Morgunblaðið - 04.07.2005, Side 14

Morgunblaðið - 04.07.2005, Side 14
14 MÁNUDAGUR 4. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Bagdad. AP. AFP. | Sendiherra Egyptalands í Írak, Ihab al-Sharif, var rænt í Bagdad síðdegis á laug- ardag, aðeins mánuði eftir að hann kom til borgarinnar til að taka við embættinu. Sjónarvottar segja sendiherr- ann hafa stöðvað bifreið sína til að kaupa dagblað. Þá hafi átta vopnaðir menn umkringt hann. Einn mannanna hafi slegið hann í höfuðið með byssuskefti sínu og hinir hafi hrópað að honum að hann væri „bandarískur njósnari“. Mennirnir hafi því næst troðið sendiherran- um í skottið á bifreið sinni og þotið af stað. Í tilkynningu sem utanríkisráðu- neyti Egyptalands sendi frá sér í gær kemur fram að ráðuneytið geti ekki staðfest mannránið, hver standi að baki því eða hvers vegna, öryggi sendiherrans sé þó fyrir öllu og nauðsynlegt að reyna að tryggja það. „Ráðuneytið hefur haft samband við stjórnvöld í Írak og alla aðra sem að málinu koma til að staðfesta áreiðanleika þeirra fregna sem nú berast um hvarf sendiherrans. Utanríkisráðherra Egyptalands vonast til að málið skýrist brátt og hægt verði að tryggja öryggi sendiherrans, sem hefur verið falið að styrkja tengsl milli frændþjóðanna, Egyptalands og Íraks.“ Getur haft mikil neikvæð áhrif Al-Sharif er fyrsti sendiherra Arabaríkis í Írak eftir fall Sadd- ams Husseins í apríl árið 2003. Flest þeirra kölluðu sendiherra sína heim eftir að Saddam réðst inn í Kúveit 1990. Það er ekki lengra um liðið en vika síðan for- sætisráðherra Íraks lofaði Egypta fyrir að taka af skarið og senda á ný sendiherra til Bagdad-borgar. Mannránið gæti grafið undan viðleitni Bandaríkjamanna til að hvetja ríkin í nágrenni við Írak til að senda háttsetta embættismenn til Bagdad, en litið er á það sem mikilvægt skref í átt að aukinni trú á nýrri ríkisstjórn Íraks, sem berst við uppreisnarmenn úr röð- um súnní múslima. Virt samtök súnníta og Flokkur múslima í Írak kröfðust þess í gær að al-Sharif yrði sleppt „tafar- laust“. Einnig fordæmdi sendi- herra Íraks í Egyptalandi mann- ránið og skellti skuldinni á „hryðjuverkamenn sem eru trú- lausir, vonlausir og hafa engan til- gang“. Rúmlega 270 erlendir gíslar, frá 37 löndum, hafa verið teknir í Írak frá því uppreisnin braust út í apríl 2004 en Ihad al-Sharif er annar egypskra embættismanna til að vera rænt eftir að ríkisstjórn Saddams féll. Hinn var Mohamm- ed Mamdouh Helmi Qutb, sem þá var þriðji hæst setti stjórnarer- indreki landsins. Honum var rænt 23. júní 2004 og sleppt mánuði seinna eftir að egypsk stjórnvöld hétu því að senda ekki herlið til Íraks. Stöðugar árásir í landinu Þrjár sprengjuárásir voru einnig gerðar í Bagdad í gær. Sú fyrsta varð þremur íröskum lögreglu- mönnum að bana, önnur særði tvo bandaríska hermenn og tveir hátt- settir lögreglumenn sluppu naum- lega undan þeirri þriðju. Þar að auki var sjíta-klerkurinn Adil al- Janabi skotinn til bana ásamt líf- verði sínum. Þessar árásir voru gerðar degi eftir að 27 manns fór- ust í tveimur árásum í Bagdad og Hillah. Sendiherra Egypta- lands rænt í Írak Ihad al-Sharif Tirana, Albaníu. AP. AFP. | Þingkosningar voru haldnar í Albaníu í gær, þær sjöttu síðan fjöl- flokkakerfi var komið á í landinu árið 1991. Kosn- ingarnar eru prófsteinn á það hvort þetta litla ríki á Balkanskaga hafi getað losað um hlekki fortíðar undir stjórn kommúnista og haldið frjálsar og lýð- ræðislegar kosningar. Kosningarnar skipta sköpum fyrir mögulega aðild