Morgunblaðið - 27.05.2005, Síða 56

Morgunblaðið - 27.05.2005, Síða 56
RÓMANTÍSKA gamanmyndin Monster-in-Law leiðir saman Jennifer Lopez og Jane Fonda á hvíta tjaldinu en Fonda snýr aftur eftir 14 ára hlé frá kvikmyndum. Charlie (Lopez) er í leit að manni, sem kann að meta hana. Hún fæst við margt, gengur með hunda, málar, hannar föt og svarar í símann á læknaskrifstofu. Michal Vartan úr Alias leikur Keith, sem virðist fullkominn fyrir Charlie. Hann er læknir, sem nýtur velgengni í starfi, heillandi og ástfanginn af henni. Keith er búinn að biðja Charlie en það er eitt vandamál; mamma hans, Viola, sem Jane Fonda leikur, er algjör martröð. Viola er þekkt sjónvarpskona, sem varð fyrir áfalli þegar yngri kona tók við af henni. Keith er henni allt, ekki síst nú þegar ferillinn er ekki eins glæstur og hann var. Henni finnst Charlie ekki nógu góð fyrir soninn og ætlar að gera hvað hún getur til að stía þeim í sundur. Til þess fær hún hjálp aðstoðarkonu sinnar, Ruby, leikinni af Wöndu Sykes. Á meðal þess sem Viola gerir er að gera lítið úr störfum tilvonandi tengdadótturinnar og býður gömlum kærustum sonarins í heimsókn. Leikstjóri myndarinnar er Robert Luketic, sem er þekktur fyrir myndirnar Legally Blonde og Win a Date with Tad Hamilton. Frumsýning | Monster-in-Law Jane Fonda leikur móður sem er ekki tilbúin að sleppa takinu af syninum og sjá á eftir honum í hendur tilvonandi tengdadóttur, sem Jennifer Lopez leikur. Ferleg tengdamóðir ERLENDIR DÓMAR Metacritic.com 32/100 Roger Ebert Guardian  Hollywood Reporter 20/100 Empire 40/100 Variety 30/100 (skv. metacritic) 56 FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ Það er gott að rækta garðinn sinn ... Glæsilegur blaðauki um garðinn fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 10.júní. Grænir fingur, blómabörn og grillmeistarar eru á leiðinni út í garð og nú er lag að minna þau á þig. Meðal efnis í blaðinu eru nýjungar í blóma- og trjáframboði, garðhúsgögn, glóðheitar grilluppskriftir, matjurtarækt, heitir pottar, hitalampar á verandir, pallaefni og margt fleira. Auglýsendur! Pantið fyrir kl. 16 þriðjudaginn 7. júní Allar nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105 eða kata@mbl.is Lagið „Klikkaði froskurinn“ eða„Crazy Frog“ sem þykir ákaf- lega pirrandi farsímahringing, virðist ætla að fara í efsta sæti breska smáskífulistans um helgina. Coldplay hafði vonast til að fara beint í fyrsta sæt- ið með lag sitt „Speed of Sound“ en plötuverslanakeðjan HMV segir að fjórar smáskífur af „Crazy frog“- laginu með þýska danstvíeykinu Bass Bumber’s, hafi selst á móti hverri Coldplay-smáskífu. „Crazy frog“ var upphaflega hug- arsmíð Daniel Malmedahl, ungs Svía, sem var að reyna að herma eftir hljóðum bílvéla. Árið 2004 var það markaðssett af Þjóðverjum sem hringitónn. Það varð undarlega vin- sælt meðal farsímanotenda um alla Evrópu. Bass Bumbeŕs fléttar saman hin- um svokallaða texta „Crazy frog“ við lagið „Axel F“ úr myndinni Beverly Hills Cop. Ef einhvern langar til að syngja með þá er hér texti lagsins: „Beh-ding ding ding ding dididing ding bing bing pscht Dorhrm bom bom bedom bem bom bedom bom bum ba ba bom bom Bouuuuum bom bom bedahm, Bom be barbedarm bedabedabedabeda Bbrrrrrimm bbrrrrramm bbbrrrrrrrrraammmmm ddddddra- ammm Bah bah baah baah ba wheeeeeee- eeeee-eeeee!“    Oliver Martinez, kærasti KylieMinogue, hefur neyðst til að setja kvikmyndaferil sinn á ís til þess að geta veitt kærustu sinni fullan stuðning í veik- indum hennar. Minogue greindist með brjóstkrabbamein fyrir rúmri viku og gekkst þegar undir aðgerð. Martinez átti að hefja tökur á bandarísku myndinni The Snow Goose á næstu dögum en hefur farið fram á að þeim verði frestað. Kylie hefur lýst sárum vonbrigðum sínum með að þau hafa þurft að fresta áformum sínum um barneignir um fimm ár vegna veikindanna, en þau hafa undanfarið verið að reyna að eignast sitt fyrsta barn saman. Min- ogue er núna 37 ára gömul og verður því orðið 42 ára þegar þau geta á farið að huga að barneignum.    