Morgunblaðið - 09.08.2005, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 09.08.2005, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2005 17 MINNSTAÐUR AKUREYRI SUÐURNES „ÉG bíð mjög spenntur,“ sagði Sveinn Heiðar Jónsson, fram- kvæmdastjóri hjá Trésmíðaverk- stæði Sveins Heiðars á Akureyri, en á fundi umhverfisráðs á morgun, miðvikudag, fer fram úthlutun á rað- og fjölbýlishúsalóðum til bygginga- fyrirtækja í Naustahverfi. Þá verður í dag, þriðjudag, dregið um 17 ein- býlishúsalóðir í hverfinu en um þær sóttu 97 einstaklingar. Sveinn Heiðar sagði að fasteigna- markaðurinn á Akureyri hefði ekki verið jafnlíflegur og nú í langan tíma og það væri vissulega gleðilegt. „Það selst allt og fólk er jafnvel á biðlista eftir nýjum íbúðum,“ sagði hann. Alls bárust 193 umsóknir frá ein- staklingum og byggingarfyrirtækj- um um lóðir undir 430 íbúðir í 2. skipulagsáfanga Naustahverfis, en umsóknarfrestur rann út í lok júlí. Í áfanganum sem liggur við suð- austurhorn golfvallarins er gert ráð fyrir 18 einbýlishúsum, 95 íbúðum í raðhúsum og 319 íbúðum í fjölbýli, alls um 430 íbúðum. Byggingarrétti á 173 íbúðum þar af var ráðstafað til 5 byggingarfyrirtækja fyrr á árinu, og gafst þeim kostur á að hafa áhrif á endanlega mótun deiliskipulagsins, hverju á sínum reit. 97 einstaklingar sóttu um 17 lóðir Lóðir fyrir 259 íbúðir voru því í raun lausar til úthlutunar og skipt- ust umsóknir þannig að 97 einstak- lingar sóttu um 17 einbýlishúsalóðir, en 69 umsóknir bárust frá bygging- arfyrirtækjum um 13 fjölbýlishús- lóðir (216 íbúðir) og 6 raðhúsalóðir (26 íbúðir). Lóðirnar verða að hluta til byggingarhæfar 1. nóvember í ár en að hluta 1. júlí á næsta ári. Á vef Akureyrarbæjar segir að samkvæmt vinnureglum bæjarins um lóðarveitingar hafi einstaklingar forgang að einbýlis-, par- og tvíbýlis- húsalóðum en í þessari úthlutun er ekki um tvær síðarnefndu gerðirnar að ræða. Við úthlutun einbýlishúsa- lóðanna verður beitt útdrætti og fer hann fram að viðstöddum umsækj- endum eða umboðsmönnum þeirra í bæjarstjórnarsalnum skömmu eftir hádegi í dag, þriðjudag, en umhverf- isráð úthlutar byggingarfyrirtækj- um rað- og fjölbýlishúsalóðum á fundi sínum á morgun. Fjöldi umsókna um lóðir í 2. áfanga Naustahverfis 97 sóttu um 17 lausar einbýlishúsalóðir Morgunblaðið/Margrét Þóra Vinsælt hverfi Ljóst er að færri fá en vilja þegar dregið verður um lóðir í 2. áfanga Naustahverfis í dag, 97 sóttu um 17 lóðir. Þessi ungi maður er ekki í þeim hópi, þegar kominn nokkuð áleiðis við húsbyggingu sína. Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur maggath@mbl.is UM 7.000 gestir komu á Handverkshátíðina sem haldin var á Hrafnagili um liðna helgi. Það er heldur færra fólk en á síð- ustu hátíð, að sögn Bjarkar Sigurðar- dóttur framkvæmda- stjóra. Síðastliðin tvö til þrjú ár hafa að jafnaði um 8.000 gest- ir komið á hátíðina, en talan er svipuð þegar litið er lengra aftur í tímann. Alls voru sýnendur vel á annað hundraðið og komu sér fyrir í um 90 