Morgunblaðið - 19.06.2005, Side 2
2 SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Galdrastelpurnar
forsagan
edda.is
KILJA Á
GÓÐU
VERÐI!
Nú geta aðdáendur
Galdrastelpnanna lesið
meira um ævintýri
þeirra frá upphafi.
Hliðin tólf - bók 2 af 3
komin í verslanir.
Ekki missa af
upphafinu - fylgist
með Galdrastelpunum!
STJÓRNSÝSLAN SKOÐUÐ
Halldór Ásgrímsson forsætisráð-
herra segir að hefjast beri handa við
endurskoðun á skipulagi stjórnsýsl-
unnar og skipan ráðuneyta. Þetta
kom fram í þjóðhátíðarræðu for-
sætisráðherra. Halldór sagði tíma-
bært að huga að endurskoðun á
skipulagi stjórnsýslunnar, gera hana
markvissari og meira í takt við tím-
ann. Forsætisráðherra vék einnig að
samfélagslegri ábyrgð fyrirtækja,
sagði frelsinu fylgja ábyrgð og
skyldur, og í litlu þjóðfélagi væri
sérstaklega mikilvægt að hinir
stærri axli samfélagslega ábyrgð
sína, svo hinir minni fái notið sín í
ríkari mæli.
Kreppa í ESB
Leiðtogar helstu ríkja Evrópu-
sambandsins kenna hver öðrum um
að ekki náðist samkomulag á leið-
togafundinum á föstudag um fjárlög
sambandsins fyrir tímabilið 2007-
2013. Er rætt um að sambandið sé í
mikilli kreppu. Bretar neita að láta
af hendi afslátt sem þeir hafa lengi
fengið af sameiginlegum greiðslum
ESB nema gerð verði uppstokkun á
fjárlögunum og landbúnaðarstyrkir
lækkaðir. Leiðtogar Frakka og
Þjóðverja segja Breta láta eigingirni
ráða ferðinni.
Kosningaréttur í 90 ár
Níutíu ár eru liðin frá því að konur
fengu kosningarétt og kjörgengi til
Alþingis. Níu stofnanir og samtök
kvenna standa að hátíðar- og bar-
áttudagskrá á Þingvöllum í dag.
Kosningaþátttaka kvenna hefur vax-
ið jafnt og þétt, og í síðustu þremur
alþingiskosningum hefur þátttaka
kvenna verið örlítið meiri en karla.
Tveir létust í umferðarslysi
Tveir piltar, 15 og 18 ára, létust í
umferðarslysi í Öxnadal aðfaranótt
laugardags. Fjórir voru í bílnum, og
voru piltarnir tveir úrskurðaðir látn-
ir á vettvangi. Annar þeirra sem
lifðu af slapp með minniháttar
meiðsli, en hinum er haldið sofandi í
öndunarvél. Tildrög slyssins eru í
rannsókn hjá lögreglu.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Hugvekja 42
Ummælin 21 Myndasögur 48
Þjóðlífsþankar 23 Dagbók 48/51
Menning 32, 51/57 Víkverji 48
Stangveiði 25 Staður og stund 50
Forystugrein 32 Leikhús 52
Reykjavíkurbréf 30 Bíó 54/57
Sjónspegill 32 Sjónvarp 58
Umræðan 34/36 Staksteinar 59
Minningar 42/45 Veður 59
* * *
Kynning – Morgunblaðinu í dag fylgir
tímaritið 19. júní.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
YFIR helmingur þeirra sem útskrifast úr vímu-
efnameðferð frá meðferðarheimilinu í Krýsuvík
nær að vera án vímuefna í eitt ár og um fjórðungur
þeirra nær að lifa án vímuefna í fimm ár eða meira.
Þá telja þeir sem hafa dvalið í meðferðinni í
Krýsuvík líf sitt og líðan hafa batnað til muna auk
þess sem félagsleg staða þeirra sem útskrifast er
mun betri en áður. Þetta kemur fram í nýrri rann-
sókn á gagnsemi meðferðar hjá Krýsuvíkursam-
tökunum, sem Björk Ólafsdóttir og Sigríður Sig-
urðardóttir, meistaranemar í matsfræðum, unnu
fyrir samtökin árið 2004.
Í Krýsuvík er lögð áhersla á hjálp til sjálfs-
hjálpar fyrir langt leidda vímuefnaneytendur sem
ekki hafa náð árangri á hefðbundnum meðferð-
arstofnunum. Meðferðartíminn byggir á einstak-
lingsbundinni langtímameðferð þar sem lág-
marksdvöl er sex mánuðir.
