Morgunblaðið - 09.08.2005, Page 44

Morgunblaðið - 09.08.2005, Page 44
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. SUMARSLÁTRUN á sauðfé er hafin. Guð- mundur Svavarsson, framleiðslustjóri hjá Sláturfélagi Suðurlands, sagði að SS myndi slátra einu sinni til tvisvar í viku út ágúst- mánuð. Hann sagði að kjötið sem fór á mark- að af nýslátruðu hefði selst upp í fyrstu vik- unni. Góð sala hefur verið í lambakjöti undanfar- in misseri og er birgðastaða mjög lág. „Það er orðið lítið til í frystigeymslunum. Raunar hefur birgða- staðan aldrei verið svona lág síðan ég kom að þessum rekstri,“ sagði Guðmundur. Sumarslátrun hefur að jafnaði hafist í end- aðan júlí. Guðmundur sagði að nokkuð vel gengi að fá lömb til slátrunar, enda væru margir bændur farnir að miða sinn rekstur við að láta hluta af lömbunum snemma í slátrun. Verðið væri einnig mun hærra fyrir lömb sem slátrað væri svona snemma. Guð- mundur sagði að auk þess væru lömbin stað- greidd. SS staðgreiðir einnig fyrir skrokka sem fara til útflutnings, en það er nýjung. Sumarslátr- un hafin STÓR gröf hefur fundist í kirkjustæðinu við Hrísbrú í Mosfellsdal en gröfin var undir gólfi kórsins í kirkjunni og í henni hafa fundist leifar af timbri. Jesse Byock, sem stýrir uppgreftr- inum við Hrísbrú, segir ljóst að timburleif- arnar séu úr líkkistu en miðað við stærð graf- sögu. Í öðru lagi benda allar lýsingar Egils- sögu til þess að Egill hafi verið mun hærri en flestir samtímamenn sínir og er hann meðal annars sagður „vel í vexti og hverjum manni hærri“. Jesse er þó ekki tilbúinn að fullyrða að þarna hafi Egill legið og bendir á að ekki sé hægt að segja að allt sem standi í Egilssögu sé rétt.|6 arinnar er talið að líkkistan hafi verið meira en tveggja metra löng. Ýmislegt bendir til þess að þetta hafi verið gröf Egils Skallagrímssonar, þó að vitaskuld sé ekki hægt að fullyrða það. Fyrir það fyrsta er talið að gröfin sé frá því í kringum árið 1000 og ef rétt reynist fer sú tímasetning ágætlega saman við frásögn Egils- Morgunblaðið/Þorkell Jesse Byock stýrir uppgreftrinum og er hér í kirkjustæðinu við Hrísbrú. Fremst á myndinni má sjá gröfina sem fannst í síðustu viku. Stór gröfin bendir til Egilssögu Eftir Árna Helgason og Þóri Júlíusson SAMKVÆMT nýjum búnaðarlagasamningi ríkisins og Bændasamtakanna, sem tekur gildi um næstu áramót, mun ríkissjóður greiða 3 milljarða króna á árunum 2006–2010 vegna ráðgjafarþjónustu, búfjárræktar og þróunarverkefna. Stærstur hluti, rúmlega 1,2 milljarðar, fer til leiðbeiningaþjónustu. Samningurinn var gerður í maí í vor, en hann undirrituðu Geir H. Haarde fjármála- ráðherra, Guðni Ágústsson landbúnaðarráð- herra og forystumenn Bændasamtaka Ís- lands. Sambærilegur samningur var gerður í mars 2002 og átti hann að gilda út árið 2007. Endurskoðunarákvæði voru hins vegar í framlögin að standa í stað eða lækka milli ára. Í lok samningsins er hins vegar getið um að framlög vegna leiðbeiningastarfsemi og búfjárræktar skuli taka mið af launavísitölu. Þetta þýðir að framlög fyrir árið 2006 verða ekki 560 milljónir, eins og kemur fram í meg- intexta gamla samningsins, heldur 612,7 milljónir að því er fram kemur í nýja samn- ingnum. Engin fréttatilkynning var gefin út um undirritun búnaðarlagasamningsins í vor, en þegar mjólkursamningurinn milli ríkisins og bænda var undirritaður á síðasta ári var efni hans kynnt á blaðamannafundi. samningnum, en hann er gerður með vísan til ákvæða í búnaðarlögum frá árinu 1998. Með samningnum er greitt fyrir leiðbein- ingaþjónustu á vegum Bændasamtakanna á skrifstofu þeirra í Reykjavík og leiðbeininga- þjónustu á vegum búnaðarsambanda. Þar er einnig gert ráð fyrir framlögum til búfjár- ræktar, þróunarverkefna, Framleiðnisjóðs landbúnaðarins og markaðssetningar búvara. 