Morgunblaðið - 26.08.2005, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 26.08.2005, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2005 21 MINNSTAÐUR AUSTURLAND LANDIÐ Landgræðsla | Nýverið veitti Landgræðslan í fjórtánda sinn við- urkenningar fyrir framúrskarandi störf á sviði landgræðslu. Að þessu sinni voru fjórum aðilum veitt land- græðsluverðlaun og þar af komu tvenn í hlut aðila á Fljótsdalshéraði. Þ. á m. voru þau Magnús Karlsson, Heiða Reimarsdóttir og Magnús Hrólfsson, bændur á Hallbjarn- arstöðum í Skriðdal, sem grætt hafa land sitt frá árinu 1967. Nú er svo komið að elstu uppgræðslurnar eru vart greinanlegar frá öðru grónu landi og sumar þeirra hafa jafnvel verið teknar undir túnrækt. Land- græðslufélag Héraðsbúa hlaut einn- ig Landsgræðsluverðlaun. Félagið hóf landgræðslu við Sænautasel árið 2001. Sumarið 2004 mátti heita að girðingin væri orðin algróin og gróð- ur sjálfbær. Þessi árangur er mjög sérstakur í ljósi þess að upp- græðslusvæðið er í 550 til 600 metra hæð yfir sjávarmáli og úrkoma að- eins um 350 mm á ári.    Rokk í 50 ár | „Þrátt fyrir að enn sé nokkuð eftir af sumarumferðinni þá er byrjað á undirbúningi fyrir vetrarstarfsemina á Hótel Höfn,“ segir Óðinn Eymundsson, einn eig- enda Hótels Hafnar. Fyrst ber þar að nefna Norðurljósaverkefnið, sem er tenging norðurljósa við ferða- þjónustuna og segir Óðinn það spennandi verkefni og eina af björt- ustu vonum ferðaþjónustunnar yfir vetrartímann. Eins og undanfarin ár þá tekur hótelið þátt, ásamt Skemmtifélaginu, í skemmtidagskrá sem sett er upp á Höfn, með það að markmiði að skemmta heimamönn- um og fá hingað gesti í helgargist- ingu. Að þessu sinni mun verða tekið fyrir Rokk í 50 ár sem er rjóminn af rokkinu sl. 50 ár og nýtur Skemmti- félagið aðstoðar rokkdrottning- arinnar Andreu Jónsdóttur. Að setja upp skemmtidagskrá hefur gefist mjög vel og er liður í fjölgun gisti- nátta á hótelinu og hjá öðrum gisti- húsum hér í Sveitarfélaginu yfir vetrartímann. Frá þessu greinir á vefnum hornafjordur.is. Möðrudalur | Messað var í Möðrudalskirkju fyrir skemmstu í tengslum við Ormsteiti. Kirkjan er engri annarri kirkju lík, hvorki að umfangi né innrými og var smíðuð árið 1949 af Jóni A. Stefánssyni í minningu konu hans og altaristaflan, sem sýnir fjallræðuna, er sömuleiðis mál- uð af Jóni. Bekkir kirkjunnar þykja nokkuð harðir og mjóir og þá ekki síður orgelbekkurinn. Muff Worden, einn ástsælasti tónlistarmaður Austurlands, lék á orgel í guðsþjónustunni, þar sem sr. Lára G. Oddsdóttir messaði. Sá einn messugesta aumur á organistanum og færði því kirkjunni að gjöf útsaumað- an púða handa Muff að sitja á við hljóðfærið og gafst það vel. Möðrudalskirkja var yfirfull af fólki enda ekki stór í sniðum og sáu kirkjugestir um söng við helgihaldið. Morgunblaðið/Albert Kemp Messað í Möðrudal Sr. Lára G. Oddsdóttir veitti kirkju- gestum sakramenti. Púði und- ir organ- istann Vopnafjörður | Nú er undirbúningi fyrir sláturtíð að ljúka hjá Slát- urfélagi Vopnfirðinga hf., en slátrun hefst þar á þriðjudag. „Við höfum endurnýjað alla vinnsluaðstöðu í húsinu skv. ákvæð- um reglugerðar um slíkt og hefðum hvort eð er þurft að endurbæta að- stöðuna fyrir hangandi fláningu fyr- ir 1. janúar 2008, en hana höfðum við ekki,“ sagði Þórður Pálsson, slát- urhússtjóri í samtali við Morg- unblaðið. „Við keyptum nýja línu í húsið, settum nýtt efni á öll gólf og innréttuðum húsið að miklu leyti, svo að geymslur, skrifstofa og starfsmannaaðstaða eru komin í allt annað horf. Þessar framkvæmdir eru að komast á lokastig og verður byrjað að slátra eftir helgina.“ Framkvæmdirnar kosta um 28 millj- ónir króna og munu skila aukinni hagræðingu og sparnað í starfs- mannahaldi að sögn Þórðar. Um 23 þúsund fjár slátrað „Við tökum tæpan helming fjárins af Vopnafirði og Bakkafirði, líklega orðið um 45% og 55% austan yfir Hellisheiði, frá Hjaltastaðarþinghá, Fljótsdal og stærsta partinn úr þremur sveitunum næst okkur, þ.e.a.s. Hróarstungu, Jökulsárhlíð- inni og af Jökuldalnum. Það eru 11– 12 þúsund dilkar að austan og í allt 22 þúsund dilkar og þúsund fullorðið reikna ég með.“ Þórður segir að í fyrra hafi ekki verið hægt að lóga fleiru en 20 þús- und fjár vegna aðstöðu, en eftir breytingarnar nú geti húsið annað upp undir 30 þúsund fjár. „Ef bænd- ur eru tilbúnir til að byrja að lóga skikkanlega snemma, eins og núna um mánaðamót. Það er bara frekar útflutningssláturhús er á Höfn í Hornafirði og Austfirðingar fara einnig með fé á Húsavík og Sauð- árkrók. Ræður Svía í sláturhúsið Skúli, sonur Þórðar, starfar við húsið og segir það hafa tvöfaldað af- köstin á fimm til sex árum. „Við njót- um þess að þetta hús hefur alltaf verið rekið með afgangi og þ.a.l. hægt að borga mönnum samkeppn- ishæft verð eða besta verð eins og síðustu tvö árin.“ Í sláturtíðinni starfa upp undir 40 manns í húsinu, flestir eru frá Sví- þjóð, en Þórður hefur gjarnan ráðið til starfa ungt og dugmikið fólk sem tekið hefur sér ársleyfi eftir fram- haldsskóla eða er jafnvel nýkomið úr sænska hernum og segir hann það duglegt. Einnig verða nokkrir heimamenn og fólk af Héraði við slátrunina. erfitt að fá bændur til að slátra miklu á þeim tíma. Við gætum slátr- að alveg upp undir 30 þúsund fjár, eftir því hvað við fáum af fé á fyrstu tveimur vikunum og mjög auðveld- lega 27–28 þúsund. Við gætum því bætt við okkur 5–6 þúsund fjár héð- an að austan, sem kemur nú vonandi smátt og smátt.“ Þórður segist eiga von á að slát- urhúsið á Vopnafirði muni eflast og að það fái þau viðskipti á Austur- landi að unnt sé að fullnýta húsið. Hann segist ekki sækjast eftir út- flutningsleyfi, en sláturhúsið upp- fylli eftir breytingarnar öll skilyrði útflutningsleyfis. „Til að vera með útflutningsleyfi þarf að eltast við ýmiss konar hluti sem varla borgar sig fyrir svona lítið hús. Í það minnsta ekki eins og ástandið er í dag.“ Sláturhúsið á Vopnafirði er nú eina sláturhúsið á Austurlandi, en Sláturfélag Vopnfirðinga hf. hefur slátrun á þriðjudag, eftir umfangsmiklar breytingar Klárir í sláturtíðina Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Breytingum að ljúka Þórður Pálsson sláturhússtjóri og Skúli sonur hans eru að verða tilbúnir að taka fé til haustslátrunar. Eftir Steinunni Ásmundsdóttur austurland@mbl.is H im in n o g h a f / SÍ A MANTRA 4x4 á ferð um landið Laugardaginn 27. ágúst Kl. 10.00 á Hvolsvelli – hjá Björgunarsveitinni Dagrenningu. Kl. 13.00 á Selfossi – hjá Björgunarfélagi Árborgar. Kl. 15.30 í Hveragerði – hjá íþróttahúsinu. Nánari upplýsingar um staðsetningu og tímaáætlun bílanna í símum 825 5451 og 825 5452. RÆSIR HF. sími 540 5400 Hellissandur | Þorbjörg Alexand- ersdóttir, útgerðarkona í Rifi, stóð fyrir því ásamt manni sínum einn góðviðrisdag í sumar að fá með sér þrenn hjón héðan undan Jökli í ferða- lag á Stakkhamarsfjörur á sunn- anverðu Snæfellsnesi. Stakkhamar var æskuheimili Þorbjargar og Auðar sem var ein af konunum í ferðinni. Fréttaritari var svo heppinn að vera í hópnum og naut þess að hafa leiðsögn þeirra systra þarna um fjör- una sem er hluti af næstum sam- felldri skeljasandsfjöru á sunn- anverðu Snæfellsnesi. Sandurinn er á stöðugri hreyfingu. Bakkarnir upp af fjörunni breytast dag frá degi og ár frá ári. Háir bakkarnir geyma í sér ýmsa muni sem borist hafa að landi í árana rás. Hér strandaði hið fræga skip Artic árið 1942 með nýrri áhöfn í fyrstu ferð sinni eftir að Bretar fang- elsuðu alla skiphöfn þess. Engar minjar fundust um það fley. Fyrir fimmtíu árum árið 1955 rak á þessa fjöru stórtré, hátt í einn metri í þvermál nokkuð ofan við rót. Fljót- lega lagðist sandurinn yfir og faldi það. Nú er hann að skila trénu. Skógræktarfélag Íslands heldur þing sitt nú um helgina á Lýsuhóli, rétt fyrir ofan ströndina þar sem tréð kom í ljós. Félagið fagnar nú 75 ára afmæli sínu og má velta því fyrir sér hvenær svona myndarlegt tré muni vaxa úr íslenskri mold. Morgunblaðið/Hrefna Magnúsdóttir Kíkt undan sandi Stórtréð gægist út úr felustaðnum. Þær Stakkhamarssystur Þorbjörg og Auður standa við tréð. Myndarlegt tré undan sandi Stykkishólmur | Stykkishólms- bær mun í vetur starfrækja fræðsluver í Egilshúsi fyrir bæj- arbúa sem eru í fjarnámi. Í fræðsluverinu eru fjórar borð- tölvur, prentari og skanni ásamt þráðlausri nettengingu fyrir þá sem eru með eigin fartölvur. Að- stöðugjöld eru kr. 5.000 pr. önn eða kr. 10.000 fyrir veturinn. Lyk- ill að húsnæðinu er afhentur gegn 1.000 kr. skilagjaldi. Þeim sem hyggjast nýta sér að- stöðuna í vetur er bent á að koma á bæjarskrifstofur og undirrita samkomulag um aðgang að fræðsluverinu. Nánari upplýsing- ar gefur Íris Huld í síma 438 1700 eða netfang: iris@stykkisholmur- .is Aðstaða til fjarnáms í Egilshúsi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.