Morgunblaðið - 09.08.2005, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2005 33
DAGBÓK
Ámiðvikudag verður XX. norræna lækna-söguþingið sett í Reykjavík og er þetta íþriðja skiptið sem ráðstefnan er haldinhér á landi.
Atli Þór Ólason, sérfræðingur í bæklunarlækn-
ingum, er umsjónarmaður ráðstefnunnar í ár: „Yf-
irskrift ráðstefnunnar að þessu sinni er „Sjúklingur
og samfélag í sögulegu ljósi“. Aðalræðumaður um
þetta efni er Jan Sundin, sagnfræðingur frá Sví-
þjóð sem heldur erindið „Health and Social
Change: A Comparison in Time and Space“. Þetta
efni er mjög á döfinni hjá sagnfræðingum í heil-
brigðissögu og Jan er einn helsti forkólfurinn á
þessu sviði og hefur skrifað óhemjumikið um þetta
efni.“
Dagskrá ráðstefnunnar stendur til laugardags-
kvölds en alls sækja ráðstefnuna gestir frá 15 lönd-
um og flutt verða um 60 erindi. Atli á von á um 100
gestum á ráðstefnuna en í Norrænu samtökunum
um heilbrigðissögu eru 25 félög með alls um 5.000
meðlimi.
„Annað stórt efni á ráðstefnunni er sérstaða
norðlægra landa í heilbrigðissögu. Meðal annars
mun Haraldur Briem sóttvarnalæknir halda erindi
en hann hefur rannsakað efnið mikið og komist m.a.
að þeirri niðurstöðu að farsóttir breiðist út með
öðrum hætti í norrænum löndum en annars staðar.
Við fjöllum um víkinga og læknisfræði þeirra og
þar vorum við svo heppin að fá Charlotte Keiser til
liðs við okkur. Hún hefur rannsakað heilbrigðismál
í Íslendingasögunum og fjórum handritum og borið
saman við þá þekkingu sem var til staðar í Evrópu
á þessum tíma en Charlotte er talin vera einn
fremsti sérfræðingurinn á þessu sviði.
Einnig fáum við upplýsingar um sama efni með
fornleifarannsóknum en Hildur Gestsdóttir forn-
leifafræðingur fjallar um þau mál. Að auki er gam-
an að segja frá því að Sigfús T. Elíasson, prófessor í
tannlækningum, og Svend Richter gerðu rann-
sóknir á höfuðkúpum í Skeljastaða-kirkjugarði og
fundu út að glerungur tannanna var mjög eyddur,
að þeir halda vegna sýrudrykkju. En þessi tann-
eyðing er álíka og sést hjá nútímamanninum vegna
gosdrykkju.“ Loks segir Atli að til viðbótar verði
fjallað sérstaklega um konuna í heilbrigðissögunni,
um heimilislækninn í sögulegu samhengi, um lyfja-
fræðinga og tannlækna: „Við verðum með fjöl-
breytt og merkilegt efni og sumt sem kemur fram í
fyrirlestrunum skrítið og óvanalegt eins og búast
má við.“
XX. norræna heilbrigðissöguþingið er öllum op-
ið. Þingið verður sett kl. 18 á miðvikudag í Þjóð-
menningarhúsinu en fyrirlestrar hefjast í hátíð-
arsal Háskóla Íslands á fimmtudag.
Heilbrigðissaga | XX. norræna læknasöguþingið haldið í Reykjavík
Saga heilsu og lækninga
Atli Þór Ólafsson er
fæddur 6. janúar 1949.
Hann lauk embættis-
prófi í læknisfræði frá
Háskóla Íslands 1977
og doktorsprófi frá Há-
skólanum í Kíl í Þýska-
landi 1986. Hann er
sérfræðingur í bækl-
unarlækningum og
starfar á eigin lækna-
stofu í Reykjavík. Atli
er formaður í Félagi áhugamanna um sögu
læknisfræðinnar sem stendur fyrir XX. nor-
ræna þinginu um lækningarsögu. Atli er giftur
Guðrúnu Hrefnu Guðmundsdóttur kennara og
eiga þau þrjú börn.
