Morgunblaðið - 19.06.2005, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 19.06.2005, Blaðsíða 24
24 SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ Kristinn Ingvarsson hlaut B.A. gráðu í ljósmyndun frá Har-row College of Higher Education í London árið 1989 og eruelstu myndirnar frá þeim tíma, af bresku aðalsfólki. Hannstarfaði sem ljósmyndari á Þjóðviljanum á árunum 1989 til 1992, og hefur verið ljósmyndari á Morgunblaðinu síðan. Í grein um ljósmyndarann í sýningarskránni segir Gunnar Her- sveinn, blaðamaður og heimspekingur: „Hver mynd er á einhvern hátt samvinna milli ljósmyndarans og myndefnis. Það er líkt og áhorfendur komist örlítið nær þessum persónum. Margir þekkja stakar ljósmyndir Kristins en með því að safna úrvali af þeim saman birtist ný og óvænt mynd. Þessar ljósmyndir af samtíðarmönnum eru fjársjóður fyrir framtíðina. Þær hafa sögulegt gildi en standa einnig hver fyrir sig sem sjálfstætt verk. Höfundur Kristinn er höfundur, hann starfar sem höfundur, en ekki aðeins sem miðill. Kristinn er ljósmyndari, hann semur myndir. Hann er ekki aðeins speglun eða samsafn sjónarmiða. Hann er ekki endur- myndun á túlkun annarra, heldur leggur hann eitthvað til, bætir við, endurtúlkar, varpar á öðru ljósi. Fullyrða má að Kristinn býr yfir næmu auga og frjóum huga. Iðu- lega kemur hann bæði samstarfsmönnum sínum og myndefnum á óvart, vegna þess að myndirnar fanga sýn sem aðeins hann kom auga á. Kristinn semur myndir úr ljósi, fólki, pappír og aðstæðum, og býr til myndir úr höfuðskepnum, tilfinningum og skuggum, myndir af eigin hugmyndum og túlkun. Hann gerir sér þó engar grillur um að hann geti sýnt heiminn eins og hann er, sú hugmynd er blekking … Persónurnar sem eru myndaðar þurfa að taka áhættu, því þær fá það sem ljósmyndarinn sér. Portrettið getur jafnvel gefið myndefn- inu nýja hugmynd um sjálft sig.“ Myndir úr ljósi, fólki, pappír og aðstæðum ’Þessar ljósmyndir af samtíðarmönnum eru fjár-sjóður fyrir framtíðina. Þær hafa sögulegt gildi en standa einnig hver fyrir sig sem sjálfstætt verk.‘ Skuggaföll, sýning á svarthvítum portrettum Krist- ins Ingvarssonar ljósmyndara Morgunblaðsins, var opnuð í Þjóðminjasafninu í vikunni. Þar eru mynd- ir af misfrægu fólki, lávarðar jafnt sem listamenn. Baltasar Samper myndlistarmaður, 1992. Louisa Matthíasdóttir, listmálari, 1993. Jarlinn af Longford, 1989. Sjón, rithöfundur, 2003. Thor Vilhjálmsson, rithöfundur, 1998. Kjartan Ragnarsson, leikstjóri, 1993.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.