Morgunblaðið - 19.06.2005, Page 48

Morgunblaðið - 19.06.2005, Page 48
Mímí og Máni Kalvin & Hobbes HÉR KEMUR SPORT- BÍLLINN Á 200 KÍLÓMETRA HRAÐA! HÉRNA KEMUR STEYPUBÍLLINN! VARIÐ YKKUR!! OG HÉRNA KEMUR FLUTNINGABÍLL FULLUR AF HÆTTULEGUM EITUREFNUM! ÚTKOMAN VERÐUR SKEMMTILEG Risaeðlugrín UMFERÐARSTJÓRI! ... ÞETTA ER HRÆÐILEGT ... ÉG SÉ AÐ HANN ER AÐ GERA GRÍN AÐ MÉR .... OGGGG .... ÉG GET EKKI EINU SINNI SEKTAÐ HANN FYRIR OF HRAÐAN AKSTUR © DARGAUD Dagbók Í dag er sunnudagur 19. júní, 170. dagur ársins 2005 Víkverji sigldi á dög-unum með Nor- rænu frá Seyðisfirði til Danmerkur með viðkomu í Þórshöfn í Færeyjum, Leirvík á Hjaltlandi og Björgvin í Noregi. Í maga Nor- rænu voru mótorhjól Víkverja og tveggja félaga hans. Fámennt var á leiðinni frá Seyð- isfirði til Færeyja en þá fjölgaði farþegum umtalsvert og líf og fjör var í skipinu. x x x Ámeðal þeirra semkomu um borð var færeyska kú- rekafélagið. Meðlimir þess voru klæddir að hætti villta vestursins og settu m.a. upp litla verslun með slík- um fatnaði um borð og komu fyrir ótömdu óðu nauti á efsta þilfari. Það gekk að vísu fyrir rafmagni en var óárennilegt engu að síður. Um kvöldið var síðan mikil skemmtan og dansaður línudans út í eitt. Fær- eyingarnir kunnu sannarlega að skemmta sér, svo ekki sé dýpra í ár- inni tekið, og kögrið sveiflaðist í allar áttir. Þeir tóku nokkuð hressilega á því, eins og sagt er, og voru hinir hressustu en allt fór það þó vel fram. Víkverja varð þó ljóst morguninn eftir að það getur verið hægara sagt en gert að finna káetu sína í endalaus- um ranghölum Nor- rænu á tíunda glasi enda sváfu margir Færeyinganna fasta- svefni í stólum, horn- um og skúmaskotum víða um skipið. Sá sem síðastur kom sér í koju var sofandi á stól þétt við útgöngudyrnar á útsýnisþilfari töluvert fram yfir hádegi þrátt fyrir mikinn umgang. Engin vandræði og óþægindi voru þó vegna þessarar veislu og svefn- venja Færeyinganna en upp í huga Víkverja komu minningar um sveita- böll fyrri áratuga heima á Íslandi. x x x Og rétt eins og Færeyingarnirvoru fjörugir þá ber Þórshöfn fjörleikanum vitni í allri sinni lita- dýrð og fjölbreytileika, með alla vega húsum og götum. Allt öðru var aftur á móti að heilsa þegar lent var í Leirvík á Hjaltlandi í þungskýjuðu veðri og mistri, hvert einasta hús hlaðið úr brúngráleitum múrsteini svo þunglyndislegt var yfir að horfa. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is          Laugardalur | Páll Óskar & Monika munu halda hina árlegu Sólstöðutónleika á Café Flóru, grasagarðinum í Laugardal í kvöld kl. 22.00. Forsala að- göngumiða er í Café Flóru s. 866-3516 og við innganginn á tónleikadegi. Páll Óskar & Monika hófu samstarf sitt árið 2001 og fyrsta afurð þess sam- starfs var geislaplatan „Ef ég sofna ekki í nótt“ og tveimur árum síðar sendu þau frá sér jólaplötuna „Ljósin heima“. Morgunblaðið/Sverrir Sólstöðutónleikar á Café Flóru MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.600 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Þreytumst ekki að gjöra það sem gott er, því að á sínum tíma munum vér uppskera, ef vér gefumst ekki upp. (Gal. 6, 9.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.