Morgunblaðið - 19.06.2005, Qupperneq 56
56 SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
H Á D E G I S B Í ÓBatman Begins kl. 5 - 7 - 9 og 11 b.i. 12
Inside Deep Throat kl. 9 og 11 Stranglega b.i. 16 ára
A Lot Like Love kl. 5 og 7
Voksne Mennesker kl. 5.45 - 8 og 10.15
Crash kl. 5.45 - 8 og 10.15 b.i. 16
The Hitchhiker´s.. kl. 4,50
BATMAN EINS OG ÞÚ HEFUR ALDREI SÉÐ HANN ÁÐUR !
Stranglega bönnuð innan 16 ára.
Heimildarmynd frá Óskarsverðlauna
hafanum Brian Grazer
Ó.H DV
H.L MBL
Ó.H.T RÁS 2
aston kutcher amanda peet
RÓMANTÍK GETUR EYÐILAGT GÓÐA VINÁTTU
H.J. MBL
C
400 KR MIÐAVERÐ Á ALLAR MYNDIR KL.12
DAGANA 15 - 19 JÚNÍ SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI
ROGER EBERT
S.K. DV.
Capone XFM
Kvikmyndir.is
Gleymið öllum hinum Batman myndunum.
Þessi er málið
Andri Capone / X-FM 91,9
“Einn af stærstu smellum ársins.”
B.B. Blaðið
Loksins, Loksins
M.M.M / Xfm 91,9
Þórarinn Þ / FBL
Gleymdu hinum. Þetta er alvöru Batman
Ó.Ö.H / DV
D.Ö.J. / Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.is
Gleymið öllum hinum Batman myndunum.
Þessi er málið
Andri Capone / X-FM 91,9
“Einn af stærstu smellum ársins.”
B.B. Blaðið
Loksins, Loksins
M.M.M / Xfm 91,9
Þórarinn Þ / FBL
Gleymdu hinum. Þetta er alvöru Batman
Ó.Ö.H / DV
D.Ö.J. / Kvikmyndir.com
Nú er nýafstaðin verðlaunahá-tíðin Gríman þar sem til-nefndir eru og verðlaunaðir
þeir og þær sem þykja hafa skarað
framúr í íslensku leikhúslífi á und-
anförnu leikári.
Verðlaunahátíðir af þessu tagi
hafa færst í vöxt hér á landi á und-
anförnum árum og nægir að nefna
Grímuna, Eddu-verðlaunin, Íslensku
tónlistarverðlaunin og hlust-
endaverðalun útvarpsstöðvarinnar
Fm 95,7 því til staðfestingar.
Sú umræða sprettur gjarnan upp í
kringum verðlaunahátíðir tengdum
listgreinum um hvernig eigi að
dæma um hæfileika fólks á listasvið-
inu. Einnig sýnist sitt hverjum um
hvort val dómnefndar hafi verið rétt
hverju sinni, hvort viðkomandi leik-
ari, hljómsveit eða búningahönn-
uður hafi í raun verið bestur af þeim
sem tilnefndir eru eða þá hvort rétt
hafi verið tilnefnt í hverjum flokki.
Stóra spurningin er; er hægt að
keppa í listum?
Mörgum þykir það trúlega hæp-ið því það hlýtur að teljast
huglægt mat hvers og eins hver er
besta leikkonan eða hver samdi
bestu kvikmyndatónlistina.
Það er annað en til dæmis á
íþróttamótum þar sem þeir bestu
mætast til að skera úr um hver sé
fremstur meðal jafningja. Þar segir
nefnilega skeiðklukka eða marka-
tala óyggjandi til um hver sigurveg-
arinn er og flestir yfirleitt sammála
um niðurstöðuna.
Þetta er þó kannski ekki alveg
sambærilegt þar sem allur ferill
íþróttamannsins miðar að því að
bæta árangur sinn til að geta skarað
fram úr og verið bestur á mótum.
