Morgunblaðið - 19.06.2005, Side 50
50 SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Séra Þórhallur Heimisson hefur und-anfarin tíu ár haldið hjónanámskeið ávegum Hafnarfjarðarkirkju og hafa þaueinnig verið haldin víða um land undir
handleiðslu Þórhalls, sem og fyrir íslenska söfn-
uðinn í Osló. Námskeið þessi hafa notið mikilla
vinsælda og samtals hafa 6.500 manns sótt nám-
skeiðin frá upphafi. Á hjónanámskeiðinu er talað
um þær leiðir sem hægt er að fara til að sleppa út
úr vítahring deilna og átaka í sambúð og hvernig
styrkja má innviði fjölskyldunnar.
Þó sumarið sé yndislegur tími þá hafa margir á
tilfinningunni að mikið sé um skilnaði á vorin og
sumrin. Þórhallur segist ekki vilja tengja eina árs-
tíð frekar en aðra við skilnaði, en sagði að sín
reynsla væri að haustin væru frekar sá tími sem
fólk fer í sundur. „Margir gera því miður þau mis-
tök að ætla sér að leysa vandamálin með því að
fara saman í sumarfrí með börnin í þeirri von að
þá verði allt gott. En þetta er í raun skyndilausn
sem virkar ekki og oftar en ekki fer allt upp í loft
um sumarið, einmitt vegna þess að ekki hefur ver-
ið tekið á rótum vandans. Og fyrir vikið verða
særindin og vonbrigðin svo mikil þegar hlutirnir
ganga ekki upp og sumarfríið verður ekki eins frá-
bært og vonir stóðu til og þá gefst fólk oft upp. Ég
ráðlegg fólki eindregið að forðast allar skyndi-
lausnir og taka frekar af alvöru á málunum og
leita sér hjálpar ef brestir eru í hjónabandinu, áð-
ur en sumarið gengur í garð, einmitt til að sum-
arið og fríið verði sá yndislegi tími fyrir alla fjöl-
skylduna sem það á að vera. Ég hef útskrifað
mörg hjón fyrir sumarið og gef þeim þá
ráð um hvernig gott er að fara inn í sumarið. Ég
tek það fram að á svona námskeiði kem ég ekki
eins og bjargvættur, heldur byggist þetta mikið á
sjálfsábyrgð og heimavinnu fólksins og margir
koma í viðtöl eftir að námskeiði lýkur. Hjónaband
þarf að rækta á hverjum degi og þar hvílir
ábyrgðin hjá báðum aðilum sambandsins.“
Hjónanámskeið Þórhalls eru vetrarnámskeið
sem haldin eru frá byrjun september til loka maí.
Á þessum tíu árum sem Þórhallur hefur haldið
námskeiðin hefur safnast saman mikið efni sem
hann ætlar að draga saman í bók sem hann vinnur
að þessi misserin en hún byggist ekki síður á
þeirri miklu reynslu sem skapast hefur með nám-
skeiðahaldinu.
Hjónabandið | Rækta skal sambandið á hverjum degi
Sumarfríið getur tekið á
Séra Þórhallur Heim-
isson er fæddur 30. júlí
árið 1961. Hann er stúd-
ent frá Mennta-
skólanum á Laug-
arvatni og
guðfræðingur frá Há-
skóla Íslands. Þórhallur
er prestur við Hafn-
arfjarðarkirkju, giftur
og þriggja barna faðir.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 borguðu, 4 snauð,
7 deilu, 8 kunnátta, 9 tek, 11
askar, 13 hugboð, 14 fjalls-
brúnin, 15 flasa í hári, 17 at-
laga, 20 blóm, 22 lítilfjör-
legur, 23 hefur í hyggju,
24 rétta við, 25 bind saman.
