Morgunblaðið - 19.06.2005, Page 45

Morgunblaðið - 19.06.2005, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 2005 45 MINNINGAR Mig langar með örfáum orðum að minnast Sigrúnar systur minnar. Hún kvaddi þennan heim nú í byrjun sumars þegar grasið er að grænka, trén að laufgast og sumarblómin að skarta sínu fegursta. En það er ekki spurt um stund og stað. Skyndilega er ástvinur hrifinn burt úr þessum heimi og honum ætluð önnur verk á ókunnum slóðum. Ég bið Guð að geyma þig með eftirfarandi bænar- orðum. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (Matthías Jochumsson.) Valgeir bróðir og fjölskylda. SIGRÚN ERLA GUÐMUNDSDÓTTIR ✝ Sigrún Erla Guð-mundsdóttir fæddist í Reykjavík 20. desember 1953. Hún lést á gjör- gæsludeild Landspít- ala við Hringbraut 4. júní síðastliðinn. Foreldrar hennar eru: Guðmundur H Jónsson, f. 23. janúar 1920, d. 16. febrúar 1984, og Sólborg K Jónsdóttir, f. 29. des- ember 1921. Systkini Sigrúnar Erlu eru María Guðmunds- dóttir, f. 6. desember 1940; Jónína Margrét Guðmundsdóttir, f. 26. október 1944; og Valgeir Ólafur Guðmundsson, f. 7. nóvember 1947. Útför Sigrúnar Erlu fór fram í kyrrþey. Kveðja til litlu systur minnar. Veit náð þinni hugg- un, styrk, líkn og lækn- ingu inn í líf þeirra sem eru sjúk á sál og lík- ama, vitja þeirra sem lifa við brostnar vonir og þeirra sem mæta nýjum degi í sársauka, veit krafti og von inn í líf þeirra, þess biðjum við þig, Drottinn. Hinsta kveðja. Jónína Margrét (Maddý). Með fáeinum orðum langar mig til að kveðja móðursystur mína, hana Sigrúnu Erlu Guðmundsdóttur er varð bráðkvödd hinn 4. júní síðastlið- inn. Ég minnist marga símtala er hún átti við mig um lífið og tilveruna. Hún vildi fylgast úr fjarlægð með fjölskyldu sinni og nánasta frænd- garði því vegna vanheilsu sinnar valdi hún það að vera ein og óáreitt af sínum nánustu, nema að hún kaus að hafa samband til að fá fréttir eða að- stoð við ýmis smám viðvik. Fyrir rúmum 15 árum fluttist hún á Skúlagötuna og bjó sér þar fallegt og snoturt heimili er hún hélt við af kostgæfni og alúð. Það var gott að þiggja kaffi og eða kóksopa á ferðum mínum á Skúlagötuna í ýmsum snún- ingum og stússi fyrir hana frænku, en því miður með árunum fækkaði ferðunum en þrátt fyrir það þá hélst alltaf símasambandið við frænku. Ég veit og finn að söknuður og sorg ömmu minnar er mikil við að horfa eftir yngstu dóttur sinni yfir móðuna miklu, og því bið ég góðan Guð að vaka yfir og veita henni styrk í dótturmissi hennar. En nú er hún frænka farin og komin á betri stað, laus við allt andlegt og líkamlegt böl og hvílist í öruggum faðmi Guð- mundar föður síns. Með þessum orðum kveð ég frænku mína hana Sigrúnu Erlu. Guð geymi þig. Björgvin Björgvinsson. hús. Lóa, elsta dóttir hans, var þá uppkomin og var farin á ballið með einhverjum jafnöldrum sínum. Þeg- ar Alli kom inn heyrði hann að ung- lingarnir voru eitthvað að gantast við Lóu – að ekki mundi nú pabbi hennar láta sig vanta í glauminn. Hann heyrði dóttur sína svara stundarhátt: – Mér er alveg sama hvað þið segið. Áreiðanlega á ekkert ykkar betri pabba en ég. Hver skyldi hafa verið stoltasti faðir á Flateyri það kvöld? Og lífið veltist áfram eins og bátur í stórsjó. Vinir og kunningj- ar Alla héldu því fram að hann hlyti að hafa níu líf eins og kötturinn eða kannski einu fleira. Óteljandi skipti lenti hann í lífsháska og óhöppum. Hann var næstum drukknaður þeg- ar hann var að bjarga bátnum sínum sem var að reka frá höfninni. Öðru sinni strandaði hann. Hann var næstum orðinn úti á Breiðadalsheiði. Hann varð fyrir voðaskoti. En allt svamlaði hann í gegnum. Gamla fólk- ið hefði sagt að hann væri ekki einn í ráðum og líklega hefur það verið svo. Alli hafði líka svokallað sjötta skiln- ingarvit. Hann fann fiskinn eftir sín- um eigin leiðum sem aðrir ekki þekktu. En þetta gat hann ekki nema hann væri einn á sjó. Ég taldi það traustsyfirlýsingu að hann skyldi vera að segja mér, landkrabb- anum, frá þessu. En það var í eina skiptið sem ég heyrði hann nefna Guð. Kannski hefur það verið óvart. Síðari árin urðu Alla rósamari. Hann fluttist þá frá Flateyri til Pat- reksfjarðar, þar sem Lóa og fleiri barna hans bjuggu þá, og keypti litla íbúð af bróður sínum sem aldrei hafði farið langt frá æskustöðvunum. Þar bjó hann um hríð með kettinum Felix og gætti nafna síns og dótt- ursonar eftir því sem hann kom við vegna vinnu. En svo gerðist það sem enginn hafði átt von á. Aftur voraði í lífi Að- alsteins Grétars Guðmundssonar. Hann kynntist konu sem átti eftir að deila með honum ókomnum árum. Guðbjörtu Ásgeirsdóttur – Stellu í Látrum, eins og hún er alltaf kölluð, dóttur Ásgeirs vitavarðar í Látrum sem margir Vestfirðingar þekktu. Stella hafði búið um árabil í Reykja- vík