Morgunblaðið - 19.06.2005, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 19.06.2005, Blaðsíða 10
10 SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ Níutíu ár eru liðin frá þvíkonur, sem náð höfðufertugsaldri, fengukosningarétt og kjör-gengi til Alþingis. Stjórnarskrárfrumvarp um kosn- ingarétt kvenna var samþykkt á Al- þingi árið 1913. Tveimur árum síðar, nánar tiltekið hinn 19. júní 1915, sam- þykkti Kristján X konungur stjórn- arskrána. Konur fengu síðan fullan og skilyrðislausan kosningarétt og kjörgengi til Alþingis árið 1920 þegar ný stjórnarskrá vegna sambands- laganna frá árinu 1918 gekk í gildi. Þar með höfðu þær jafnan rétt og karlar til að kjósa og bjóða sig fram til þings. Fyrsta konan, Ingibjörg H. Bjarnason, skólastjóri Kvennaskól- ans í Reykjavík, var kjörin á þing árið 1922, en hún skipaði efsta sæti Kvennalistans. „Á þeim átta árum, sem Ingibjörg sat á þingi, leiddi hún Landspítalamálið fram til sigurs. En hún átti aðild að ýmsum ólíkum mála- flokkum og batt sig engan veginn við sérhagsmunamál kvenna,“ er rifjað upp í bókinni Veröld sem ég vil, eftir Sigríði Th. Erlendsdóttur sagnfræð- ing. Tæpum sjö áratugum síðar sátu þrjár konur á Alþingi. Fram að þeim tíma höfðu þær verið ein, tvær eða þrjár og stundum engin. Konum fjölgaði hins vegar nokkuð eftir kosn- ingarnar 1983, en þá buðu Samtök um Kvennalista fram í fyrsta sinn til Alþingis. Kvennalistinn náði þá þremur konum inn á þing. Sex konur voru kjörnar af listum annarra flokka. Samtals níu konur náðu því kjöri í kosningunum. Hlutur kvenna á þingi varð þar með 15%. Hann jókst jafnt og þétt fram yfir kosningarnar árið 1999. Þá náðu 22 konur kjöri og hlutur þeirra varð tæplega 35%. Hann minnkaði hins vegar í síðustu alþingiskosningum. Þá náðu 19 konur kjöri. Síðan þá hefur ein kona bæst í hópinn, eftir að aðalmaður, karl, lét af þingmennsku. Tuttugu konur eiga því sæti á Alþingi um þessar mundir og 43 karlar. Hlutur kvenna er þar með 31,7%. Auður Auðuns, þingmaður Sjálf- stæðisflokks, var skipuð dóms- og kirkjumálaráðherra árið 1970, fyrst íslenskra kvenna. Hún gegndi því embætti í tæpt ár, eða þar til ný ríkis- stjórn tók við völdum. Engin kona gegndi ráðherradómi næstu tólf árin eða þar til Ragnhildur Helgadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, var skipuð menntamálaráðherra árið 1983. Hún gegndi ráðherradómi í fjögur ár. Þar af var hún heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra í tvö ár. Ein til þrjár konur hafa setið í ríkis- stjórnum eftir það. Í núverandi ráð- herraliði eru þrjár konur og níu karl- ar. Hlutur kvenna í ríkisstjórn er þar með 25%. Aðferðirnar heppilegar? Ástæðan fyrir því að konum fjölg- aði ekki á þingi fyrr en raun bar vitni liggur hjá stjórnmálaflokkunum, seg- ir dr. Auður Styrkársdóttir, stjórn- málafræðingur og forstöðumaður Kvennasögusafns Íslands. „Ætli maður að grennslast fyrir um ástæð- una verður maður að skoða stjórn- málaflokkana og val þeirra á fram- bjóðendum,“ segir hún. „Ég held að kjósendur hafi alla tíð verið tilbúnir að kjósa konur. Þeir verða hins vegar að hafa eitthvað að kjósa um. Það var lengi vel ekkert boðið upp á það hér á landi, nema í gegnum Kvennalistann gamla.“ Hún bendir á að konum hafi fyrst fjölgað á þingi þegar Samtök um kvennalista fóru að bjóða fram 1983. Aðrir flokkar hafi brugðist við kvennaframboðinu, strax í kosning- unum 1987, með því að setja fleiri konur í örugg framboðssæti. Auður segir aðspurð að konum hafi almennt ekkert gengið verr í próf- kjörum en körlum. Miklu færri konur en karlar gefi þó kost á sér í próf- kjörum. Ástæðan sé m.a. sá fjárhags- legi kostnaður sem fylgi því að taka þátt í þeim. „Gífurlegt fjármagn þarf til þess að taka þátt í prófkjöri, sér- staklega á Reykjavíkursvæðinu.