Morgunblaðið - 09.08.2005, Síða 27

Morgunblaðið - 09.08.2005, Síða 27
Angur í hjarta, angur í strengjum einmana grætur fallandi dag. Hann veit að út er runnið á endatón fegursta lag. Pálmi Almarsson. Að hryggjast og gleðjast hér um fáa daga, að heilsast og kveðjast. – Það er lífsins saga. (Páll J. Árdal.) Látinn er eftir stutta en snarpa baráttu við krabbamein mágur minn og vinur Kristján Guðmundsson. Ég kynntist Kidda þegar hann og Dúna systir mín fóru að búa saman. Við áttum ýmislegt sameiginlegt, bæði ættuð vestan af Snæfellsnesi, og þekktum því bæði fólk og staði sem við gátum rætt um og ekki spillti að maðurinn minn var ættaður frá Akranesi en þar var Kiddi fædd- ur og bjó þar í nokkur ár. Kiddi var mikill náttúruunnandi og veiðimaður, þekkti landið sitt vel og var fróðleiksbrunnur um fugla og dýralíf, og reyndar lönd og þjóðir ef út í það var farið enda vel lesinn, greindur og athugull. Fátt vissi Kiddi betra en að skunda á Þingvöll og kasta fyrir sil- ung í fallegu veðri, með Dúnu sína á bakkanum og nesti í körfu. Kiddi var afar bónþægur og taldi ekki eftir sér að snúast fyrir þá sem leituðu til hans. Okkur varð vel til vina og þegar Villi maðurinn minn lág banaleguna heima í Hlaðbrekku á sl. ári var ekki ósjaldan sem Dúna og Kiddi kíktu við hjá okkur síðla kvölds og þá sat Kiddi oft hjá Villa og þeir rifjuðu upp staðhætti og liðna atburði ofan af Skaga og gat oft teigst vel úr þeim stundum, báðum til ánægju og yndisauka. Kiddi var konu sinni mikil stoð og stytta, sérstaklega eftir að sjón hennar tók að hraka og er hennar missir meiri fyrir bragðið. Elsku systir, innilegar samúðar- kveðjur frá mér og minni fjölskyldu og einnig til sona Kidda, systra hans og fjölskyldna þeirra. Guð blessi okkur öllum minningarnar. Hægur er dúr á daggarnótt. Dreymi þig ljósið, sofðu rótt! (Jónas Hallgrímsson.) Erla Bergmann. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2005 27 MINNINGAR HINSTA KVEÐJA Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (Matthías Jochumsson.) Guð geymi þig, elsku langafi. Jóhann Karl, Gunnar Árni og Anna María. maki Gísli Garðarsson. Börn þeirra eru Sigríður Eygló, Krist- inn og Garðar. 6) Hrefna, börn hennar eru Þórarinn, Aðalheiður Valdís og Gunnar Dagur. Gunnar vann almenn sveita- störf í æsku. Hann stundaði nám við Íþróttaskólann í Haukadal 1937–1938 og Héraðsskólann á Laugarvatni 1939–1940. Fór á vertíð til Vestmannaeyja og til Grindavíkur, einnig nokkur sum- ur á síldarvertíð við Norðurland. Árið 1942 lá leiðin til Suðurnesja. Þar hóf hann skipasmíðanám við Dráttarbrautina í Keflavík 1943– 1947, þar sem Egill Þorfinnsson frá Spóastöðum var meistari hans. Árin 1944–1947 var hann í Iðnskólanum í Keflavík og lauk sveinsprófi í skipasmíði 1948. Lærði einnig húsateikningar í Iðnskólanum 1951. Í gegnum tíð- ina vann hann við skipasmíði, húsasmíði og innréttingasmíði. Einnig var hann í prófnefnd skipasmíða í nokkur ár. Gunnar var verkstjóri hjá Dráttarbraut Keflavíkur 1964–1971. Þá réðst hann til starfa hjá Byggingaverk- tökum Keflavíkur, og starfaði þar til 75 ár aldurs. Gunnar hafði ætíð mikinn áhuga á söng og var einn af stofnfélögum Karlakórs Keflavíkur. Útför Gunnars verður gerð frá Keflavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. ina þína. Alltaf vildirðu hafa nóg að gera, hvort sem það var við að stækka sumarbústaðinn seinna meir, gróður- setja tré og plöntur eða annað tilfall- andi. En ekki var bara verið að vinna, því þú gafst þér líka tíma til að gera margt með okkur systrunum. Í því sambandi rifjast upp smá ferðalag sem við fórum með þér á litlum árabát sem þú smíðaðir og fengum við syst- urnar að sitja í honum á meðan þú íklæddur vöðlum dróst hann á eftir þér. Ekki sat mamma heldur auðum höndum með okkur litlar, saumaði út og margar lopapeysurnar voru prjón- aðar. Á kvöldin heima, sastu líka mik- ið inni í stofu við að skera út alla þessa fallegu hluti sem nú prýða heimili okkar. Einnig hafðir þú mjög gaman af því að renna fyrir lax, því ekki var langt að sækja hann í Iðuna. Virtist þú allt- af vita hvar laxinn héldi sig í ánni, því yfirleitt var einn eða fleiri með þér þegar komið var til baka. Oft kom fyr- ir að þú værir sá eini sem fékkst lax, því ána þekktirðu vel. Laxinn virtist synda til þín. Þegar mamma lést sagðir þú að þú hefðir misst mikið, þú hefðir misst þinn besta vin. En núna