Morgunblaðið - 04.07.2005, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JÚLÍ 2005 27
MINNINGAR
✝ Bergþóra Guð-leif Jónsdóttir
fæddist í Vest-
mannaeyjum 23.
mars 1921. Hún lést
á Landspítalanum í
Fossvogi 25. júní síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru Ingi-
björg Bergsteins-
dóttir og Jón Guðna-
son. Systkini
Bergþóru voru
Ragnheiður, Magnea
Lovísa, Kristján,
Ágústa og Bergþóra.
Þau eru öll látin.
Bergþóra giftist 11. september
1948 Birni Svanbergssyni frá
Grænumýrartungu í Hrútafirði,
f. 13. mars 1921, d. 23. okt. 1977.
Sonur Bergþóru og Björns er
Hrafnkell Björnsson, f. 30. okt.
1948, kvæntur Dag-
björtu Aðalsteins-
dóttur, f. 4. ágúst
1949. Synir þeirra
eru: 1) Aðalsteinn
Hrafnkelsson, f. 8.
okt. 1972, unnusta
hans er Kristín
María Guðjónsdótt-
ir. 2) Björn Hrafn-
kelsson, f. 31. des.
1977. 3) Viðar
Hrafnkelsson, f. 31.
maí 1981.
Bergþóra vann
við verslunarstörf
hjá ýmsum aðilum
jafnhliða húsmóðurstörfum. Síð-
ustu starfsárin vann hún við
símavörslu á Reykjalundi.
Útför Bergþóru verður gerð
frá Fossvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.
Allir hafa sitt skapadægur og nú
hefur elskuleg amma okkar fengið
hvíldina sína. Frá því við munum eft-
ir okkur hefur amma Stella verið til
staðar og stutt okkur. Við vorum
einu barnabörnin hennar og því voru
tengslin við hana alltaf náin. Það hef-
ur varla liðið úr vika allt okkar líf þar
sem einhver okkar var ekki í beinum
samskiptum við hana. Við minnumst
með hlýhug heimsóknanna í Hjálm-
holtið þar sem hún bjó og á það ekki
síst við um jóladag, en þá var amma
vön að elda gómsætt hangikjöt með
uppstúf og fengum við með malt og
sinalco blandað saman. Var það aðal-
máltíð ársins í okkar huga.
Amma brýndi alltaf fyrir okkur að
stunda heilbrigða lífshætti og að við
borðuðum hollan mat. Okkur bar að
klæða okkur vel og ekki síður lagði
hún hart að okkur að vera beinir í
baki sem var kannski eitthvað sem
henni fannst ábótavant hjá okkur
stóru strákunum sínum. Sjálf var
hún fyrirmynd annarra í þessum efn-
um og jafnvel þess vegna náði hún að
standa af sér alls kyns erfiða sjúk-
dóma um ævina.
Amma var stolt af því að vera
Vestmannaeyingur og reikaði hugur
hennar oft til bernskuáranna í sam-
ræðum hennar við okkur. Hún lærði
að synda í sjónum við Heimaey og
alla tíð var sund ein hennar uppá-
halds iðja. Eins tók hún þátt í hesta-
mennsku fjölskyldunnar á árum áður
og var gæðingurinn Lýsingur henni
kær.
Amma var sjálfstæð kona og stóð
jafnan fast á skoðunum sínum. Hún
lét ekki bjóða sér hvað sem er og
dæmi um það er þegar öll fjölskyldan
var í sumarleyfi á Benidorm þá varð
hún eitthvað hvumsa þegar fullorð-
inn maður á sundlaugarbakkanum
benti henni á að barnalaugin væri
örugglega hentugri fyrir hana. Tók
hún karlinn á orðinu, þá 68 ára göm-
ul, og stakk sér með tilþrifum út í
djúpu laugina hún væri nú ekki það
gömul! Vorum við bræðurnir stoltir
af ömmu þar.
Amma hefur nú kvatt þennan heim
og er haldin til endurfunda við afa
Bjössa eftir langan aðskilnað. Við
þökkum henni fyrir samfylgdina og
minning hennar lifir í hjörtum okkar.
Hvíli hún í friði.
Aðalsteinn, Björn og Viðar.
Ein besta vinkona mín, Bergþóra
Jónsdóttir frá Dal í Vestmannaeyj-
um (Stella eins og hún var alltaf köll-
uð) er látin, 84 ára gömul. Vinskapur
okkar Stellu hefur varaðrúmlega
hálfa öld, eða síðan Björn heitinn
Svanbergsson, maður hennar, kynnti
hana fyrir okkur sem verðandi eig-
inkonu sína. Síðan hefur einlæg vin-
átta verið á milli okkar heimila, enda
höfðu þeir Jónsteinn og Björn verið
miklir vinir síðan þeir eyddu mörg-
um árum saman á sjúkrahúsi eða frá
bernsku til unglingsára, en þar
styrktust vináttubönd þeirra sem
ekkert gat rofið nema dauðinn. Sú
saga væri bókar virði.