Lóðrétt | 1 óþétt, 2 taka
land, 3 sæla, 4 tölustafur,
5 söngvari, 6 gleðin, 10
klaufdýr, 12 skolla, 13
gyðja, 15 nær í, 16 for-
smán, 18 daufinginn, 19
kyrtla, 20 elska, 21 naumt.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 hnausþykk, 8 fótur, 9 aular, 10 agg, 11 særir, 13
arður, 15 holls, 18 harma, 21 ker, 22 fíkja, 23 eyðir, 24
hrollköld.
Lóðrétt | 2 nýtur, 3 urrar, 4 þvaga, 5 kálið, 6 ofns, 7 frár, 12
ill, 14 róa, 15 hæfa, 16 lokar, 17 skafl, 18 hrekk, 19 riðil, 20
arra.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Tónlist
Grasagarður Reykjavíkur | Páll Óskar &
Monika munu halda hina árlegu Sólstöðu-
tónleika í Café Flóru, grasagarðinum í Laug-
ardal sunnudaginn 19. júní kl. 22.00. Forsala
aðgöngumiða er í Café Flóru sími 866 3516
og við innganginn á tónleikadegi. Ekki er
tekið við greiðslukortum.
Hóladómkirkja | Tónleikar kl. 14. Bakland
Óskars Guðjónssonar leikur létt alþýðulög.
Aðgangur ókeypis.
Norræna húsið | Camerarctica heldur upp á
að 90 eru liðin frá því að konur fengu kosn-
ingarétt og leikur tónlist eftir íslenskar kon-
ur kl. 17. Tónskáldkonurnar eru: Anna S. Þor-
valdsdóttir, Bára Grímsdóttir, Elín
Gunnlaugsdóttir, Hildigunnur Rúnarsdóttir,
Jórunn Viðar, Karólína Eiríksdóttir og Mist
Þorkelsdóttir.
Myndlist
Árbæjarsafn | Þorvaldur Óttar Guð-
laugsson sýnir íslensk fjöll úr postulíni í List-
munahorninu.
Café Karólína | Hugleikur Dagsson – „I see
a dark sail“ til 24. júní.
Energia | Sigurður Pétur Högnason.
Feng Shui Húsið | Diddi Allah sýnir olíu- og
akrýlverk. Opið kl. 10–18 virka daga, kl. 12–18
um helgar.
Gallerí I8 | Lawrence Weiner til 6. júlí.
Gerðuberg | Sýningin Stefnumót við safn-
ara II er opin virka daga frá kl. 11–17. Lokað
um helgar í sumar. Kaffikönnur, bangsar,
gosdrykkjamiðar, dúkkulísur, munkar, lista-
verk úr brotajárni og herðatrjám og margt
fleira skrýtið og skemmtilegt! Sjá
www.gerduberg.is.
Götur Reykjavíkur | Margrét H. Blöndal til 1.
ágúst.
Hafnarbakkinn í Reykjavík | Kristinn Bene-
diktsson Fiskisagan flýgur – ljósmyndasýn-
ing til 31. ágúst.
Hafnarborg | Wilhelm Sasnal, Bojan Sarce-
vic, Elke Krystufek, On Kawara til 21. ágúst.
Hallgrímskirkja | Sumarsýning Listvina-
félags Hallgrímskirkju. Guðbjörg Lind Jóns-
dóttir sýnir myndverk í forkirkju og kór Hall-
grímskirkju. Sýningin stendur til 14. ágúst.
Hallgrímskirkja | Þórólfur Antonsson og
Hrönn Vilhelmsdóttir sýna ljósmyndir í Hall-
grímskirkjuturni.
Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi | Auður
Vésteinsdóttir.
Hrafnista Hafnarfirði | Rúna (Sigrún Guð-
jónsdóttir) sýnir í Menningarsalnum á fyrstu
hæð.
Hönnunarsafn Íslands | Circus Design í
Bergen. Til 4. sept.
Kaffi Langbrók | Elín Egilsdóttir sýnir
myndir unnar með olíu, vatnslitum og bleki.
Sýningin verður opin alla helgina og eitt-
hvað fram í næstu viku.
