Morgunblaðið - 19.06.2005, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 2005 35
UMRÆÐAN
Skipholti 29a,
105 Reykjavík
fax 530 6505
heimili@heimili. is
Einar Guðmundsson, lögg. fast.
Finnbogi Hilmarsson, lögg. fast.
Bogi Pétursson, lögg. fast.
sími 530 6500
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033 - Ægir Breiðfjörð löggiltur fasteignasali
Opið mán.-fim. frá kl. 9–18, fös. frá kl. 9-17
Vorum að fá í sölu 12 efri og neðri sérhæðir í 6 tvíbýlis-
húsum á góðum stað í Norðlingaholti. Hæðirnar, sem
eru 127,5 fm að stærð auk bílskúrs, eru með þremur
svefnherbergjum og stórum stofum ásamt góðum sér-
afnotareiti á lóð sem fylgir hverri íbúð. Bílskúrar fylgja
efri hæðum. Húsunum verður skilað rétt tæplega til-
búnum til innréttingar að innan en fullbúnum að utan
með frágenginni lóð. Sjá glæsilegan kynningarvef á
www.borgir.is/byggben 6802
KRÓKAVAÐ - SÉRHÆÐIR
Glæsilegar neðri og efri sérhæðir við Kólguvað í Norð-
lingaholti. Hæðirnar skiptast í anddyri, gang, þrjú
svefnherbergi, þvottahús, geymslu, baðherbergi, eld-
hús og stofu ásamt stórum sérafnotareiti. Húsin eru
forsteypt tveggja hæða tvíbýlishús. Að utan eru húsin
múrhúðuð og steinuð í ljósum lit. Afhendast tæplega
tilbúin til innréttingar að innan en fullbúin að utan með
frágenginni lóð. Sjá glæsilegan kynningarvef á
www.borgir.is/byggben 6850
KÓLGUVAÐ - SÉRHÆÐIR
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Sumarbústaður í Grímsnesi óskast
Traustur kaupandi óskar eftir u.þ.b. 70 fm sumar-
bústað í Grímsnesi. Staðgreiðsla.
Allar nánari uppl. veitir Sverrir Kristinsson
Fasteign til sölu
Glæsilegt iðnaðarhúsnæði
sem býður upp á mikla
möguleika. Síðast var það
nýtt sem fiskeldisstöð.
Húsið er um 1.250 fm að
stærð. Byggingin er hin
vandaðasta í alla staði og í
góðu ástandi með stein-
steyptum veggjum (2,5 m). Límtré sem burður í þaki. Loft-
hæð er mest 7 metrar. Þak er einangrað.
Húsið stendur á um 5 ha leigulóð úr landi Lambanesreykja í
Fljótum í Skagafirði. Húsnæðið getur nýst sem fiskeldisstöð
án nokkurra breytinga. Góð starfsmannaaðstaða, verk-
stæði, fóðurgeymsla, rannsóknastofa, skrifstofa, mötuneyti
o.s.frv. Auðvelt er að breyta húsnæðinu t.d. í hesthús og
reiðhöll með íbúð í risi. Kjörið tækifæri fyrir öfluga athafna-
menn.
Tilboð óskast send til Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins,
Borgartúni 35, 105 Reykjavík, fyrir kl. 16.00 þann 8. júlí nk.
Tilboðsfjárhæð skal miðast við staðgreiðslu.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna
öllum.
Allar frekari upplýsingar veitir Smári Þórarinsson,
Nýsköpunarsjóði, í síma 510 1800 eða
í tölvupósti, smari@nsa.is
SUNNUDAGINN 19. júní nk.
verður dagur hinna villtu blóma hald-
inn hátíðlegur hér á landi líkt og gert
er á öðrum Norðurlöndum. Boðið
verður til blómaskoðunar vítt og
breitt um landið á 18 stöðum undir
leiðsögn plöntufróðra manna. Flóru-
vinir (www.floraislands.is/flor-
vin.htm) eru hvatamenn að þessum
degi hér á landi, en á flestum hinna
Norðurlandanna eru það grasafræði-
félög landanna sem skipuleggja dag-
inn með stuðningi frá Norðurlanda-
ráði. Danir hafa lengsta hefð fyrir
skipulagningu þessa dags eða frá
árinu 1988. Fyrsti dagur villtra blóma
hér á landi var haldinn í fyrra.
Á höfuðborgarsvæðinu er boðið
upp á plöntuskoðun í Laugarási í
Reykjavík og Borgarholti í Kópavogi.
Að því loknu er tekið á móti fólki í
Grasagarði Reykjavíkur til þess að
skoða villtar íslenskar plöntur sem
þar eru varðveittar.
Laugarás
Í Laugarási er mætt kl. 13:00 við
Áskirkju. Þar mun Eva G. Þorvalds-
dóttir grasafræðingur og forstöðu-
maður Grasagarðsins í Reykajvík,
taka á móti þátttakendum. Laugarás
er friðlýstur vegna fornra ummerkja
um hærri sjávarstöðu. Undir lok ís-
aldar var Laugarásinn sker og sjór
stóð þá 43 metrum hærra en nú.
Gróður í Laugarási er að hluta til
náttúrulegur en þar má finna margar
einkennistegundir holta og bersvæða
svo sem blóðberg, geldingahnapp,
grasvíði og þjóðarblómið holtasóley.
