Morgunblaðið - 04.07.2005, Page 12

Morgunblaðið - 04.07.2005, Page 12
LÍTILL húsbíll fauk út af veginum við Böðvarsholt á Snæfellsnesi á fimmta tímanum í gær. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Ólafs- vík voru fimm manns í bílnum en þeir sluppu án teljandi meiðsla. Bíllinn er hins vegar gerónýtur. Skömmu fyrr, eða um fjögur leytið, fauk bifhjól út af veginum í Kollafirði. Ökumann bifhjólsins sakaði ekki en hjólið skemmdist lít- illega. Þá valt jeppabifreið út af veg- inum við Hvammsvík á áttunda tímanum í gær en mjög hvasst var á þessum slóðum þegar óhappið varð. Samkvæmt upplýsingum lög- reglunnar í Reykjavík var þrennt var í bílnum og sluppu þau öll án teljandi meiðsla en bíllinn er ger- ónýtur. Hvassviðri gerði ökumönnum á Snæfellsnesi og við Kjalarnes erfitt fyrir í gær en lögreglan í Reykja- vík varaði fólk við því að vera á ferð á Kjalarnesi að nauðsynja- lausu. Þannig mældist vindhraði í mynni Kollafjaðrar yfir þrjátíu metrar á sekúndu. Morgunblaðið/ÞÖK Jeppi fauk útaf skammt frá Hvammsvík í Kjós um kvöldmatarleytið í gær. Umferðarslys í miklu roki 12 MÁNUDAGUR 4. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FERÐAMENN sátu fyrir á mynd í Kerinu þegar ljós- myndari Morgunblaðins átti leið um Grímsnesið í gær. Þó að veðrið væri ekki upp á marga fiska létu ferða- mennirnir það ekki raska ferðaáætlunum sínum, enda getur útivera í roki og rigningu verði afar hressandi en í hóflegum mæli þó. Kerið er ein af 12 eldstöðvum í Grímsnesinu en það er talið vera um fimm þúsund ára gamall sprengigígur. Hljómburður þar þykir vera með eindæmum góður enda hefur Kerið verið nýtt til tón- leikahalds. Myndataka í Kerinu Morgunblaðið/ÞÖK Umræðan á morgun HEILDARTEKJUR ríkissjóðs námu 136,6 milljörðum króna fyrstu fimm mánuði ársins og hækkuðu um tæpa 27,4 milljarða frá sama tíma í fyrra, eða um 25,1%. Þar af námu skatttekjur rík- issjóðs um 121,2 milljörðum króna sem er hækkun upp á 19,5% frá sama tíma í fyrra, nokkru meira en gert var ráð fyrir í áætlunum. Al- mennt verðlag hækkaði um 4,1% á sama tímabili þannig að skatttekjur hækkuðu að raungildi um 14,8%. Breyting á handbæru fé frá rekstri var jákvæð um 11,2 milljarða króna á tímabilinu, sem er 14,2 milljörðum króna hag- stæðari útkoma heldur en fyrir sama tímabil í fyrra. Þá er útkom- an 25,1 milljarði betri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Fram kemur í vefriti fjármála- ráðuneytisins, að skattar á tekjur og hagnað námu 42,2 milljörðum króna sem er 17,5% meiri inn- heimta miðað við sama tíma í fyrra. Þar af jókst innheimta tekjuskatta einstaklinga um 10,1% en lögaðila um 6,5%. Innheimta fjármagns- tekjuskatts jókst töluvert meira, eða um 54,4% sem jafngildir um 48,3% raunhækkun milli ára. Inn- heimta tryggingagjalda nam rúm- lega 12,8 milljörðum króna sem er 13,1% aukning að raungildi frá fyrra ári. Á sama tímabili hækkaði launavísitala Hagstofunnar um 6,5%. Veltuskattar ríkissjóðs jukust einnig töluvert, eða um 18% sem er 13,4% aukning að raungildi en þar munar mestu um innheimtu tekna af virðisaukaskatti sem jókst um 19,9%. Vörugjöld af ökutækjum skiluðu jafnframt töluvert meiri tekjum en í fyrra eða um 74,9% en á fyrstu fimm mánuðum ársins hef- ur innflutningur bifreiða aukist að verðmæti um 85% frá fyrra ári. Þessi þróun endurspeglar styrk krónunnar og aukin umsvif í efna- hagslífinu. Gjöld hækkuðu um 12% Greidd gjöld námu 126,8 millj- örðum króna og hækkuðu um 13,5 milljarða frá fyrra ári, eða 12%. Þar af skýrast 5,7 milljarðar af hækkun vaxtagreiðslna þar sem stór flokkur spariskírteina kom til innlausnar í apríl sl. Að vöxtum frátöldum hækkuðu gjöldin um 7,5% milli ára. Skatttekjur ríkissjóðs jukust um 15% fyrstu fimm mánuðina 25 milljörðum betri útkoma en áætlanir gerðu ráð fyrir Daglegt málþing