Morgunblaðið - 04.07.2005, Side 2

Morgunblaðið - 04.07.2005, Side 2
2 MÁNUDAGUR 4. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR SENDIHERRA RÆNT Sendiherra Egyptalands í Írak, Ihab al-Sharif, var rænt í Bagdad síðdegis á laugardag, aðeins mánuði eftir að hann kom til borgarinnar til að taka við embættinu. Sjónarvottar segja sendiherrann hafa stöðvað bif- reið sína til að kaupa dagblað. Þá hafi átta menn komið að honum og numið hann á brott. Þingkosningar í Albaníu Þingkosningar voru haldnar í Alb- aníu í gær en þær skipta sköpum fyrir mögulega aðild Albaníu að Atl- antshafsbandalaginu (NATO) og Evrópusambandinu (ESB) en frjáls- ar og lýðræðislegar kosningar eru frumskilyrði fyrir því að Albanar geti skrifað undir samkomulag um aðild að ESB á þessu ári, sem yrði fyrsta skrefið í átt að fullri aðild árið 2014. Fossá flæddi yfir bakka sína Mikill vöxtur varð í Fossá í Reyð- arfirði í gær og flæddi áin yfir bakka sína og stefndi á nærliggjandi íbúðarhús. Var grafa send á staðinn til að halda ánni í skefjum, en litlu mátti víst muna að hún færi á húsin á staðnum. Þá féllu nokkrar skriður á veginn um Fagradal um hádegisbil og lokuðu honum fram á nótt. Mótmæla stimpilkerfi Forsvarsmenn Skurðlæknafélags Íslands hafa farið fram á að tafar- laust verði hætt notkun á stimpil- klukkukerfi fyrir skurðlækna á LSH. Benda þeir á að fyrirkomulag- ið tíðkist hvergi annars staðar, auk þess sem stimpilkerfið segi ekkert til um viðveru lækna. Segja þeir óánægjuna meira á faglegum for- sendum en vegna launamála. Þrír nýir prestar Þrír guðfræðingar voru vígðir til prestsþjónustu í Dómkirkjunni í gær. Brotið var blað í kirkjusögunni þar sem tveir vígsluvottanna eru foreldrar eins guðfræðingsins, auk þess sem fyrsti hjúkrunarfræðing- urinn hlaut prestsvígslu. Y f i r l i t SÓLHEIMAKIRKJA í Grímsnesi var vígð í gær að viðstöddu fjölmenni en Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, vígði kirkjuna. Meðal viðstaddra var Sigurbjörn Einarsson biskup, sem tók fyrstu skóflustunguna að kirkjunni ásamt eiginkonu sinni Magneu Þorkelsdóttur fyrir fimm árum, Sigurður Sigurðarson vígslubiskup auk presta af svæðinu og annarra mætra gesta. Helga Helena Sturlaugsdóttir, prestur í Sól- heimakirkju, segir kirkjuna vera byggða með það í huga að hún geti nýst sem tónlistarhús samhliða kirkjulegum athöfnum. „Við komum til með að færa eitthvað upp í kirkju af athöfnum okkar sem við höfum haft annars staðar. Svo ætlum við náttúrlega að reyna að vera með athafnir og trúarlegt starf í kirkjunni.“ Hún segir það hafa mikla þýðingu fyrir íbúa Sólheima að fá sína eigin kirkju enda ríki þar mikil trúarleg hefð. Að sama skapi ríkir mikil tón- listarhefð á svæðinu að sögn Helgu og því er afar ánægjulegt geta nýtt húsið til tónlistarflutnings. Við vígsluathöfnina flutti Sólheimakórinn lög undir stjórn Þóru Marteinsdóttur, en tvö lög eftir Þóru voru frumflutt sem voru sérstaklega samin fyrir vígsluathöfnina. Marteinn Friðriksson lék undir á orgel. Ungir tónlistarmenn sungu svo og léku fyrir gesti. Magnea Tómasdóttir söng ein- söng og Jón Hafsteinn Guðmundsson lék á tromp- et. „Þetta er stór stund í okkar lífi, að fá kirkju og er í tengslum við 75 ára afmælið okkar þannig að þetta er mikil hátíð hérna,“ segir Helga Helena að lokum. Morgunblaðið/ÞÖK Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, við vígslu Sólheimakirkju í gær. Biskupi til hægri handar eru þau Helga Helena Sturlaugsdóttir, prestur Sólheima- kirkju, Sigurbjörn Einarsson biskup og Inga Jóna Valgarðsdóttir, íbúi á Sólheimum. Sr. Sigurbjörn tók á sínum tíma fyrstu skóflustunguna að kirkjunni. Sólheimakirkja í Grímsnesi vígð „Þetta er stór stund í okkar lífi að fá kirkju“ Gestirnir létu ekki rok og rigningu aftra sér frá því að vera viðstaddir vígslu Sólheimakirkju. SAMNINGANEFND ríkisins (SNR) hefur frá ársbyrjun 2004 alls lokið við gerð 34 kjarasamninga við 108 stéttarfélög. Nefndin á nú ólokið níu samningum