Morgunblaðið - 19.06.2005, Qupperneq 24
24 SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Kristinn Ingvarsson hlaut B.A. gráðu í ljósmyndun frá Har-row College of Higher Education í London árið 1989 og eruelstu myndirnar frá þeim tíma, af bresku aðalsfólki. Hannstarfaði sem ljósmyndari á Þjóðviljanum á árunum 1989 til
1992, og hefur verið ljósmyndari á Morgunblaðinu síðan.
Í grein um ljósmyndarann í sýningarskránni segir Gunnar Her-
sveinn, blaðamaður og heimspekingur: „Hver mynd er á einhvern
hátt samvinna milli ljósmyndarans og myndefnis. Það er líkt og
áhorfendur komist örlítið nær þessum persónum. Margir þekkja
stakar ljósmyndir Kristins en með því að safna úrvali af þeim saman
birtist ný og óvænt mynd. Þessar ljósmyndir af samtíðarmönnum
eru fjársjóður fyrir framtíðina. Þær hafa sögulegt gildi en standa
einnig hver fyrir sig sem sjálfstætt verk.
Höfundur
Kristinn er höfundur, hann starfar sem höfundur, en ekki aðeins
sem miðill. Kristinn er ljósmyndari, hann semur myndir. Hann er
ekki aðeins speglun eða samsafn sjónarmiða. Hann er ekki endur-
myndun á túlkun annarra, heldur leggur hann eitthvað til, bætir við,
endurtúlkar, varpar á öðru ljósi.
Fullyrða má að Kristinn býr yfir næmu auga og frjóum huga. Iðu-
lega kemur hann bæði samstarfsmönnum sínum og myndefnum á
óvart, vegna þess að myndirnar fanga sýn sem aðeins hann kom auga
á. Kristinn semur myndir úr ljósi, fólki, pappír og aðstæðum, og býr
til myndir úr höfuðskepnum, tilfinningum og skuggum, myndir af
eigin hugmyndum og túlkun. Hann gerir sér þó engar grillur um að
hann geti sýnt heiminn eins og hann er, sú hugmynd er blekking …
Persónurnar sem eru myndaðar þurfa að taka áhættu, því þær fá
það sem ljósmyndarinn sér. Portrettið getur jafnvel gefið myndefn-
inu nýja hugmynd um sjálft sig.“
Myndir úr ljósi,
fólki, pappír
og aðstæðum
’Þessar ljósmyndir af samtíðarmönnum eru fjár-sjóður fyrir framtíðina. Þær hafa sögulegt gildi en
standa einnig hver fyrir sig sem sjálfstætt verk.‘
Skuggaföll, sýning á svarthvítum portrettum Krist-
ins Ingvarssonar ljósmyndara Morgunblaðsins, var
opnuð í Þjóðminjasafninu í vikunni. Þar eru mynd-
ir af misfrægu fólki, lávarðar jafnt sem listamenn.
Baltasar Samper myndlistarmaður, 1992. Louisa Matthíasdóttir, listmálari, 1993. Jarlinn af Longford, 1989.
Sjón, rithöfundur, 2003.
Thor Vilhjálmsson, rithöfundur, 1998. Kjartan Ragnarsson, leikstjóri, 1993.