Morgunblaðið - 19.06.2005, Page 11
athyglisvert á dögunum hvernig
Björgólfur [Guðmundsson, formaður
bankaráðs Landsbankans] tjáði sig
um Valgerði Sverrisdóttur [við-
skiptaráðherra]. Ég hef ekki heyrt
slíka athugasemd um karlmann.“
Dagný segist vera að vísa til þess
þegar Björgólfur andmælti ummæl-
um Valgerðar í fjölmiðlum með þeim
orðum að „hún hefði farið öfugum
megin fram úr“ og að hann ætlaði
ekki að svara „frú Valgerði“. Dagný
segist ekki hafa heyrt nokkurn mann
ávarpa t.d. Halldór Ásgrímsson sem
„herra Halldór“ í slíkum tilsvörum.
Hún segist dagsdaglega ekki velta
sér upp úr því hvaða ímyndir kynin
hafa „en þegar manni er bent á svona
hluti tekur maður eftir þeim“.
Sólveig Pétursdóttir telur einnig
að konur hafi öðruvísi ímynd en karl-
ar. „Maður verður var við það að þær
séu stundum frekar metnar eftir út-
liti og klæðaburði fremur en mál-
efnum. Konur fá líka stundum þann
stimpil að þykja frekjudósir, þegar
körlum er frekar lýst sem ákveðnum
og metnaðarfullum. Ég held þó að
þetta sé allt að breytast með aukinni
þátttöku kvenna í stjórnmálum.“
Þegar Einar Karl Haraldsson,
varaþingmaður Samfylkingarinnar,
er spurður hvort hann telji að konur
hafi öðruvísi ímynd en karlar í stjórn-
málum segir hann: „Konur sem eru
komnar með reynslu í pólitík eru í
sjálfu sér eins og hverjir aðrir stjórn-
málamenn. Ef það er einhver eðlis-
lægur munur á körlum og konum þá
er hann svo lítill að það skiptir ekki
höfuðmáli.“ Hann segir að konur séu
sjálfsagt mótaðar af ákveðinni ímynd,
eins og t.d. minnihlutaímyndinni; þ.e.
að þær séu í minnihluta og að þær
þurfi að sækja fram, standa saman og
svo framvegis. „Auðvitað eru konur
eitthvað mótaðar af þeirri ímynd, en
þegar konur hafa öðlast reynslu og
orðið t.d. ráðherrar, flokksformenn,
borgarstjórar eða eitthvað annað er
ímyndin einstaklingsbundin.“
Ekki bara konur
Því er stundum haldið fram – og
um leið gagnrýnt – í umræðunni um
jafnrétti kynjanna að konur séu tekn-
ar fram yfir karla einungis vegna
þess að þær eru konur. En er það
svo? Siv Friðleifsdóttir er ein þeirra
sem segir það af og frá. Hún bendir á
tölur máli sínu til stuðnings. „Ef sú
væri raunin þá væru konur meira en
helmingur sveitarstjórnarmanna,
meira en helmingur alþingismanna
og meira en helmingur ríkisstjórn-
arinnar. Þetta stenst því ekki.“
Flokkssystir Sivjar, Dagný Jóns-
dóttir, tekur í sama streng. Hún segir
jafnframt umræðu af þessu tagi nið-
urlægjandi fyrir konur. „Einu sinni,
fyrir löngu, var mér boðið að setjast í
nefnd, því það þurfti að uppfylla
kynjakvóta. Ég afþakkaði boðið því
mér finnst fátt meira niðurlægjandi
en að fara í eitthvert starf á for-
sendum kyns en ekki hver maður er.“
Sólveig Pétursdóttir segist eiginlega
ekki skilja þessa umræðu, þ.e. að kon-
ur séu teknar fram yfir karla. „Ekki
er talað svona um karla í stjórn-
málum,“ segir hún.
