Morgunblaðið - 09.08.2005, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2005 41
EWAN McGREGOR SCARLETT JOHANSSON
Sýnd bæði með íslensku og ensku tali.
Þrælskemmtileg rómantísk
gamanmynd um dóttur sem reynir að
finna draumaprinsinn fyrir mömmuna.
ÁLFABAKKI KRINGLAN KEFLAVÍKAKUREYRI
„Island er afar vel heppnuð
með góðu plotti, mæli með
að þið fáið ykkur stóran
popp og kók og njótið bestu
myndar Michaels Bays til þessa.“
-Ragnar H. Ragnarsson Mbl. Málið
„The Island, virkilega
vel heppnuð pennumynd,
skelfileg en trúleg framtíðarsýn!!“
S.U.S XFM
l , i il
l ,
l il l í !!
Kvikmyndir.is
S.V. Mbl.
„The Island er fyrirtaks afþreying.
Ekta popp og kók sumarsmellur. “
-Þ.Þ. Fréttablaðið.- . . l i .
THE ISLAND kl. 8 - 10.40
KICKING & SCREAMING kl. 8
THE PERFECT MAN kl. 10
THE ISLAND kl. 8 - 10
KICKING AND SCREAMING kl. 4 - 8
DARK WATER kl. 10
MADAGASCAR m/ísl.tali. kl. 6
með ensku tali
DV
Ó.H.T. RÁS 2
ÞEIR VILJA EKKI AÐ ÞÚ VITIR HVAÐ ÞÚ ERT!
THE ISLAND kl. 3 - 4 - 6 - 7 - 8.40 - 10 - 10.45
THE ISLAND VIP kl. 4.30 - 10.45
KICKING AND SCREAMNG kl. 2 -4 -6 -8 -10
MADAGASCAR m/ensku.tali. kl. 2-4-6-8-10
MADAGASCAR m/ísl.tali. kl. 2 - 4 - 6
SVAMPUR SVEINSSON m/ísl.tali. kl. 2
THE ISLAND kl. 3 - 5.30 - 8.30 - 11.15 B.i. 16
THE PERFECT MAN kl. 4 - 6 - 8 - 10
MADAGASCAR m/ísl.tali. kl. 4.30 - 6.30
BARMAN BEGINS kl. 8.30 - 11.15 B.i. 12
Hvað myndir þú gera ef þú
kæmist að því að þú værir afrit af einhverjum öðrum?
06.08. 2005
4
9 2 5 1 4
2 5 7 1 7
7 12 21 22
35
03.08. 2005
9 15 16 32 41 45
38 48 26
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4539-8618-0017-6940
4741-5200-0012-5404
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA Íslandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
VISA ÍSLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavík.
Sími 525 2000.
Hverjir skipa sveitina?
Friðrik S. Friðriksson (bassi), Haraldur Leví Gunn-
arsson (trommur), Jón Þór Ólafsson (gítar) og Stefnir
Gunnarsson (gítar og söngur)
Hver er heimspekin á bak við hljómsveitina?
Það vitum við ekki.
Hvenær var hún stofnuð og hvernig atvikaðist það?
Lada Sport var stofnuð í byrjun sumars 2002 þegar
Haraldur og Stefnir höfðu verið að spila saman í ein-
hvern tíma og fengu svo bara fleiri með sér sem endaði
með því að skipanin varð eins og hún er í dag.
Hvaða tónlistarmenn eru hetjur ykkar?
Frikki: Brian Eno, Daniel Gildenlöw, Brian Warner,
John Lennon, Geddy Lee, Bob Dylan o.fl. Halli: John
Bonham, Arnar Þór Gíslason, Tony Hajjar og Arnar Ingi
Viðarsson. Jón Þór: Damon Albarn og Kolbeinn Hugi
Höskuldsson. Stefnir: Heimir Gestur Eggertsson og Íris
Sif Ragnarsdóttir.
Eru einhverjir innlendir áhrifavaldar?
Það er auðvitað eitthvað innlent sem hefur áhrif á okk-
ur, á heildina og á hvern einstakling. Ætli það sé ekki í
undirmeðvitund hvers og eins.
Hvað finnst ykkur um íslenska tónlist í dag?
Það er ekkert smá mikið af góðum böndum sem eru að
gera það gott í dag og eru að koma upp á yfirborðið og ef
það á að nefna einhver dæmi þá er hægt að segja: Isidor,
Big Kahuna, Benny Crespo’s Gang, Hölt Hóra og svo
margt fleira!
Er auðvelt að fá að spila á tónleikum?
Það er ekkert mál að plana einhverja litla tónleika, en
það er ekkert mikið um almennilega tónleika fyrir ís-
lensk neðanjarðarbönd hérna á Íslandi. Þeim býðst ekki
oft að spila í almennilegu hljóðkerfi og á góðu sviði.
Er auðvelt að gefa út?
Það er ekkert mál fyrir íslensk bönd að gefa út í dag
fyrir lítinn pening, maður þarf bara að hafa eitthvert
smotterí til að leggja í púkk til að gera eitthvað skemmti-
legt, hlutirnir geta líka verið skemmtilegri eftir því sem
þeir kosta minna. Það eru svo margir sem geta tekið upp
sjálfir í dag og þá geta þeir gert þetta ennþá ódýrara eins
og við gerðum með okkar ep-plötu.
