Morgunblaðið - 19.06.2005, Blaðsíða 57
Þ að getur brugðið til beggjavona þegar tónlistarmenn úrólíkum áttum taka samanhöndum – oftar en ekki eru
menn svo fastir hver á sínum bás að
útkoman af samstarfinu verður ekki
skemmtileg, ekkert nýtt verður til.
Þegar menn aftur ná saman getur
niðurstaðan verið bráðskemmtileg og
forvitnileg líkt og er með samkrull
Anticon félaga úr Themselves og liðs-
mönnum úr Notwist sem þeir kjósa
að kalla 13 & God. Fyrsta stuttu kom
út breiðskífa samnefnd sveitinni.
And-svik
Vestur í Kaliforníu starfar félags-
skapur sem kallar sig Anticon, sem
nafnið má útleggja sem and-svik,
anti-con. Upphafsmenn þess eru ung-
ir tónlistarmenn sem tóku til við tón-
list sem kalla má hiphop, þótt það sé
talsvert frábrugðið því sem menn
annars kalla hiphop – óhlutbundið
hiphop hafa sumir kallað það, fram-
úrstefnurokk segja aðrir og bölvað
rugl segja enn aðrir. Félagsmenn
Anticon eru nokkrir, þar fremstir í
flokki höfuðpaurarnir Doseone og
Sole – sá fyrrnefndi kemur við sögu í
þessum pistli, en betri grein verður
gerð fyrir hinum síðarnefnda á næstu
dögum enda er hann á leið til Íslands,
leikur á tónleikum í Grand Rokk á
miðvikudaginn með Anticon-félögum
sínum Pedestrian og Telephone Jim
Jesus.
Það er til siðs innan Anticon-
hópsins að vera í mörgum hljóm-
sveitum samtímis. Fyrir vikið er það
til að æra óstöðugan að reyna að
henda
reiður á þeirri býsn hljómsveita, mis-
fjölmennra, sem starfa undir merkj-
um Anticon, en ein af þeim þekktari
er Themselves sem skipuð er þeir
Adam „Doseone“ Druckner, Jeffery
„Jel“ Logan og Dax Pierson.
Einskonar tilraunarokk
Austur í Þyskalandi er svo að finna
rokksveitina Notwist sem starfað
hefur alllengi. Tvíburabræðurnir
Markus og Michael Acher stofnuðu
Notwist 1989 við þriðja mann. Fram-
an af léku þeir kraftmikið pönk en
smám saman hefur sveitin þróast í
einskonar tilraunarokk og þegar þeir
kynntust raftónlistarmanninum
Martin Gretschmann, sem starfað
hefur undir nafninu Console tóku
þeir stefnu enn lengra frá rokkinu án
þess þó að segja skilið við það. Síð-
asta breiðskífa Notwist var Neon
Golden, sem fékk frábæra dóma víða
um heim.
Sagan hermir að Themselves hafi
verið á tónleikaferðalagi með Notw-
ist á síðasta ári þegar það óhapp varð
að kviknaði í tónleikarútunni. Þar
brann nauðsynlegt tölvudót og fyrir
vikið ekki hægt að halda áfram ferð-
inni. Þetta varð skammt frá Toronto
yfir allar Anticon-plötur. Það segir
sitt um tónlistina sem Anticon menn
hafa framleitt í gegnum tíðina að
Markus segist ekki hafa gert sér
grein fyrir því að þeir væru að spila
hiphop.
Ekki búið enn
Síðasta haust hittust þeir félagar
svo allir í Munchen, heimaborg
Notwist, til að semja tónlist og taka
upp, en upptökur fóru fram í borginni
fornu Weilheim í Þýskalandi. Áður
en að þessu kom höfðu þeir skipst á
hugmyndum og lagt drög að nokkr-
um lögum (það er að vissu leyti í takt
við þversku þeirra Anticon-manna að
Netið var ekkert notað til að koma
hugmyndum á milli, engar zipskrár í
tölvupósti eða vefsíður með MP3 –
allt var sent með bréfpósti). Allt gekk
að óskum og ekki tók það þá nema
tvær vikur að vinna efni á heila breið-
skífu, taka upp, hljóðblanda og gera
frumeintak. Þá var einn dagur tekinn
í æfingar og svo hélt sveitin sína
fyrstu tónleika í Munchen.
