Morgunblaðið - 19.06.2005, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 2005 51
MENNING
Sunnudagur 19. júní
Kl: 16:00 Tónleikar með Heru
Hjartardóttur í Hótel Eddu,
ÍKÍ en hún er að leggja loka-
hönd á nýja plötu með frum-
sömdu efni og flytur það í
bland við eldra efni. Aðgang-
ur kr. 1.000.
Kl: 18:00 Til minningar um
fimleikahús. Dagskrá í fim-
leikahúsinu við vatnið. Her-
dís Jónsdóttir víóluleikari,
Þóra Sigurðardóttir mynd-
listarkona og Eyrún Inga-
dóttir sagnfræðingur.
Gullkistan
OG SVO er það blessuð ástin. Hið
eilífa yrkisefni. Ástin og dauðinn við
hafið. Eða, einsog í skáldsögu Ey-
vindar P. Eiríkssonar, Örfok, ástin í
og á íslenskri náttúru. Rotnandi lík
í auðninni sem að hálfu er runnið
saman við náttúruna. Spennan við
fyrstu kynni. Hinir óhjákvæmilegu
árekstrar þegar kynnin verða nán-
ari. Uppgjör og upplausn ástar og
líkama. Sagan öll. Og hringrásin
hefst að nýju. ÉG og ÞÚ. Aftur og
aftur í gegnum aldirnar. Sömu von-
ir, sama gleði, sömu mistök, sömu
vonbrigði. Kynslóð fram af kynslóð
í samspili við blinda náttúruna sem
heldur sínu striki hvað sem nýjum
uppgötvunum í sálarfræði og upp-
lýsingamiðlun líður. Sagan enda-
lausa.
Eyvindur ræðst ekki á garðinn
þar sem hann er lægstur í vali á við-
fangsefni. Gerir tilraun til að rýna í
grundvallarþætti mannlegs eðlis
um leið og hann endurspeglar þær
áherslubreytingar sem orðið hafa í
samskiptum kynjanna síðustu ára-
tugi. Og kemst að niðurstöðu: Við
erum öll villt í óbyggðum mannlífs-
ins, leitandi hins helmingsins af
okkur en hörfum undan í ofboði um
leið og við finnum hann. Og ekkert
framundan nema dauðinn.
Ekki ný niðurstaða, svo sem.
Ekki frekar en spurningin sem lagt
er upp með. Og raunar afskaplega
fátt nýstárlegt að finna í þessari
skáldsögu. Árásir á gerviþarfir,
femínisma, neysluþjóðfélagið,
græðgina, sjálfselskuna og höfnun
ástarinnar hafa verið leiðarstef
skáldsagna margra höfunda langa
lengi. Og Örfok bætir litlu við það
sem aðrir hafa áður sagt. Sorglega
litlu þar sem Eyvindur er snjall höf-
undur, góður penni og hefur skoð-
anir sem ættu að skipta máli. Og
hefur ofurást á tungumálinu. En
einsog oft vill verða með ástfangna
menn þá ber ástin hann ofurliði.
Merkingin kafnar í orðunum fögru
og eftir stendur síða eftir síðu af
flottum setningum sem hafa stærra
yfirborð en innihald. Persónurnar
ÞÚ og ÉG, einu persónur sögunnar,
týnast í orðaflaumn-
um.Tilfinningar,
vangaveltur, sárs-
auki og áður nefnd-
ar árásir á óvini lífs-
ins fletjast út undir
þunga orðanna og
glata slagkraft-
inum. Lesningin
verður langdregin
og aftur og aftur
týnir lesandinn
þræðinum í hafi af
orðum:
Og ÞÚ sendir
geislana inn, langa
og heitglóandi,
kaldskínandi
ísneista sem nálgast eins og gneist-
andi smásverð sem skjóta brenn-
andi leisioddum í veruna rauðu sem
skelfur og þenst og dregst og vill
vera lifandi en er ekki
ætlað að deyja, ÉG get
ekki dáið, ÉG þenst, ÉG
verð að lifa og ÉG lifi, og
ÉG dregst, en sár berast
á mig og ÉG verð að lifa.
(bls. 54)
Og svona er haldið
áfram. 176 síður af svo
góðu eru nóg til að æra
óstöðugan lesanda. Hér
hefði góður yfirlesari
gert kraftaverk. Það er
Akkillesarhæll margra
höfunda að hrífast svo af
eigin texta að þeir mega
ekki sjá af nokkru orði og
það virðist hafa hent Ey-
vind P. Eiríksson við skrif þessarar
sögu. Því miður.
Náttúra mannsins
BÆKUR
Skáldsaga
Eyvindur P. Eiríksson, Lafleur 2005,
176 bls.
Örfok
Friðrika Benónýs
Eyvindur P. Eiríksson
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6
5. Rf3 0-0 6. Be2 e5 7. 0-0 Ra6 8. Be3
Rg4 9. Bg5 De8 10. h3 Rf6 11. dxe5
dxe5 12. Be3 b6 13. Dc2 Rb4 14. Db1
c5 15. Rd5 Rbxd5 16. cxd5 Rh5 17. a4
Bd7 18. Dc2 f5 19. Hfe1 Rf6 20. exf5
gxf5 21. Bc4 Kh8 22. Rg5 Hg8 23. f4
e4 24. d6 h6 25. Rf7+ Kh7 26. Re5
Be6 27. a5 Rd5 28. axb6 Bxe5 29. fxe5
axb6 30. Hxa8 Dxa8 31. Db3 f4 32.
Bf2 e3 33. Dc2+ Kh8 34. Bh4 f3
Staðan kom upp á búlgarska meist-
aramótinu sem lauk fyrir skömmu.
Vladimir Petkov (2.463) hafði hvítt
gegn aðstoðarmanni Veselins Topa-
lovs, Ivan Cheparinov (2.621). 35.
Bxd5! Hér þurfti hvítur að sjá fyrir
að hótunin Bh4-f6+ væri sterkari en
ógnvekjandi frípeð svarts. 35. ...f2+
36. Kh2! Í þessu felst snilldin þar eð
36. ...fxe1=D væri nú svarað með 37.
Bf6+ Hg7 38. Dg6! og svartur getur
ekki varist máti þó að hann hafi tvær
drottningar á borðinu. 36. ...Df8 37.
Bxe6 Df4+ 38. Kh1 fxe1=D+ 39.
Bxe1 Hf8 39. ...Df1+ hefði verið svar-
að með 40. Kh2 Dxe1 41. Bxg8 og
hvítur vinnur. 40. Bc4 b5 41. Bxb5 og
svartur gafst upp. Þetta var eina
tapskák hins 18 ára Cheparinovs á
mótinu en hann varð hlutskarpastur á
því.
Þessi mótasigur hans er ekki sá
fyrsti á árinu og er því útlit fyrir að
Búlgarar eignist einn ofurstórmeist-
arann til viðbótar.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik