Morgunblaðið - 19.06.2005, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 2005 27
og þáðu kaffi og kökur eins og hvern
lysti, síðan fór hópurinn saman á veit-
ingastað að borða. Þessar fyrstu vik-
ur sem Hrafnkell var í Vín voru þau
fimm, sem getið var, í sunnudags-
heimsóknum hjá Hans og Ástu, eins
og hún var jafnan kölluð, glatt var á
hjalla og Kristján söng ævinlega
nokkur lög. Var þetta Ástu ómetan-
legt til að halda lifandi tengslum við
land sitt og þjóð og manni hennar
ljúft enda var hann sannkallaður Ís-
landsvinur.
Kristján og Hrafnkell urðu góðir
félagar og sóttu tónleika og óperusýn-
ingar saman og af nógu slíku var að
taka í Vínarborg sem er óskaland
þeirra sem unna tónlist. Sumarið 1926
var mjög heitt, fóru þeir úr bænum í
sumarleyfinu og dvöldust um mánað-
artíma í Spitz, litlum bæ við Dóná
sunnar en Vín. Þar áttu þeir góða
daga við sólböð og sundferðir í ánni og
komu hressir á sál og líkama til baka.
Hrafnkell veikist
Fram undan var lokaáfangi hjá
Hrafnkeli að diplomaprófi í hagfræði
og lauk hann því í ársbyrjun 1927 eftir
að hafa sótt námið af miklu kappi.
Viku af október 1926 var haldið í Vín
fjölmennt mót þýskra og austurrískra
hagfræðiprófessora. Sóttu stúdentar
málstofur og fyrirlestra hinna virtu
lærdómsmanna og var það vissulega
hvetjandi ungum mönnum á náms-
braut.
Hrafnkell hefur lagt niður fyrir sér
tilgang námsins og skipulagt fram-
vindu þess síðustu mánuðina. Hann
er í kappi við tímann því stúdenta-
styrksins nýtur hann ekki lengur en
til hausts 1927. Hinn 16. desember
1926 segir hann í bréfi til móður sinn-
ar: „Mig langar til þess að skrifa dokt-
orsritgerðina mína um fiskveiðarnar
íslensku, bæði vegna þess að þær eru
þýðingarmesti atvinnuvegur okkar
Íslendinga og í öðru lagi hefir ekki
verið skrifað mikið í heild um slíkt.“
Hann hafði rætt þetta viðfangsefni
við aðalprófessorinn og var hann því
algerlega samþykkur. Hrafnkell ráð-
gerir að fara heim til Íslands snemma
vors 1927 og safna þar heimildum eft-
ir því sem hann þyrfti, koma svo aftur
til Vínar, ljúka ritgerðinni þar og
þreyta doktorsvörnina vorið 1928.
Hann hafði undirbúið heimferðina
vandlega og aflað sérstaklega fjár til
hennar. Leiðin mun liggja til Kiel þar
sem hann kemst í hagskýrslur sem
ekki er að hafa í sama mæli í Vín, síð-
an til Kaupmannahafnar og með skipi
þaðan til Íslands. Hann hlakkar til að
koma heim eftir fjögurra ára fjarveru.
„Skrifaðu mér fljótt, elsku systir
mín,“ segir í bréfi til Ragnheiðar 16.
nóv. 1926, „ég er farinn að hlakka til
að sjá þig sem myndarlega stúlku.“
En þó kóngur vilji sigla hlýtur byr að
ráða. Tveimur vikum fyrir brottför í
mars 1926 veiktist Hrafnkell skyndi-
lega með háan hita og var veikur upp
frá því. Í fyrstu lá hann einn mánuð á
sjúkrahúsi í Vínarborg en síðan var
hann fluttur á heilsuhælið Alland
skammt frá Baden.
Þar lést Hrafnkell úr berklum 4.
nóvember 1927.
Hjónin Ásta og Hans von Jaden
vitjuðu Hrafnkels í veikindum hans.
Eftir andlát hans sáu þau um útför-
ina, létu ganga frá legstaðnum í
kirkjugarði í Alland og sendu heim
ljósmynd af grafreitnum.
Einnig gengu þau frá persónuleg-
um munum Hrafnkels og sendu heim.
Formleg skipti voru á öðru tilheyr-
andi Hrafnkeli, bókum og búnaði í
herbergi, var því komið í verð ytra og
andvirðið sent föður hans. Gekk það í
gegn 1929 og var samtals kr. 300,00.
Minningarsjóðurinn stofnaður
Foreldrar Hrafnkels stofnuðu sjóð
með þeirri fjárhæð í minningu sonar
síns. Skyldi sá sjóður vera, í fyllingu
tímans, til styrktar ungum efnilegum
námsmönnum við nám á erlendri
grundu.
Hrafnkelssjóður skyldi þá fyrst
verða virkur þegar öld væri liðin frá
fæðingu Hrafnkels Einarssonar hinn
13. ágúst 2005.