Höfuðborgarmál
FÉKK um daginn sendan plastpoka
heim til mín til að setja í rusl, með
það að markmiði að umhverfið og
borgin mín liti betur út og bæri af
öðrum borgum og bæjarfélögum,
gott mál.
Þar sem ég er velvakandi í um-
hverfis- og þrifnaðarmálum borg-
arinnar, þá er þar ýmislegt ekki í lagi
og ætti borgin að líta sér nær og lag-
færa og sinna betur þrifum á ýmsum
stöðum. Laugardagsmorgunn í Naut-
hólsvík, allar ruslafötur yfirfullar og
drasl út um allt. Með fram göngustíg-
um borgarinnar eru ruslafötur oftast
yfirfullar og drasl út um allt þar í
kring, ílátin alls staðar alltof lítil og
tæmd of sjaldan. Hreinsunardeildin
stendur sig ekki nógu vel eða það
þarf að breyta verklaginu og sinna
þessu miklu betur. Við sundstaðina,
göngustígana, og þar sem fólk hópast
saman.
Göngustígakerfið í Reykjavík er að
verða til fyrirmyndar og hægt að fara
á milli hverfa og bæjarfélaga á góð-
um stígum, þó er alveg undarlegt að
það eru bara drykkjarvatnsbrunnar á
3–4 stöðum á allri þessari leið og eru
3 af þeim í vesturbænum og 1 á Sæ-
brautinni Þessa hluti þarf að lagfæra
S.G.
061141-4489.
Þakkir til
hverfamiðstöðvar
ÉG fór í sumarbústaðaland mitt sem
liggur austan við Reynisvatn og er
svo sem ekki í frásögur færandi nema
hvað ég varð undrandi þegar ég var
að koma að hliðinu inn í landareign-
ina.
Óhemju af gömlum gólfteppum,
gólfdúk, flísum, svampi og gard-
ínuköppum hafði verið sturtað í
hrúgu fast við veginn. Ég ætlaði varla
að trúa mínum eigin augum að svona
nokkuð gæti gerst. Þarna hefur
Reykjavíkurborg verið að planta
trjám til að fegra umhverfið.
Ég tók á það ráð að fara í þjónustu-
miðstöð Reykjavíkurborgar við Þórð-
arhöfða og kanna hvort ég gæti feng-
ið einhverja aðstoð við að fjarlægja
allt þetta drasl. Það er skemmst frá
því að segja að ég kom þangað rétt
um kl. 12 og hitti þar mann að máli
sem sagðist heita Gísli. Ég sagði hon-
um frá mínum málum og spurði hvort
hann gæti aðstoðað við að fjarlægja
þennan ruslabing. Hann tók afar já-
kvætt í það og bað mig að koma aftur
kl. 13 þegar matarhléi væri lokið.
Þegar ég mætti kl. 13 sagðist hann
því miður ekki geta komið með mér,
en ég ætlaði að vísa honum veginn, en
aftur á móti hefði hann sent bíl á
staðinn og taldi bílstjórinn sig geta
farið eftir rissi af leiðinni sem ég
hafði gefið. Þegar ég kom að sum-
arbústaðnum var bílstjórinn langt
kominn með að hreinsa upp draslið.
Sagði hann mér að það væri með ólík-
indum hvar fólk reyndi að losa sig við
alls konar drasl.
Þessi hjálpsemi fannst mér til fyr-
irmyndar og vil ég þakka starfs-
mönnum Hverfamiðstöðvar við Þórð-
arhöfða fyrir þeirra jákvæðni og
skilning á svona málum.