Síðar unnu þeir reyndar í mörg ár
á sama vinnustað – Þjóðviljanum.
Björn lést skyndilega um aldur fram
aðeins fimmtíu og sex ára. Eftir það
bjó Stella ein í fallegri íbúð er þau
hjón höfðu komið sér upp í Hjálm-
holti 9. Við dáðumst oft að því hvað
hún átti auðvelt með að búa ein og
láta lífið ganga sinn gang.
Stella hafði mikla ánægju af ferða-
lögum, bæði innanlands og utan.
Stundum þegar við komum til Stellu
og höfðum drukkið úr kaffibolla tók
hún fram myndaalbúmin með mynd-
um úr ferðalagi okkar til Kaup-
mannahafnar og síðan til A-Þýska-
lands 1959. Auk þess að ferðast þar
um, til Berlínar og víðar, dvöldum við
á hvíldarheimili í nokkrar vikur. Það
voru henni og okkur ógleymanlegir
dagar. Oft var minnst á sjálfsbjarg-
arviðleitni okkar í heimsborginni Kö-
ben, t.d. viðbrögðum danskrar stúlku
er þjónaði okkur við morgunverðinn
á hótelinu og henni fannst danskan
okkar kannski ekki sú allra-besta,
svo henni varð að orði: „Af hverju tal-
ið þið ekki íslensku?“ Hún hafði dval-
ið tvö ár á Akureyri.
Saman fórum við líka margar ferð-
ir hér innanlands með tjald og nesti.
Ein ferð er sérstaklega minnisstæð
en hún var ráðgerð austur í Skafta-
fell. Við áðum undir háum björgum,
sem nóg er af á þessum slóðum, en
þar sem við erum að taka saman dót
okkar hrundi skriða úr berginu og
lenti á baki Stellu. Þeirri ferð lauk
með sjúkrabíl til Reykjavíkur, á
Borgarspítalann. Nú seinni árin lenti
hún aftur og aftur á sjúkrahúsi vegna
hjartveiki og svo kom að því að hjart-
að gaf sig. Reyndar hafði Stella átt
við veikindi að stríða frá unga aldri
og fór hún eitt sinn til Edinborgar í
Skotlandi í skurðaðgerð og náði hún
nokkuð góðri heilsu eftir þá aðgerð.
Sund var hennar uppáhalds lík-
amsrækt, synti hún mjög fallega, svo
eftir var tekið enda var Stella með
fallega líkamsbyggingu, hnarreist
svo af bar. Hún var einnig góður
göngumaður.
Eyjarnar voru Stellu mjög kærar
og talaði hún oft um þær. Er mér
minnisstætt þegar dóttir okkar Haf-
dís, þá fimm ára gömul, sagði eitt
sinn við Stellu: „En ef Eyjarnar fara
nú að gjósa?“ „Engin hætta á því,
þær eru útdauðar fyrir þúsundum
ára,“ ansaði Stella og hló við. Þetta er
sagt 1956 en 17 árum seinna vildi svo
til að Stella átti pantað far með Flug-
félaginu til Eyja daginn fyrir gos, en
það gerði brjálað veður svo það
komst enginn til eða frá Eyjum þann
22. janúar 1973. Þess vegna var
Stella ekki þar þegar gosið varð í „út-
kulnuðum“ Eyjunum.
Við erum þakklát fyrir þær góðu
stundir sem við höfum átt með fjöl-
skyldunni. Vinátta við Stellu og
Björn á meðan hans naut við, fram-
lengdist síðan til Hrafnkels og Dag-
bjartar og þeirra sona. Höfum við
alla tíð litið á þau sem hluta af okkar
eigin fjölskyldu.
Við hjónin og fjölskylda okkar
kveðjum Stellu og þökkum henni fyr-
ir allt sem hún var okkur. Innilegar
samúðarkveðjur til Hrafnkels, Dag-
bjartar og sona þeirra, Aðalsteins,
Björns og Viðars.
Hún var eins og reyrinn,
svo há og bein í baki.
Gekk með reisn um bæinn
fagurt fljóð með silfurhvíta haddinn.
Halldóra H. Kristjánsdóttir.
BERGÞÓRA G.
JÓNSDÓTTIR
Elsku, elsku frændi
minn og vinur. Mér
þykir það afar sárt að
kveðja þig núna, aðeins
15 ára að aldri. Það þyk-
ir ekki hár aldur. Mig
langaði að minnast þín,
og ég er búin að vera að rifja upp
minningarnar sem ég á um þig. Ég
man síðasta sumar, hvar sem ég hitti
Eyju þá varst þú þar, alltaf með Eyju.
