Morgunblaðið - 27.05.2005, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 2005 61
AKUREYRI KEFLAVÍKKRINGLANÁLFABAKKI
Sýningatímar 27. maí
HOUSE OF WAX kl. 3.45 - 6 - 8.15 - 10.30 B.i. 16
HOUSE OF WAX VIP kl. 3.45 - 6 - 8.15 - 10.30 B.i. 16
CRASH kl. 6 - 8.15 - 10.30 B.i. 16
HITCHHIKER´S GUIDE... kl. 3.45 - 6 - 8.15 - 10.30
THE WEDDING DATE kl. 4 - 6 - 8 - 10
HOUSE OF WAX kl. 3.30-5.45-8-9.15-10.20-11.30 B.i. 16
THE WEDDING DATE kl. 5 - 7 - 8
HITCHHIKER´S GUIDE... kl. 10
THE ICE PRINCESS kl. 4 - 6
HOUSE OF WAX kl. 8 - 10
THE WEDDING DATE kl. 8
HITCHHIKER´S GUIDE... kl. 10
THE ICE PRINCESS kl. 6
SVAMPUR SVEINSSON kl. 6
House of Wax
kl. 5.50 - 8 - 10.10
Star Wars - Episode III
kl. 5 - 8 - 10.45
THE JACKET kl. 10.30 B.i. 16
SAHARA kl. 6 - 8.15
SVAMPUR SVEINSSON m/ísl.tali. kl. 4
THE PACIFIER kl. 4 H Á D E G I S B Í Ó 400 KR MIÐAVERÐ Á ALLAR MYNDIR KL.12 Á SUNNUDAGINN Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI
ELISHA
CUTHBERT
CHAD MICHAEL
MURRAY
BRIAN
VAN HOLT
PARIS
HILTON
JARED
PADALECKI
RAGNHILDUR Óskarsdóttir, sem fæddist í
Reykjavík árið 1940 og gekk ávallt undir nafn-
inu Róska, lifði róttækara og óvenjulegra lífi en
þekktist á þeim tíma og í því samfélagi sem hún
er sprottin úr. Þessi hæfileikaríka lista- og hug-
sjónakona fór sínar eigin leiðir bæði í lífi sínu og
list, og bjó stóran hluta ævi sinnar í Róm þar
sem heimili (og önnur aðsetur) hennar og lífs-
förunautarins Manricos Pavolettoni urðu að
opnum vettvangi fyrir samskipti listamanna og
pólitísks hugsjónafólks sem hafnaði borg-
aralegum gildum og vildi umskapa heiminn í
réttlátari mynd. Róska var jafnframt hluti af
umbyltingarafli SÚM-hreyfingarinnar, en
greindi sig um leið sterklega frá samferðafólki
sínu með því að skapa sér mjög persónulega og
síðar harðpólitíska rödd í listsköpun sinni.
Ný heimildamynd kvikmyndaleikstjórans
Ásthildar Kjartansdóttur og meðhandritshöf-
undarins Lóu Aldísardóttur veitir áhrifaríka
innsýn í líf og hugarheim Rósku. Í myndinni er
tekin sú stefna að fjalla um manneskjuna Rósku
fremur en t.d. „listmálarann“ Rósku, enda er
vart hægt að finna skýrara dæmi um mann-
eskju sem lifði lífi sínu í þágu listarinnar, sköp-
unarinnar og hugsjónanna en hana. Hún skilur
eftir sig sögu sem er uppfull af fegurð og ljót-
leika, ást og öfgum, ósveigjanlegum hugsjónum
og ef til vill óumflýjanlegu skipbroti. Í viðleitni
sinni við að segja þessa sögu leggja þær Ást-
hildur og Lóa upp í eins konar ævintýraleit,
bæði um slóðir Rósku á Íslandi og Ítalíu, og um
þá slóð sem hún skilur eftir sig í listaverkum og
minningum fólks sem kynntist henni.
Kortlagningin á æviferlinum er ekki upptekin
af smáatriðum heldur er smám saman byggð
upp sterk mósaíkmynd sem spannar vítt svið,
og rekur ævi- og listferilinn í heild. Í stað þess
að setja myndina saman úr fullunnum viðtölum
við „talandi“ hausa er gengið um götur, heim-
ilisföng og dyrabjöllur leituð uppi, gömul skjöl
grafin upp og fylgst með því þegar ítalskur vin-
ur Rósku og Manricos hringir til að „redda“
leyfi til að taka upp á tilteknum stað. Rætt er við
fólk sem þekkti Rósku bæði í æsku og síðar á
ævi hennar, á Íslandi og ekki síst Ítalíu, en tíma-
bilið sem hún dvaldi þar skipar veigamikinn
sess í myndinni. Það er áhugavert að fá innsýn í
þær róttæku hugmyndalegu hræringar sem
Róska var hluti af á Ítalíu, og mótuðu listsköpun
hennar og ekki síst kvikmyndagerð á sjöunda
og áttunda áratugnum. Frásagnir viðmælend-
anna eiga það sameiginlegt að vera einlægar og
ævintýralegar, sumir fyllast skáldlegum inn-
blæstri þegar þeir minnast Rósku („Róska
minnti mig á eldfjallaeyjuna. Hún brosti þann-
ig“) og aðrir draga upp skrautlega mynd af því
hvernig lífinu var háttað í kommúnunum á Ítal-
íu, þar sem hversdagsleikinn vék fyrir lífs-
nautnum og eftirfylgni við pólitískar hugsjónir.
