Morgunblaðið - 19.06.2005, Side 6
6 SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Salou
Súpersól 1. júlí
frá kr. 49.995
Skógarhlíð 18 • 105 Reykjavík • sími 591 9000
Akureyri sími 461 1099 • www.terranova.is
Salou er fallegur bær á Costa Dorada ströndinni, sunnan Barcelona. Þar er
Port Aventura, glæsilegasti skemmtigarður Spánar. Salou skartar stórkostlegum
ströndum, fjölbreyttri afþreyingu og litríku næturlífi. Terra Nova býður þér einstakt
tækifæri á ótrúlegum kjörum. Þú bókar sæti og 4 dögum fyrir brottför færðu að
vita hvar þú gistir.
kr. 59.990
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna.
Súpersól tilboð, 1. júlí í 12 daga.
- SPENNANDI VALKOSTUR
kr. 49.995
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn.
Súpersól tilboð, 1. júlí í 12 daga.
12 dagar
HALLDÓR Ásgrímsson forsætis-
ráðherra flutti ræðu á hátíðardag-
skrá þjóðhátíðar á Austurvelli í
Reykjavík að morgni þjóðhátíðar-
dagsins. Ávarpið fer hér á eftir.
Fyrirsögn og millifyrirsagnir eru
blaðsins:
„Góðir Íslendingar.
Mennirnir eru jafn ólíkir og þeir
eru margir. Þeir vilja tala um mis-
munandi hluti og leggja misjafna
áherslu á hvað er aðalatriði og hvað
aukaatriði. Sumir leggja meiri
áherslu á það sem miður hefur farið,
það sem ekki var gert, meðan aðrir
vilja draga lærdóm af því sem vel
gekk eða gert var.
Séu þeir í fyrri hópnum; úrtölu-
mennirnir, spurðir hvað hafi gerst
merkilegast á Íslandi fyrir fimmtíu
árum eru þeir vísir til að tala um
rigningasumarið mikla. Og það er
rétt að sumarið 1955 var mikið rign-
ingasumar á suður- og vesturlandi.
Raunar rigndi svo mikið að Fegr-
unarfélag Hafnarfjarðar sem hafði
árin á undan veitt verðlaun fyrir feg-
ursta garðinn, ákvað að veita ekki
verðlaun það ár vegna vætunnar.
Séu aðilar úr síðari hópnum; þeir
sem bjartsýnni eru, spurðir hvað
merkilegast hafi gerst á Íslandi fyrir
fimmtíu árum, eru þeir líklegir til að
nefna að það ár fékk Halldór Lax-
ness Nóbelsverðlaunin í bókmennt-
un meðal annars fyrir „litríkan
skáldskap sem endurnýjaði íslenska
frásagnarlist.“ Þessi viðurkenning
er án efa mesta viðurkenning sem
Íslendingi hefur hlotnast og vakti
ómælda athygli á Íslandi og bók-
menntaarfinum sem er sterkasta
stoðin í sjálfstæði landsins, stoltið og
vonin gegnum aldir fátæktar og
mótlætis.
Hvor hópurinn er nú líklegri til að
láta okkur líða betur, fyllast bjart-
sýni og vilja sækja fram? Þeir sem
sjá myrkrið í deginum, eða þeir sem
sjá ljósið í myrkrinu? Hvorum hópn-
um viljum við hafa félagsskap af? Ég
held að við vitum öll svarið.
Fyrirtæki bera
samfélagslega ábyrgð
Við lifum vitanlega ekki við full-
komna þjóðfélagsskipan frekar en
nokkur önnur þjóð. Viðfangsefnin
eru mörg og sum hver knýjandi.
Mikill gróði og umsvif hafa orðið til
vegna breytinga í þjóðfélaginu, ekki
síst á fjármálamarkaði. Þorri lands-
manna hefur notið góðs af þeim
breytingum, en ekki allir. Frelsinu
fylgja ábyrgð og skyldur, og í litlu
þjóðfélagi er sérstaklega mikilvægt
að hinir stærri axli samfélagslega
ábyrgð sína, svo hinir minni fái notið
sín í ríkari mæli. Ríkisvaldið ber þar
vitanlega mesta ábyrgð, en ekki alla.
Fyrirtæki bera samfélagslega
ábyrgð, sérstaklega gagnvart starfs-
mönnum. Þeim ber að nýta hagnað
til að byggja upp. Það er eðlilegt að
þau taki þátt í mikilvægum málum á
sviði menningar og velferðar. Þeim
ber ekki síst að leggja fram fjármuni
til að efla nýsköpun og fjölbreytni í
atvinnulífi. Þar geta þau lagt meira
af mörkum, ekki síst stærstu fjár-
málafyrirtæki landsins. Ríkisstjórn-
in vill samstarf um það og skapa til
þess nauðsynlegan farveg í formi
öflugra sjóða sem við eigum ekki í
dag.