Þuríður Backman segir hins vegar
að í undantekningartilfellum séu kon-
ur teknar fram yfir karla, á grund-
velli kynferðis. „Í undantekningar-
tilfellum er það svo og verður þar til
hlutfall kynja verður jafnt á pólitísk-
um vettvangi. Þessar konur standa
fyrir sínu þó karlar telji fram hjá sér
gengið. Ef breyta á kynjahlutfalli
stjórnmálanna verða konur að vera
jafn gildar á framboðslistum og koma
fram í fjölmiðlum jafnt og karlar.“
Ingibjörg Sólrún segir, um þetta,
að kynferðið geti við ákveðnar að-
stæður unnið með konum. „Þegar
flokkarnir telja nauðsynlegt að fríska
upp á sig og vera kjósendavænni get-
ur það hjálpað konum.“ Aðspurð ját-
ar hún því að sú nálgun geti verið nei-
kvæð fyrir konur, en það sé vegna
þess að oft sé talað um konur eins og
þær séu „bara konur“ en ekki allt
hitt, sem þær eru líka, eins og t.d. höf-
uðborgarbúar, landsbyggðarfólk,
þátttakendur í atvinnulífinu og ann-
að. Hún segir að sjálfsmynd okkar sé
sett saman úr svo mörgu; enginn sé
bara karl eða bara kona.
Þegar kvenviðmælendur blaðsins
eru spurðir hvort þeir telji að erfiðara
sé fyrir konur að koma sér á framfæri
í fjölmiðlum en karla nefna þeir marg-
ir spjallþættina sérstaklega í svörum
sínum. Ingibjörg Sólrún segir t.d. að
erfiðara sé fyrir konur að komast að í
slíka þætti. „Þar fer oft heilmikil
ímyndarsköpun fram og þar er oft ver-
ið að búa til pólitíkusa. Ungar konur
eiga erfiðara með að komast þar inn.“
Ingibjörg segir ennfremur að mun
fleiri karlmenn en konur vinni á fjöl-
miðlunum, bæði sem fréttamenn og
þáttastjórnendur. „Því virkar tengsl-
anetið betur fyrir karla heldur en kon-
ur í fjölmiðlunum og það tengslanet
skiptir verulega miklu máli.“
Margrét Sverrisdóttir segir að svo
virðist sem konur séu stundum tekn-
ar inn í umræðuþætti til uppfyllingar
eða „vegna þess að það þurfi eina
konu í settið“, segir hún. „Hana-
slagsstíllinn“ sem sé ríkjandi í þátt-
unum verði síðan til þess að konan
sitji svolítið einangruð eða utanvelta.
„Ég er sannfærð um að málin yrðu
rædd á dálítið öðrum nótum ef fleiri
en ein kona yrði höfð í þáttunum,“
segir Margrét. Hún telur sömuleiðis
að margar konur veigri sér við því að
taka þátt í „hanaslagsumræðunum“.
Siv Friðleifsdóttir segir, þegar hún
er spurð út í þetta, að rannsóknir hafi
sýnt að hlutur kvenna í fjölmiðlaum-
fjöllun sé minni en karla. Hún tekur
jafnframt fram að konur í stjórn-
málum séu síður en svo að „afþakka
viðtöl í stríðum straumum“. Konur
hafi þó tilhneigingu til þess að vera
varkárari en karlar í ummælum sín-
um og því sækist fjölmiðlamenn frek-
ar eftir því að tala við karlana. Þeir
séu m.ö.o. yfirlýsingaglaðari.
Umgjörðin karllæg?
Viðmælendur blaðsins eru almennt
á því að konur hafi ekki minni áhuga á
stjórnmálum en karlar. Ýmislegt í
umhverfi stjórnmálanna geti þó latt
konur til þátttöku. „Ég verð ekki vör
við annað en að þær hafi ákveðnar
skoðanir og að þær séu ábyrgar
gagnvart samfélaginu,“ segir Dagný
Jónsdóttir. „Áhugann vantar ekki.
En þær hafa kannski ekki eins frjáls-
an tíma og karlar. Þær bera meiri
ábyrgð inni á heimilinu. Að sumu
leyti forgangsraða þær kannski líka
öðruvísi. Mér finnst þetta þó samt að-
eins vera að breytast; karlarnir eru
að koma meira inn á heimilin.“
Guðrún Inga Ingólfsdóttir, vara-
þingmaður Sjálfstæðisflokksins, seg-
ir eins og Dagný að konur hafi mikinn
áhuga á stjórnmálum. Umgjörð
stjórnmálanna sé á hinn bóginn svo-
lítið karllæg. Ein birtingarmynd þess
séu umræðurnar. Þar sé málefnum
stundum stillt upp eins og í skot-
grafahernaði. Umræðurnar gangi
síðan út á að „jarða andstæðinginn“.