Kaffi Sel | Ástin og lífið. Gréta Gísladóttir
sýnir á Kaffi Seli við golfvöllinn á Flúðum.
Sýningin stendur til 3. júlí.
Kaupfélag listamanna | KFL – group er með
hressandi myndlist í Gamla Kaupfélaginu í
Hafnarfirði að Strandgötu 28, 2.hæð.
Myndlist 27 listamanna leikur um alla hæð-
ina, í herbergjum, í sal, á klósettum og dreg-
ur sig einnig út úr húsinu. Sýningin stendur
til 23.júní og er opið alla daga frá 14–18. Að-
gangur er ókeypis.
Kling og Bang gallerí | John Bock til 26.
júní.
Leonard | Mæja sýnir út júnímánuð. Sjá nán-
ar á www.maeja.is.
Listasafn ASÍ | Ólafur Árni Ólafsson, Libia
Pérez de Siles de Castro til 3. júlí.
Listasafn Einars Jónssonar | Opið er alla
daga nema mánudaga frá kl. 14.00 – 17.00.
Listasafnið á Akureyri | Matthew Barney,
Gabríela Friðriksdóttir til 26. júní.
Listasafn Íslands | Dieter Roth til 21. ágúst.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Gabríel
Kuri, Jennifer Allora og Guilliermo Calza-
dilla, Brian Jungen, Hekla Dögg Jónsdóttir,
John Latham, Kristján Guðmundsson til 21.
ágúst.
Listasafn Reykjanesbæjar | Á sumarsýn-
ingu má nú sjá sænskt listgler. Um er að
ræða rúmlega 60 verk eftir 50 helstu gler-
listamenn Svía, úrval hins besta úr heimi
nytjaglers og skúlptúrglers. Sýningin kemur
frá Hönnunarsafni Íslands.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Dieter
Roth, Peter Fischli, David Weiss, Haraldur
Jónsson, Urs Fischert il 21. ágúst..
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Sumarsýning Listasafns Íslands.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Sum-
arsýning – Aðföng, gjafir og lykilverk eftir
Sigurjón Ólafsson. Safnið er opið milli klukk-
an 14 og 17.
Norska húsið í Stykkishólmi | Ástþór Jó-
hannsson.
Nýlistasafnið | Thomas Hirschhorn til 24.
júlí.
Ráðhús Reykjavíkur | Tjarnarsalur. Sýning
Helgu Windle til 21. júní.
Safn | Carsten Höller til 10. júlí.
Saltfisksetur Íslands | Kristinn Benedikts-
son ljósmyndari með ljósmyndasýningu.
Skaftfell | Anna Líndal til 26. júní.
Slunkaríki | Elín Hansdóttir, Hreinn Frið-
finnsson til 26. júní.
Suðsuðvestur | Sólveig Aðalsteinsdóttir
sýnir þrettán ljósmyndir. Opið fimmtud. og
föstud. frá 16–18 og um helgar frá 14–17.
Vatnstankarnir við Háteigsveg | Finnbogi
Pétursson sjá nánar www.or.is.
Við Fjöruborðið | Inga Hlöðvers.
Þjóðminjasafn Íslands | Mynd á þili í Boga-
sal. Sýningin er afrakstur rannsókna Þóru
Kristjánsdóttur á listgripum Þjóðminja-
safnsins en munirnir eru frá 16., 17. og 18.
öld. Sýningin er liður í Listahátíð í Reykjavík
2005.
Þjóðminjasafn Íslands | Skuggaföll. Port-
rettmyndir Kristins Ingvarssonar. Margir
þekkja stakar ljósmyndir Kristins en með
því að safna úrvali af þeim saman birtist ný
og óvænt mynd.
Þjóðminjasafn Íslands | Story of your life –
ljósmyndir Haraldar Jónssonar. Sýningin
varpar ljósi á margbrotið eðli ljósmynd-
arinnar, náin og um leið flókin tengsl hennar
við einstaklinginn, raunveruleikann, um-
hverfið, tímann, frásögnina og minnið.
