Morgunblaðið - 26.08.2005, Page 10

Morgunblaðið - 26.08.2005, Page 10
10 FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Nýr hús- bóndi í Hafn- arhúsinu á morgun Hafþór Yngvason tekur við lyklavöldum í Listasafni Reykjavíkur í næstu viku. MARGAR ár hafa tekið við sér eftir vætutíð undafarna daga. 1.450 laxar eru komnir á land í Víðidalsá, en meira en helmingur aflans var veiddur eftir 9. ágúst þegar maðka- og spúnaveiði var leyfð. Mest hefur veiðst í Fitjuá en veiðin hefur verið góð um ána alla. Í vikunni hefur að jafnaði 60 löx- um verið landað á dag í Eystri Rangá og er veiðin í sumar komin í 3.200 laxa. „Miðað við meðalveiði á haustin síðustu ár er þetta að stefna í 4.000 fiska í sumar sem er þá nýtt Íslandsmet,“ segir Einar Lúðvíks- son, umsjónarmaður árinnar. „Í sumar hafa menn verið að landa í kringum 40 fiskum eftir tveggja daga holl,“ segir Jón Þór Júlíusson, leigutaki Korpu og Grímsár. Heild- artala sumarsins er að nálgast 1.000 laxa og það eru 200 fleiri fiskar en meðalveiði síðustu fjögur ár. „Hún á líka töluvert inni og markmiðið er að ná 1.300 fiskum yfir sumarið,“ segir Jón, en veiðinni í Grímsá lýkur 22. september Þeir síðustu verða fyrstir Það var beljandi rigning, kalt og hvasst við Vatnsdalsá í gær, en þrátt fyrir erfiðar aðstæður var sjö löxum landað um morguninn og þar af voru fjórir maríulaxar. „Nú er ástandið þannig að þeir sem kunna að veiða fá ekkert, en hinir sem klúðra þessu einhvern veginn út í ána eru að fá hann,“ sagði Pétur Pétursson leigu- taki. 790 laxar hafa veiðst í Vatnsdalsá í sumar sem er 12 fiskum meira en á sama tíma í fyrra og Pétur er bjart- sýnn fyrir haustið. „Þá eru stóru fiskarnir orðnir grimmir og gefa sig frekar.“ Þriðjungur úr sama hylnum Í Leirvogsá eru 580 laxar komnir á land í sumar sem er 70 fiskum minna en á sama tíma í fyrra, en veiðin er þó yfir meðalveiði. Skúli Skarphéðinsson segir þurrkinn í upphafi ágústmánaðar hafa sett strik í reikninginn, en eftir rigning- arnar er tæplega 10 fiskum landað á dag. 167 laxar hafa veiðst í Brúar- hylnum einum og er það óvanalegt því áin er löng og veiðistaðirnir yfir 30. „Veiðin tekur oft dýfu í ágúst en svo þegar líða tekur á haustið lifnar oft yfir og sérstaklega gefa hæng- arnir sig. Í rokinu á miðvikudaginn fengum við t.d. fjóra á beit með túp- um úr einum hylnum og þrír af þeim voru hængar, allir vel legnir, þannig þeir eru farnir að bíta frá sér,“ sagði Skúli. STANGVEIÐI Góð veiði eftir vætutíð Morgunblaðið/Golli Þessi lax var veiddur við Syðri-Brú í Soginu í sumar. DAGFORELDRAR í Reykjavík hafa þungar áhyggjur af starfsum- hverfi stéttarinnar og mikilli fækk- un í henni að undanförnu. Félag dagforeldra, Barnavistun, stóð fyrir fundi í fyrrakvöld þar sem for- ráðamenn Reykjavíkurborgar voru m.a. krafðir um úrbætur. Meg- inkrafan er að borgin auki nið- urgreiðslur til foreldra ungra barna en einnig eru dagforeldrar ósáttir við herferð skattayfirvalda á hendur þeim og aukið eftirlit. Fundinn sátu Stefán Jón Haf- stein, formaður menntaráðs, og Regína Ásvaldsdóttir, sviðsstjóri rekstrar- og þjónustusviðs borg- arinnar. Í dag starfa um 140 dag- foreldrar í Reykjavík en síðastlið- inn vetur voru þeir flestir um 165. Til marks um áhyggjur dagforeldra af sínum hag mættu yfir 100 á fundinn í fyrrakvöld. Ófremdarástand í borginni Rut Kjartansdóttir situr í stjórn Barnavistunar. Hún segir að í allri umræðu um dagvistunarmál og leikskólapláss í Reykjavík hafi mál- efni dagforeldra orðið út undan. „Við erum alls ekki sáttar við það,“ segir Rut og bendir á þann fjölda dagforeldra sem hafi hætt störfum vegna óánægju með sín kjör. Að- eins í sumar hafi 20 konur hætt störfum og víða í borginni ríki ófremdarástand. Foreldrum ungra barna gangi illa að fá vistun og börn hjá dagforeldrum fái heldur ekki inni á leikskólum fyrr en í óefni sé komið. Rut segir stöðuna vera sérlega slæma í hverfum eins og Árbæ og Vesturbæ. Ef engin breyting verði á muni enn fleiri dagmæður og -feður hætta störf- um. Rut segir meginkröfuna vera þá að borgin hækki niðurgreiðslur til foreldra. Á fundinum hafi þau svör fengist að eitthvað ætti að skoða þeirra mál en erfitt sé að meta hve mikið það verði. Ítrekað hafi þeir óskað eftir meiri niðurgreiðslum en ávallt fengið neitun í leikskólaráði, nú menntaráði. Á sama tíma hafi niðurgreiðslur verið hækkaðar til foreldra með börn