Ykkur þótti svo ofboðslega vænt um
hvort annað. Eyja talaði alltaf svo
mikið um þig og ég get varla ímyndað
mér hve sárt hún mun sakna þín. Ég
held að það hafi runnið upp fyrir mér
hvað hafði komið fyrir þegar ég sá alla
fánana í garðinum daginn sem þú
ÞÓRARINN SAMÚEL
GUÐMUNDSSON
✝ Þórarinn Samúel(Dóri) Guð-
mundsson fæddist 4.
febrúar 1990. Hann
lést í bílslysi í Öxna-
dal 17. júní síðastlið-
inn og var jarðsung-
inn frá Útskálakirkju
24. júní.
varst jarðaður. Það er
dagur sem mun seint
líða mér úr minni. Þegar
ég sá þig síðast þá varstu
svo brosmildur og glottir
til mín. Ef ég hefði bara
vitað að þetta væri síð-
asta skiptið sem ég sæi
þig þá veit ég nú að ég
hefði sagt þér hvað mér
þykir vænt um þig, og
hvað ég var ánægð að sjá
þig brosandi. Ég veit að
þú ert farinn frá okkur,
en þú munt lifa í hjörtum
okkar allra sem þekkt-
um þig, þótti vænt um
þig og elskuðum þig. Ég bið góðan guð
að geyma þig, elsku vinur minn, og
styrkja föður þinn, hann Gumma,
mömmu þína, hana Bergþóru, Viktor
og Eyju. Ég bið guð að veita þeim lífs-
vilja og styrk til að halda áfram. Og ég
bið góðan guð að veita þeim styrk til
að lifa því lífi sem þú hefðir viljað að
þau lifðu. Hvíldu í friði, elsku Dóri
minn. Við hittumst seinna. Ég lofa því.
Inga.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
HALLDÓR STURLA FRIÐRIKSSON
stórkaupmaður,
Haðalandi 20,
sem lést á heimili sínu föstudaginn 24. júní
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju þriðju-
daginn 5. júlí kl 13.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hans er bent á Styrktar- og líknarsjóð Oddfellow.
Erna Sveinbjörnsdóttir,
Friðrik S. Halldórsson, Bergljót Friðriksdóttir,
Elínborg Halldórsdóttir,
Sveinbjörn Halldórsson, Ingibjörg Erna Sigurðardóttir,
Margrét Halldórsdóttir, Jóhann V. Steimann,
Erna Gunnþórsdóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, systir, amma og langamma,
RAKEL SÆMUNDSDÓTTIR
hárgreiðslumeistari,
Stangarholti 28,
Reykjavík,
sem lést á heimili sínu að morgni föstudagsins
24. júní, verður jarðsungin frá Háteigskirkju
miðvikudaginn 6. júlí kl. 13.00.
Óskar Hallgrímsson,
Jóhann Gunnar Óskarsson, Sigríður Ásmundsdóttir,
Kristín Ósk Óskarsdóttir, Sævar Fr. Sveinsson,
Óskar Sveinsson, Rakel Sveinsdóttir,
systkini, ömmu- og langömmubörn.
Elskuleg móðir okkar, tendamóðir, amma
og langamma,
ÁSTA LAUFEY HARALDSDÓTTIR
frá Reyni,
Krókatúni 18,
Akranesi,
verður jarðsungin frá Akraneskirkju þriðju-
daginn 5. júlí kl. 14.00
Helga Jónsdóttir, Diðrik Jóhannsson,
Elísabet Jónsdóttir, Jóhann Jóhannsson,
Guðrún H. Jónsdóttir, Guðmundur Stefánsson,
Haraldur Jónsson, Sólveig Jóhannesdóttir,
Guðmundur Páll Jónsson, Sigurlína Júlíusdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
RAGNAR FJALAR LÁRUSSON,
andaðist á líknardeild Landspítalans í Kópa-
vogi sunnudaginn 26. júní sl.
Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju þriðju-
daginn 5. júlí kl. 15.00.
Herdís Helgadóttir,
Guðrún Ragnarsdóttir Briem, Eiríkur Briem,
Þórsteinn Ragnarsson, Elsa Guðmundsdóttir,
Vallý Helga Ragnarsdóttir, Jón Þorvaldsson,
Lárus Ragnarsson, Þóra Tryggvadóttir,
Ragnheiður Jensína Ragnarsdóttir,
Halldóra Anna Ragnarsdóttir, Orri Páll Ormarsson,
barnabörn og langafabörn.
LEGSTEINAR
Steinsmiðjan MOSAIK
Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík
sími 587 1960 • www.mosaik.is
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Þegar andlát ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
Minningarkort
Minningar- og
styrktarsjóðs
hjartasjúklinga
Sími 552 5744
Gíró- og kreditkortaþjónusta
LANDSSAMTÖK
HJARTASJÚKLINGA
A
u
g
l.
Þ
ó
rh
.
1
2
7
0
.9
7
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111