Morgunblaðið - 07.08.2005, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. ÁGÚST 2005 39
MINNINGAR
Þrátt fyrir að ég
vissi að Þormóður
væri haldinn illum
sjúkdómi og mér væri
sagt, síðast þegar ég
var á Siglufirði, að það væri bara
spursmál um hvenær hann kveddi
þennan heim, brá mér, eins og sjálf-
sagt fleirum, er ég heyrði um andlát
hans. Frá því ég fyrst frétti af veik-
indum Þormóðs hafði ég alltaf búist
við því að hann hresstist og ynni bug
á sjúkdómnum, slíkur baráttumaður
og jaxl sem hann var, en því miður
fór ekki svo.
Við Þorri kynntumst fyrst er við,
ásamt Jóa galfýr frá Ólafsfirði, stál-
umst til að sjússa okkur á ginpela
sem einhverjum hafði áskotnast, þá
enn í Gagnfræðaskólanum á Siglu-
firði. Síðan lá leið okkar saman á
siglfirsku togurunum. Þar nutum við
sjómannslífsins, galsans og gleðinn-
ar sem því lífi fylgja, og fjörsins, sem
aldrei var fjarri þegar Þorri var ann-
ars vegar. Stríðinn var hann og
glettinn og naut þess út í ystu æsar.
Hann var stundum svo orðheppinn í
borðsalsumræðunum að menn sátu
ÞORMÓÐUR
BIRGISSON
✝ Þormóður Birg-isson fæddist á
Siglufirði 8. ágúst
1951. Hann lést á
Heilbrigðisstofnun
Siglufjarðar 22. júlí
síðastliðinn og fór
útför hans fram frá
Siglufjarðarkirkju
30. júlí.
kjaftstopp og bærist
talið að knattspyrnu
var hann sem alfræði-
bók. Hann var mikill
KS-ingur og þegar
hann ræddi um KS
kom glöggskyggni
hans á tölur honum að
góðum notum og man
ég sérstaklega eftir
því eitt sinn er hann
með ótrúlegri mælsku
og talnarunu næstum
því sannfærði mig, og
fleiri, um að KS væri
langbesta knatt-
spyrnufélag landsins. Ágiskanir
hans og talnafærni komu þó ekki að
gagni er við, ásamt fleira góðu fólki,
buðum fram Þ-listann, lista venju-
legs fólks, til bæjarstjórnarkosninga
á Siglufirði. Við fengum aðeins 58 at-
kvæði sem ekki nægði fyrir manni.
Þorri aflaði sér stýrimannsrétt-
inda í Vestmannaeyjum og var ágæt-
ur stýrimaður og skipstjóri. Hann
var lengi stýrimaður á togurum Þor-
móðs Ramma á Siglufirði og farn-
aðist ágætlega.
Þegar kveðja á slíkan öðling sem
Þorri var verður fátt um orð og það
eina sem ég get gert fyrir hann héð-
an af er að biðja algóðan Guð um gott
pláss fyrir hann á himinfleyjunum,
stýrimannsstaða held ég að væri
honum að skapi.
Að lokum vil ég votta Eyrúnu, eig-
inkonu Þormóðs, börnum þeirra og
barnabörnum mína dýpstu samúð.
Kristján Elíasson.
Elsku Þorri. Það var sárt að heyra
að þú værir farinn eftir hetjulega
baráttu við þennan illvíga sjúkdóm.
Og nú sitjum við hér og skrifum
kveðjubréf. Hvernig er hægt að
kveðja merkan mann eins og þig?
Mann sem átti við erfið veikindi að
stríða en lét það ekki á sig fá. Þú
sýndir og kenndir okkur æðruleysi,
það er alveg sama hvað bjátar á þá
heldur lífið áfram og því skal lifað og
notið á meðan það er. Elsku vinur,
hjá okkur leikfélögunum varstu í
lykilhlutverki ásamt því að leika lög-
regluþjóninn í „Silfri hafsins“ og
vitnum við nú í leikskrána: „Lög-
reglumaður er leikinn af Þormóði
Birgissyni nýliða hjá LS. Þormóður
hinn rammi er ekki við eina fjölina
felldur hjá LS, er hvíslari á æfingum,
áhættuleikari (sá eini sinnar tegund-
ar hjá LS), stuðningsmaður leik-
stjóra í hönnun og gerð leikmyndar.
Þormóður hvar varstu áður?“ Við
viljum þakka þér fyrir tímann sem
við áttum með þér.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins
degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist
eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Með þessum línum viljum við
votta Þormóði Birgissyni virðingu og
þakkir Leikfélags Siglufjarðar fyrir
ómetanlegt starf hans við sýningu og
uppsetningu á „Silfri hafsins“. Jafn-
framt vottum við eiginkonu hans,
Eyrúnu Pétursdóttur, börnum
þeirra, barnabörnum og öðrum
vandamönnum innilega samúð okk-
ar.