básum, í íþróttahúsi Hrafna- gilsskóla, á útisvæði og í kennsluhúsnæði. Þá var að venju markaðssvæði utan- dyra þar sem boðinn var til sölu fjöl- breyttur varningur. Handverkshátíðin var haldin í þrettánda sinn og sagði Björk að mjög gott hljóð hefði verið í sýnendum eftir hana. Þema hátíðarinnar að þessu sinni var hafið og var leitast við að móta umgjörð sýningarinnar og dagskrá með það að leiðarljósi. Efnt var til átta námskeiða fyrir handverksfólk um helgina og voru leiðbeinendur fjórir, þrír norrænir listamenn og einn íslenskur. „Það var mjög góð þátttaka á námskeið- unum, þau hafa vakið athygli og fólk vill endilega auka þekkingu sína þegar því býðst að taka þátt í svona námskeiðum,“ sagði Björk. Sigga á Grund sem var með nám- skeið í að skreyta í spón og heil horn, gamalt þjóðarhandverk sem nú er að falla í gleymsku, hefur hug á að bæta við námskeiði, því færri komust að en vildu á þau tvö námskeið sem hún bauð upp á um helgina. Um 7.000 gestir á handverkssýningu Morgunblaðið/Margrét Þóra Eldsmiður Theresa Johansson var önnum kafin við vinnu sína í Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit en hún bauð líka upp á námskeið í eld- smíði sem voru vel sótt. Mótmæli | Íbúar og húseigendur í Hrísey hafa mótmælt áformum Norðurorku um að setja rennsl- ismæla á inntök hitaveitu Hríseyjar. Fjallað var um málið á fundi bæj- arráðs í gær. Varðandi breytt sölu- fyrirkomulag á heitu vatni í Hrísey vísar bæjarráð til umræðna í að- draganda sameiningar Hríseyj- arhrepps og Akureyrarbæjar 2004 um samræmingu skatta og þjón- ustugjalda. Bæjarráð óskar eftir því að stjórn og stjórnendur Norður- orku hf. boði til kynningarfundar þar sem íbúum í Hrísey verði kynnt- ar fyrirhugaðar breytingar. Jafn- framt óskar bæjarráð eftir að fulltrúi Norðurorku hf. mæti til fundar við bæjarráð næsta fimmtu- dag og upplýsi um stöðu mála. Vogar | Fjölskyldudagurinn var haldinn í Vogum á föstudaginn sem leið og gerðu bæjarbúar sér margt til gamans. Meðal atriða á fjöl- breyttri dagskrá fjölskyldudagsins var veiting umhverfisviðurkenninga fyrir snyrtilegar lóðir, glæsilega garða og frágang bygginga, íbúum Voga til hvatningar. Fyrir glæsilegan og vel við hald- inn garð í stöðugri endurnýjun hlutu þau Guðjón Sverrir Agn- arsson og Eyrún Antonsdóttir, eig- endur Aragerðis 16, viðurkenningu. Í umsögn dómnefndar sagði m.a.: „Garðurinn er ævintýraheimur út af fyrir sig með skemmtilegum heima- gerðum listaverkum úr ýmsum nytjahlutum og fjölbreyttum gróðri.“ Alice Lid, eigandi Vatnsleysu, hlaut viðurkenningu fyrir fallegan, gróinn garð sem ræktaður er við mjög erfið skilyrði. Garðinn prýðir fjöldi harðgerðra plantna og hefur honum verið vel við haldið í áratugi. Þá hlutu Oddgeir Arnar Jónsson og Halldór Viðar Jónsson, eigendur verktakafyrirtækisins Sparra ehf. og fasteignafélagsins Bola- fótar, viðurkenningu fyrir skjótan frágang húsbygg- inga og góða umgengni á byggingarstað við Brekku- götu 23, Austurgötu 2 og Mýrargötu 1. „Húsin hafa risið