Morgunblaðið - 09.08.2005, Page 1

Morgunblaðið - 09.08.2005, Page 1
Íþróttir í dag Ragnhildur og Ottó meistarar  Besti árangur ársins í hástökki kvenna Fram vann Val Brasilía. AFP. | Þjófar komust undan með 65 milljónir dollara (rúmlega 4 milljarða króna) í stærsta banka- ráni sem framið hefur verið í sögu Brasilíu um helgina, en upp komst um glæpinn í gærmorgun. Höfðu þjófarnir grafið sér 200 metra löng göng til að komast inn í peningageymslur Central-bankans í borginni Fortaleza í norðausturhluta landsins. Í kringum peningageymslurnar, sem eru 500 fm að flatarmáli, eru tveggja metra háir, sérstyrktir steypuveggir. Höfðu þjófarnir búið sér aðsetur í húsi einu í grennd við bankann þaðan sem þeir þóttust starf- rækja garðyrkjuþjónustu. Þannig vakti það litlar sem engar grunsemdir er þeir losuðu sig smátt og smátt við mikið magn af jarðvegi, en göngin liggja á 4 metra dýpi. Það bankarán sem hingað til hafði verið það stærsta í Brasilíu var framið árið 1999, en þá var 16 milljónum dollara (rúmlega 1 milljarði króna) stolið. Stærsta banka- rán Brasilíu STOFNAÐ 1913 212. TBL. 93. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Mikilvæg viðurkenning Gítarleikari fær styrk úr minning- arsjóði um Jacquillat | Menning 21 Sígaunakona býður upp á te Geislar af orku og hamingju og vill bæta heiminn | Daglegt líf 20 Madríd. AP. | Spænska fótboltaliðið Real Madrid hef- ur hafnað rúmlega 300 beiðnum fjölskyldna sem vilja dreifa ösku látinna ættingja yfir keppnisvöll liðsins. Þegar liðinu hafði borist töluvert magn af slíkum beiðnum, ráð- færðu yfirmenn þess sig við embættismenn í ráðhúsi Madrídarborg- ar um hvort einhver lagaleg höft væru til fyrir því að ösku væri dreift yfir íþróttasvæðið. Sögðust emb- ættismennirnir ekki sjá neitt því til fyrirstöðu þar sem um væri að ræða opið svæði. Yfirmönnum liðsins þótti þó tilhugsunin um ösku- dreifingu á vellinum óþægileg og ákváðu að hafna öllum beiðnunum til þess að koma í veg fyrir að völl- urinn yrði að „endastöð fyrir pílagríma“ sem litu á sparkvöllinn sem hið fyrirheitna land. Dreifa ekki ösku látinna fylgismanna SEX hundruð þúsund króna launa- þak Fæðingarorlofssjóðs hefur haft áhrif á rúmlega 4% umsækjenda um greiðslur úr sjóðnum, frá því laga- breytingar um hámarkslán úr sjóðn- um tóku gildi 1. janúar sl. Þakið hef- ur áhrif á orlofsgreiðslur mun fleiri karla en kvenna skv. upplýsingum á vef Tryggingastofnunar. Eftir breyt- ingarnar getur mánaðarleg greiðsla til foreldris í fullu orlofi ekki orðið hærri en 480 þúsund kr. eða 80% af 600 þúsund króna meðallaunum. Á vef TR kemur fram að 50 feður og 11 mæður með sex hundruð þús- und kr. meðallaun á síðustu tveimur árum sóttu um fæðingarorlofs- greiðslur á fyrstu 6 mánuðum ársins. „Feður sem sóttu um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði á þessu tímabili eru 1.421 og því hefur 600 þúsund króna launaþakið, sem kom til fram- kvæmda um síðustu áramót, haft áhrif til lækkunar á greiðslum hjá 3,5% feðra. Mæður sem sóttu um fæðingarorlof á fyrri hluta ársins eru 1.549 og launaþakið hefur haft áhrif á 0,7% þeirra,“ segir á vef TR. Árni Magnússon félagsmálaráð- herra sagði í gær að lögum um fæð- ingarorlof væri ætlað að ná ákveðn- um grundvallarþáttum. „Einn þeirra þátta er að tryggja börnum sam- vistir við báða foreldra og þá á staða foreldris eða tekjur ekki að skipta máli. Annar þátturinn er að jafna stöðu kynjanna. Það myndi vinna þvert gegn því markmiði ef stjórn- endur fyrirtækja eða þeir sem eru launahæstir hefðu minni rétt til or- lofs en aðrir.