Félagar úr
Leikfélagi Siglufjarðar.
Elsku besti frændi
í öllum heiminum er
farinn og ég sé hann
aldrei aftur. Ég skil
ekki af hverju ég fæ
ekki að sjá þig aftur.
Ég trúi þessu ekki.
Ég á margar góðar minningar
um mig, þig og fjölskylduna. Ég
man þegar þú komst og varst hjá
okkur þegar þú fórst í skólann á
Hólum. Þú varst svo góður. Svo
HJÁLMAR VAGN
HAFSTEINSSON
✝ Hjálmar VagnHafsteinsson
fæddist á Ísafirði 25.
apríl 1971. Hann
lést 9. júlí síðastlið-
inn og var útför
hans gerð frá Ytri-
Njarðvíkurkirkju
15. júlí.
eignaðist þú hund
sem þú gafst nafnið
Móa en þú gast ekki
haft hana svo við
pössuðum hana fyrir
þig og þú komst
stundum norður og
kíktir á okkur og
Móu. En þetta ár er
ég ekki búin að sjá
þig oft. Og þegar við
komum suður 8. júlí
síðastliðinn þá var
það í síðasta sinn sem
ég sá þig.
Ég trúi því ekki að
ég sjái þig aldrei framar. En svona
er lífið og því miður getum við
engu breytt. Ég vildi að þetta hefði
aldrei gerst.
Þín frænka
Hafrún Ýr.
Vönduð og persónuleg þjónusta
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Sími 551 7080
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
Ólafur Örn
útfararstjóri,
s. 896 6544
Inger Rós
útfararþj,
s. 691 0919
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Flatahrauni 5A, sími 565 5892
Kistur - Krossar
Prestur - Kirkja
Kistulagning
Blóm - Fáni
Val á sálmum
Tónlistarfólk
Sálmaskrá
Tilk. í fjölmiðla
Erfisdrykkja
Gestabók
Legstaður
Flutningur kistu á
milli landa og
landshluta
Landsbyggðar-
þjónusta
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Sverrir
Einarsson
Bryndís
Valbjarnardóttir
Oddur
Bragason
Guðmundur
Þór Gíslason
Kársnesbraut 98 • Kópavogi
564 4566 • www.solsteinar.is
Bróðir minn,
KRISTBJÖRN BENJAMÍNSSON
frá Katastöðum,
Núpasveit,
lést á dvalarheimilinu Hvammi, Húsavík, þriðju-
daginn 2. ágúst.
Jarðarförin fer fram frá Snartarstaðakirkju laug-
ardaginn 13. ágúst kl. 14.00.
Ólafía Benjamínsdóttir
og fjölskylda.
Kær vinkona,
HALLDÓRA GUÐRÚN JÓELSDÓTTIR,
Skúlagötu 40A,
Reykjavík,
lést á heimili sínu laugardaginn 30. júlí.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn
23. ágúst kl. 15.00.
Fyrir hönd frændfólks og vina,
Inga Jóelsdóttir, Björn Guðjónsson
og fjölskylda.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
GEIR JÓHANN GEIRSSON
vélstjóri,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 2. ágúst.
Útför hans fer fram frá Neskirkju þriðjudaginn
9. ágúst kl. 13:00.
Eybjörg Sigurðardóttir,
Nína Geirsdóttir,
Þorvaldur Geirsson,
Geir Helgi Geirsson, Helga Guðjónsdóttir,
Lovísa Geirsdóttir,
Valgerður Geirsdóttir, Viktor Arnar Ingólfsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát föður
míns,
HELGA HALLGRÍMSSONAR
húsgagna-
og innanhússarkitekts.
Rut Helgadóttir og fjölskylda.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, dóttir, systir,
mágkona og frænka,
GRÉTA MJÖLL STORM JAKOBSEN,
Ærtebjerggårdvej 62,
Odense,
Danmörku,
lést þann 15. júlí á Odense Sygehus og var
jarðsett 22. júlí í Broby Kirke, Odense.
Minningarathöfn verður haldin laugardaginn 20. ágúst í Grundarkirkju,
Eyjafjarðarsveit kl. 14.00.
Henning Storm Jakobsen,
Patrick Storm Jakobsen,
Alexander Storm Jakobsen,
Steinþór Oddsson, Gréta Guðvarðardóttir,
Harpa Jónsdóttir, Guðjón Eiríksson,
Hallur Reykdal, Kirsten Reykdal,
Oddur Steinþórsson, Medha Steinþórsson,
Guðvarður Steinþórsson, Saichon Khlaiput,
Heiðbrá Steinþórsdóttir, Rúnar Eiríksson,
og systkinabörn.