Albaníu að Atlantshafsbandalaginu (NATO) og Evrópusambandinu (ESB). Margir óttast öldu ofbeldis í landinu ef ofstækismenn hafna úrslit- unum. Frjálsar og lýðræðislegar kosningar eru frumskilyrði fyrir því að Albanir geti skrifað undir samkomulag um aðild að ESB á þessu ári, sem yrði fyrsta skrefið í átt að fullri aðild árið 2014. Kosið var milli 27 flokka en Sósíalistaflokkur- inn, flokkur Fatos Nano, núverandi forsætisráð- herra, og Lýðræðisflokkurinn, flokkur Sali Ber- isha, fyrrverandi forseta landsins, eru þeirra stærstir. Báðir voru leiðtogarnir sigurreifir. „Í dag mun framtíðin sigra, ekki fortíðin,“ sagði Fatos Nano. „Þetta er sögulegur dagur,“ sagði Sali Berisha. „Albanir láta í dag í ljós að þeir vilja breytingar,“ sagði hann. Skoðanakannanir hafa sýnt að fylgi flokkanna er hnífjafnt, en báðir hafa leiðtogarnir hótað að segja af sér fari flokkur þeirra ekki með sigur af hólmi. Eftir að kjörstöðum lokaði í gær fögnuðu leiðtogar beggja flokka og sögðu sinn flokk hafa sigrað. „Sigur okkar er afgerandi,“ sagði Berisha. „Við höfum unnið meirihluta þjóðarinnar.“ Talsmaður sósíalista sagði sinn flokk hins vegar hafa sigrað með 60-70% atkvæða. „Við höfum sigrað. Sigur okkar er afgerandi,“ sagði hann. Fatos Nano hefur gegnt embætti forsætisráð- herra í þrjú kjörtímabil og vonast til að verða sá sem leiðir Albaníu, þetta fátæka ríki, sem er að mestu byggt múslimum, inn í Evrópu. Hann hefur þó sætt hörðum ásökunum um spillingu og skipu- lagða glæpastarfsemi frá andstæðingi sínum í hat- rammri kosningabaráttu. Embættismenn ESB voru óánægðir með fram- gang sveitastjórnarkosninga í Albaníu í fyrra og lögðu áherslu á að yrði ekki staðið rétt að einu og öllu í þingkosningunum nú, myndi það tefja aðild- arviðræður. Kosningar í landinu hafa, síðan kommúnistastjórnin féll snemma á tíunda ára- tugnum, verið litaðar af ásökunum um svik, mót- mælum og ofbeldi. Minnipokamenn hafa aldrei játað ósigur og því hefur þróun í landinu verið hæg. Utanríkismálastjóri ESB, Javier Solana, sagði kosningarnar mikilvægan mælikvarða á það „hvort Albanía hafi náð þeim lýðræðislegu mark- miðum sem Evrópusambandið gerir kröfu um.“ „Ég er svartsýnn,“ sagði Edi Rama, borgar- stjóri Tirana, höfuðborgar Albaníu. „Það er nær öruggt að sá sem tapar, hvor sem það nú verður, mun ekki sætta sig við úrslitin,“ sagði hann. Mikilvægar kosningar í Albaníu Eftir Jóhönnu Sesselju Erludóttur jse@mbl.is keppni“ á vetrarhátíð í Queenstown á Nýja Sjálandi sem stendur yfir þessa dagana. Snýst keppnin út á það að þátttakendur ögra lögmálum náttúrunnar sem segja að ANTHONY Rewcastle, í búningi „Kapteins Plánetu“, svífur á meðal fuglanna og Suður- Alparnir tróna í baksýn. Rewcastle er þátttakandi í „fuglamanna- menn geti ekki flogið. Þeir hanna og smíða sína eigin „vængi“ eða flugbúninga og „fljúga“ af bryggjunni út í ískalt Wakatipu- stöðuvatnið. Reuters Fljúgandi furðufugl unina um að hrekja Saddam Hussein frá völdum og þetta hafi verið gert áður en Colin Powell, þáverandi ut- anríkisráðherra, hafði séð gögnin. Prinsinn nefndi eins og í framhjá- hlaupi að Sádi-Arabar vonuðust til að geta aukið olíuframleiðsluna til að koma í veg fyrir að bensínverð hækkaði. Hann bað síðan um að fá að hitta Bush forseta að máli og var þegar orðið við þeirri beiðni, að sögn Woodwards. Lauk herskólanámi í Bretlandi Bandar prins er 56 ára gamall, menntaður í herskóla í Bretlandi. Gert er ráð fyrir að þegar núverandi konungur, Fahd, sem er háaldraður og mjög heilsutæpur, deyi