Leiklist
Skemmtihúsið | Ferðir Guðríðar, leikrit í
Skemmtihúsinu á Laufásveg 22, á hverju
fimmtudagskvöldi kl. 20 og alla sunnudaga
kl. 18 til enda ágúst. Leikkona Caroline Dal-
ton. Leikstjóri og höfundur Brynja Benedik-
dóttir. Tilvalið fyrir erlenda ferða- menn og
þá sem skilja enska tungu.
Hafnarfjarðarleikhúsið | Tveir leikþættir,
Hreindýr og Ísbjörn óskast e. Sigurbjörgu
Þrastardóttur kl. 20. Aðgangur er ókeypis.
Leikarar eru Erling Jóhannesson, Jón Páll
Eyjólfsson og Elma Lísa Gunnarsdóttir. Leik-
stjóri: Hilmar Jónsson.
Listasýning
Árbæjarsafn | Samsýning á bútasaumi,
Röndótt – Köflótt, í Kornhúsinu. Opið í sum-
ar frá kl. 10–17.
Söfn
Bókasafn Kópavogs | Sýning á ljósmyndum
úr fórum Kópavogsbúa af börnum í bænum
í tilefni af 50 ára afmæli Kópavogsbæjar í
samstarfi Bókasafns og Héraðsskjalasafns
Kópavogs.
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Hljóð-
leiðsögn um húsið, margmiðlunarsýning og
skemmtilegar gönguleiðir í nágrenninu.
Jagúarinn í hlaðinu. Opið alla daga í sumar
frá kl. 9 – 17.
Lindasafn | Lindasafn er opið í alla daga
sumar. Mikið úrval af ferðahandbókum og
garðyrkjubókum. Safnið er opið mánudaga
frá kl. 11–19,. þriðjudaga til fimmtudaga frá
kl. 13–19, föstudaga 13–17.
Ráðhús Þorlákshafnar | Á sýningu í Ráð-
húsi Ölfuss gefur að líta margar tegundir
uppstoppaðra fiska, bæði vel þekktar teg-
undir og furðufiska.
Smámunasafnið í Sólgarði | Eyjafjarð-
arsveit. Opið alla daga í sumar fram til 15.
september frá kl. 13–18.
Þjóðmenningarhúsið | Sýningar í Þjóð-
menningarhúsinu eru opnar alla daga frá kl.
11 til 17. Helstu sýningar eru; Handritin, Fyr-
irheitna landið og Þjóðminjasafnið – svona
var það. Á veitingastofunni Matur og menn-
ing er gott að slaka á og njóta veitinganna
og útsýnisins yfir Arnarhólinn og höfnina.
Þjóðmenningarhúsið | Norrænt bókband
2005. Á sýningunni er áttatíu og eitt verk
eftir jafnmarga bókbindara frá Norðurlönd-
unum. Sýningin fer um öll Norðurlöndin og
verður í Þjóðmenningarhúsinu til 22. ágúst.
Opið frá kl. 11–17.
Kvikmyndir
Kvikmyndasafn Íslands | Útlaginn frá 1981
eftir Ágúst Guðmundsson. Myndin er gerð
eftir Gísla sögu Súrssonar og gerist
snemma á 11. öld. Aðalleikarar eru Arnar
Jónsson og Tinna Gunnlaugsdóttir. Sýnd kl.
16. Myndin er með enskum texta og miða-
verð er kr. 500.
Fréttir
Aðalþjónustuskrifstofa Al–Anon | Skrif-
stofan er opin: Mánudaga 10–13. þriðjudaga
13–16 og fimmtudaga frá 10–13. http://
www.al–anon.is.
Fundir
Aðalþjónustuskrifstofa Al-Anon | Nýliða-
fundir í Reykjavík. Mánudagur: Kirkja óháða
safn. Kl. 20. Þriðjud.: Karlafundur Seljavegi
2 kl. 18.30. Árbæjarkirkja kl. 20. Miðviku-
dagur: Seljavegur 2 kl. 20. Tjarnargötu 20
kl. 20. Neskirkja kl. 20. Fimmtud.: Áskirkja
kl. 20. (Mælt er með ca. 6 fundum í röð).