þjóðarinnar … LJÓSLEIÐARI Símans rofnaði um hádegið í gær vegna aurskriðu á milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðs- fjarðar. Bilunin hefur engin áhrif á talsímasamband Símans á þessu svæði en útsending Ríkissjónvarps- ins niðri á Fáskrúðsfirði, Stöðv- arfirði, Breiðdalsvík og Djúpavogi en útsending Ríkisútvarpsins var inni. Rofið hefur einnig áhrif á gagnaflutninga á Stöðvarfirði, Fá- skrúðsfirði og Djúpavogi og GSM- samband á Fáskrúðsfirði. Ljósleiðari rofn- aði í nágrenni Reyðarfjarðar UM 55% landsmanna vita hver gegn- ir embætti dómsmálaráðherra, rúm- lega 52% vita hver er heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, rúmlega 45% þekkja félagsmálaráðherra og tæplega 42% umhverfisráðherra. Þegar spurt er hver gegni emb- ætti dómsmálaráðherra nefna nær 55% Björn Bjarnason, en tæplega 41% segist ekki vita hver gegni emb- ættinu. Um 3% nefna önnur nöfn. Rúmlega 52% vita að Jón Krist- jánsson er heilbrigðis- og trygginga- málaráðherra, en ríflega 41% segist ekki vita það. Um 2% segjast vita það en fara rangt með nafnið. Rúmlega 45% vita að Árni Magn- ússon gegnir embætti félagsmála- ráðherra. Rúmlega 45% vita það ekki, en 2% fara rangt með nafnið. Tæplega 42 % vita hver er um- hverfisráðherra og nefna Sigríði Önnu Þórðardóttur, auk þess fara 3% rangt með nafn hennar en telja sig þó vita hver gegni embættinu. Um 48% segjast ekki vita hver gegni embættinu. Þegar skoðað er hverjir það eru sem vita hverjir gegna embættum ráðherra kemur í ljós að aldur og menntun hafa mest áhrif á hversu vel fólk þekkir til ráðherraembætt- anna sem spurt er um. Því eldra sem fólk er því líklegra er að það viti hver er ráðherra. Einnig má sjá að fólk með lengri skólagöngu veit frekar hverjir eru ráðherrar. Nokk- ur munur er á kynjum og eru karlar líklegri til að vita hver gegnir emb- ætti ráðherranna en konur. Könnunin var gerð dagana 15. til 28. júní. Úrtakið var 1.254 manns á aldrinum 18 til 75 ára. Svarhlutfall var 61%. Um helmingur þekkir nöfn ráðherra VALGERD Svarstad Haugland, menningarmálaráð- herra Noregs, er í opinberri heimsókn á Íslandi í boði Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráð- herra en hún kom til landsins í gær. Í heimsókninni mun norski menningarmálaráðherr- ann heimsækja fjölmargar íslenskar menningarstofnan- ir, m.a. Þjóðminjasafnið, Listasafn Íslands, Listasafn Reykjavíkur, Listasafn Akureyrar, Gljúfrastein, Reyk- holt, Snorrastofu, Síldarminjasafnið á Siglufirði, Vest- urfarasetrið á Hofsósi og Hóla í Hjaltadal. Þá munu Haugland og Þorgerður Katrín eiga formlegar viðræður um samskipti ríkjanna á sviði menningarmála meðan á heimsókninni stendur en henni lýkur á þriðjudag. Í föruneyti norska menningarmálaráðherrans eru eig- inmaður hennar Geir Haugland, Helge Sønneland ráðu- neytisstjóri, Guttorm Vik, sendiherra Noregs á Íslandi, Stein Sægrov skrifstofustjóri og Kristine Wennberg fulltrúi. Menningarmálaráðherra Noregs í opinberri heimsókn EMBÆTTI forstjóra Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins hefur ver- ið auglýst laust til umsóknar. Fjár- málaráðherra skipar í embættið til fimm ára í senn. Gert er ráð fyrir að skipað verði í embættið frá og með 1. september nk. Umsóknir skulu hafa borist fjármálaráðuneyt- inu í síðasta lagi 25. júlí nk. Auglýst eftir forstjóra ÁTVR LÖGREGLAN í Kópavogi varar fólk við arineldspýtum af gerðinni Hart Pro vegna hættu á sjálfs- íkveikju. Viðskiptavinur í Hag- kaupum í Smáranum lenti í því fyr- ir helgi að eldur kviknaði af sjálfu sér í eldspýtnapakka rétt eftir að búið var að setja hann í inn- kaupapoka án þess að pakkning- arnar hefðu verið opnaðar. Lög- reglan telur atvik af þessu tagi alvarleg og hvetur til aðgæslu. Varað við arineldspýtum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.