Morgunblaðið - 19.06.2005, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 19.06.2005, Blaðsíða 34
34 SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN w w w . a u s t u r l a n d . i s ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR HJÁ FASTEIGNA- OG SKIPASÖLU AUSTURLANDS EHF. Í SÍMA 580 7905 Karlsstaðir í Berufirði Til sölu er eignarjörðin Karlsstaðir, gegnt Djúpavogi við norðanverðan Berufjörð, um 630 ha að stærð. Ræktuð tún eru um 25 ha. Sérstaklega fallegt landslag er á Karls- stöðum og er fagurt útsýni þaðan. Húsa- kostur er góður, mjög gott einbýlishús frá 1976, eldra íbúðarhús byggt 1927, notað sem sumarhús, bílskúr, fjós, tvö fjárhús ásamt heyhlöðum og geymslu. Enginn full- virðisréttur fylgir þessari jörð en fé var skorið niður vegna ætlaðrar riðu 1989. Nýrri fjárhúsin voru ekki endurnýjuð að innan fyrir sauðfé á ný, þar er núna véla- geymsla og aðstaða fyrir stórgripi. Eldri fjárhús eru óhreinsuð. Gott vatnsból, berjaland, mikil gæs á haustin. Friðlýst æðarvarp, ágæt höfn frá náttúrunnar hendi og falleg fjara. Eftir opinberri skráningu er fasteignamat alls 12.806.000 og brunabótamat alls kr. 52.620.000. Tilboð óskast í þessa eign. Lagarás 4, 700 Egilsstaðir. S. 580 7905 ● Búðareyri 15, 730 Reyðarfjörður. S. 580 7907 Hilmar Gunnlaugsson, lögg.fasteignasali.                ! "#  $%  SUMARHÚS - GRÍMSNES! Fallegt nýbyggt frá grunni sumarhús ásamt 1 hektara eigna- lóðar á þessu friðsæla og eftirsótta landsvæði í Grímsnesi - Svínavatnslandi. Sumarhúsið er með 70 fm. girtri verönd all- an hringinn utan um húsið. Tvö rúmgóð svefnherbergi með fallegum beikiskápum. Baðherbergi sem er sérstaklega rúm- gott. Sturtuklefi, upphengt klósett og innrétting undir vaski og spegill, tengi fyrir þvottavél og 100 lítra vatnstankur inn af baðherbergi. Eldhúsið er opið inn í rúmgóða stofu og er beikiinnrétting. Góð stofa með gluggum á þrjár áttir, halogenlýsing í loftum í stofunni. Eign sem er mjög vönduð ásamt góðri eignalóð. Verðtilboð óskast! Laugarnesvegur Mjög fallegt og mikið end- urnýjað 103 fm einbýlis- hús, kjallari, hæð og ris auk 30 fm sérstæðs bíl- skúrs. Eignin skiptist m.a. í hol, samliggjandi bjartar parketlagðar stofur, eldhús með nýlegum eikarinnrétt- ingum, rúmgott sjónvarps- hol, 3 herbergi og endur- nýjað flísalagt baðherbergi. Gler og gluggar endurnýj- aðir og einnig lagnir. Ræktuð lóð með hellulögn. Laust fljótlega. Verð 27,9 millj. FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/ Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteigna- og skipasali. Stekkjarsel 2 Opið hús frá kl. 14-16 Vandað og vel skipulagt 244 fm einbýlishús á tveimur hæðum með 29 fm innbyggðum bílskúr og aukaíbúð á jarðhæð. Eignin skiptist í forstofu, sjónvarpshol, borðstofu (2 herb. á teikn.), samliggjandi stof- ur með útgangi á hellulagða ver- önd með skjólveggjum, stórt eld- hús með vönduðum eikarinnréttingum og nýjum tækjum, eitt rúmgott herbergi með góðum skápum og flísalagt baðherbergi, þvottaherbergi og geymslu auk 2ja herb. séríbúðar á neðri hæð. Marmaralagður steypt- ur stigi á milli hæða. Falleg ræktuð lóð. Eignin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14-16. Verið velkomin. FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/ Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteigna- og skipasali. Suðurlandsbraut - Til leigu Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast. www.valholl.is Opið virka