hittist þið loksins aftur. Blessuð sértu sveitin mín, sumar, vetur, ár og daga. Engið, fjöllin, áin þín, yndislega sveitin mín, heilla mig og heim til sín huga minn úr fjarlægð draga. Blessuð sértu, sveitin mín, sumar, vetur, ár og daga. (Sig. Jónsson frá Arnarvatni.) Guðrún Bríet, Kolbrún og Hrefna. Elsku afi minn, nú ertu farinn frá okkur. Þegar ég hugsa til þín hugsa ég um laxveiði, trjárækt, tréskurð og sönginn. Afi minn á Iðu, laxveiðina stundaði hann, snjall var hann við tré- skurð, enda fjölhæfur karl. Oft blístr- aði hann tóna, vanur karlakórshljómi. Gróður lék um hendur hans eins og fegurstu blóm. Þetta eru minningar mínar um afa minn. En mikið var afi dapur eftir að amma dó, maður sá það, mikill var söknuðurinn. En nú ert þú hjá ömmu og Badda frænda ásamt öðrum góðum ættingj- um. Guð blessi þig, afi minn. Hvíldu í friði í Guðs ljósi. Amen. Erla Björk Vilhjálmsdóttir. Hver minning dýrmæt núna er sem geymi ég næst hjarta mér. Ég rifja upp hvað það var, og hlutina sem þú sýndir mér þar. Þér var svo margt til lista lagt. Iðu undrið og það allt. Það sem við lærðum var svo margt, og hjarta okkar kært. Hugleikið var mér handbragðið, er lagðir þú á það smiðshöggið. Perlur sem minna á þig. En nú er komið að kveðjustund er þú ferð á vina fund. Far í farsæld og friði, elsku afi. Aðalsteinn og Gerður Beta. Kistur - Krossar Prestur - Kirkja Kistulagning Blóm - Fáni Val á sálmum Tónlistarfólk Sálmaskrá Tilk. í fjölmiðla Erfisdrykkja Gestabók Legstaður Flutningur kistu á milli landa og landshluta Landsbyggðar- þjónusta ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Símar 581 3300 - 896 8242 Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is Komum heim til aðstandenda ef óskað er Sverrir Einarsson Bryndís Valbjarnardóttir Oddur Bragason Guðmundur Þór Gíslason Ástkær frænka okkar og mágkona, GUÐFINNA JÚLÍUSDÓTTIR, lést fimmtudaginn 21. júlí síðastliðinn. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Vigdís Sigurðardóttir, Árni G. Guðmundsson, Hanna Pétursdóttir, Auður Jörundsdóttir, Rita A.M.T. Júlíusson, bræðrabörn og fjölskyldur. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, GEIR JÓHANN GEIRSSON vélstjóri, Hagamel 30, lést á heimili sínu þriðjudaginn 2. ágúst. Útför hans fer fram frá Neskirkju þriðjudaginn 9. ágúst kl. 13.00. Eybjörg Sigurðardóttir, Nína Geirsdóttir, Þorvaldur Geirsson, Geir Helgi Geirsson, Helga Guðjónsdóttir, Lovísa Geirsdóttir, Valgerður Geirsdóttir, Viktor Arnar Ingólfsson, barnabörn og barnabarnabörn. Faðir minn og bróðir okkar, BJARNI ÁGÚSTSSON, Dúfnahólum 4, Reykjavík, frá Urðarbaki, Þverárhr. V-Húnavatnssýslu, lést laugardaginn 30. júlí sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sigursteinn Bjarnason, Ásta Ágústsdóttir, Héðinn Ágústsson, Heimir Ágústsson, Marsibil Ágústsdóttir. Elskuleg eiginkona mín, ÁSA SIGRÍÐUR INGVARSDÓTTIR, Hrafnistu í Hafnarfirði, áður Hjarðarhaga 42, Reykjavík, andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði laugardaginn 6. ágúst. Útför fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 12. ágúst kl. 11.00. Gunnar H. Ólafsson. Elsku hjartans maðurinn minn, bróðir, pabbi okkar, tengdapabbi og afi, HANNES ÞÓRÐUR HAFSTEIN, lést sunnudaginn 7. ágúst. Útför hans verður gerð frá Dómkirkjunni mánudaginn 15. ágúst kl. 13.00. Blóm afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið. Ragnheiður Hafstein, Sigurður Hafstein, Ásgerður Katrín Hafstein og Carl Heggli, Ásta Ragnheiður Hafstein og Jón Kristinn Guðmundsson, Valdimar Tryggvi Hafstein og Birna Anna Björnsdóttir, Soffía Lára Hafstein og Árni Þór Árnason, Hannes Ingi, Valdimar Kristinn, Margaux, Christina, Alexandra, Eva Örk og Tara Sól. Elskulegur frændi okkar, SIGURÐUR KARLSSON, Unnarbraut 28, Seltjarnarnesi, lést á heimili sínu mánudaginn 25. júlí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Karl G. Kristinsson, Jón Gunnar Guðmundsson, Kristín B. Kristinsdóttir, Kristinn Ó. Guðmundsson, Sólveig H. Kristinsdóttir, Ólafur S. Guðmundsson, Anna Karen Kristinsdóttir, Guðrún H. Guðmundsdóttir. Móðir mín, fyrrverandi tengdamóðir og amma, BETTY DURHUUS, lést á elliheimilinu Grund föstudaginn 22. júlí síðastliðinn. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Kaj Durhuus, Kristín Jóhanna Helgadóttir, Jóhann Betty Durhuus, Helgi Durhuus.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.