Ég er ekki viss um að við borg-
arbúar þökkum þessum ágætu
verkamönnum sem starfa á hverfa-
miðstöðvunum sem skyldi fyrir þau
verk sem þeir vinna og lúta að því að
fegra og bæta hverfin sem við búum í.
Bestu þakkir til þín Gísli og þinna
manna.
Sigurjón Fjeldsted,
fyrrv. skólastjóri,
Brekkuseli 1.
Loki er týndur
DÖKKUR svartgrár 3ja
mánaða fress með skyggð-
ar loppur og eyru týndist í
Grjótaþorpinu 26. júlí sl.
Hann er ómerktur, afar
kelinn og blíður. Hans er sárt saknað.
Finnandi vinsamlegst hafið samband
við Sverri eða Elínu í síma 551 5802.
Fundarlaun.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
◆ Ársalir - fasteignamiðlun ◆ Ársalir - fasteignamiðlun ◆
Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali
533 4200
eða 892 0667
Ársalir
FASTEIGNAMIÐLUN
Engjateigi 5 105 Rvk
533 4200
Hef kaupanda að vönduðu einbýlishúsi
á stór-Reykjavíkursvæðinu
Seljendur vinsamlega hafið samband
í síma 533 4200 eða 892 0667
Afleysingafólk vantar til að bera út Morgunblaðið
í flestum hverfum höfuðborgarsvæðisins.
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst.
Ef þú hefur áhuga á að fá greitt fyrir að byrja
daginn á léttum göngutúr í hverfinu þínu
í sumar hafðu þá samband
við áskriftardeild Morgunblaðsins í síma 569 1122.
Vantar þig aukavinnu?
Fáðu borgað fyrir hressandi
göngutúr á morgnana!
UM ÞESSAR mundir stendur yfir
sýning Konunglega breska mynd-
höggvarafélagsins (Royal British
Society of Sculptors) í skrúðgarðinum
sem kenndur er við Harold Martin í
Oadby, Leicester.
Sýningin er haldin í tilefni af hundr-
að ára afmæli samtakanna og er unnin
í samvinnu við Háskólann í Leicester
sem árlega stendur fyrir högg-
myndasýningu í garðinum.
Meðal þátttakenda er íslenska lista-
konan Guðrún Nielsen en þátttak-
endur í sýningunni eru 42 talsins hvað-
anæva að. Guðrún er meðlimur í
Konunglega breska myndhöggv-
arafélaginu en verk hennar á sýning-
unni er japanskt tehús í fullri stærð og
ber verkið heitið „Memory“.
Verkið vann Guðrún í sveitaþorpi í
nágrenni Leicester og setti það saman
á sýningarstaðnum en sú vinna vakti
töluverða athygli gesta og gangandi.
Sýningin var opnuð 8. júlí og stendur
til 26. september.
Íslenskur myndhöggvari í Leicester
Séð innan úr tehúsi Guðrúnar Nielsen.
Gestir virða fyrir sér tehúsið þar
sem það stendur í garðinum í
Leicester.
LISTAKONAN Alda Sigurðardóttir
opnar 12. ágúst sýningu í Galleríi
Nordlys við Fredriksborg-götu 41 í
Kaupmannahöfn.
Sýningin ber yfirskriftina „Land-
scape, fictional horizon“ og sam-
anstendur af myndum unnum með
vatnslitum á striga, með plástrum o.fl.
Eins og segir í tilkynningu fjallar
sýningin um hinn óspillta sjóndeild-
arhring sem fórnað hefur verið til að
hlaða rafhlöður verksmiðja. Sér-
staklega er tekið fram að sýningin er
ekki styrkt af fyrirtækjum í orkuiðnaði
og þungaiðnaði.
Verk Öldu er til sölu í bútum eða í
heild.
Stendur sýningin til 10. september
og er opið 10 til 17.30 virka daga og 10
til 14 á laugardögum.
Frekari upplýsingar á www.sim-
net.is/aldasig.
Íslenskur
sjóndeildar-
hringur í
Kaupmanna-
höfn