Konungleg staðfesting á skipulags-
skrá Hrafnkelssjóðs varð 5. febrúar
1930. Skipulagsskrá sjóðsins er birt í
Stjórnartíðindum fyrir Ísland árið
1930, B-deild. Bergsveinn Ólafsson,
formaður sjóðsins, stóð að birtingunni.
Í samræmi við skipulagsskrá sjóðs-
ins er fullskipuð stjórn hans frá vor-
dögum 2005 þannig: Elías Jón Guð-
jónsson, formaður Stúdentaráðs
Háskóla Íslands, formaður, Yngvi
Pétursson rektor Menntaskólans í
Reykjavík, Steinunn Einarsdóttir
menntaskólakennari, Friðrik Pálsson
frá Stúdentafélagi Reykjavíkur, Stef-
án Friðfinnsson frá Stúdentafélagi
Reykjavíkur. Frá og með deginum í
dag hefur auglýsingu verið komið á
framfæri í fjölmiðlum um fyrstu út-
hlutun úr Hrafnkelssjóði hinn 13.
ágúst 2005.
Höfundur er hálfsystir Hrafnkels Ein-
arssonar.
Morgunblaðið 17. desember 1927
Hrafnkell Einarsson
Það eru átakanlega hörð örlög, er nú hafa í burtu svift
hinum unga og bráðgáfaða stúdent Hrafnkeli Einarssyni,
aðeins 22 ára gömlum og fjarri elskaðri ættjörðu sinni.
Hrafnkell stundaði hagfræðinám í Kiel og því næst við
Wienarháskóla af hinu mesta kappi. Ætlaði hann sér
heim til Íslands í marsmánuði síðastliðnum til þess að
viða að sér hagfræðilegum gögnum um fiskveiðar á Ís-
landi og um vöruútflutning þaðan yfirleitt.
Með haustinu 1927 hugsaði hann sér að halda áfram
náminu í Wienarborg, en 14 dögum fyrir áformaða heim-
för sína sýktist hann skyndilega með hitasótt í tesam-
kvæmi hjá einum af háskólakennurunum í læknisfræði,
og hafði hann jafnan hitaveiki upp frá því, að kalla mátti.
Í aprílmánuði var honum komið af spítala í Wien á All-
andheilsuhæli, er stendur á forkunnarfögrum stað í fjöll-
unum skammt frá heilsubótarstöðvunum í Baden. Þar
andaðist Hrafnkell úr berklaveiki þótt aðhlynning öll væri
hin besta.
Wienarborg. S
Dr. Hans baron Jaden.
Ath. blaðsins: Eftirmæli þessi eru rituð á
þýsku af dr. von Jaden og er þetta þýðing.
Ármúla 44, sími 553 2035.
— Kynntu þér málið —
Chesterfield sófasett
með pokafjöðrum og „antik“ leðri
Sófasett 3+1+1 kr. 387.620
Sófasett 3+2+1 kr. 422.170
3 sæta sófi kr. 176.980
2 sæta sófi kr. 139.870
Stóll kr. 105.320
-
ud
fo
rd
ri
ng
er
o
g
næ
rv
æ
r
Ansøgningsfrist:
Kvote 1: 1. juli
*Ring på telefon
+45 63 23 70 00
eller kig på
www.skaarupsem.dk
for at få mere at videSkårup Kirkebakke 4 · DK-5881 Skårup
Tlf. +45 63 23 70 00
lærer
Læs til
i Danmark
- vælg det stærkeste
studiemiljø!
Skógarhlí› 18 • Sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
16
86
6
Kanarí
Frábært verð
Frá 44.395 kr.
M.v. hjón með tvö börn 2-11 ára á Aguacates,
18. nóv. eða 2. des.
Allt
að
17%
ver
ðlæ
kku
n
frá
því
í fy
rra
Kanaríeyjar eru langvinsælasti
áfangastaður Evrópubúa yfir
vetrarmánuðina, enda er þar
milt og gott veður með jöfnu
hitastigi árið um kring. Á Gran
Canaria er að jafnaði 20-25 stiga hiti á daginn. Vinsælustu staðirnir
eru Enska ströndin og Maspalomas og þar eru Heimsferðir með
sína gististaði.
Þjónustan í öndvegi
Okkar kappsmál er að veita sem
besta þjónustu. Allir fararstjórar
Heimsferða hafa áralanga reynslu
og sérþekkingu á Kanaríeyjum.
• Íslensk fararstjórn
• Úrval kynnisferða
• Viðtalstímar á gististöðum
• Beint leiguflug án millilendingar
• Upplýsingabók Heimsferða með
hagnýtum upplýsingum
• Skemmti- og íþróttadagskrá í
sérvöldum ferðum
• Símavakt allan sólarhringinn
• Örugg læknaþjónusta
Bókaðu strax
og tryggðu þér bestu
gististaðina og
lægsta verðið.
í haust
19. október – 30 nætur
18. nóvember – 14 nætur
2. desember – 15 nætur
Bókunarmet
til Kanarí
fyrstu vikuna