Morgunblaðið - 26.08.2005, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2005 29
Einungis rúmt ár er liðið frá þvíviðræður um sameiningu Há-skólans í Reykjavík ogTækniháskóla Íslands hófust.
Þeim lauk með viljayfirlýsingu um sam-
einingu skólanna sem undirrituð var síð-
astliðið haust og var í kjöl-
farið lagt fram frumvarp
um afnám laga um
Tækniháskóla Íslands.
Þetta ferli tók mun
skemmri tíma en nokkurn
óraði fyrir, niðurstaðan varð
nýr og glæsilegur háskóli
sem hefur alla burði til að
verða ein af meginstoðum
íslenska háskólakerfisins,
jafnt hvað varðar kennslu
sem rannsóknir. Ekki síst
er það í mínum huga fagn-
aðarefni að Háskólinn í
Reykjavík hyggst leggja
ríka áherslu á raungreina-
nám, jafnt í hinni nýju
verkfræðideild sem í fram-
haldsnámi fyrir kennara.
Á undanförnum árum
hefur íslenskt samfélag
tekið stórkostlegum breyt-
ingum. Við sjáum þess
merki hvert sem litið er.
Alls staðar blasir við
gróska og þróttur. Við
sjáum þetta í atvinnulífinu
sem hefur aldrei verið
jafnöflugt og nú. Barlóm-
urinn er árum saman var
helsta einkenni umræðu
um efnahags- og atvinnu-
mál á Íslandi er fokinn út í
veður og vind.
Auðvitað eiga breytingar sem þessar
sér ekki stað af sjálfu sér. Þær má að
miklu leyti rekja til ákvarðana er teknar
hafa verið um að breyta umgjörð atvinnu-
lífsins og íslensks þjóðfélags. Ákvarðanir
er miðuðu að því auka frelsi í íslensku
samfélagi, fjölga tækifærunum og draga
ríkið út úr beinni þátttöku í viðskiptalíf-
inu.
Stjórnmálamenn geta reynt að bæta
umgjörðina og fjölga tækifærunum. Það
eru hins vegar einungis íslensk fyrirtæki
og einstaklingar sem geta tryggt að kom-
ið sé auga á þau tækifæri er myndast og
að þau séu nýtt.
Menntun ræður úrslitum
Það er sannfæring mín að sú áhersla er
hefur verið lögð á aukna og bætta mennt-
un á síðastliðnum áratugum hafi ráðið úr-
slitum um það hversu vel hefur tekist til.
Það er fyrst og fremst þekking og hugvit í
bland við djörfung og áræðni er hefur
komið íslensku samfélagi í þá stöðu sem
við blasir í dag.
Skólum er bjóða upp á háskólanám og
þar með þeim tækifærum og valkostum er
íslenskum námsmönnum standa til boða
hefur fjölgað á undanförnum árum.
Framboð háskólanáms hefur aldrei verið
jafnmikið en alls bjóða háskólarnir er
heyra undir menntamálaráðuneytið upp á
um 300 ólíkar námsleiðir. Það hefur verið
markviss stefna, á stundum í óþökk
ákveðinna einstaklinga innan háskóla-
samfélagsins og stjórnmálanna, að auka
valfrelsið, fjölga tækifærunum og ýta
undir frelsi og svigrúm háskólanna en
þetta hefur leitt til þess að háskóla-
umhverfið allt blómstrar sem aldrei fyrr.
Íslensk ungmenni hafa gripið keflið og
nýtt sér aukin tækifæri. Á einungis einum
áratug hefur þeim nemendum er stunda
nám við háskóla landsins fjölgað um nær
helming. Ef litið er tvo áratugi aftur í tím-
ann hefur fjöldi háskólanema nær fjór-
faldast. Sömu sögu gegnir um opinber
framlög til háskólamála er hafa aukist í
takt við fjölgun nemenda í háskólunum.
Samkeppni og samvinna
Allt frá fyrsta starfsdegi verður hinn
nýi skóli næststærsti háskóli landsins og
stærsti einkarekni háskóli Íslands. Hann
mun einnig njóta góðs af þeirri nánu teng-
ingu er hann hefur við íslenskt atvinnulíf.