“ Jafnframt segir hún að konur hafi ekki jafn greiðan aðgang að fjár- magni og karlar. Auður nefnir aðra ástæðu fyrir því að konur vilji síður taka þátt í próf- kjörum en karlar. „Prófkjörum fylgja oft ýmiss konar umtal og óþægindi. Sumar konur sem ég hef rætt við hafa hreinlega dregið sig til baka út af því. Það er áhyggjuefni. Ég held að flokkarnir ættu að huga að því hvort prófkjör séu góð aðferð.“ Innt eftir því hvort þingkonur hafi í gegnum tíðina beitt sér fyrir annars konar málum en þingkarlar segir hún: „Jú, þær hafa m.a. beitt sér fyrir auknum réttindum kvenna. Jafnrétt- islögin, sem tóku gildi árið 1975, eru sprottin upp úr kvennahreyfingunni og baráttu kvenna innan þings og ut- an. Þá má nefna réttindi kvenna á vinnustöðum, fæðingarorlof og umönnun barna.“ Hún segir að bar- áttumál þingkvenna hafi gjarnan fyrst verið til umræðu í kvenfélögum eða meðal kvenna, en síðan hafi þing- konur tekið þau mál upp innan þings- ins. Nóg að líta á tölurnar En hvað segja þeir sem lifa og hrærast í hringiðu stjórnmálanna um stöðu kvenna um þessar mundir? Eiga konur erfiðara uppdráttar en karlmenn í stjórnmálum? Hafa þær minni áhuga á stjórnmálum en karl- menn? Eiga þær erfiðara með að koma sér á framfæri í fjölmiðlum en karlar? Komast konur áfram bara af því að þær eru konur? Og hvernig er ímynd stjórnmálakvenna? Blaðamað- ur lagði þessar og fleiri spurningar fyrir stjórnmálakonur og nokkra stjórnmálakarla. Þuríður Backman, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, svarar því játandi, þegar hún er spurð hvort hún telji að konur eigi erfiðara uppdráttar í stjórn- málum en karlar. „Ástæðurnar eru fjölmargar,“ segir hún „en fyrst og fremst vantar konur hvatningu og sjálfstraust til að berjast fyrir áhrifa- stöðum innan stjórnmálaflokkanna. Þær gefa því oftar eftir í sætaskipan á framboðslista. Margt í þjóðfélags- gerðinni vinnur einnig gegn þátttöku kvenna í stjórnmálum. Umönnun barna og heimilisrekstur er enn t.d. að mestu á ábyrgð kvenna.“ Sólveig Pétursdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, telur hins vegar að konur eigi almennt ekki erfiðara upp- dráttar í stjórnmálum en karlar, nú á tímum. „Ég held að kjósendum finnist það skipta miklu máli að konur jafnt sem karlar eigi sæti á framboðslistum flokkanna. Það er þó nokkuð misjafnt hvernig þessu er háttað með for- ystusætin. Þar þurfa konur að sjást meira. Það hefur líka verið rætt um prófkjörin en þau hafa auðvitað bæði sína kosti og galla. Í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík fyrir síð- ustu alþingiskosningar varð bakslag og konum fækkaði í þingflokknum og þar með á Alþingi. Þessu verður að breyta.“ Hún segir að landsþing sjálf- stæðiskvenna hafi nýverið skorað á Sjálfstæðisflokkinn að setja konur í efstu sætin á framboðslistum flokks- ins. Sólveig tekur fram, í þessu sam- bandi, að sjálfstæðismenn hafi sýnt og sannað að þeir vilji bregðast við þess- um sjónarmiðum. Til að mynda séu sjálfstæðiskonur formenn þingnefnda, tvær sjálfstæðiskonur séu ráðherrar og þá verði sjálfstæðiskona væntan- lega forseti þingsins í haust. „Þetta er mjög jákvæð þróun og við þurfum að halda áfram á sömu braut.“ Þegar Ingibjörg Sólrún Gísladótt- ir, formaður Samfylkingarinnar, er spurð út í þessi mál kveðst hún þeirr- ar skoðunar að almenningur sé tilbú- inn til að kjósa konur. Konur eigi hins vegar erfiðara uppdráttar innan stjórnmálaflokkanna. Flokkarnir séu m.ö.o. fremur íhaldssamar stofnanir og það geti verið erfitt fyrir konur að rata í gegnum stofnanakerfi flokk- anna – inn á framboðslistana. Innan flokkanna sé t.d. gjarnan lagður mælikvarði á reynslu manna og ábyrgðarstöður í þágu flokkanna. Sú ferilskrá geti stundum unnið gegn konum. Jakob Frímann Magnússon, vara- þingmaður Samfylkingarinnar, svar- ar á eftirfarandi hátt, þegar hann er spurður hvort hann telji að konur og karlar hafi jöfn tækifæri til að komast áfram í stjórnmálum: „Slíkt er ekki endilega háð kyni heldur fyrst og fremst einbeittum vilja og svo hæfi- leikunum til að safna liði og hella sér út í óvissuna. Á hinu gráa svæði óviss- unnar líður fólki hins vegar misvel, konum jafnt sem körlum.