Morgunblaðið - 26.08.2005, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2005 23
Hlátur, faðmlög, kossarog almenn gleði ein-kenndi litríkan hópþeirra sex hundruð
kvenna sem komu saman í Hall-
grímskirkju í gær við setningu
aðalfundar hinna alþjóðlegu
kvennasamtaka Ladies Circle
International. Konurnar voru
hver annarri glæsilegri og
skrýddust margar hverjar þjóð-
búningum sínum við hátíðlega at-
höfnina og fóru síðan í skrúð-
göngu frá Hallgrímskirkju að
Kjarvalsstöðum. Þetta er í fyrsta
sinn sem aðalfundur samtakanna
er haldinn á Íslandi en þau voru
stofnuð árið 1930 í Englandi af
eiginkonum þeirra manna sem
voru í Round Table samtökunum,
en sú tenging er löngu liðin tíð.
Ladies Circle International hefur
vaxið fiskur um hrygg á þeim sjö-
tíu og fimm árum sem liðin eru
síðan þau voru stofnuð, og nú eru
um 10.000 konur um víða veröld
meðlimir í samtökunum. Um 150
íslenskar konur eru í þessum
samtökum, flestar á suðvest-
urhorninu, á Akureyri og Húsa-
vík. Þátttakan á aðalfundinum hefur aldrei verið meiri, um 600 konur eru saman komnar hér á landi af þessu tilefni og eru frá 28
þjóðlöndum.
Samtökin eru fyrst og fremst vinaklúbbar kvenna undir fjörutíu og fimm ára aldri sem taka þátt í hverskonar góðgerðar-
starfsemi. Hér innanlands styrkja þær ýmis samtök og einstaklinga annað hvert ár en hitt árið taka þær þátt í sameiginlegu al-
þjóðlegu verkefni. Undanfarin ár hafa samtökin einbeitt sér að því að hjálpa götubörnum og fátækum einstæðum mæðrum á Fil-
ippseyjum. Ladies Circle International brugðust skjótt við þegar flóðbylgjan mikla reið yfir Asíu í fyrra og lét fé af hendi rakna til
hjálparstarfa. Eins hafa þessar konur byggt upp skóla á Indlandi og fæðingarheimili í Afríkuríkinu Zambíu. En markmið samtak-
anna er ekki síst að efla vináttu og skilning kvenna á milli hvar sem er í heiminum.
Ekki voru all-
ar konurnar í
þjóðbúningi,
þær belgísku
skreyttu sig á
annan hátt.
Sigrún Björg Jakobsdóttir þingstjóri lengst til vinstri í íslenskum kyrtilbúningi, því næst kona frá Hollandi,
Zambíu, Botsvana, Svíþjóð og Noregi.
Þessar
tvær
komu frá
Wales.Kátar konur og litríkar
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
DAGLEGT LÍF
KVENNAÞING | Um 600 konur á aðalfundi kvennasamtakanna Ladies Circle International
Morgunblaðið/ÞÖK