“ Benedikt Sigurðarson, formaður stjórnar KEA, segir að fæðingar- orlof sé ekki orsök hvað varðar starfslok fráfarandi framkvæmda- stjóra KEA. Hins vegar hafi frá- gangur málsins verið miðaður við það að hann ætti þennan rétt og gengið hafi verið frá samkomulagi varðandi starfslok hans. | 10 Launaþak hefur áhrif á fleiri karla PRÓFANIR á nýju hugbúnaðarkerfi, Link 16, sem Kögun hf. vann fyrir bandaríska her- inn eru nú á lokastigi og er stefnt að því að kerfið verði afhent í lok mánaðarins. Link 16 er þráðlaust og stafrænt samskiptakerfi sem herir Atlantshafsbandalagsríkjanna auk Jap- ans eru að taka í notkun. Starf Kögunar fólst m.a. í að laga þetta nýja samskiptakerfi hers- ins að íslenska loftvarnakerfinu. Link 16 er umfangsmesta hugbúnaðar- verkefni sem Kögun hefur ráðist í. Heildar- kostnaðurinn nemur um 30 milljónum banda- ríkjadala, en Kögun kemur að því sem undirverktaki og er hlutur fyrirtækisins um 500 milljónir króna. Tvö ár eru liðin frá því að samningar um verkefnið voru undirritaðir. Þrjátíu manns komu að því þegar mest var og jafnast vinnustundirnar á við tæplega 800 mannmánuði. Kenny Kniskern, majór í bandaríska flug- hernum og aðgerðarstjóri ratsjármiðstöðv- arinnar, segir að með tilkomu kerfisins verði væntanlega fleiri æfingar haldnar á og við Ís- land með þátttöku flugvéla frá Bandaríkj- unum og Evrópu. Bjarni Birgisson, framkvæmdastjóri þró- unardeildar Kögunar, segir ekki síst reynsl- una af því að halda utan um svo stórt og flókið hugbúnaðarverkefni vera verðmæta fyrir Kögun. | 22–23 Samskiptakerfi Bandaríkjahers lagað að íslenska loftvarnakerfinu Morgunblaðið/Eyþór Starfsmenn Kögunar og flughersins við prófanir á Link 16-kerfinu, en Kögun stefnir á að afhenda bandaríska hernum kerfið í lok mánaðarins. Heræfingum gæti fjölgað RÍKI Evrópu segja „alvarlegt hættu- ástand“ hafa skapast er írönsk stjórnvöld tilkynntu í gær að um- breyting úrans væri hafin í landinu á ný undir eftirliti Alþjóðakjarnorku- málastofnunarinnar (IAEA). Kölluðu þau eftir samhentum viðbrögðum al- þjóðasamfélagsins við ástandinu. Bandaríkjamenn vilja draga Írana fyrir öryggisráð Sameinuðu þjóð- anna og beita refsiaðgerðum gegn þeim. Í umbreytingarverinu við Isfahan í Íran er úrangrýti umbreytt, en það er nauðsynlegt til að unnt sé að auðga það. Auðgað úran er svo hægt að nota til að knýja kjarnakljúfa eða búa til kjarnorkuvopn. Hófst umbreyting í verinu á ný í gær, stuttu eftir að eft- irlitsmenn IAEA höfðu komið upp fjölda eftirlitsmyndavéla í verinu og fjarlægt innsigli af tækjabúnaði þar. Við það jókst til muna sú spenna sem þó var nokkur milli Írans og Vesturlanda, sem snýst um kjarn- orkuáætlun þeirra fyrrnefndu. Óttast að Íranar smíði kjarnavopn Íranar segjast hafa fullan rétt á því að auðga úran og nýta kjarnorku í friðsamlegum tilgangi og sá réttur sé verndaður af samningnum um bann við frekari útbreiðslu kjarnavopna (NPT). Nú síðast á laugardaginn höfnuðu þeir tilboði Evrópuríkja þess efnis að írönsk yfirvöld legðu fram tryggingu fyrir því að þau hefðu ekki í hyggju að smíða kjarnavopn gegn efnahagslegri aðstoð frá ESB. Halda írönsk stjórnvöld því stað- fastlega fram að kjarnorkuáætlun þeirra miði aðeins að því að framleiða rafmagn almenningi til handa en á Vesturlöndum er óttast, að þau ætli sér að framleiða kjarnavopn. Hafa Bandaríkjamenn meðal annars bent á að Íranar, sem sitja á næstmestu gas- og olíuauðlindum veraldar, hafi í raun enga þörf fyrir að nota kjarn- orku sem orkugjafa. Það var í nóvember sem Íranar hétu því að láta af kjarnorkuáætlun sinni meðan á viðræðum við ESB stæði. Er það kallað Parísar-sam- komulagið. Spennan hefur þó stig- magnast eftir að harðlínumaðurinn Mahmood Ahmadinejad tók við emb- ætti forseta Írans í síðustu viku. ESB-ríkin, sem þegar hafa átt í viðræðum við Írani í níu mánuði, höfðu þegar kallað eftir neyðarfundi með stjórn IAEA í dag, þriðjudag. Íranar hefja á ný umbreytingu úrans Eftir Jóhönnu Sesselju Erludóttur jse@mbl.is ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.