Morgunblaðið - 27.05.2005, Síða 57

Morgunblaðið - 27.05.2005, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 2005 57 FYRIR síðustu jól gaf hljómsveitin Á móti sól út tökulagaplötuna 12 ís- lensk topplög. Það skipti engum tog- um að platan sú seldist á örskammri stundu í 8.000 eintökum og varð mest selda plata sveitarinnar frá upphafi. Platan þar á undan, Fiðrildi, sem út kom vorið 2003, gekk þó líka harla vel og seldist í 4.500 eintökum. 12 íslensk topplög var sú fimmta á ferli sveitarinnar sem hefur nú verið starfandi síðan 1995 og mun því fagna tíu ára starfsafmæli í haust. Sjötta plata sveitarinnar kemur svo út í dag og kallast hún Hin 12 topplögin. Eins og nafnið gefur til kynna lýtur hún sömu lögmálum og síðasta verk en af lögum sem hana prýða má nefna „Þú og ég“, „ Þrisvar í viku“, „Bíólagið“, „Fyrsti kossinn“ og „Hjálpaðu mér upp“. Heimir Eyvindarson, hljómborðsleikari sveitarinnar, segir aðspurður að lögin hafi ekki verið tekið upp á sama tíma og fyrir hina plötuna en oft er það svo að „fram- haldsplötur“ eru gefnar út vegna gríðarlegra vinnuaf- kasta á einhverju tímabili (Amnesiac með Radiohead, Reload með Metallica t.d.). „Nei, við tókum nú bara upp fimmtán lög fyrir síðustu plötu,“ segir Heimir. „Við ætluðum ekkert að gera meira. En tilurð þessarar plötu er m.a. vegna þess að við ætluðum að spara við okkur hress partílög á síðustu plötu. En grínuðumst svo með það að gefa út plötuna 12 íslensk partílög í sumar.“ Liverpool og kommúnismi Heimir segir að vinnan við síðustu plötu hafi verið mjög skemmtileg en þeir hafi þó verið efins lengi vel um hvort leggja ætti í aðra eins. En svo hafi loks verið ákveðið að koma þessari „frá“ og það bara sem fyrst. „Og það er svo sem enginn blæbrigðamunur á þessum tveimur plötum. Þetta þróaðist þannig að þessi plata er nákvæmlega eins og hin að upplagi.“ Frumsamin lög hafa verið að fæðast meðfram þessu tökulagaæði meðlima. Nokkrir grunnar eru þegar til- búnir og má búast við skífu með slíku efni á næsta ári. Heimir er þó ekki viss að þessum nýju grunnum verði haldið, þeir verði mögulega orðnir úreltir. Heimir hefur hingað til verið höfuð-lagasmiðurinn en hann segir að Magni söngvari sé einnig að koma sterkur inn. Svo virðist sem Á móti sól sé þétt og gott vinaband og Heimir staðfestir það. Það sé vissulega undarlegt að fimm menn geti þolað hver annan, helgi eftir helgi í mörg ár en þetta sé fyrst og síðast svo rosalega gaman að það sé í raun engin leið að hætta eins og segir í laginu. „Við höldum líka allir með Liverpool og það hjálpar mikið,“ segir Heimir. „Og erum auk þess með svipaðar pólitískar skoðanir, hálfgerðir kommúnistar allir. En svo hjálpa góðar viðtökur, eins og við síðustu plötu, alltaf mikið. Þær virkuðu sem eins konar vítamínsprauta á bandið.“ Hinir eiginlegu útgáfutónleikar verða í dag á Rás 2, en á milli kl. 15og 16 mun sveitin leika lög af plötunni. Svo verða tónleikar á Players í kvöld og á Gauknum á morg- un. Tónlist | Á móti sól gefur út Hin 12 topplögin Þetta eru toppmenn Á móti sól: Annar skammtur af íslenskum topplögum kemur í búðirnar í dag. Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is www.amotisol.is UPPSELT er á tónleika Bubba Morthens sem verða í Þjóðleik- húsinu 6. júní næstkomandi. Hefur því verið ákveðið að bæta við öðrum tónleikum daginn eft- ir. Tónleikarnir eru haldnir í til- efni af tuttugu og fimm ára starfsafmæli tónlistarmannsins og mun Bubbi fara í gegnum feril sinn ásamt hljómsveit undir stjórn Eyþórs Gunnarssonar. Auk tónleikanna gefur Bubbi út tvær nýjar plötur á afmælisdag- inn, Ást og Í sex skrefa fjarlægð frá paradís. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem íslenskur tón- listarmaður gefur samdægurs út tvær sjálfstæðar plötur. Miðasala er hafin í Þjóðleik- húsinu á seinni tónleikana sem verða 7. júní. Miðaverð er 2.900 krónur. Bubbi í sjónvarpsþættinum Á líðandi stundu. Aukatónleikar haldnir mbl.issmáauglýsingar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.