Morgunblaðið - 19.06.2005, Qupperneq 22
22 SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Það sem kannski einna helstvekur athygli varðandiréttarhöldin yfir poppgoð-inu Michael Jackson vest-ur í Kaliforníu, sem lauk
með sýknu hans í vikunni, er hversu
litla athygli þau vöktu þrátt fyrir allt,
hversu lítið þau kveiktu í Bandaríkja-
mönnum þar til hugsanlega á mánu-
daginn síðasta, þegar kveðinn var upp
dómur.
Vissulega fylgdust bandarískir fjöl-
miðlar, sem og urmull blaðamanna
annars staðar að úr heiminum, vel
með þróun mála, röktu helstu tíðindi
úr vitnastúkunni og sögðu frá því dag
hvern í hvernig klæðnaði Jackson var
er hann mætti í réttarsalinn. En flest-
ir virðast sammála um að réttarhöldin
standi – þrátt fyrir allan hamagang-
inn á mánudag – fráleitt undir því að
vera nefnd í sömu andrá og ýmis um-
töluðustu réttarhöld samtímans.
Þau þykja til að mynda engan veg-
inn hafa vakið jafn sterk viðbrögð í
Bandaríkjunum og réttarhöldin yfir
leikaranum og fótboltakappanum
fyrrverandi O.J. Simpson fyrir rétt-
um tíu árum.
Þó verður varla um það deilt að
Michael Jackson er margfalt frægari
en Simpson, krýndi raunar sjálfan sig
„konung poppsins“ á sínum tíma.
Michael Jackson var að vísu ekki
ásakaður um (tvöfalt) morð, líkt og
O.J. Simpson, en kynferðisleg mis-
notkun á ungum drengjum er alvar-
legur glæpur og umfjöllun um slíka
glæpi vekur yfirleitt sterkar tilfinn-
ingar með fólki.
Engar beinar sjónvarpsútsendingar
Ein helsta skýring þess, að réttar-
höldin yfir Jackson náðu ekki sömu
hæðum, ef svo má að orði komast, og
Simpson-réttarhöldin fyrir áratug
síðan er sú að dómarinn sem valdist
til að stýra þeim var aldrei líklegur til
að leyfa þeim að þróast í þá veru.
Dómarinn, Rodney Melville, einsetti
sér einfaldlega frá fyrsta degi að
koma í veg fyrir að réttarhöldin um-
breyttust í fjölmiðlasirkus, þar sem
öllu væri sjónvarpað og bandaríska
þjóðin stæði á öndinni yfir síðustu
vendingum í sápuóperunni á skján-
um. Rætt er um að dómarinn í Simp-
son-málinu, Lance Ito, hafi algerlega
misst stjórnina í því máli og Melville
mun hafa verið staðráðinn í að slíkt
myndi ekki endurtaka sig í hans rétt-
arsal.
Verjendur Jacksons höfðu boðað
að þeir myndu kalla fyrir ýmis vitni,
sem vottað gætu að Michael Jackson
væri drengur góður. Voru nöfn eins
og Elisabeth Taylor, Diana Ross og
Stevie Wonder nefnd í þessu tilliti. Og
saksóknarar hugðust færa sönnur á
að Michael Jackson væri sannkallað-
ur öfuguggi er hellti unga drengi
fulla, sýndi þeim klámblöð og misnot-
aði þá síðan kynferðislega.
En Melville tók ekki í mál að hleypa
öllu þessu í beinar sjónvarpsútsend-
ingar og hann kærði sig ekki um að
stjörnur á borð við Taylor, Ross og
Wonder kæmu fyrir réttinn ef þær
hefðu ekkert fram að færa sem tengd-
ist þessu tiltekna máli beint.
Rétt er að rifja upp að það voru ein-
mitt hinar beinu útsendingar úr rétt-
arsalnum sem urðu til þess að Simp-
son-málið varð jafn umtalað og raun
bar vitni. Á hverjum degi gat fólk
fylgst með steinrunnu andliti Simp-
sons og eitt eftirminnilegasta atvik
þeirra réttarhalda var síðan þegar
Simpson klæddi sig í blóðugan hansk-
ann, sem morðingi fyrrverandi eigin-
konu hans og ástmanns hennar átti að
hafa notað.