muni hinn raunverulegi leiðtogi Sádi-Arabíu, Abdullah prins,verða krýndur kon- ungur en faðir Bandars, sem nú er varnarmálaráðherra, verði krón- prins. Mikil reynsla Bandars er sögð geta valdið því að hann taki við nýju og mikilvægu embætti í kjölfar dauða Fahds. Bandar var í 17 ár í flugher Sádi- Arabíu, flaug orrustuþotu og er sagður vera mjög fær flugmaður. Hann er litríkur persónuleiki, borið saman við marga aðra diplómata og jafnvel kallaður glaumgosi og hefur verið afkastamikill í starfi sínu. EMBÆTTISMENN í Sádi-Arabíu hafa staðfest að Bandar bin Sultan prins, sendiherra landsins í Banda- ríkjunum, sé að láta af störfum eftir um 20 ára veru í Wash- ington, að sögn fréttavefjar breska rík- isútvarpsins, BBC. Prinsinn þykir vera af- burða snjall í sínu fagi og hefur haft mikil áhrif á stefnu Bandaríkjamanna gagnvart Sádi-Arabíu á ferli sínum. Flest ríki láta sendiherra sína ekki vera lengur en 3–4 ár í sama ríki og hefur Bandar prins því haft heiðurstitilinn doyen (sendiherra með lengsta starfsaldurinn) í höf- uðborg Bandaríkjanna um margra ára skeið. Bandar hefur átt náið samstarf við alla forseta Bandaríkj- anna þann tíma sem hann hefur ver- ið í Washington en ekki síst Bush- feðgana tvo, George H. W. Bush og soninn George W. Bush. Blaðamaðurinn Bob Woodward segir frá áhrifum Bandars í bók sinni um aðdraganda innrásarinnar í Írak 2003. Fullyrðir Woodward að Bandar hafi verið sagt fyrirfram frá ýmsum smáatriðum varðandi áætl- Prins kveður Washington Bandar bin Sultan prins kjon@mbl.is Washington. AFP. | Bandarískum sér- sveitarmanni, sem saknað hafði verið í fjalllendi í austurhluta Afg- anistan, hefur verið bjargað. Bandaríska fréttastöðin CNN greindi frá þessu í gær. Sagði í fréttinni að manninum hefði tekist að komast hjá því að lenda „í hönd- um óvinanna“. Hins vegar var ekki greint frá ör- lögum þriggja félaga mannsins sem saknað hefur verið í Konar-héraði frá 28. fyrri mánaðar. Bjargað í Afganistan UTANRÍKISRÁÐHERRAR aðild- arríkja Afríkusambandsins hafa náð samkomulagi um að leita eftir því að þjóðir Afríku fái tvö sæti í stækkuðu Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Þá vilja Afríkumennirnir að fimm ríki álfunnar fái tímabund- ið sæti í ráðinu. Greint var frá þessu í gær en í vikunni fer fram í Líbíu leiðtoga- fundur Afríkusambandsins þar sem mál þetta verður m.a. rætt. Aðild að Afríkusambandinu eiga 53 ríki. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hefur látið þau boð út ganga að breyta beri Ör- yggisráði samtakanna þar sem skipan þess endurspegli horfinn heim. Nú er ráðið þannig skipað að fimm ríki hafa þar fast sæti og neit- unarvald. Tíu ríki sitja síðan í ráðinu hverju sinni og er kjör- tímabil þeirra tvö ár. Fjögur ríki, Þýskaland, Brasilía, Indland og Japan, hafa lagt fram tillögu um að ríkjum í Öryggisráðinu verði fjölg- að um tíu. Sex fái þar fastasæti en fjögur ríki bætist við þau 10 sem nú sitja tímabundið í ráðinu. Ríkin fjögur sem að tillögunni standa vilja fá fast sæti í Öryggisráðinu en tillagan kveður á um að tvö ríki frá Afríku fái einnig fastafulltrúa þar. Tillaga Afríkuþjóðanna er því nokkuð frábrugðin þeirri sem fyrir liggur þótt báðar geri þær ráð fyrir að álfan fá tvö föst sæti í ráðinu. Afríkusambandið hefur enn ekki komið sér saman um hvaða tvö ríki beri að bjóða fram í þessu sam- hengi. Nígería, Suður-Afríka og Egyptaland koma þó helst til álita. Afríka vill tvö sæti í Öryggisráðinu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.