Segið eitthvað um lögin sem þið eruð með á Rokk.is?
Þau eru mjög skemmtileg að okkar mati. Útvarps-
útgáfan af „Summertime in outer space“ er þarna sem
við tókum upp í Stúdíó Sýrlandi tímana sem við unnum
okkur inn á Músíktilraunum 2004. Og svo er annað lag
sem heitir Royal Suits & Wine sem við tókum upp sjálfir
í stúdíóinu hans Halla og fengum við gestasöngkonu í
lagið, hana Katrínu Mogensen úr hljómsveitinni Mamm-
út sem gerir lagið afar skemmtilegt.
Hver er mesti gleðigosinn í sveitinni?
Bassatromman
Hvað er á döfinni hjá ykkur?
Nú erum við bara að hanga inni í æfingarhúsnæði að
semja ný lög, taka upp demó og æfa okkur vel þannig að
það verði nú eitthvað skemmtilegt að sjá okkur á sviði
þegar við förum að spila aftur! Svo er það breiðskífa þeg-
ar við erum komnir með gott efni í hana.
Eitthvað að lokum?
Það er til eitt eintak af ep-plötunni okkar í Skífunni á
Laugaveginum sem ætti að vera seinasta eintakið til
sölu! Og þið sem hafið áhuga á tónlistinni okkar, fylgist
með heimasíðunni okkar (http://www.lada-sport.com) og
kíkið á tónleika með okkur! Það verður veisla von bráðar!
Hljómsveitin Lada Sport er Hljómsveit Fólksins að þessu sinni.
HLJÓMSVEIT Fólksins þessa vikuna er Lada Sport, en Morgunblaðið og mbl.is velja Hljóm-
sveit Fólksins á tveggja vikna fresti. Tilgangurinn er að kynna og styðja við grasrótina í ís-
lenskri tónlist, beina athyglinni að nokkrum af þeim fjölmörgu íslensku hljómsveitum sem
gera almenningi kleift að hlaða niður tónlist þeirra á netinu, án endurgjalds. Hljómsveit
Fólksins er í samstarfi við Rás 2 og Rokk.is, en hægt er að lesa viðtalið á Fólkinu á mbl.is. Þar
eru einnig tenglar á lög sveitarinnar sem geymd eru á Rokk.is. Lag með Lada Sport verður
spilað í dag í Popplandi á Rás 2, sem er á dagskrá kl. 12.45–16 virka daga.
Hljómsveit Fólksins | Lada Sport
ÞAÐ runnu tvær, gott ef ekki
þrjár, grímur á hörðustu fylg-
ismenn bandarísku nýrokks-
sveitarinnar Weezer þegar for-
smekkurinn að þessari fimmtu
plötu hennar
tók að heyr-
ast. „Bev-
erly Hills“
reyndist
hressilegur
slagari, sem
sór sig hvað
helst í ætt við það allra fyrsta
sem sveitin gerði, „Buddy
Holly“, og önnur grípandi og
meinlaus rokklög. Þannig er
nefnilega að síðan þá hafði sveit-
in siglt á dýpri og erfiðari mið.
Strax á annarri plötunni, Pink-
erton, lá ljóst fyrir að sveitin
vildi gera annað og meira en
tyggjórókk fyrir MTV-glápara
og við það stóð hún á þriðju og
fjórðu plötunum. En hér á Make
Believe erum við aftur komin á
byrjunarreit. Tólf lauflétt og
næsta naív popplög, hvert öðru
meira grípandi og hressilegt
með gelgjulegum textum um
sjálfsvorkunn, bíla og stelpur.
Allt eins og þeir vildu hafa það
Weezer-piltar er þeir voru sjálf-
ir á gelgjunni og hlustuðu á
Cars og Cheap Trick. Verst
bara hvað allt saman ristir
grunnt og virkar óekta. Vonandi
eru þeir bara að þykjast.
TÓNLIST
Erlendar plötur
Weezer – Make Believe
Skarphéðinn Guðmundsson
Bílar og
stelpur
Mikil aukning hefur orðið í eft-irspurn eftir krabbameinsleit
í brjóstum á meðal ástralskra
kvenna eftir að söngkonan Kylie
Minogue greindi frá því fyrr á þessu
ári að hún hefði
greinst með
brjósta-
krabbamein.
Eftirspurn eft-
ir krabbameins-
leit í brjóstum
jókst að með-
altali um 40% í
landinu fyrstu
tvær vikurnar
eftir að greint var frá veikindum
söngkonunnar samkvæmt könnun
sem greint er frá í blaðinu Medical
Journal of Australia. Eftirspurn eft-
ir slíkri leit meðal kvenna, sem ekki
höfðu áður gengist undir slíka rann-
sókn, jókst hins vegar um 101%.
„Aðstæður hennar snertu greini-
lega mjög marga og vöktu konur
sem ekki höfðu áður gengist undir
krabbameinsleit til umhugsunar,“
segir Simon Chapman, prófessor við
Sydney-háskóla, sem stjórnaði rann-
sókninni.
Söngkonan gekkst undir tvær
skurðaðgerðir vegna meinsins í maí
og telja læknar batahorfur hennar
góðar.
Fólk folk@mbl.is