við níu stéttarfélög á yfirstandandi samningstímabili, samkvæmt upplýsingum úr nýlegu fréttabréfi fjármálaráðuneytisins fyrir stjórnendur ríkisstofnana. Fram kemur til samanburðar að á árunum 2000–2004 lauk samninga- nefnd ríkisins við gerð 77 kjara- samninga við 136 stéttarfélög. Í fréttabréfinu segir að fækkun samn- inga á milli tímabila sé jákvæð þróun sem stafi af auknu samfloti stéttar- félaga í samningagerðinni. Þrír samningar við BHM í stað 24 áður Sem dæmi hafi nú verið gerðir þrír samningar við aðildarfélög BHM en þeir voru 24 árið 2001. Einn samningur var gerður við Starfsgreinasambandið í stað fjórtán áður. Þá er á það bent að fækkun stéttarfélaga milli tímabila stafi af sameiningu félaga, af þessum sökum hafi aðildarfélögum BSRB fækkað um fjögur og aðildarfélögum Starfs- greinasambandsins um sextán. Þau félög sem eru með lausan samning og enn er ósamið við eru: Félag íslenskra flugumferðarstjóra, Félag skipstjórnarmanna, Vélstjóra- félag Íslands, Félag matreiðslu- manna, þar af þrjú síðastnefndu vegna Landhelgisgæslu Íslands og félög leikstjóra, leikmynda- og bún- ingahöfunda og hljómlistarmanna eru með lausa samninga vegna Þjóð- leikhússins. Færri kjarasamningar gerðir nú en áður MAÐUR fannst látinn á Ketillaug- arfjalli í Horna- firði um miðjan dag á laugardag- inn. Björgunar- sveitarmenn fundu manninn látinn í fjallinu en farið var að leita hans eftir að hann skilaði sér ekki úr fjallgöngu. Hann hét Egill Jónasson og var til heimilis að Hagatúni 11 á Höfn. Egill var sextugur að aldri. Hann lætur eftir sig eiginkonu og þrjá syni. Fannst látinn á Ketillaugar- fjalli við Höfn LANDLÆKNISEMBÆTTIÐ hef- ur látið útbúa svonefnda lífsskrá, skjal sem greinir frá óskum fólks um meðferð við lífslok, geti það ekki sjálft tekið þátt í ákvörðunum um meðferðina vegna andlegs eða lík- amlegs ástands. Þetta kemur fram á vef embættisins. Þar segir einnig að tilgangur slíkrar skrár er að einstak- lingur fái að deyja með reisn og að aðstandendur séu eins sáttir við ákvarðanir sem teknar eru við lífslok og kostur er. Í lífsskrá eru, að því er fram kemur á vefnum, tvö mikilvæg atriði, annars vegar óskir um með- ferð við lok lífs og hins vegar tilnefn- ing umboðsmanns sem hefur umboð til að koma fram fyrir hönd viðkom- andi, taka þátt í umræðum um óskir varðandi meðferð við lífslok, hvort heldur það er að þiggja, hafna eða draga til baka meðferð. Fólki gefinn kostur á að taka afstöðu um líffæragjafir Í lífsskránni er einnig gefinn kost- ur á því að taka afstöðu til þess hvort fólk vill gefa líffæri eða vefi og gefinn kostur á nánari skýringum þar um. Ekki er þó þörf á að fylla þennan hluta út þótt gengið sé frá öðrum hlutum skrárinnar. Fram kemur að nefnd á vegum Landlæknisembætt- isins hefur unnið að gerð lífsskrár- innar og leiðbeininga með henni. Einnig hefur sjúkrahúsum og heilsu- gæslustöðvum verið sent bréf með beiðni um að kynna starfsfólki þessi nýmæli. Nálgast má bæði eyðublað og leiðbeiningar um lífsskrána á vef embættisins á slóðinni: www.land- laeknir.is. Markmiðið að einstaklingur fái að deyja með reisn NAUÐGUN var kærð til lög- reglunnar á Höfn í Hornafirði á laugardagsmorgun. Maður var handtekinn vegna málsins og var honum sleppt að loknum yfirheyrslum. Þá lagði lögreglan hald á nokkur grömm af fíkniefnum um helgina og þá aðallega hassi. Um helgina fór einnig fram Humarhátíð á Höfn í Hornafirði og fór hún að öðru leyti vel fram að sögn lögreglu. Nauðgun kærð á Höfn í Hornafirði Kynning – Morgunblaðinu í dag fylgir Tímaritið Skinfaxi frá Ungmenna- félagi Íslands. Í dag Fréttaskýring 8 Hestar 28 Vesturland 13 Dagbók 30/33 Erlent 14 Myndasögur 30 Daglegt líf 15/16 Víkverji 30 Menning 17, 33 Staður og stund 32 Umræðan 18/23 Leikhús, bíó 33/37 Forystugrein 20 Ljósvakar 38 Bréf 23 Veður 39 Minningar 24/27 Staksteinar 39 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju- starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.