Sú samkeppni sem ríkt hefur milli há-
skóla á síðustu árum hefur verið háskóla-
samfélaginu holl. Því má hins vegar ekki
gleyma að oft getur reynst skynsamlegt
fyrir háskólana að leggja áherslu á sam-
vinnu og samstarf samhliða samkeppn-
inni. Slíkt samstarf er þegar hafið á mörg-
um sviðum og eflaust mun sú ákvörðun að
flytja HR í Vatnsmýrina verða til að ýta
undir enn frekari samvinnu helstu há-
skólastofnana. Vísindasamfélag okkar er
öflugt en það er ekki stórt á alþjóðlegan
mælikvarða og því getur það reynst heilla-
vænlegt fyrir alla, skólana jafnt sem þjóð-
félagið í heild, að menn sam-
nýti krafta sína þegar það á
við. Það hefur reynst íslensku
samfélagi gæfuríkt að þótt við
keppum innbyrðis þá stöndum
við saman þegar kemur að
hinni alþjóðlegu samkeppni.
Það eru mikil sóknarfæri
framundan fyrir okkur Íslend-
inga en það hversu vel tekst til
við menntun þjóðarinnar mun
ráða úrslitum um nýtingu
þeirra. Við verðum því að gera
ríkar og vaxandi kröfur til há-
skólanna sem hér eru starf-
andi, jafnt hinna opinberu há-
skóla sem sjálfstæðu
háskólanna.
Öflugt gæðaeftirlit
Sú stefna sem ríkt hefur í
háskólamálum á und-
anförnum árum hefur leitt af
sér síaukna eftirspurn eftir
háskólanámi og aukið sam-
keppni milli háskóla. Á sama
tíma koma upp réttmætar
kröfur um gæðaeftirlit á
skólum, og þá ekki eingöngu
á háskólastigi. Það er hlut-
verk og skylda mennta-
málaráðuneytisins að hafa
eftirlit og stjórn á gæða-
málum. Slíkt eftirlit gegnir
mikilvægu hlutverki en má þó ekki verða til
að draga úr möguleikum einstakra skóla til
að móta sér sérstöðu.
Á grundvelli reglna um gæðaeftirlit með
háskólakennslu var fyrr á þessu ári gefin
út þriggja ára áætlun um gæðaúttektir á
háskólastigi. Gerir sú áætlun ráð fyrir
reglulegu ytra mati á háskólum, deildum
eða námsleiðum af hálfu ráðuneytisins í
samvinnu við utanaðkomandi aðila. Á
næstu þremur árum verða gerðar slíkar
gæðaúttektir á m.a. heildarstarfsemi Há-
skólans á Akureyri, félagsvísindadeild Há-
skóla Íslands sem og lagadeild Háskólans í
Reykjavík. Þá verður gerð sérstök úttekt á
meistaranámi í viðskiptafræðum við þær
háskólastofnanir sem bjóða það nám.
Auk hinna formlegu leiða í gæðamati er
rétt að benda á þá samninga sem ráðu-
neytið hefur gert við alla háskóla. Þar eru
sett skýr markmið um starfsemi skólanna
til nokkurra ára í senn og þar á meðal um
gæðamál.
Fyrir utan þau viðmið sem birtast í lög-
um, reglugerðum og samningum er ráðu-
neytið í raun með símat á starfsemi skól-
anna í gangi þar sem stöðugt samráð á sér
stað milli ráðuneytisins og háskólanna í
formi eftirfylgni með kennslu- og rann-
sóknarsamningum. Mun ráðuneytið leggja
aukinn þunga á þann þátt.
Þróun gæðamála á Íslandi er í samræmi
við það sem er að gerast á alþjóðlegum
vettvangi þótt ekki virðist vera að allir hafi
kynnt sér það til hlítar. Þar er lögð áhersla
á ábyrgð háskólanna á gæðum kennslu
með virku innra gæðaeftirliti og reglulegu
eftirliti stjórnvalda.
Ísland er einnig aðili að Bologna-
yfirlýsingunni sem felur í sér skuldbind-
ingu um gegnsætt þriggja þrepa gráðu-
kerfi. Það er nauðsynlegt að á næstu árum
verði háskólanám á Íslandi lagað enn frek-
ar að skilyrðum Bologna-ferlisins. Það
ásamt því að taka þátt í norrænu og evr-
ópsku samstarfi um gæðatryggingu er for-
senda þess að íslenskir háskólanemar muni
hér eftir sem hingað til eiga greiða leið inn í
erlenda háskóla og að íslenskir háskólar
geti áfram sótt af fullu afli inn í evrópska
og norræna rannsóknarsjóði.