Það verður áfram viðfangsefni að
skapa ný störf og hvetja til nýsköp-
unar í atvinnulífi. Það verður áfram
viðfangsefni að tryggja möguleika
allra til menntunar. Það verður
áfram viðfangsefni að byggja upp
öflugra velferðarkerfi. Og það verð-
ur áfram viðfangsefni að hlúa að
æsku og ungdómi þessa lands og
skila þjóðfélaginu í þeirra hendur í
því ásigkomulagi sem við sjálf hefð-
um óskað okkur. Allt þetta kallar á
samvinnu og samstöðu. Þar má eng-
inn skorast undan.
Landamæri og hömlur
eru óðum að hverfa
En viðfangsefni nútímans þurfa
ekki að vera vandamál. Svartsýni og
úrtölur leiða okkur ekki langt á
framfarabraut.
„Hin rétta umbótaþrá, sem er óró-
inn í sigurverki framfaraandans, er
full af trausti, von og kærleika, flýr
ekki, upprætir ekki, eyðileggur
ekki,“ sagði Hannes Hafstein ráð-
herra í ræðu fyrir 100 árum síðan.
Viðfangsefni okkar tíma ber að nálg-
ast af bjartsýni, hug og þrótti, líkt og
forfeður okkar nálguðust viðfangs-
efni fyrri tíma er þeir börðust fyrir
sjálfstæði íslenskrar þjóðar, og við
minnumst hér í dag, en ekki með
neikvæðni og niðurrifi eins og oft er
áberandi.
Á hátíðarstundu er ástæða til að
skyggnast upp úr amstri hversdags-
ins og íhuga stöðu okkar í samfélagi
þjóðanna. Við köllum hana gjarnan
alþjóðavæðingu, umbyltinguna sem
átt hefur sér stað í heiminum á síð-
ustu tveimur áratugum á flestum
sviðum samfélagsins. Þjóðir hafa
brotist undan oki harðstjórnar og
miðstýringar. Landamæri og höml-
ur eru óðum að hverfa og allur heim-
urinn er smám saman að verða að
einu markaðssvæði. Opnari heims-
viðskipti hafa leitt til víðtækra sam-
skipta ólíkra þjóða og menningar-
heima. Upplýsingar berast með
hraða ljóssins heimshorna á milli og
fjarlægðir skipta æ minna máli.
Þessi alþjóðlega umbylting hefur
látið fáar þjóðir ósnortnar. Íslensk
þjóð hefur ekki farið varhluta af
þessum breytingum og orðið fyrir
miklum áhrifum. Það eru ekki ýkja
mörg ár síðan Íslendingar bjuggu
við einhæfa atvinnuhætti, óðaverð-
bólgu, og tiltölulega fáir höfðu tæki-
færi til að ganga menntaveginn. Ég
er ekki viss um að yngra fólki sé
þetta ríkt í minni, og jafnvel þeim
sem eldri eru hættir til að gleyma.
En við höfum borið gæfu til að
mæta þessum breyttu tímum af
framsýni. Stóraukin framlög til
menntunar hafa skilað okkur mennt-
uðu og víðsýnu fólki sem vekur at-
hygli fyrir hæfni og útsjónarsemi.
Við höfum losað um viðskiptahindr-
anir og gefið áræðnu fólki kost á að
nýta viðskiptatækifæri sem skapast
hafa í þessu ölduróti heimsumbylt-
ingarinnar.
Í engu eftirbátar
íbúa stórþjóðanna
Hvarvetna má sjá fólk sem sækir
fram með frjórri hugsun, frjálst án
utanaðkomandi hindrunar. Hvar-
vetna má sjá fólk, sem eftir langa og
stranga baráttu við náttúruöflin, er
fljótt að tileinka sér nýjungar. Hvar-
vetna má sjá fólk sem hefur náð að
nýta sér náttúrugæðin og byggt upp
hagsæld sem vart gerist betri ann-
ars staðar. Hvarvetna má sjá víð-
sýnt fólk sem af eðlislægri útþrá hef-
ur aflað sér þekkingar úti í hinum
stóra heimi, fært hana heim, hagnýtt
hana og miðlað öðrum. Hvarvetna
má sjá fólk sem er í engu eftirbátar
íbúa stórþjóðanna.
Aldrei hefur framboð á háskóla-
námi verið meira og aldrei hafa há-
skólanemendur verið fleiri. Okkur
hefur tekist betur en flestum öðrum
þjóðum að búa svo um hnútana að
æsku landsins bjóðist áhugaverð
störf við hæfi að loknu námi.
Stjórnvöld hafa verið sér meðvit-
uð um mikilvægi þess að örva ein-
staklinga og fyrirtæki til nýsköpun-
ar og hafa beitt sér fyrir marg-
víslegum aðgerðum til að hvetja til
fjárfestingar í nýsköpun og sprota-
fyrirtækjum, en vilja gera enn betur
á því sviði.