612,7 milljónir á næsta ári Nýi samningurinn felur ekki í sér neina skerðingu á framlögum miðað við eldri samn- ing. Samkvæmt gamla samningnum áttu Nýr búnaðarlagasamningur tekur gildi um áramót Framlög verða þrír milljarðar á fimm árum SAMKVÆMT heimildum Morg- unblaðsins ríkir mikil óvissa um áframhaldandi samstarf um Reykjavíkurlistann. Mikið mun væntanlega ráðast á fundi við- ræðunefndar flokkanna þriggja, sem standa að R-listanum, síð- degis í dag. „Menn hafa ekkert nálgast í sjónarmiðum um hvernig eigi að standa að þessu framboði. En það eru auðvitað ekki viðræðunefnd- irnar sem taka ákvörðun, fram- haldið verður að ræða á fé- lagsfundum,“ sagði Árni Þór Sigurðsson, oddviti VG í borgar- tímafrest sem nú mun vera að renna út. Samkvæmt áreiðanleg- um heimildum munu fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram tillögu í dag og telja sig teygja sig mjög langt. Það velti svo á Vinstri grænum og því hversu mikið þeir séu tilbúnir að gefa eftir, hvað gerist í framhaldinu. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hjá Samfylkingunni á efni tillögunnar ekki að koma á óvart. Heimildir innan VG segja að Samfylkingin hafi aldrei fengist til að tjá sig um jafna aðkomu flokkanna að samstarfinu og hafna henni. Jafnræði hafi verið forsenda aðkomu VG að viðræð- unum og verði væntanlega áfram. ar, tveir frá VG auk borgarstjóra og tveir frá Framsókn. Í raun hef- ur önnur tillaga ekki komið á borð nefndarinnar en Vinstri grænir hafa lýst sig reiðubúna til að ræða þessar tillögur Framsóknar. Samfylkingin mun þó hafa tekið þeim fálega og lagt áherslu á að samstarfið speglaði hlutföll flokk- anna. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins lýstu fulltrúar Vinstri grænna því yfir á fundinum fyrir fjórum vikum að tilgangslaust væri að halda áfram viðræðum ef Samfylkingin hefði ekkert til mál- anna að leggja. Jafnframt munu þeir hafa sett fulltrúum Samfylk- ingarinnar úrslitakosti og gefið stjórn, í gærkvöldi. „Málið er ekki útkljáð en mun væntanlega skýr- ast á allra næstu dögum,“ sagði Alfreð Þorsteinsson, oddviti framsóknarmanna. Hann sagði að persónulega vildi hann sjá áfram- haldandi samstarf um Reykjavík- urlistann. Fundurinn verður sá fimm- tándi sem viðræðunefndin hittist á en nær fjórar vikur eru síðan nefndin öll hittist síðast. Fram- sóknarmenn lögðu þá fram tvær tillögur að skiptingu embætta og borgarstjórnarfulltrúa. Annars vegar Samfylkingin þrjá fulltrúa og borgarstjóra en VG þrjá full- trúa og Framsókn tvo. Hins vegar fjórir fulltrúar Samfylkingarinn- Framtíð R-listans í óvissu Eftir Önnu Pálu Sverrisdóttur aps@mbl.is FJÓRÐA dýrasta borg í heimi heitir Reykjavík. Kemur það fram á nýjum lista frá Economist Intelligence Unit en á honum eru alls 130 borgir víðs vegar um heim. Af 10 dýrustu borgunum er Tókýó efst á blaði og á líku róli eru síðan Ósló og jap- anska borgin Osaka. Í fjórða sæti er Reykjavík og síðan París, Kaupmannahöfn, Zürich, London, Genf og Helsinki. Neðst á blaði er Teheran, höfuðborg Írans, og næst henni koma Manila á Filippseyjum og Yangon í Myanmar. Mesta stökkið upp á við taka fjórir borgir í Austur-Evrópu, í nýjum aðildarríkum Evr- ópusambandsins, Varsjá, Prag, Búdapest og Bratislava. Er nú orðið dýrara að búa þar en í sumum bandarískum borgum, til dæmis Miami, Boston, Seattle og Atlanta. Reykjavík er fjórða dýrust DREGIÐ verður um sautján einbýlishúsa- lóðir í Naustahverfi á Akureyri að við- stöddum umsækj- endum eða umboðs- mönnum þeirra í bæjarstjórnarsalnum skömmu eftir hádegi í dag. Ekki munu allir umsækjendur fá lóðir en 97 einstaklingar sóttu um lóðirnar. Á vef Akureyrarbæjar segir að skv. vinnu- reglum bæjarins um lóðaveitingar hafi ein- staklingar forgang að einbýlishúsalóðum. | 17 Dregið um lóðir á Akureyri ♦♦♦ ♦♦♦ ÞEIR sem hyggjast keyra um landið með laust pláss í bílnum eða vantar far á milli staða geta nýtt sér nýjan vef Samferða, sam- ferda.net, til að auglýsa eftir samferðamönn- um sem þá geta deilt með þeim ferðinni og kostnaðinum. Fyrirmyndin er fengin frá Þýskalandi en íslenski vefurinn var tekinn í notkun í vik- unni fyrir verslunarmannahelgi. | 10 Samflot í langferðum ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.