Við eigum að setja markið hátt. Það er
sameiginlegt verkefni íslensku þjóðarinnar
að tryggja að við verðum í stakk búinn til
að skipa okkur í forystusveit ríkja í þekk-
ingarsamfélagi framtíðarinnar. Við höfum
á undanförnum árum stóraukið framlög
okkar til menntamála á öllum sviðum og er
staðan nú sú að líklega ver nær engin önn-
ur þjóð innan OECD meiri fjármunum til
þessa málaflokks en Íslendingar. Með
þessu er verið að búa til tækifæri til fram-
tíðar.
Tækifæri
til framtíðar
Eftir Þorgerði Katrínu
Gunnarsdóttur
’Það er sannfær-ing mín að sú
áhersla er hefur
verið lögð á aukna
og bætta mennt-
un á síðastliðnum
áratugum hafi
ráðið úrslitum um
það hversu vel
hefur tekist til.‘
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
Höfundur er menntamálaráðherra,
æntingar sem hljótast af
m fiskimiðum,“ segir
því við að allt það sem
rðgildi dragi úr áhuga í
Galopagoseyjarnar sem
i um það hvernig hægt sé
fiskimiðin þegar allir geti
eir vilja þegar þeir vilja.
með þeim hætti að engin
éu til staðar og því veiði
ið og þeir geti. Ekki sé
mtíðarinnar og hvernig
ástand fiskstofnanna
sé.
Aðspurður segir
hann Ísland vera á
svipuðum stað og
Nýja-Sjáland hvað
fiskimiðin varðar.
„Það hafa orðið ótrú-
legar framfarir. Ég
held að fólk gleymi því
gjarnan hvernig staða
mála var áður en kvótakerfið var sett á.
Þannig að það hafa orðið miklar framfar-
ir en ég held að það sé hægt að ganga
lengra.“ Aðspurður segist hann skilja þá
hugmynd, sem sumir haldi á lofti, um að
dreifa beri arðsemi kvótakerfisins til
fólksins, en hann telur að það verði ekki
til góðs fyrir fiskimiðin útfrá praktískum
sjónarmiðum. Hann segir ljóst að Nýja-
Sjáland og Galapagoseyjar séu tvö afar
ólík dæmi, en því nær sem þjóðir séu
Nýja-Sjálandi því betra. „Ég myndi
halda að því betur sem eignarétturinn sé
skilgreindur því verðmætari myndu út-
gerðarfyrirtækin vera, sem væru því að
öllum líkindum í almannaeigu. Þá myndu
t.a.m. lífeyrissjóðir fjárfesta í þeim og þá
myndu allir njóta góðs af því með þeim
hætti. Ég tel að það yrði betra fyrir fólk
að vera fjárfestar í útgerðarfyrirtæki
heldur en að þeim auðæfum sem skapist
sé dreift til almennings eftir pólitískum
leiðum.“
Alessi segir að í Bandaríkjunum sé
jafnvel að finna umhverfissinna sem
skilji það sjónarmið að eignarréttindi,
þ.e. í þessu tilfelli kvóti, leiði til betri
varðveislu fiskimiðanna þar sem um
mikla hagsmuni sé að ræða. T.d. hafi ein
umhverfissamtök (Environmental De-
fense) unnið markvisst að því að auka
framseljanlegan kvóta í Bandaríkjunum
í því augnamiði að stuðla að verndun
sjávar.
náttúruauðlindir – einkaeign eða ríkiseign á ráðstefnu RSE
d eignarréttindi
r náttúruverndar“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
r urðu um eignarrétt, frjáls viðskipti og náttúruauðlindir á ráð-
annsóknarmiðstöðvar um samfélags- og efnahagsmál – í gær.