Kynning
Aðalþjónustuskrifstofa Al-Anon | Al-Anon
er félagsskapur fólks sem hefur orðið fyrir
áhrifum af drykkju ættingja eða vinar. Al-
Anon hefur aðeins einn tilgang: Að hjálpa
fjölskyldum og vinum alkóhólista. Nánar á:
www.al-anon.is.
Útivist
Ferðafélagið Útivist | Jónsmessu-
næturganga Útivistar 24.–26. júní:
Stemmningsferð þar sem allir breytast í
hetjur eftir krefjandi og skemmtilega ferð
yfir Fimmvörðuháls á bjartasta tíma ársins.
Þetta er vinsælasta helgarferð Útivistar og
hjá mörgum hinn eini sanni sumarboði.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Hrúturinn fær mikið út úr samtölum við
nána vini og maka í dag og á þar af leið-
andi gott með að sýna rausnarskap.
Hann hefur langtímamarkmið tengd
heimili og fjölskyldu í huga.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Veltu því fyrir þér hvernig þú getur bætt
skilyrði þín í vinnunni núna. Kannski er
það hægt með því að skipta um viðhorf,
eða kannski áttu að skipta alveg um
starf.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Ástarævintýri, rómantík, skapandi við-
fangsefni og skemmtanabransinn eru
svið lífsins sem færa tvíburanum heppni
í ár. Hann fer svo sannarlega í frí. Góðar
stundir.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Krabbinn á að nota árið sem nú er að líða
til þess að bæta stöðu sína á fast-
eignasviðinu. Reyndar er allt sem teng-
ist prívatlífi og fjölskyldu ánægjulegt og
gefandi um þessar mundir.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljónið á gott með að sýna öðrum hlýju
og rausnarskap núna. Það er hamingju-
samt. Auðvitað skiptast á skin og skúrir,
þannig er það alltaf, en lífið er ljúft þessa
dagana.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyjan hefur hærri tekjur þetta árið en
eyðir að sama skapi meiru. Hún finnur
reyndar til ríkidæmis, sem ekki tengist
því beint. Mundu að sýna örlæti til að
tryggja áframhaldandi velgengni.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú mátt búast við jákvæðum breyt-
ingum því Júpíter, pláneta heppninnar,
er enn í þínu merki. Hann verður með
þér fram í lok nóvember og var síðast í
vogarmerkinu 1993.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdrekinn hefur verið í betra sam-
bandi við sinn innri og andlegri mann
upp á síðkastið. Hann áttar sig á því að
besta leiðin til hamingju er með því að
vera hjálpsamur.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Njóttu þín í félagsskap og vinahópi þetta
árið. Notaðu tímann til samstarfs við
aðra og farðu jafnvel í ferðalag með ein-
hverjum.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Steingeitin gæti orðið ýmissa hlunninda
aðnjótandi því starfssvið hennar nýtur
blessunar um þessar mundir. Orðspor
hennar er gott og fólk hefur mikið álit á
henni.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Gríptu tækifæri sem gefast til ferðalaga
í ár. Allt sem tengist útgáfu, fjölmiðlum
og æðri menntun virðist munu ganga
vel.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Gæfa annarra verður fisknum hugs-
anlega til blessunar á yfirstandandi ári.
Á því leikur enginn vafi. Maki þinn eða
aðrir leggja þér lið og færa þér jafnvel
gjafir.
Stjörnuspá
Frances Drake
Tvíburar
Afmælisbarn dagsins:
Þú er klár og rannsakandi að eðlisfari.
Þú hangir ekki á hliðarlínunni, heldur
blandar þér í slaginn. Það er óhætt að
segja að þú sért staðföst manneskja.
Einnig ertu heillandi og sannfærandi og
þér meðvitandi um hlutverk þitt í sam-
félaginu.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.