Ekki er hægt að búast við því að 13
& God lifi lengi, þó sveitirnar nái vel
saman eru þær of ólíkar til að það
gangi til langframa – þeir hafa sína
plötusamninga og skuldbindingar
sem þarf að uppfylla. Það má þó
kannski bíða smátíma, því í sumar
hyggjast þeir félagar ferðast um
Evrópu, leika á tónleikum sem víðast,
og í haust eru jafnvel frekari upp-
tökur framundan, það eru nefnilega
hugmyndir sem á eftir að vinna betur
úr að því þeir
segja.
Skemmtilegt
samkrull
Tónlist á sunnudegi
Árni Matthíasson
Merkilegt samstarf er að finna á fyrstu breiðskífu 13 &
God, en á bak við það nafn eru liðsmenn hiphopsveit-
arinnar Themselves og þýska tilraunarokksveitin Notwist.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 2005 57
og fimmta ámóta óhapp, það alvar-
legasta þó, sem þeir félagar höfðu
orðið fyrir í ferðinni. Gera varð hlé á
ferðinni, menn voru bókaðir á ódýr
hótel og höfðu lítið við að vera í kulda
og trekki annað en tala um tónlist. Í
því spjalli, sem teygði sig yfir ein-
hverja daga, kviknaði hugmyndin að
samstarfi milli Anticon-manna og
liðsmanna Notwist sem ganga myndi
undir nafninu 13 & God.
Gagnkvæm virðing
13 & God er skipuð liðsmönnum
Themselves og þeim Markus og
Micha Acher og Martin Gretsch-
mann úr Notwist. Þó 13 & God hafi
orðið til á Kanadaferðinni örlagaríku
á samstarfið sér lengri sögu því þeir
Themselves-félagar leituðu uppi
Markus Acher þegar þeir voru á tón-
leikaferð um Evrópu að kynna The
No Music fyrir þremur árum. Í þeirri
ferð hlustuðu þeir víst á fátt annað en
Notwist skífuna góðu Neon Golden
og fannst upplagt að nota tækifærið
til að hitta einn forsprakka sveit-
arinnar. Þá þegar voru menn farnir
að ræða um að gaman yrði að gera
eitthvað saman, eins og tónlistar-
manna er siður þegar þeir hafa tottað
pyttluna
Ekki var bara að Themselves-
félagar kynnu að meta Notwist – eins
og Markus Acher rekur söguna þá
féll hann gersamlega fyrir fyrstu
CLOUDDEAD skífunni, segist hafa
fallið í stafi yfir því hve fimlega þeir
hrærðu saman ólíkum stílum og eftir
það gerði hann sér far um að komast
BATMAN BEGINS
kl. 2 - 3.20 - 4 - 5 - 6.20 - 7 - 8 - 9.20 - 10 - 10.50
BATMAN BEGINS VIP kl. 2 - 5 - 8 - 10.50
THE WEDDING DATE kl. 6
A LOT LIKE LOVE kl. 3.45 - 6 - 8.15 - 10.30
HITCHHIKER´S GUIDE... kl. 8 - 10.10
SVAMPUR SVEINSSON m/ísl.tali. kl. 2 - 4
ÁLFABAKKI
BATMAN BEGINS
kl. 12 - 2.10 - 3.30 - 5.10 - 6.30 - 8.10 - 9.30 - 11 B.i. 12 ára.
HOUSE OF WAX kl. 10.30 B.i. 16 ára.
THE WEDDING DATE kl. 8
SVAMPUR SVEINSSON kl. 12 - 2 - 4
THE ICE PRINCESS kl. 12 - 6
KRINGLAN
BATMAN BEGINS
kl. 2 - 5 - 8 - 10.40
STAR WARS - Episode III kl. 3
MR. AND MRS. SMITH
kl. 5.45 - 8 - 10.15
BATMAN BEGINS
kl. 2 - 5 - 8 - 10.40
A LOT LIKE LOVE kl. 6 - 8
HOUSE OF WAX kl. 10
SVAMPUR SVEINSSON kl. 2 - 4
AKUREYRI KEFLAVÍK
DV MBL
Debra Messing Dermot Mulroney
FURÐULEGASTA ÆVINTÝRI ALHEIMSINS HEFST
ÞEGAR JÖRÐIN ENDAR
S.K. DV.
ELISHA
CUTHBERT
CHAD MICHAEL
MURRAY
BRIAN
VAN HOLT
PARIS
HILTON
JARED
PADALECKI
Capone XFM
BATMAN EINS OG ÞÚ HEFUR ALDREI SÉÐ HANN ÁÐUR !
Powersýning kl. 11
í Sambíóunum Kringlunni
Sýningatímar 16 - 19. júní