en fluttist heim aftur þegar fjöl- skyldan þarfnaðist hennar. Skömmu eftir að þau Alli kynntust missti hún bæði einkasystur sína og föður sinn. Þá varð Alli stoð hennar við búskap- inn á Látrum. Þarna áttu þau góð ár. Bæði höfðu þau gaman af skepnum og undu vel úti í náttúrunni. Það var gaman að heimsækja þau í sveitina og enginn fór svangur frá Látrum. Stella er allra kvenna gestrisnust og það svo að Alla þótti stundum nóg um, því yfir hásumarið var óstöðv- andi gestagangur og kaffikannan kólnaði ekki allan daginn. Undir niðri mun hann þó hafa kunnað vel að meta höfðingsskap sambýliskonu sinnar. Auðséð var að þau studdu hvort annað. Hún tók símann ef hann vildi hafa frið og ró og kallaði ekki á hann nema um eitthvað nauðsynlegt væri að ræða. Hann leiddi hana ævinlega ef hún þurfti að ganga tröppur eða stiga, en hún hafði skerta sjón. Sam- band þeirra var hlýtt og gott. Enda átti eftir að reyna á það, því nú fór heilsan að bila hjá Alla. Alltof fljótt, fannst okkur vinum hans. Hjartabil- un, sem hann hafði lengi fundið til, ágerðist. Slit og þreyta fóru að segja til sín. Loks greindist hann með krabbamein. Það var erfitt fyrir þennan hrausta mann að verða óvinnufær og síðan sjúklingur. Aftur varð heimili hans á Patreksfirði. Stella annaðist hann með ástúð og umhyggju. Þolinmæði hennar var óþrjótandi. Sjálf var hún alls ekki hraust en harkaði af sér. Fyrir utan gluggann stóð báturinn sem Alli hafði látið draga heim á hlað, svo hann gæti dyttað að honum og haft sálufélag við hann ef einhver daga- munur var á veikindunum. Nú stendur báturinn þar einn og yfirgefinn og kötturinn Gísli leitar árangurslaust að besta vini sínum. Svona er lífið. Við hjónin vottum Stellu og fjöl- skyldunni samúð okkar. Við sam- gleðjumst Alla að vera búinn að taka sín próf í lífsins skóla og eiga óend- anlegt sumar framundan. Ragna Steinunn Eyjólfsdóttir. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, DÓRA F. JÓNSDÓTTIR, Bjarmalandi 13, Reykjavík, andaðist á Grensásdeild Landspítalans fimmtudaginn 16. júní. Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju fimmtu- daginn 23. júní kl. 13.00. Sigurður Sigurðsson, Jón Magni Sigurðsson, Guðjóna Ásgrímsdóttir, Sigurður Pálmi Sigurðsson, Anna Jóna Lýðsdóttir, Guðný Dóra Sigurðardóttir, Gísli Rafn Guðfinnsson, Rannveig Sigurðardóttir, Albert Páll Sigurðsson, Magndís María Sigurðardóttir, Kjartan Steinsson, Ágúst Orri Sigurðsson, Gerður Rún Guðlaugsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur faðir, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, FRIÐRIK FÁFNIR EIRÍKSSON frá Hesti, Ársölum 5, Kópavogi, lést fimmtudaginn 16. júní. Útförin auglýst síðar. Eiríkur V. Friðriksson, Sigríður Súsanna Friðriksdóttir, Kjartan Bragason, Óðinn M. Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. Bróðir okkar, ÓLI ÞÓR INGVARSSON rafvirkjameistari, Álftamýri 40, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi fimmtudaginn 16. júní. Jarðarförin auglýst síðar. Alfreð Þorsteinsson, Ingvar Ingvarsson. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, ALDÍS G. EINARSDÓTTIR, Dalalandi 11, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtu- daginn 16. júní. Jarðarförin fer fram frá Bústaðakirkju föstu- daginn 24. júní kl. 11. Birgir Örn Birgis, Guðrún Hulda Birgis, Kristján Þór Gunnarsson, Birgir Svanur Birgis, Ragnheiður H. Ragnarsdóttir, og barnabörnin. Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, KAREN PETRA J. SNÆDAL frá Eiríksstöðum, Miðvangi 22, Egilsstöðum, sem lést á Sjúkrahúsinu Egilsstöðum þriðju- daginn 14. júní verður jarðsungin frá Egils- staðakirkju fimmtudaginn 23. júní kl. 14.00. Birna Jóhannsdóttir, Ragnar Sigvaldason, Sigrún Jóhannsdóttir, Björgvin Geirsson, Snædís Jóhannsdóttir, Guttormur Metúsalemsson, barnabörn og fjölskyldur. Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgun- blaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda inn minning- ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs- ingum). Skilafrestur Ef birta á minningar- grein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virk- um dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áð- ur en skilafrestur rennur út. Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virð- ingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstandend- ur senda inn. Þar koma fram upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hvenær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætl- ast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feit- letraður, en ekki í minningargrein- unum. Undirskrift Minningargreinahöf- undar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningar- greinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.