Hanskinn passaði ekki, eins og
frægt er orðið, og Simpson var sýkn-
aður.
Í Jackson-réttarhöldunum var ekki
um neinar beinar sjónvarpsútsend-
ingar að ræða og viðleitni sjónvarps-
stöðva vestanhafs til að blása lífi í
málið með því að láta misgóða leikara
fara með hlutverk helstu persóna og
leikenda í „endurgerð“ á því sem fram
hefði farið í réttarsalnum náði aldrei
flugi. Með því að leyfa ekki sjónvarps-
myndavélar í réttarsalnum stöðvaði
Melville dómari semsé allt súrefnis-
flæði til fjölmiðlafársins sem ella hefði
orðið.
Og hann gekk lengra, hann bannaði
öllum er hlut áttu að máli að tjá sig
opinberlega á meðan á réttarhöldun-
um stóð. Átti þetta við um bæði verj-
endur og saksóknara, að ekki sé talað
um kviðdómarana sem sjálfsagt voru
ekki öfundsverðir af einangrun sinni
þessa rúmu fjóra mánuði sem réttar-
höldin stóðu.
Varð þessi úrskurður grínaranum
Jay Leno raunar tilefni margra
brandara í sjónvarpsþættinum The
Tonight Show en Leno var meðal
vitna í Jackson-málinu. Gerði Leno
sér mat úr því að hann gæti ekki sjálf-
ur sagt brandara um Jackson, þar
sem dómari hefði skipað honum að tjá
sig ekki um málið. Bauð Leno síðan
öðrum grínurum út á svið til sín til að
fara með brandarana sem hann ella
hefði sagt sjálfur.
Fjölmiðlar ósáttir
Fjölmiðlar vestanhafs voru allt
annað en ánægðir með áðurnefnda
úrskurði Melvilles, töldu vegið að
rétti sínum til að fjalla um opinber
mál. Melville dómari rökstuddi mál
sitt með þeim hætti að „afar erfitt“
væri fyrir mann sem væri jafn frægur
og Michael Jackson að hljóta sann-
gjörn réttarhöld, allir þekktu hann og
allir hefðu á honum skoðun. Allt yrði
því að gera til að draga úr hættunni á
því að réttarhöldin breyttust í sirkus í
auga fjölmiðlanna.
Rodney Melville er 63 ára gamall,
ólst upp í San Diego og fór þar í há-
skóla, kláraði síðan gráðu í lögfræði
frá UC Hastings-lagaskólanum í San
Francisco. Melville þjónaði einnig um
tíma í sjóhernum. Hann hefur verið
dómari í Kaliforníuríki í sextán ár og
hefur því marga fjöruna sopið. Mel-
ville hafði áður unnið bæði sem sjálf-
stæður lögmaður og sem aðstoðar-
saksóknari og þekkir því báðar hliðar
lögmennskunnar. Hann hefur orð á
sér fyrir að vera strangur dómari en
sanngjarn. Hann mun hafa átt í bar-
áttu við Bakkus á sínum yngri árum
en hætti að drekka 1978. Hann á tvær
dætur með eiginkonu sinni, þau búa á
litlum búgarði í Kaliforníu.
Flestir lagaspekúlantar, sem rætt
var við eftir úrskurðinn á mánudag,
voru sammála um að Rodney Melville
hefði reynst röggsamur dómari. Eng-
inn gat velkst í vafa um það hver var
við stjórnvölinn í réttarsalnum. Mel-
ville hækkar að vísu sjaldan róminn,
að sögn kunnugra, en sýndi litla þol-
inmæði ef honum þótti lögmennirnir
vera farnir að færa sig upp á skaftið.
Og þó lá oft við að réttarhöldin
leystust upp í farsa, eins og til dæmis
þegar Jackson mætti allt of seint, illa
fyrir kallaður og klæddur í náttfötin
sín. Hann hafði greinilega ekkert ætl-
að sér að mæta þann daginn, en
neyddist þó til þess þegar Melville
dómari gerði öllum ljóst að stjörnu-
stælar yrðu ekki liðnir í réttarsalnum.
Fyrir augum laganna eiga allir að
vera jafnir og því kom dómarinn eins
fram við Michael Jackson og allra
aðra sakborninga.