á einkareknum leikskólum. „Þetta er orðið skelfilegt ástand. Foreldrar yngri barna eru í algjör- um vandræðum. Sem dæmi get ég nefnt að daglega fæ ég margar hringingar frá konum sem þurfa að koma börnum sínum í gæslu. Sam- kvæmt reglugerð megum við að- eins hafa fimm börn hver. Við er- um stöðugt að vísa frá fólki og það nánast stendur hérna við dyrnar með börnin, bíðandi eftir plássi. Ég hef starfað í þessu í 17 ár en aldrei kynnst öðru eins ástandi. Það yrði sorglegt ef þessi stétt yrði brotin upp og henni gert ókleift að starfa,“ segir Rut og bendir á að þegar hún hafi byrjað sem dag- móðir fyrir 17 árum hafi um 260 dagforeldrar verið starfandi í borg- inni. Foreldrar veita besta eftirlitið Hún segir dagforeldra vilja leggja áherslu á gæði í þeirra þjón- ustu og störfum. Að dagheimilin séu það vönduð að vel sé gert við foreldra. Dagforeldrar fái heldur ekki vinnufrið fyrir skatta- yfirvöldum og ströngu eftirliti ann- arra yfirvalda. „Við erum mjög ánægð með að til okkar komi eftirlitsaðilar þrisvar á ári til að fara yfir öryggismálin og fleira því tengt en sjáum ekki þörf á að sérstakir ráðgjafar séu reglulega að heimsækja okkur. Eft- irlitsaðilar hafa gefið okkur mjög góða einkunn en foreldrar eru þar að auki besta eftirlitið og aðhaldið sem við höfum,“ segir hún. Að sögn Rutar fengu margir dagforeldrar bréf frá skattstjór- anum í sumar, þar sem tilkynnt var að farið yrði yfir þeirra skatta- mál aftur í tímann. Dagforeldrar séu flestir verktakar og vilji hafa meiri frádrátt frá skatti. Nú sé að- eins hægt að fá 14% frádrátt vegna kostnaðar við leikföng, viðhald á dagheimili og fleira, en dagfor- eldrar telji réttlátara og nær raun- veruleikanum að frádrátturinn verði 30%. Félagið Barnavistun hafi leitað á náðir fjármálaráðu- neytisins til að fá þessu breytt. Dagforeldrum fækkar stöðugt í Reykjavík og hafa þeir þungar áhyggjur af starfsumhverfi sínu „Þetta er orðið skelfilegt ástand“ Morgunblaðið/ÞÖK Kaffitími hjá börnunum sem eru í vistun hjá Rut Kjartansdóttur dagmóður. Hún starfar í Árbænum og fær daglega margar hringingar frá foreldrum sem vantar pláss fyrir börnin sín. „Ástandið hefur aldrei verið eins slæmt,“ segir Rut sem starfað hefur sem dagmóðir í 17 ár. Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is STEFÁN Jón Hafstein, formað- ur menntaráðs, segir að á fund- inum með dagforeldrum hafi hann aðallega mætt til að hlusta á þeirra sjónarmið og setja sig inn í málin. Fundurinn hafi verið upplýsandi og um- ræður hreinskiptar. Varðandi kröfu dagforeldra um auknar niðurgreiðslur borg- arinnar til foreldra barnanna segir Stefán Jón að borgin geti ekki lofað neinu á þessu stigi málsins. Nauðsynlegt hafi verið að ræða málin en engar skyndi- lausnir séu uppi á borðum. Ljóst sé að staða dagforeldra þurfi að styrkjast á margan hátt, bæði með aðkomu borg- arinnar og ríkisins. „Þær skynja sterkt að mikil áhersla sé á leikskólana, sem er rétt, en ég hef þá trú að þjón- usta dagforeldra sé mjög mik- ilvæg í borginni. Það þarf að hugsa um þeirra hag um leið og við byggjum upp betri leik- skóla,“ segir Stefán Jón. Hann segir það greinilega hafa áhrif á rekstur dagheimila að börnum var fækkað á hvert dagforeldri. Það hafi verið um- deild ákvörðun félagsmálaráðu- neytisins á sínum tíma og ekki endilega svo skynsamleg. Að sögn Stefáns Jóns fengu dagforeldrar þá kynningu á fundinum að þjónustu- miðstöðvum í hverfum borg- arinnar sé ætl- að að hafa meira samráð við dagforeldra í viðkomandi hverfi og veita þeim meiri þjónustu. Upp- lýsingar hafi verið veittar um starfsdaga og aðra þá þjón- ustu sem borgin geti veitt dag- foreldrum, m.a. í mennt- unarmálum. Gott samstarf geti komist á við þjónustumiðstöðv- arnar varðandi ýmis hagsmuna- mál stéttarinnar. Hart að þeim vegið í skattamálum Stefán Jón segist skilja vel áhyggjur dagforeldra yfir skattamálum sínum. Þar sé hart að þeim vegið og réttlátt að þeir fái meiri frádrátt vegna kostnaðar við reksturinn. Miðað við þennan rekstur sé reikn- aður kostnaður mjög lágur. Frádráttur upp á 14% sé æði knappur, miðað við fjögur eða fimm börn á heimilinu og allar þeirra þarfir. Fjármálaráðu- neytið þurfi að láta til sín taka í þeim efnum. Ekki sé um hófleg- ar álögur á dagforeldra að ræða. Staða dagforeldra þarf að styrkjast Stefán Jón Hafstein

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.