Stór hluti af svæðinu er vaxinn birki
en með tilkomu þess hefur melagróð-
urinn hörfað fyrir grösum. Grasflekk-
irnir eru að mestu vaxnir íslenskum
grösum en einnig slæðast inn erlend-
ar grastegundir. Margar blómfagrar
blómplöntur vaxa í grasinu svo sem
gullmura, jakobsfífill og krossmaðra.
Alaskalúpína hefur dreift sér um
holtið og er afar áberandi.
Borgarholt
Í Borgarholti í Kópavogi er mætt
við Kópavogskirkju kl. 13. Þar verða
leiðbeinendur Kristbjörn Egilsson
grasafræðingur og Guðmundur Guð-
jónsson landfræðingur, báðir frá
Náttúrufræðistofnun Íslands. Í
Borgarholti er að finna óspillt gróð-
urlendi og gott úrval af villtum ís-
lenskum blómplöntum. Þetta er all-
sérstakt vegna þess að um er að ræða
stað nánast í miðju þéttbýli. Fá
höfuðborgarsvæði geta státað af slík-
um náttúrulegum svæðum. Borgar-
holtið er auk þess friðlýst sem nátt-
úruvætti vegna ísaldarminja, en þar
gefur að líta hvað gleggstu minjar á
höfuðborgarsvæðinu um hæstu
sjávarstöðu á Suðvesturlandi frá lok-
um ísaldar. Hin forna sjávarstaða
sést við neðri mörk grágrýtishnull-
unganna á holtinu.
Nýleg rannsókn sem Náttúru-
fræðistofnun Íslands og Náttúru-
fræðistofa Kópavogs stóðu að leiddi í
ljós að í Borgarholti þrífast um 115
tegundir af háplöntum, en það er um
fjórðungur af íslensku blómaflórunni.
Ein plantan, blátoppa, er fágæt á
landsvísu og skráð á válista. Þá hafa
fundist liðlega 90 mosategundir í
holtinu, þar af tvær sem eru fágætar
hér á landi, hnyðrumosi og gjótustu-
bbur. Stærstur hluti holtsins er vax-
inn lyngmóa og birkikjarr er útbreitt.
Graslendi, mýrlendi og deiglendi
finnast einnig. Allt eru þetta gróður-
félög sem hafa hátt verndargildi inni í
miðri byggð þar sem þau eru tiltölu-
lega náttúruleg og villt. Að mati Nátt-
úrufræðistofnunar Íslands hafa gróð-
urlendin og tegundafjölbreytni mosa
og háplantna í Borgarholti hátt
verndar- og fræðslugildi á svæðis-
vísu.
Borgarholtið var í upphafi friðað
vegna sérstæðra jarðmyndana en
einnig er full ástæða til að gefa gaum
að hinum villta gróðri og huga að
verndun hans. Víða hylur birki þær
jarðmyndanir sem eru friðaðar á
holtinu, en birki var á sínum tíma
plantað í jaðri holtsins og einnig hefur
það sáð sér úr nærliggjandi görðum.
Ef heldur fram sem horfir þá er þess
ekki langt að bíða að á holtinu verði
einn samfelldur birkiskógur. Yfirvöld
og bæjarbúar í Kópavogi verða því
fljótlega að gera upp við sig hvort og
þá helst hvernig best
er að bregðast við
trjávextinum og tak-
marka hann.
Grasagarður
Reykjavíkur
Að lokinni plöntu-
skoðun í Laugarási og
Borgarholti verður
tekið á móti fólki í
Grasagarðinum í
Laugardal, í safn-
deildinni Flóru Ís-
lands. Eins og í öllum
grasagörðum eru merkispjöld við
hverja plöntutegund þar sem fram
kemur íslenskt og latneskt nafn
hennar. Í þetta skipti verður búið að
fjarlægja merkispjöldin og fólk fær
að spreyta sig á því að merkja þær
tegundir sem það lærði að þekkja
fyrr um daginn. Að lokum er boðið
upp á te af íslenskum villtum jurtum.
Flóra Íslands var stækkuð í fyrra,
meira rými er fyrir hverja tegund og
einnig gefst tækifæri að búa til fjöl-
breyttari búsvæði fyrir plöntur.
Varðveittar eru um 380 tegundir af
480 blómplöntum og byrkningum á
Íslandi. Margar fágætar tegundir eru
í varðveislu svo sem fjallategundir og
tegundir sem eingöngu vaxa við hveri
á Íslandi.
Þátttaka í plöntuskoðun á degi
hinna villtu blóma kostar ekkert og
ekki þarf að tilkynna hana fyrir fram,
aðeins að mæta á réttum stað og tíma.
Þetta er upplagt tækifæri fyrir alla
fjölskylduna, unga sem aldna, að læra
að þekkja villt blóm sem vaxa í kring
um okkur. Markmiðið með plöntu-
skoðuninni er öðrum þræði að vekja
áhuga almennings á plöntum og
verndun þeirra. Nánari upplýsingar
um staði og tíma þar sem boðið verð-
ur upp á plöntuskoðun annars staðar
á landinu má finna á www.florais-
lands.is/blomadagur.htm
Dagur villtra blóma
Eva G. Þorvaldsdóttir og Hilm-
ar J. Malmquist skrifa í tilefni
af degi villtra blóma, sem er í
dag
Hilmar J. Malmquist
Eva er forstöðumaður Grasagarðs
Reykjavíkur. Hilmar er for-
stöðumaður Náttúrufræðistofu Kópa-
vogs (www.natkop.is).
Eva G. Þorvaldsdóttir