“ Og hann bætir við: „Almennt sýnist mér að konur kjósi frið og öryggi fram yfir óvissu og óþægindi þess stríðs- ástands sem einatt ríkir á vígvelli stjórnmálanna eða hins samkeppn- isharða atvinnu- og fjármálalífs þar sem allt kann að vera lagt undir. Það liggur að líkindum í sjálfu kveneðlinu að kjósa fremur að vernda hreiðrið og hlúa að ungunum, í stað þess að leggja sjálft lífið að veði í blóðugu stríði um bráðina sem afla þarf til næringar og viðhalds.“ Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, svarar þessari sömu spurningu á þá leið að hann telji að kjósendur séu nú á tímum alveg jafn opnir fyrir því að kjósa konur og karla. Hann segir að samfélagsgerð okkar og almenn viðhorf gagnvart stjórnmálaþátttöku kvenna hafi breyst mjög mikið á síðustu árum og áratugum. Meira jafnræði í verka- skiptingu í barnauppeldi og heim- ilishaldi styðji við þá þróun. „Stað- reyndin er sú að á þingi eru mun færri konur en karlar en ég hef þá trú að það eigi eftir að breytast í náinni framtíð. Reynslan sýnir að konur geta náð góðum árangri í stjórn- málum.“ Ekki eigi þó að beita aðferð- um á borð við kynjakvóta eða annað til að jafna stöðu kynjanna. „Bæði karlar og konur eiga rétt á því að vera vegin og metin á grundvelli eigin verðleika og hugmynda í stjórnmála- baráttunni en ekki á forsendum kyn- ferðis.“ Frekja eða keppnismaður? En hvernig er ímynd stjórnmála- kvenna? Er hún öðruvísi en karla? Er komið öðruvísi fram við stjórn- málakonur en stjórnmálakarla? Mar- grét Sverrisdóttir, framkvæmda- stjóri Frjálslynda flokksins, segir að konum í stjórnmálum sé sýnt mun minna umburðarlyndi, jafnt meðal karla og kvenna. Til dæmis sé meira einblínt á það hvernig þær eru klæddar heldur en hvað þær eru að segja. „Það kemur til af því að konur klæðast ekki þessum einkennisbún- ingum eins og karlar, þ.e. jakkaföt- um. Það er því ekki hægt að segja að þær séu allar eins; hver hefur sinn stíl og svo framvegis,“ útskýrir hún. Þuríður Backman tekur í sama streng. Ímyndirnar séu ólíkar. „Útlit og klæðaburður kvenna skiptir meira máli en karla,“ segir hún og bætir við: „Hjá konum er barátta til pólitískra áhrifa oft nefnd frekja en keppnis- skap hjá körlum.“ Dagný Jónsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, telur sömu- leiðis að örlítill munur sé á ímynd kynjanna. „Mér fannst sérstaklega Níutíu ár liðin frá því konur, yfir fertugt, fengu kosningarétt og kjörgengi til Alþingis Konur eru ekki bara konur, þær eru líka svo margt annað Fyrstu áratugina eftir að konur öðluðust kosningarétt og kjörgengi til Alþingis sátu ein, tvær, þrjár og stundum engin kona á þingi. Sjón sem þessi var því algeng þegar litið var yfir þingsalinn; ein til tvær þingkonur umkringdar fjölda þingkarla. Siv Friðleifsdóttir „Konur í stjórnmálum eru síður en svo að af- þakka viðtöl í stríðum straumum.“ Einar Karl Haraldsson „Ef það er einhver eðlis- lægur munur á körlum og konum þá er hann svo lítill að það skiptir ekki höfuðmáli.“ Margrét Sverrisdóttir „… Málin yrðu rædd á dálítið öðrum nótum ef fleiri en ein kona yrði höfð í þáttunum.“ Eiga konur erfiðara upp- dráttar en karlar í stjórn- málum? Hafa þær minni áhuga á stjórnmálum en karlar? Eru þær teknar fram yfir karla bara vegna þess að þær eru konur? Viðmæl- endur Örnu Schram svara þessum og fleiri spurn- ingum, í tilefni níutíu ára afmælis kosningaréttar og kjörgengis íslenskra kvenna til Alþingis. Guðrún Inga Ingólfsdóttir „En stundum þarf að stíga fram og taka áhættu.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.