Nýi veruleikaþátturinn meðBritney Spears og Kevin Fe- derline eiginmanni hennar hefur vak- ið svo litla athygli að framleiðendur hafa hótað að hætta framleiðslu á honum aukist áhorfið ekki hið snar- asta. Þátturinn Britney and Kevin: Chaotic fjallar um stormasamt sam- band þeirra hjóna og þar ku hin fyrr- um flekklausa Spears sýna á sér nýja og frakkari mynd konu sem montar sig út í eitt af úthaldi sínu í bólinu – móður hennar Lynne til mik- ils ama. Þrátt fyrir allt hispursleysið virðist lítill áhugi vera á þáttunum og herma fregnir að hún hafi miklar áhyggjur af þessum dvínandi vin- sældum sínum. Fólk folk@mbl.is HROLLVEKJAN og unglinga- myndin House of Wax er endurgerð myndar frá árinu 1953. Margir þekkti leikarar af yngri kynslóðinni eru í leikarahópnum og má þar helst nefna Chad Michael Murrey úr One Tree Hill og Elizu Cuthbert úr 24. Einnig leikur hótelerfinginn Paris Hilton hlutverk í myndinni. Myndin er endurgerð af hinum þekktu framleiðendum Joel Silver (Matrix) og Robert Zemeckis (Back to the Future). Hún segir frá sex vinum sem eru á ferðalagi um Flór- ída en auk áðurnefndra þriggja leik- ara eru Robert Richard, Jared Padalecki, og Jon Abrahams í hlut- verki vinanna. Hópurinn tjaldar nærri litlum bæ þar sem yfirgefið vaxmyndasafn nær athygli þeirra. Þegar hann rannsakar þetta dularfulla hús kom- ast krakkarnir að því að ekki aðeins eru stytturnar úr vaxi heldur allt húsið. Heldur ógnvekjandi stað- reynd og ekki bætir úr skák að þeir hitta tvo heldur skuggalega karakt- era sem virðast vera eina fólkið bú- sett á stóru svæði þarna í kring. Annar safnar dauðum dýrum á þjóð- vegum og hinn er bensínstöðv- arafgreiðslumaðurinn Bo (Brian Van Holt). Bo tekst að lokka krakk- ana heim til sín og í kjölfarið fylgja ýmsar blóðugar senur með skærum, hnífum og öðrum beittum hlutum. Þeir hitta líka geðveikan bróður Vin- cent, sem er einnig leikinn af Van Holt. Þess má geta að þrátt fyrir að myndin eigi að gerast í Bandaríkj- unum var hún öll tekin upp í Ástr- alíu, sem er að verða vinsælt kvik- myndatökuland. Frumsýning | House of Wax Vandræði með vaxmyndir ERLENDIR DÓMAR Metacritic.com 41/100 Roger Ebert Hollywood Reporter 50/100 New York Times 50/100 Variety 20/100 (skv. metacritic) Jon Abrahams, Chad Michael Murray, Elisha Cuthbert og Jared Padalecki í hlutverkum sínum. NÝJASTA mynd leikstjórans Dags Kára Péturssonar er frumsýnd í dag. Þetta er önnur mynd hans í fullri lengd en áður gerði hann verð- launamyndina Nóa albínóa. Voksne mennesker er af öðr- um toga en hún er á dönsku og gerist að mestu í Kaupmanna- höfn. Aðalsöguhetjan er graffitilistamaðurinn Daniel (Jakob Ceder- gren), sem lifir á því að spreyja ástarjátn- ingar á veggi borg- arinnar. Hann vill bara taka að sér svarta vinnu eins og kemur í ljós á skattayfirliti hans þar sem hann hefur þénað aðeins 400 krónur síðustu ár. Daniel er ekki heldur mikið fyrir að gefa upp kennitöluna sína eða yfirhöfuð taka þátt í samfélaginu á sama hátt og aðrir. Hann keyrir um á Fiat 500, sem er áberandi í myndinni, en bíllinn er ein af hans fáum verald- legu eigum. Líf hans breytist þegar hann kynnist bakarísstúlkunni Francescu (Tilly Scott Pedersen). Það flækir þó málin að besti vinur Daniels, Roger, kallaður Morfar eða Afi (Nicolas Bro), er líka hrifinn af henni. Afi er skrautleg persóna sem vinnur hörðum höndum að því að verða dómari í fótbolta. Hann hefur ekkert á móti því að fylgja samfélagsreglunum sem Daniel hunsar. Saga dómara nokkurs (Morten Suurballe) fléttast inn í myndina en hann lifir allt öðruvísi lífi en Dani- el. Undir lokin verða þó bæði Dani- el og dómarinn að taka mikilvægar ákvarðanir í lífi sínu. Voksne mennesker er gædd sér- stakri kímni Dags Kára og er mik- ið af minnisstæðum samtölum í myndinni. Hún er tekin upp í svarthvítu, sem gefur henni ákveð- inn svip. Fyrir utan eitt lag Franks Si- natra, „Why Shouldn’t It Happen To Us“, sem Claus Hempler syng- ur, er tónlistin eftir Slowblow. Dú- ettinn, sem leikstjórinn skipar ásamt Orra Jónssyni, samdi einnig tónlistina við Nóa albínóa. Farartæki Daniels, Fiat 500, kemur mikið við sögu en hér er hann á ferð ásamt Francescu. Frumsýning | Voksne mennesker Vaxið úr grasi í borginni Politiken Berlingske Tidende

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.