25 þúsund Íslendingar tóku
þátt í frumkvöðlastarfi
Mannauðurinn, auðlind morgun-
dagsins, hefur verið að eflast stór-
lega hjá okkar fámennu þjóð. Það er
eftir því tekið að samkvæmt alþjóð-
legum mælingum standa Íslending-
ar framarlega á sviði vísinda og
tækni. Íslendingar eru í 4.-6. sæti
þeirra þjóða sem sýna hraðastar
breytingar á sviði rannsókna og ný-
sköpunar. Á síðasta ári tóku um 25
þúsund Íslendingar þátt í frum-
kvöðlastarfi á Íslandi sem er tvöfalt
hærra hlutfall en meðaltal annarra
hátekjulanda – og sambærilegt við
það sem gerist í Bandaríkjunum og
Kanada. Íslendingar eru komnir í 4.
sæti yfir samkeppnishæfni þjóða og
erum nú efst Evrópuþjóða.
Þessar niðurstöður eru uppörv-
andi fyrir okkur Íslendinga og eru
vísbending um að við séum á réttri
leið. Það er full ástæða til að bera
höfuðið hátt án þess að ofmetnast.
Sannarlega er bjart yfir Íslandi í
dag. Í raun má segja að við búum við
það þjóðfélag sem sjálfstæðishetjan
Jón Sigurðsson og hans samferða-
menn sáu aðeins í draumum sínum
og hugsjónum – þjóðfélag þar sem
frelsi ríkir til hugsunar, orða og at-
hafna. Við getum verið stolt af ár-
angri okkar, sem litið er til og tekið
eftir víða um lönd. Ég er stoltur af
íslenskri þjóð og þakklátur fyrir að
hafa fengið tækifæri til að vinna með
öðrum að því að láta hugsjónir ræt-
ast. Umbótaþrá forfeðranna hefur
orðið að veruleika. Veruleika sem við
verðum að varðveita, rækta, sýna
ástúð og virðingu. Þannig höldum
við best á frelsi og sjálfstæði Ís-
lands.
Bindur vonir við starf
stjórnarskrárnefndar
Okkur er mikilvægt að nota ávinn-
ing gærdagsins sem hvatningu til
enn frekari dáða. Einar Benedikts-
son, skáld og athafnamaður, vissi
þetta betur en margur og segir í
ljóði sínu Aldamót:
Það fagra sem var skal ei lastað
og lýtt
en lyft upp í framför, hafið og prýtt
Að fortíð skal hyggja, ef frumlegt
skal byggja,
án fræðslu þess liðna sést ei
hvað er nýtt
Við skulum muna eftir fortíðinni
en horfa sífellt fram á veg og huga
að því hvernig við getum bætt okkur
enn meira og stuðlað að enn betri
lífskjörum í okkar landi. En lífskjör
snúast ekki bara um efnahagsleg
gildi heldur ekki síður um lýðræð-
isleg réttindi. Það eru aðeins 90 ár
síðan konur á Íslandi fengu kosn-
ingarétt og kjörgengi til Alþingis og
enn hefur fullt jafnrétti ekki náðst.
Við samfögnum konum í þeirra bar-
áttu. Ég bind miklar vonir við starf
þeirrar nefndar sem ég skipaði í
byrjun þessa árs til að endurskoða
stjórnarskrána. Það er eðlilegt og
nauðsynlegt að fram fari ítarleg um-
ræða um hvernig tryggja megi sem
best þennan mikilvæga grundvöll
okkar þjóðfélags.
Endurskoða skipan ráðuneyta
Það er einnig tímabært að huga að
endurskoðun á skipulagi stjórnsýsl-
unnar, gera hana markvissari og
meira í takt við tímann. Síðasta
stóra breytingin á skipan ráðuneyta
var gerð á árinu 1969 og þótt það
hafi verið gerðar nokkrar breytingar
frá þeim tíma hefur skipulagið í
grundvallaratriðum verið óbreytt.
Ég tel mikilvægt að hefjast handa
um slíka endurskoðun nú í haust og
ljúka henni á tiltölulega stuttum
tíma. Slík endurskoðun er ekki bara
tímabær heldur einnig í eðlilegu
samhengi við það starf sem hefur
verið í gangi og snýr að því að ein-
falda ríkisreksturinn og gera hann
skilvirkari og markvissari.
Góðir Íslendingar.
Börnin okkar brosa framan í ís-
lenska fánann í dag. Þennan fagra
fána sem fagnar 90 ára afmæli nú á
sunnudaginn. Þeirra hamingja er
okkar hamingja. Þeirra bíður betri
arfleifð en flestra annarra barna í
heiminum. Bjartsýni, þrautseigja og
gleði hafa skapað þá arfleifð. Hún
má aldrei spillast af bölmóð og
svartsýni.
Gleðilega þjóðhátíð.“
Ræða Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra á Austurvelli á þjóðhátíðardegi
Tímabært að endur-
skoða skipulag
stjórnsýslunnar
Morgunblaðið/Þorkell
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra flytur ávarp sitt við hátíðardagskrá á Austurvelli 17. júní.