Morgunblaðið - 26.08.2005, Qupperneq 42
42 FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Fundir/Mannfagnaðir
Mat á umhverfisáhrifum
Ákvörðun Skipulagsstofnunar
um matsskyldu framkvæmda
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að
eftirtalin framkvæmd skuli ekki háð mati á um-
hverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000
um mat á umhverfisáhrifum:
Breyting á efnistöku úr Bessastaða-
ármelum, Fljótsdalshreppi.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofn-
un, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einn-
ig að finna á heimasíðu Skipulagsstofnunar,
www.skipulag.is .
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til
umhverfisráðherra og er kærufrestur til
23. september 2005.
Skipulagsstofnun.
Sjálfstæðisflokkurinn
Vörður - Fulltrúaráð sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík
Fundur vegna prófkjörs
Fundur í Verði - Fulltrúaráði
sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík verður haldinn
í Valhöll mánudaginn
5. september kl. 17.30.
Dagskrá:
1. Tillaga stjórnar Varðar -
Fulltrúaráðsins um að
fram skuli fara prófkjör í
Reykjavík vegna framboðs til borgarstjórnar-
kosninga vorið 2006.
2. Ræða formanns Sjálfstæðisflokksins, Davíðs
Oddssonar, utanríkisráðherra.
Vinsamlega athugið að fundurinn er eingöngu
opinn þeim er setu eiga í Fulltrúaráði sjálfstæð-
isfélaganna í Reykjavík.
Uppboð
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir.
Álftahólar 8, 040302 og bílskúr 070113, Reykjavík, þingl. eig. Sigurður
Árni Árnason, gerðarbeiðendur Frjálsi fjárfestingarbankinn hf. og
Ríkisútvarpið, þriðjudaginn 30. ágúst 2005 kl. 11:30.
Möðrufell 1, 030302, Reykjavík, þingl. eig. Þórleif Lúthersdóttir,
gerðarbeiðendur Frjálsi fjárfestingarbankinn hf., Íbúðalánasjóður,
Íslandsbanki hf., Möðrufell 1-15, húsfélag, Og fjarskipti hf., Sjóvá-
Almennar tryggingar hf. og Tollstjóraembættið, þriðjudaginn
30. ágúst 2005 kl. 11:00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
25. ágúst 2005.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri sem hér segir:
Kiðárbotnar 34, Borgarfjarðarsveit, þingl. eig. Sumarrós Kristín
Jóhannsdóttir og Þorleifur Hannes Sigurbjörnsson, gerðarbeiðendur
Ferðaþjónustan Húsafelli ehf. og Tryggingamiðstöðin hf., mánudag-
inn 29. ágúst 2005 kl. 11:00
Sýslumaðurinn í Borgarnesi,
25. ágúst 2005.
Stefán Skarphéðinsson, sýslumaður.
Raðauglýsingar 569 1100
✝ Snjólaug Magn-ea Long Bjarna-
dóttir fæddist í
Reykjavík 31. júlí
1913. Hún lést á
Hjúkrunarheimilinu
Ási í Hveragerði 21.
ágúst síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Bjarni Jónsson
stýrimaður og skip-
stjóri, f. 5.10. 1882,
d. 22.12. 1940, og
Ragnheiður Magn-
úsdóttir, f. 25.5.
1889, d. 17.2. 1970.
Þau bjuggu á Fáskrúðsfirði.
Magnea var elst 8 systkina, hin
eru Jón Beck Long, f. 13.11 1914,
d. 22.5 1993, Sveinn Halldór
Long, f. 13.9. 1917, d. 25.6 1991,
Þórlaug Bjarnadóttir, f. 27.10.
1918, d. 3.9. 2004, Antonía Jóna
Bjarnadóttir, f. 22.11. 1920, Berg-
þóra Bjarnadóttir, f. 3.11. 1923,
Rebekka Bjarnadóttir, f. 24.11.
1924. d. 25.6. 1950, og Gunnar
Bjarnason, f. 17.9. 1927.
Magnea giftist 1934 Guðmundi
M. Magnússyni, f. 27.6. 1897, d.
23.11. 1969. Börn þeirra eru: 1)
Magnús Kristinn, f. 24.8. 1934,
maki Guðrún Reynisdóttir, Grís-
hóli, Helgafellssveit. 2) Bjarni, f.
14.5. 1936, d. 7.9. 1944, 3) Gyða
Ólöf, f. 7.11. 1940, maki Kolbeinn
Kristinsson Garðabæ. 4) Hjördís
Karen Guðmundsdóttir, f. 11.12.
1943, d. 29.6. 1999,
maki Haukur Kjart-
ansson, f. 20.8.
1941, d. 2.12. 1986.
5) Bjarni Ragnar, f.