Listaverkum eftir Rósku, einkum lýrískum
og persónulegum teikningum hennar og mál-
verkum, er skotið inn í frásögnina á einkar
næman hátt, þannig að ekki þarf sérstakrar
túlkunar við, innsýnin sem veitt er í líf og hug-
myndaheim Rósku í samspili við myndirnar tal-
ar sínu máli. Gjörningur sem Róska flutti á Ný-
listasafninu árið 1996 og fól í sér uppgjör
listakonunnar við eigið líf fær sérstaka athygli í
myndinni, en hann verður að nokkurs konar
leiðarstefi sem kallast á við það endurlit yfir
liðna ævi sem heimildamyndargerðin óhjá-
kvæmilega er. Með því að byrja og enda á
gjörningnum, þar sem Róska athafnar sig innan
um tómar vínflöskur, er vikið að skugganum
sem vofði yfir í lífi Rósku, vímuefnaneyslunni og
veikindunum sem stuðluðu að því að hún lést
langt fyrir aldur fram, tveimur vikum eftir að
hún flutti gjörninginn.
Eins og Ásthildur Kjartansdóttir benti á í
umræðum að frumsýningu myndarinnar lokinni
er aldrei hægt að finna hina einu réttu nálgun í
ævisögulegri heimildamynd, og ekki hægt að
líta á afraksturinn sem annað en tiltekna mynd
sem brugðið er upp af viðfangsefninu. Sú mynd
sem hér kemur fram er frjálsleg og opin, laus
við upphafningu en um leið svo næm og skap-
andi að manni finnst eins og kjarni Rósku nái að
skína í gegn.
Líf og list Rósku
KVIKMYNDIR
Tjarnarbíó – Reykjavík Shorts & Docs
Stjórnandi: Ásthildur Kjartansdóttir. Handrit: Ást-
hildur Kjartansdóttir og Lóa Aldísardóttir. Heim-
ildarmynd, 80 mín. Litla gula hænan, 2005.
Róska Heimildarmynd Ásthildar Kjartansdóttur og
meðhandritshöfundarins Lóu Aldísardóttur
„veitir áhrifaríka innsýn í líf og hugarheim
Rósku“, segir í dómi um myndina.
Heiða Jóhannsdóttir
MYNDBANDIÐ við lag Emilíönu Torr-
ini „Sunnyroad“ hefur verið tilnefnt til
verðlauna á CADS05 verðlaunahátíð-
inni sem haldin verður 1. júní. Mynd-
bandið er tilnefnt í flokknum besta
teikning í myndbandi. Þessi hátíð mið-
ar að því að verðlauna það sem fram
úr hefur skarað á sviði sköpunar og
hönnunar í gerð kynningarefnis á tón-
list en CAD stendur fyrir „Creative
and Design Awards“. Eru þar m.a.
veitt verðlaun fyrir kvikmyndatöku,
framleiðslu, leikmynd, búninga, klipp-
ingu og leikstjórn á tónlistarmynd-
böndum auk hönnunar á umbúðum og
öðru kynningarefni.
Emelíana er um þessar mundir á
tónleikaferðalagi og leikur m.a. á
nokkrum tónlistarhátíðum í sumar m.a.
í Írlandi. Nú síðast var tilkynnt að hún
mundi koma fram á Orange Music Ex-
perience tónlistarhátíðinni í Ísrael. Há-
tíðin fer fram við Haifa-höfnina í Jerú-
salem dagana 28.–30. júní en auk
Emelíönu koma fram Keith Emerson,
Bjorn Again, Faithless, Earth Wind
and Fire og Stereo MCs.
Morgunblaðið/Golli
Emilíana gerir víðreist um þessar mundir.
Myndband
Emilíönu
tilnefnt til
verðlauna
Grínleikarinn Eddie Murphy og AdamSandler verða meðal leikenda í næstu
mynd Quentins Tarantinos. Ekki verður þó
um grínmynd að ræða heldur stríðsmynd,
sem gerist í seinni heimsstyrjöldinni og
mun heita Inglorious Bastards. Einnig leika
stór hlutverk í myndinni
nokkrir af hirðleikurum Tar-
antinos, þ. á m. Tim Roth og
Michael Madsen en báðir léku
þeir í fyrstu mynd hans Re-
servoir Dogs, Roth lék einnig í
Pulp Fiction og Madsen í Kill
Bill-myndunum. Tarantino er búinn að
skrifa handritið en tökur á myndinni eru
ekki enn hafnar. Gert er ráð fyrir að mynd-
in verði frumsýnd á næsta ári.
Einn virtasti kvikmyndaframleiðandisamtímans, hinn indverskættaði Ismail
Merchant er látinn, 68 ára gamall. Merch-
ant framleiddi flestar myndir breska kvik-
myndagerðarmannsins James Ivory en sam-
an gerðu þeir fjölda margverðlaunaðra
mynda, unnu m.a. til 6 Óskarsverðlauna, en
kunnar Merchant-Ivory-myndir, eins og
þær eru jafnan kallaðar, eru A Room with
A View, Howards End og Remains of the
Day.
Fólk folk@mbl.is