á mjög skömmum tíma og um leið hefur umgengni á lóð verið til fyrirmyndar,“ segir m.a. í umsögn dóm- nefndar. Byggingarleyfi fyrir Austurgötu 2 var veitt í maí og nú eru hús og lóð fullfrágengin og til stakrar prýði, að sögn dómnefndar. Ennfremur hlutu eigendur hest- húsanna í Fákadal, Vogum, þau Gunnar Andersen, Róbert Ander- sen, Heidi Andersen, Guðný Snæ- land, Hafsteinn Snæland, Jóhann S. Þorbjörnsson, Ólafur Guðmundsson, Helga Ragnarsdóttir og Guðrún Kristín Ragnarsdóttir viðurkenn- ingu fyrir snyrtileg hesthús og um- hverfi þeirra, ásamt uppgræðslu á svæðinu. Heildarsvipur götunnar þykir til fyrirmyndar. Umhverfisviðurkenn- ingar veittar í Vogum Fallegir garðar og vel frá- gengin hús Ævintýraheimur Garður hjónanna Guðjóns Sverris Agnarssonar og Ey- rúnar Antonsdóttur, Aragerði 16, þótti glæsilegur, en í honum má finna fjöldann allan af áhugaverðum nytjamunum sem nú eru listaverk. Sérstakur garður Garður Alice Lid á Vatnsleysu þykir fallegur og afar vel gróinn miðað við aðstæður. Keflavík | Húsfyllir var í Stapanum á föstudagskvöldið þegar Guðmundur „Mummi Hermanns“ Hermannsson hélt upp á fimmtugsafmælið með út- gáfu hljómplötunnar „Í tilefni dags- ins,“ en þar syngur Mummi lög sín við ljóð fjölda skálda. Þannig var í senn um að ræða af- mælisveislu og útgáfutónleika þar sem Mummi flutti lög sín við frábær- ar undirtektir, studdur af ellefu manna stórsveit sem prýdd var ýms- um landsliðsmönnum, þar á meðal Sigurði Flosasyni saxófónleikara, Sigurgeiri Sigmundssyni gítarleikara og Hafsteini Valgarðssyni bassaleik- ara. Að sögn blaðamanns Víkurfrétta „lék Stapinn á reiðiskjálfi í fjörugustu lögunum,“ en inn á milli voru lögin þó rólegri. Tónleikagestir kunnu vel að meta flutning Mumma og félaga hans og fóru þeir fögrum orðum um tón- listina að loknum tónleikunum. Skemmtihaldi var þó hvergi nærri lokið þótt Mummi væri stiginn af svið- inu og hélt hann áfram að sinna gest- um sínum fram eftir nóttu. Kennir ýmissa grasa Mummi Hermanns kveðst sjálfur afar ánægður með viðtökurnar. „Ég var alveg í skýjunum með þetta,“ seg- ir Mummi, sem er nú í fyrsta skipti að gefa út undir eigin nafni, þó hann hafi oft leikið og sungið með öðrum tón- listarmönnum og hljómsveitum. „Þessi tónlist er af öllum toga. Þarna er bossanova, jass, hugljúf popplög, rokk og fönk og jafnvel eitt klassískt líka. Þarna eru allar stíltegundir. Þetta er mikið samið við ljóð eftir hin ýmsu ljóðskáld og þaðan kemur grunnurinn að laginu. Síðan reyni ég að endurspegla ljóðin í lögunum. Það má jú segja að ég sé að mála nokkurs konar landslagsmyndir.“ Mummi tekur undir að það hafi ekki verið seinna vænna að gefa út sólóplötu á löngum ferli sínum sem tónlistarmaður. „Ég er búinn að vera í tónlistinni frá því fyrir tvítugt og kominn tími til,“ segir Mummi að lok- um. Mummi Hermanns með sólóplötu Semur lög við ljóð kunnra skálda Víkurfréttir/Þorgils Alsæl Mummi ásamt konu sinni, Sveindísi Valdimarsdóttur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.