16.7. 1945, maki
Ólöf Brynja Sveins-
dóttir, Hafnarfirði.
6) Ragnheiður, f.
22.11. 1946, maki
Lars Davíð Níelsen,
Hveragerði. 7)
Sveinn Halldór, f.
5.9. 1948, maki
Ingibjörg Erna
Þórðardóttir,
Hveragerði. 8) Hildur Rebekka, f.
23.10. 1950, Kópavogi. Afkom-
endur Magneu og Guðmundar
eru 86, börn, barnabörn, barna-
barnabörn og barnabarnabarna-
börn.
Magnea fluttist ung með for-
eldrum sínum til Fáskrúðsfjarð-
ar. Eftir barnaskólann fór hún í
Héraðsskólann að Laugarvatni
1931-32 og síðan í Húsmæðra-
skólann á Ísafirði, stundaði hún
ýmis störf þess á milli. Þaðan lá
leiðin að Kleifum og síðan að
Borg í Skötufirði N-Ísafjarðar-
sýslu 1940, og stunduðu þau sam-
hliða landbúnað og sjósókn. Þar
ólu þau upp 8 börn auk margra
sumarbarna.
Útför Magneu verður gerð frá
Bústaðarkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 11.
Elsku mamma, þú varst
hjartahlý kona sem vildir allt fyrir
alla gera, þú varst hagsýn, pass-
aðir alltaf upp á að allir hefðu
fengið nóg að borða.
Þú prjónaðir hverja flík og
saumaðir. Auraráð voru lítil á
þessum árum svo oft þurfti að
spretta upp gömlum flíkum og
sauma nýjar.
Áberandi bernskuminningar eru
frá því þegar þú leiddir eða barst
okkur barnahópinn í skógarferðir
á sumrin, fyrst í skógarlund undir
Selhjöllum og síðar við Katlholtin
þar sem gjarnan var veiddur sil-
ungur og hann eldaður við sprek
úr skóginum, að kvöldi var haldið
heim með þreytta litla fætur.
Börnin stækkuðu og fluttu eitt af
öðru, þú fluttir til Hveragerðis, og
það hættu ekki hvatningarorðin
um nauðsyn þess að læra. Sjálf
tókst þú þig til og lærðir ensku
þannig að vel var og fórst að
ferðast, þær eru ógleymanlegar
minningarnar frá því þegar þú
varst að segja mér sögur, sýna
mér myndir og póstkort sem þú
keyptir á ferðalögum á hinum
ýmsu stöðum bæði innanlands og
erlendis.
Elsku mamma, ég kveð þig um
stundarsakir, ævin er stutt en
minningar hrannast upp í hugann
þegar þú ert ekki lengur á meðal
okkar.
Ó, Drottinn Jesú, dvel hjá mér
um daga lífsins alla,
en einkum þegar aftna fer
og ævi tekur halla.
Og þegar svífur svefn á brá
og sjónum loka ég mínum,
þær aftur lát þú opnast þá
í unaðssölum þínum
(Vald. Briem.)
Guð veri með þér.
Sveinn Guðmundsson
og fjölskylda.
Ég aldrei hef lofað að brautin sé bein,
né blómstígar gullskrýddir alla leið
heim.
Ég get ekki lofað þér gleði án sorgar,
á göngu til himinsins helgu borgar.
En ég hefi lofað þér aðstoð og styrk,
og alltaf þér birtu þó leiðin sér myrk.
Mitt ljúfasta barn ég lofað þér hef,
að leiða þig sjálfur hvert einasta skref.
(Höf. ók.)
Elsku mamma, hjartans þakkir
fyrir allt.
Guð geymi þig.
Ragnheiður og
Hildur Rebekka.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Elsku amma og langamma, takk
fyrir allt.
Snjólaug, Einar, Guð-
mundur og fjölskyldur.
SNJÓLAUG MAGNEA
BJARNADÓTTIR
Rangt farið
með hlutfall
Í frétt um skólamál í blaðinu sl.
miðvikudag var ranglega haft
eftir Gunnari Gíslasyni, deild-
arstjóra Skóladeildar Akureyr-
ar, að 78-80% grunnskólakenn-
ara bæjarins væru með
kennsluréttindi. Hið rétta er að
hlutfall grunnskólakennara
með réttindi er allt að 100% á
Akureyri. Eru hlutaaðeigendur
beðnir velvirðingar á þessum
leiðu mistökum.
Elding,
ekki Efling
Félag smábátasjómanna á
norðanverðum Vestfjörðum
heitir að sjálfsögðu Elding en
ekki Efling eins og sagt var í
blaðinu í gær. Beðist er velvirð-
ingar á mistökunum.
LEIÐRÉTT
Fréttir á SMS