coehlo í þýðingu Guðbergs Bergs-
sonar. Bókin kom út í innbundinni út-
gáfu hjá JPV síðastliðið haust og
hlaut afbragðs móttökur samkvæmt
útgefanda. Listamaðurinn kom til Ís-
lands í tilefni af útgáfunni þá.
„Ellefu mínútur segja frá Maríu,
ungri brasilískri stúlku sem er tilfinn-
ingalega niðurbrotin eftir reynslu sína
af fyrstu ástinni. Hún er á við-
kvæmum aldri og
sannfærist um að
hún muni aldrei finna
sanna ást og að
henni fylgi ekkert
nema þjáning, von-
brigði og kvöl. Hún
fer til Genfar þar sem
hana dreymir um að
verða fræg og rík en verður þess í
stað vændiskona,“ segir í kynningu
um bókina.
Bók