Alls luku um 17,2% þeirra sem innrituðust í
meðferð í Krýsuvík meðferðartímanum og útskrif-
uðust. Þrátt fyrir að þessi tala virðist lág kemur
fram í rannsókninni að brottfall er minna í Krýsu-
vík en hjá sambærilegum meðferðarsamfélögum
erlendis. Erlendar rannsóknir hafa sýnt að um
75% þeirra sem innritast hætta innan þriggja
mánaða, en í Krýsuvík er þetta sama hlutfall ein-
ungis 66,7%.
Rannsóknin sýndi ennfremur fram á að sköpum
skipti að ljúka meðferðinni, enda voru einstakling-
ar sem luku henni margfalt líklegri til að halda sig
frá fíkniefnum en þeir sem hættu snemma.
Virðist henta körlum betur
Meðferðin í Krýsuvík virðist samkvæmt rann-
sókninni henta körlum betur en konum, en hærra
hlutfall kvenna hætti í meðferð eftir innan við
þriggja mánaða dvöl.
Björk Ólafsdóttir, annar rannsakenda, segir
samanburð við aðrar meðferðarstofnanir hér á
landi erfiðan, þar sem gögn og rannsóknir liggi
ekki fyrir. Segir hún það vera mikilvægt að koma á
samræmdu matskerfi á árangri og bakgrunnsupp-
lýsingum meðferðarstofnana. „Það eru líka mis-
langt leiddir vímuefnaneytendur á þessum með-
ferðarstofnunum,“ segir Björk.
„Þannig getur verið að meðferðarstofnanir sem
eru með afar langt leidda vímuefnaneytendur nái
ekki sama árangri og þær sem fást við þá sem
styttra eru leiddir. Það eru mjög ólíkar einstak-
lingsbundnar forsendur og fólk er mislasið. Þess
vegna þurfa að liggja fyrir miklar upplýsingar um
ástand skjólstæðinganna til að hægt sé að bera
þetta betur saman.“
Sigurlína Davíðsdóttir, lektor í uppeldis- og
menntunarfræði við HÍ og formaður Krýsuvík-
ursamtakanna, sem reka meðferðarheimilið að
Krýsuvík, segir niðurstöður skýrslunnar afar
ánægjulegar. „Við þóttumst vita að það væri góð-
ur árangur hjá þeim sem næðu því að útskrifast,
en við höfðum ekkert til að staðfesta það,“ segir
Sigurlína. „Þessi skýrsla staðfestir það sem við
höfðum vonað, en reyndar þorðum við ekki að
vona að árangurinn væri eins góður og fram kom í
skýrslunni.“
Engin leið að vefengja niðurstöðurnar
Sigurlína segir rannsóknina hafa verið afskap-
lega vel gerða og rannsakendurna hafa haldið
áfram að reyna að ná í fólk, þar til þeir voru búnir
að ná í um 90% allra sem höfðu komið í meðferð í
Krýsuvík. „Svo það er engin leið að vefengja nið-
urstöðurnar,“ segir Sigurlína. „Okkur finnst þessi
rannsókn góður grunnur til að byggja á áfram. Við
erum ánægð með að sjá hversu góður árangur
starfsins er.“
Ný skýrsla sýnir fram á góðan árangur meðferðarstarfs í Krýsuvík
Líf og líðan batnaði til muna
Eftir Svavar Knút Kristinsson
svavar@mbl.is
HJÁLPSEMIN kom upp á röngum
tíma hjá félaga manns sem lögregla í
Reykjavík hafði handtekið í fyrrinótt
fyrir að hafa ráðist á dyravörð. Þegar
búið var að koma manninum í lög-
reglubíl reyndi félagi hans að frelsa
hann úr haldi og komast inn í lög-
reglubílinn, og lenti fyrir vikið í rysk-
ingum við lögregluþjóna, og var hand-
tekinn fyrir ómakið.
Talsverður erill var hjá lögreglu í
miðborg Reykjavíkur eftir að hátíð-
arhöldum lauk aðfaranótt laugar-
dags, en um 6.000 manns skemmtu
sér þar fram eftir nóttu. Lögreglan
var með töluverðan viðbúnað í mið-
bænum, en varðstjóri segir að ekki
hafi komið upp meira af málum en um
venjulega helgi.