daga frá kl. 9.00-17.30. Jarðhæð sem er samtals 856 fm en mögulegt er að skipta henni upp í ca. 545 og 311 fm. Mjög góð sameign í snyrtilegu lyftuhúsi. Húsnæðið uppfyllir allar kröfur um nútíma skrifstofurekstur. Hentar vel fyrir hvers konar þjónustu og/eða verslun. Góð aðkoma og næg bílastæði. Húsið er mjög vel staðsett og á áberandi stað. Eigandi er Landsafl sem er sérhæft fasteignafélag. Upplýsingar veitir Magnús Gunnarsson, sími 588 4477 eða 822 8242 ÉG ER áhættufælin, ég er hrædd við að taka ákvarðanir, ég vinn ekki nógu lengi (takið sér- staklega eftir þessu orði lengi), ég vil ekki ábyrgð. Ég hef áhuga á, kílóum, snyrtingu, tísku, fræga fólkinu, kjaftasögum og harmsög- um annarra. Ég þarf að berjast fyrir að njóta virð- ingar og virðingin sú er fallvölt. Ég hef lít- ið sjálfstraust, fæ efa- semdir um leið og einhver setur út á eitthvað sem ég geri … ég er… kona! Ég er snöggur að taka ákvarðanir, ég eyði tíma mínum í að- alatriði og sleppi smáatriðum, ég vinn lengi, ég sækist eftir ábyrgð. Ég hef áhuga á viðskiptum og póli- tík, þá sérstaklega efnahags- málum. Ég er frábær! Um leið og ég fór að ganga í jakkafötum á hverjum degi aðeins 25 ára gamall bugtar samfélagið sig og beygir fyrir öllu sem frá mér kemur. Ég nýt virðingar og veit það. Ég er fullur sjálfstrausts. … ég er … karl! Karlar vita sannleikann – um leið og þeir eru komnir í jakkaföt- in. Konur þurfa að láta segja sér allt hvort sem þær eru í drögtum eða ekki. Þær fara á námskeið til að læra hvernig á að fá fullnægingu, hvernig á að snyrta sig, hvernig á að léttast, hvernig á að matreiða fyrir sykursjúka eiginmenn sína, hvernig á að ala upp börnin, hvernig á að leggja saman og draga frá, hvernig á að ná árangri í starfi, hvernig á að samræma vinnu og fjölskyldulíf, hvernig á að vera hamingjusamur, hvernig á að… Karlar eru uppteknir af fót- bolta, veiðiskap, horfa á fallegar konur, því að hafa gaman saman. Slaka á og njóta þess að vera til. Konur eru uppteknar af því að láta enda ná saman, af því hvað á að hafa í matinn í kvöld, drengn- um sem á eftir að læra fyrir morgundaginn, hvar þær eiga að koma líkamsræktinni fyrir, hvað yfirmaðurinn segi þegar þær skreppa úr vinnunni til að komast til sjúkraþjálfara. Karlar eru ánægðir með um- ræðuna og áherslurnar. Þeir sjá ekkert athugavert við það þó ein- ungis þeirra sjónarhorn komi fram. Þeirra sjónarhorn er hvort eð er sannleikurinn. Þeir eru margir hverjir farnir að þekkja hver annan. Þegar þeir mæta í þátt hvort sem er í útvarpi eða sjónvarpi hitta þeir félaga sína úr Versló eða KR nema hvort tveggja sé og eru góðir. Þeir skilja ekki þetta nöldur kvenna um að þeirra sjónarhorn vanti inn í umræðuna. Konur eru óánægð- ar með umræðuna og áherslurnar. Á sama tíma gerast þær sér- stakir málsvarar karla. Það getur ekk- ert hræðilegra gerst en að ein kona sé tek- in fram yfir einn karl einungis vegna þess að hún er kona. Karl- ar eru alltaf hæfastir til að gegna þeim stöðum sem þeir fá. Það er ekki fyrr en stöðuveitingin á við konu sem það er ástæða til að hafa uppi hávaða í málinu. Já konur eru aldrei sann- færðari og öruggari með sig en þegar þær taka að sér það hlut- verk að vera sérstakir málsvarar karla – þá eru þær á heimavelli. Þá eru þær fullar sjálfstrausts – enda ekki nema von – þær eru í hlut- verki sem þær þekkja í gegnum aldirnar. Konur sem skipta um skoðun eru svikarar. Karlar sem skipta um skoðun höfðu ekki aðra skoðun