Það breytti þó ekki því, að sitt hvað
skrýtið fór fram í réttarsalnum á með-
an á þessum merkilegu réttarhöldum
stóð. Voru vitnin gjörn á að haga sér
skringilega, kviðdómarar hafa jafnvel
lýst því yfir að þeim hafi þótt flest vitn-
anna ótrúverðug. Alls komu um 140
vitni fyrir réttinn, sum þeirra heims-
fræg eins og t.d. barnastjarnan fyrr-
verandi Macaulay Culkin, og þátta-
stjórnandinn Jay Leno. Enginn þótti
þó haga sér furðulegar en móðir pilts-
ins sem sakað hafði Jackson um kyn-
ferðislega misnotkun, hún þótti skaða
mjög málstað saksóknaranna. Þetta
staðfestu einstakir kviðdómarar raun-
ar á mánudag. Hér virtist vera komin
kona sem einfaldlega stundaði það að
féfletta frægt fólk.
Mætti í náttfötunum
Melville hafði gert lýðum ljóst
strax í upphafi að hann hygðist halda
uppi aga í réttarsalnum. Jackson
mætti of seint í dómshúsið er ákæru-
atriðin voru lesin upp í janúar og þá
setti Melville ofan í við hann. „Herra
Jackson, þú ferð illa af stað hvað mig
varðar,“ sagði hann. „Ég vil segja þér
að ég mun ekki umbera svona lagað.“
Og þegar Jackson mætti of seint til
réttarhaldanna í mars – í náttfötunum
sínum, eins og áður var nefnt – var
það eftir að Melville hótaði því að láta
handtaka sakborninginn og færa
hann í fangelsi.
En þegar Rodney Melville var bú-
inn að heyra kviðdóm í málinu yfir
Michael Jackson lýsa yfir þeim úr-
skurði sínum, að söngvarinn væri
sýkn saka, var kominn tími til að
binda endahnútinn á þessi umtöluðu
réttarhöld. „Herra Jackson, trygging
þín er úr gildi fallin og þú ert frjáls
ferða þinna,“ sagði Rodney Melville
við frægasta sakborninginn sem inn í
réttarsal hans hefur komið.
Vildi tryggja sanngjörn réttarhöld
Reuters
Rodney Melville dómari stýrði réttar-
höldunum yfir poppgoðinu Michael
Jackson. Hann hefur orð á sér fyrir
að vera strangur dómari en sann-
gjarn. Hann mun hafa átt í baráttu
við Bakkus á sínum yngri árum en
hætti að drekka 1978. Hann á tvær
dætur með eiginkonu sinni, þau búa á
litlum búgarði í Kaliforníu.
Reuters
Fjölmiðlar bíða fyrir utan Neverland, búgarð Michaels Jacksons, í vikunni í þeirri von að stjarnan láti sjá sig eftir að hann
var sýknaður á mánudag.
Ein helsta skýring þess, að réttarhöldin yfir Jackson náðu
ekki sömu hæðum, ef svo má að orði komast, og Simpson-
réttarhöldin fyrir áratug er sú að dómarinn sem valdist til
að stýra þeim var aldrei líklegur til að leyfa þeim að þróast
í þá veru. Dómarinn Rodney Melville vildi ekki að réttar-
höldin yfir Michael Jackson breyttust í fjölmiðlasirkus
david@mbl.is
’Það breytti þó ekki því, að sitt hvaðskringilegt fór fram í réttarsalnum á meðan
á þessum merkilegu réttarhöldum stóð.
Voru vitnin gjörn á að haga sér skringilega,
kviðdómarar hafa jafnvel lýst því yfir að
þeim hafi þótt flest vitnanna ótrúverðug.‘
!"
#$
%"
#!
"# $
%& ''
&''!"
(#$
(
# '%
#(
% # )$
)
%
*+ ($
*+ &*
,($
-''#
%
&''%"
)$
. %
)
/ &''-"
(#$
(0 #1
&
2
%
#
%
#
$
)
% *1% 3 & & 4 &
5#
66
& &
%.
)$
) #*
78
0 &-.
)$ 9#
8: 8
&1 2 ;
;.
!.
# )$
< & # #
!.
# )$
<
2 %
/
)
)