Þrjú önnur líkamsárásarmál komu
til kasta lögreglu, í einu tilvikinu slóg-
ust tveir menn í Austurstræti, og þeg-
ar lögreglumenn reyndu að skilja þá
að réðust félagar annars þeirra að
lögreglumönnunum. Þeir voru að
sögn varðstjóra í nokkurri hættu en
þurftu ekki að beita varnarúða. Annar
þeirra sem flugust á var handtekinn,
en aðallega til að koma honum undan.
Engin stórvægileg meiðsl
Tilkynnt var um hópslagsmál á
skemmtistað um kl. 1 um nóttina, en
þegar lögregla kom á staðinn voru að-
eins tveir menn í átökum, og voru þeir
skildir að. Samkvæmt upplýsingum
lögreglu voru engin stórvægileg
meiðsl eftir átök næturinnar í miðbæ
Reykjavíkur.
Að sögn vakthafandi læknis á
bráðamóttöku Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss í Fossvogi hefur verið
mikill erill undanfarnar nætur, mun
meiri en um venjulegar helgar.
Reyndi að frelsa
félaga sinn úr haldi
„BESTA veðrið á Þjóðhátíðardegi
Íslendinga var að þessu sinni suð-
vestanlands þar sem léttskýjað var
á öllu suðvesturhorninu,“ segir Ás-
dís Auðunsdóttir, veðurfræðingur á
Veðurstofu Íslands. Hátt í 50.000
manns voru samankomin í miðborg
Reykjavíkur þegar mest var á
þjóðhátíð.
En þó veðrið hafi leikið við höfuð-
borgarbúa á þjóðhátíðardeginum
og blíða verið víðast um sunnan- og
vestanvert landið var það ekki jafn
gott fyrir norðan því þar var skýjað
og sums staðar súld. Segir Ásdís há-
markshita á Norðurlandi hafa verið
9 stig á Akureyri, á Austurlandi fór
hitinn mest í 16 stig í Papey, en á
Hallormsstað var hitinn 15 gráður.
Á Suðurlandi mældist hámarkshit-
inn 19 stig á Kirkjubæjarklaustri. Í
Reykjavík var 16 stigi hiti á hádegi,
en mestur varð hitinn í borginni
17,4 gráður um miðjan dag. Telja
menn að hér sé um heitasta þjóðhá-
tíðardag í Reykjavík að ræða frá
lýðveldisstofnun.
Samkvæmt upplýsingum á
www.vedur.is þarf að fara aftur til
ársins 1911 til þess að finna álíka
hita í borginni, en þá mældist 15
gráða hiti á hádegi. Kaldasti
þjóðhátíðardagur í borginni hefur
að öllum líkindum verið árið 1959
þegar ekki mældist nema 5 stiga
hiti í Reykjavík á hádegi.
Morgunblaðið/Þorkell
Þessi ungi fimleikadrengur tókst hátt á loft í Hallargarðinum á þjóðhátíð
en þar sýndu meðlimir í fimleikadeild Ármanns listir sínar í góða veðrinu.
Veðursæld suðvestanlands
TVEIR menn um tvítugt rændu
nokkru af lyfseðilsskyldum lyfjum í
lyfjaversluninni Lyfjum og heilsu við
Háaleitisbraut um kl. 18 sl. föstudag.
Mennirnir voru með trefla fyrir vit-
um og ógnuðu starfsfólki með
sprautunálum. Þeir komust undan á
hlaupum með tíu pakka af rítalíni og
morfínskyldum lyfjum, að sögn lög-
reglunnar. Mennirnir voru ekki
fundnir þegar blaðið fór í prentun,
en málið er í rannsókn.
Ógnuðu með
sprautunálum
HÓPSLAGSMÁL brutust út á Ráð-
hústorgi á Akureyri um kl. 4:30 í
fyrrinótt, og börðust þar á þriðja tug
manna að sögn lögreglu. Allt tiltækt
lið var kallað á vettvang, og nutu
lögreglumenn liðsinnis dyravarða af
nálægum skemmtistöðum við að
stöðva slagsmálin. Óljóst er hvert
upphafið að slagsmálunum var, en
að sögn lögreglu byrjuðu þau með
stimpingum sem undu upp á sig og
enduðu í stórátökum. Sex voru
handteknir og færðir á lögreglustöð,
en varðstjóri lögreglu sagði ólíklegt
að eftirmálar verði af þessu atviki,
og enginn mikið lemstraður.
Lögregla handtók einnig mann
með 8 grömm af ætluðu amfetamíni
í fórum sínum.
Hópslagsmál
á Ráðhústorgi