áður, a.m.k. tekur enginn eftir því að þeir skipta um skoðun. Konur sem vilja fá titil í starfi eru spurðar hvort þær séu svona hrifnar af titlatogi. Karlar sem vilja titil í starfi eru ekki spurðir neins. Kona sem býr ein og slær ekki garðinn er ekki hæf til sambýlis við aðra. Karl sem býr einn og slær ekki garðinn hefur alltaf svo mikið að gera greyið að hann bara má ekki vera að því. Karl sem býr einn með barn er ótrúlega duglegur og vekur að- dáun samfélagsins. Kona sem býr ein með barn er byrði á samfélaginu. Giftur karlmaður er fyrirvinna og þarf góð laun til að framfleyta sér og sínum. Gift kona þarf ekki há laun því hún á mann sem sér fyrir henni og börnunum. Karlar eru fylgnir sér og ákveðnir. Konur eru frekjur. Konur sem gagnrýna það sem er eru neikvæðar. Karlar sem gagnrýna það sem er eru framsýnir. Konur sem sofa hjá mörgum körlum eru druslur. Karlar sem sofa hjá mörgum konum eru upp á kvenhöndina. Á undanförnum vikum hafa ýmsir velt því fyrir sér af hverju miklu færri konur eru í stjórn- unarstöðum en karlar, af hverju konur fá að jafnaði lægri laun en karlar, o.s.frv., o.s.frv. Menn leita skýringa og velta upp hinum ýmsu ástæðum þess að staðan í sam- félaginu er eins og hún er. Stund- um hef ég reiðst, stundum hef ég lúmskt gaman að og hlæ að öllu saman, stundum fell ég í þung- lyndi yfir hversu stutt á veg við erum komin. Eitt er ég sannfærð um – við getum leitað skýringa, fundið ástæður fyrir öllu. En það er ekki endilega víst að þær skýr- ingar eða ástæður leiði sannleik- ann í ljós. Fyrir mér er sannleik- urinn ljós. Fyrir mér er þetta svona einfalt. Samfélagið allt, kon- ur og karlar líta kynin mismun- andi augum: Karlar njóta virðingar. Konur ekki. Til hamingju með daginn konur! Ég er … kona Signý Sigurðardóttir fjallar um staðlaðar karl- og kvenímyndir ’Samfélagið allt, konurog karlar líta kynin mis- munandi augum: Karlar njóta virðingar. Konur ekki.‘ Signý Sigurðardóttir Höfundur er sannfærður jafnréttis- sinni í fjóra áratugi. Sturla Kristjánsson: Bráðger börn í búrum eða á afgirtu svæði munu naumast sýna getu sína í verki; þeim er það fyrirmunað og þau munu trú- lega aldrei ná þeim greind- arþroska sem líffræðileg hönnun þeirra gaf fyrirheit um. Kristján Guðmundsson: Því miður eru umræddar reglur nr. 122/2004 sundurtættar af óskýru orðalagi og í sumum tilvikum óskiljanlegar. Sigurjón Bjarnason gerir grein fyrir og metur stöðu og áhrif þeirra opinberu stofn- ana, sem heyra undir sam- keppnislög, hvern vanda þær eiga við að glíma og leitar lausna á honum. Þorsteinn H. Gunnarsson: Nauðsynlegt er að ræða þessi mál með heildaryfirsýn og dýpka umræðuna og ná um þessi málefni sátt og með hagsmuni allra að leiðarljósi, bæði núverandi bænda og fyrrverandi. Dr. Sigríður Halldórsdóttir: Skerum upp herör gegn heim- ilisofbeldi og kortleggjum þennan falda glæp og ræðum vandamálið í hel. Svava Björnsdóttir: Til þess að minnka kynferðisofbeldi þurfa landsmenn að fyr- irbyggja að það gerist. For- varnir gerast með fræðslu al- mennings. Jóhann J. Ólafsson: „Lýð- ræðisþróun á Íslandi hefur, þrátt fyrir allt, verið til fyr- irmyndar og á að vera það áfram.“ Pétur Steinn Guðmundsson: „Þær hömlur sem settar eru á bílaleigur eru ekki í neinu samræmi við áður gefnar yf- irlýsingar framkvæmdavalds- ins, um að skapa betra um- hverfi fyrir bílaleigurnar.“ Aðsendar greinar á mbl.is www.mbl.is/greinar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.