Guðrún Inga segir að konur vilji
nálgast málin á annan hátt. „Þær
geta staðið á sínu og gefið ekkert eft-
ir. Þær geta skilið sjónarmið and-
stæðingsins en þurfa þó ekki að vera
sammála honum. Ég held að þetta
eigi almennt við um konur, hvort sem
er í atvinnulífinu eða í pólitík; þær
vilja gera vel, en þær eru ekki til-
búnar til þess að taka þátt í þessum
vinnubrögðum. En auðvitað taka
margar konur þátt í stjórnmálum og
sumar hverjar á þessum forsendum.
Aðrar eru hins vegar að reyna að
breyta þeim.“
Guðrún Inga telur reyndar að að-
ferðafræði stjórnmálanna muni
breytast eftir því sem fleiri konur
taka þátt í stjórnmálum. „Það er ekki
hægt að bíða endalaust eftir því á
hliðarlínunni að ástandið breytist
heldur verður maður að taka þátt og
hafa áhrif.“ Hún segir að síðustu að
konum séu allir vegir færir. „En
stundum þarf að stíga fram og taka
áhættu.“
Auður Styrkársdóttir
„Ég held að kjósendur hafi
alla tíð verið tilbúnir að
kjósa konur.“
Birgir Ármannsson
„Bæði karlar og konur eiga
rétt á því að vera vegin og
metin á grundvelli eigin
verðleika.“
Dagný Jónsdóttir
„Mér finnst fátt meira
niðurlægjandi en að fara í
eitthvert starf á for-
sendum kyns …“
Þuríður Backman
„Hjá konum er barátta
til pólitískra áhrifa oft
nefnd frekja en keppnis-
skap hjá körlum.“
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
„Þegar flokkarnir telja
nauðsynlegt að fríska upp
á sig og vera kjósenda-
vænni getur það hjálpað
konum.“
Jakob Frímann
Magnússon
„Það liggur að líkindum í
sjálfu kveneðlinu að kjósa
fremur að vernda hreiðrið
og hlúa að ungunum …“
arna@mbl.is
Sólveig Pétursdóttir
„Ég held að þetta sé allt að
breytast með aukinni þátt-
töku kvenna í stjórn-
málum.“
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 2005 11
Þ
að á við um þessi réttindi
eins og svo mörg önnur
réttindi manna í þjóðfélag-
inu, að ekkert er sjálfgefið.
Því þarf að vera vakandi fyrir því að
það slakni ekki á þessum streng, sem
þó hefur náðst að gera svo sterkan,“
segir Ragnhildur Helgadóttir, fyrrver-
andi þingmaður og ráðherra, þegar
hún er beðin að minnast þess að níu-
tíu ár eru liðin frá því konur fengu
kosningarétt og kjörgengi til Alþingis.
Hún segir að gríðarlegar framfarir
hafi orðið síðan þá. Nú þyki sjálfsagt
að konur og karlar skipi framboðslist-
ana og sitji á þingi – helst sem næst
jöfnum hlutföllum, þótt það náist ekki
alltaf. Hún ítrekar hins vegar að þegar
framfarir hafi náðst á einhverju sviði
megi ekki slaka á klónni, svo árang-
urinn glutrist ekki niður á nýjan leik.
Ragnhildur segir að konur verði líka
að muna, þegar þær halda upp á 19.
júní, að kosningarétturinn er ekki bara
konum að þakka. Karlarnir hafi jú sam-
þykkt breytingarnar á þingi. „Þær
náðu karlmönnunum á sitt band,“ seg-
ir hún og leggur áherslu á að jafnrétt-
isvinnan megi ekki bara fara fram í
hópi kvenna. „Konur hafa oft á tíðum
alltof mikið verið að tala hver við aðra
og sannfæra hver aðra í stað þess að
beina röksemdum sínum að karlmönn-
unum. Það voru þeir sem réðu öllu til
lands og sjávar. Menn láta ekki stjórn-
artaumana af hendi nema þeir séu
sannfærðir um að það sé skynsamlegt.