Michael De Alessi
jonpetur@mbl.is
neitt utan þess að ein manneskja hafði
kennt hjá mér í Mýrarhúsaskóla. Það var
gert tortryggilegt og grunnurinn að því
að ráðning mín var kærð; að ég væri ekki
sá hlutlausi skólastjóri sem fólk vildi fá
hér inn. Ég held bara að það sé vand-
fundinn skóli hér á landi sem ég hef ekki
tengsl inn í. Þetta er lítið land.
En fólk er virkilega meitt eftir þessi
átök, kennarar og svo foreldrar sem ég
hef talað við,“ segir Fríða Regína.
Margir foreldrar hafi vissulega verið í
vafa um hvað skyldi gera en ákveðið að
hafa börn sín áfram í skólanum. Kennara
sem hættu hafi hún þó ekki hitt, heldur
aðeins rætt við lögmann þeirra þar sem
kennararnir hafi ekki treyst sér til að
hitta hana sjálfa.
Fjölþjóðlegur skóli
Að sögn Fríðu Regínu hafa sumir for-
eldra við Landakotsskóla reynslu af
einkaskólum erlendis og því hafi hún vilj-
að spyrja „Hvað var það sem þú fékkst
þar og vildir halda í?“ Hún segist hafa
fengið ýmis svör, en meðal annars þau að
yfirleitt séu þetta mjög góðir skólar. Þar
ríki metnaður og starfsliðið sé vel
menntað en þeir séu jafnframt litlir og
persónulegir og áhersla lögð á einstak-
lingsmiðað nám. Ennfremur segir Fríða
Regína að yfirleitt séu einkaskólarnir
fjölþjóðlegir og að margir foreldrar kjósi
að láta börn sín alast upp í fjölmenning-
arumhverfi en í Landakotsskóla stunda
nám börn af ýmsu þjóðerni.
Morgunblaðið/Jim Smart
öskuldsdóttir ásamt nemendum við Landakotsskóla.
r skóla að skóla eins og
Blaðamaður fékk að kíkja
bekkjar Landakotsskóla
nokkra nemendur í tí-
í fjórða bekk virtust bara
með að vera byrjaðir aft-
og létu ekki fulltrúa fjöl-
ra of mikið í taugarnar á
tæli frá þeim dýrmætum
verið mismunandi lengi í
msar skoðanir á hvað
egast í skólanum þeirra,
við þeirri spurningu
æði, frímínútur, sund,
bara vera í skólanum,“
etta er skemmtilegur
æra, handavinna, nátt-
r og skemmtilegir kenn-
st skemmtilegast hvað
óður og skemmtilegur,“
ra allt,“ sögðu krakkarnir
ki sérstaklega ósátt við
m. Einhverjir nemend-
kipta um skóla og voru
yrsta skóladaginn sinn í
a. Tveir þeirra sögðu
vísi en í gamla skólanum.
mis meiri þögn og ekki
væri verið að meiða og stríða.
„Ég skil það með fimm, sex og sjö ára,
en ég meina: Við erum fimmtán ára. Við
getum alveg sagt eitthvað og haft skoð-
anir,“ segja fimm nemendur í tíunda
bekk. Þau Margrét, Thereza, Benedikta,
Óli og Steingrímur koma inn á skrif-
stofu skólastjóra til að fá leyfi fyrir að
bæta við sig einu valfagi, sem reynist
auðsótt. „Við fengum ekkert að vita
hvað var að gerast heldur heyrðum bara
sögusagnir og eitthvað hálfkveðið frá
foreldrum sem sögðu manni aldrei ná-
kvæmlega hvað væri í gangi. Okkur
langaði að vita hvað myndi gerast, hvort
það yrði skóli o.s.frv,“ segja krakkarnir
sem voru hrædd um að andinn í skól-
anum yrði allt annar.
„Þetta er svo leiðinlegt, allt sprakk og
þetta varð allt of mikið mál. Við fengum
ekki einu sinni að kveðja umsjónarkenn-
arann okkar. Hún er ótrúleg og við
söknum hennar rosalega. Kennararnir
sem hættu voru æðislegir kennarar og
við vildum alls ekki missa þá. Ég er ekki
að kvarta yfir nýju kennurunum, þeir
eru mjög fínir,“ segir ein úr hópnum.
„Við eigum samt eftir að sakna þeirra
sem hættu og séra Hjalti var náttúrlega
alveg frábær,“ bætir önnur við.
getum alveg sagt
vað og haft skoðanir“