Það er þó tæpast takmark margra
leikstjóra eða söngvara með vinnu
sinni að fá verðlaunagrip fyrir.
Ekki er markmið þessa pistils aðkasta rýrð á téðar verð-
launahátíðir enda eru þær hið
skemmtilegasta áhorf auk þess sem
þær verðlauna fólk fyrir hæfileika
sína, sem getur seint talist neikvætt.
Það er þó kannski vert að setja
spurningamerki við val á þeim bestu
í svo huglægum efnum. Hvað þýðir
það að platan Mugimama, Is This
Monkeymusic? með Mugison hafi
verið velin besta platan á íslensku
tónlistarverðlaununum fyrr á árinu?
Þýðir það að meirhluti landsmanna
telji þetta bestu plötuna sem kom út
árið 2004? Eða er það mat fámennr-
ar dómnefndar að svo sé? Er þá
hægt að fullyrða að platan umrædda
sé besta platan sem kom út á Íslandi
á síðast ári? Tæplega er hægt að
fullyrða um slíka hluti enda er það
smekksatriði hvers og eins. Það er
þó engu logið um það að Mugimama,
Is This Monkeymusic? er frábær
plata og ein af þeim bestu sem komu
út hér á landi á síðasta ári. En það er
nú bara mín skoðun.
Í kjölfarið er einnig er hægt að
velta fyrir sér hvers vegna er ekki
keppt í myndlist, fatahönnun eða
annarri listsköpun?
Títtnefndar verðlaunahátíðir eruhaldnar að erlendri fyrirmynd.
Milljónir manna fylgjast með ár
hvert þegar Óskarsverðlaunin,
Grammy-verðlaunin og MTV-
verðlaunin eru afhent. Eftirvænt-
ingin er nefnilega ekki síst að berja
stjörnurnar augum, hver mætir með
hverjum, hverju klæðast þau og svo
að lokum, hver stendur uppi sem
sigurvegari. Uppbygging og fram-
vinda þessara hátíða er afar fyr-
irsjáanleg, vinningshafarnir koma
sjaldnast á óvart og þakkarræður
einkennast gjarnan af vandræða-
legum ástarjátningum og beiðni um
frið á jörð. Hérlendis hafa þakk-
arræður vinningshafa ekki enn náð
bandarískum fyrirmyndum (Guði sé
lof segja trúlega margir). Sjónvarps-
efnið sjálft er þó sett upp á sama
máta. Fylgst er með prúðbúnum
gestum koma til hátíðanna, boðið
upp á hressileg skemmtiatriði á milli
verðlaunaafhendinga og þaulæfðir
brandarar notaðir til að skemmta
áhorfendum.
Margt leikhús- og kvikmynda-gerðarfólk hérlendis hefur
lýst verðlaunahátíðunum meira sem
uppskeruhátíð, einskonar árshátíð
þar sem litið er yfir farinn veg og því
fagnað sem vel hefur verið gert. Það
er því kannski með því hugarfari
sem maður á að horfa á verð-
launahátíðirnar, uppskeruhátíð þar
sem fólk fær verðlaun fyrir góð störf
í þágu listarinnar án þess þó að taka
því of alvarlega.
Keppt í listum?
’Stóra spurningin er;er hægt að keppa í
listum?‘
AF LISTUM
Birta Björnsdóttir
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Mugison átti að margra mati bestu
plötu síðastliðins árs.
birta@mbl.is
Sean Penn hefur á ný brugðið sér í hlutverk frétta-manns og það ekki í kvikmynd heldur í raun og
veru. Hann er nú staddur í Íran og sendir þaðan
fréttir af forsetakosningunum sem fara fram um
helgina. Það var bandaríska dagblaðið San Francisco
Chronicle sem sendi Penn á staðinn en blaðið sendi
Penn einnig til Íraks árið 2002 til að skrifa um að-
draganda innrásar Bandaríkjamanna í landið.
Fólk folk@mbl.is