Þess vegna þarf að fá þjóðfélagið allt,
bæði karlmenn og konur, til þess að
standa saman í því að varðveita það
jafnrétti sem fengist hefur og koma því
áþar sem það er ekki í nægilega góðu
horfi. Þetta er sá partur af aðferða-
fræðinni sem mér finnst skipta mjög
miklu máli, en hefur kannski ekki alltaf
verið nægilega nýttur.“
Ragnhildur segir að lýðræðisleg
stofnun þurfi að sjálfsögðu að vera, í
sem allra ríkasta mæli, spegilmynd af
þjóðfélaginu sjálfu. „En konur þurfa
ekki sí og æ að vera að leggja áherslu
á sérstöðu sína; að við séum eitthvað
betri, samviskusamari eða skynsam-
ari en karlmenn. Það er auðvitað ekki
svo. Það er upp og ofan meðal
kvenna eins og meðal karla. Það má
hins vegar vel vera að áherslur okkar
geti verið mismunandi á mismunandi
þætti.“
Konur taki af skarið
Ragnhildur var kjörin á þing fyrir
Sjálfstæðisflokkinn árið 1956 þá 26
ára, tveggja barna móðir og laganemi
við Háskóla Íslands. Hún var eina kon-
an sem náði kjöri í kosningunum. Á
kjörtímabilinu á undan hafði engin
kona átt fast sæti á þingi.
Ragnhildur hafði verið virk í stúd-
entapólitíkinni og í Sjálfstæðis-
flokknum þegar hún var beðin um að
taka fimmta sætið á lista flokksins í
Reykjavík. „Ég held að uppstill-
inganefnd Sjálfstæðisflokksins hafi
gert sér ljóst að framboðslistinn yrði
sterkari ef á honum yrði einstaklingur
sem sameinaði báða þessa kosti að
vera ungur sjálfstæðismaður og
kona.“
Innt eftir því hvers vegna hún hafi
ákveðið að gefa kost á sér segir hún
að kvenréttindasjónarmið hafi ráðið
för. „Mér fannst fráleitt – og það sama
átti við um margar aðrar konur – að
engin kona skyldi vera á þingi. Þegar
ég svo stóð frammi fyrir þessari
ákvörðun, varð mér ljóst að ef ég
samþykkti þetta ekki, yrði trúlega
engin kona á þingi. Þess vegna ákvað
ég að gera uppstokkun á lífi mínu svo
þetta yrði hægt.“ Hún segir að þetta
sé eitt af því sem konur geti gert til
að bæta kvenréttindi, þ.e. taka sjálfar
af skarið ef þær geta mögulega kom-
ið því við.
Ragnhildur sat á þingi, með hléum,
allt fram til ársins 1991. Hún var fyrst
kvenna kjörin forseti þingdeildar og
önnur kvenna skipuð ráðherra; fyrst
menntamálaráðherra og síðan heil-
brigðis- og tryggingamálaráðherra.
Aðspurð segir hún, að það segi sig
sjálft, að staða kvenna í stjórnmálum
hafi verið mjög slök, þegar hún tók
fyrst sæti á Alþingi. Ástæðurnar hafi
verið margslungnar og þjóðfélags-
legar. Staðan nú sé hins vegar gjör-
breytt. „Gjörbreyting hefur orðið á
viðhorfum í þjóðfélaginu og þá um
leið á viðhorfum kvenna sjálfra.“ Auk-
in menntun kvenna skipti þar miklu
máli. „Konum finnst það ekki lengur
vera skylda sín að tala hljóðlega inni á
sínum einkavettvangi. Þeirra sjón-
armið og þeirra ásýnd kemur nú víða
fram í þjóðfélaginu.“ Hún segir að
þegar litið sé yfir þann glæsilega hóp
kvenna sem nú taki þátt í stjórn-
málum þurfi enginn að hafa áhyggjur
af framtíðinni.
Morgunblaðið/Jim Smart
Ragnhildur Helgadóttir
Ekki má slaka á klónni