Morgunblaðið - 26.08.2005, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 26.08.2005, Blaðsíða 44
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn ÞÚ LYKTAR EINS OG FISKUR HVORTÉG GERI ÉG ÞARF AÐ UNDIR- BÚA MIG ÞETTA ER STÓR- MÁL FYRSTI HUNDURINN TIL AÐ LENDA Á TUNGLINU ÉG ÆTLA AÐ KOMA ÖLLUM Á ÓVART ÉG ER FARINN Í KJÖRBÚÐINA, TIL AÐ BORÐA NAMMI OG LESA MYNDASÖGUR ÉG HELD NÚ SÍÐUR! HVÍ EKKI? VEGNA ÞESS AÐ ÉG ER MAMMA ÞÍN OG ÉG RÆÐ HÆTTU SVO AÐMARSERA UM ALLT HÚSIÐ! MAMMA, ÉG ELSKA LÚÐVÍK. HANN ER MYNDARLEGUR, HUGULSAMUR, GREIN- DUR, FYNDINN OG... ATVINNULAUS! PABBI, ENGINN ER FULLKOMINN! LÆKNIRINN MINN HELDUR ÞVÍ FRAM AÐ ÉG SÉ MEÐ MJÓLKURÓÞOL. HVAÐ Á ÉG AÐ GERA? SVONA, HALLAÐU ÞÉR AÐEINS LENGRA. JÁ, SVONA. VERTU ALVEG RÓLEGUR... ÞETTA ER ALLTAF ERFIÐAST FYRST NÁÐIRÐU MYND AF PUNISHER? ELSKAN, ÉG GÆTI KYSST ÞIG AF HVERJU GERIR ÞÚ ÞAÐ EKKI? VEGNA GRÍMUNNAR ÉG VERÐ AÐ HALDA NAFNI MÍNU LEYNDU FYRIRGEFÐU HVAÐ ÉG ER BÚIN AÐ VERA ERFIÐ UNDANFARIÐ STUNDUM FINNST MÉR ALLAR SKULDBINDINGARNAR OG ÖLL ÁBYRGÐIN BARA VERA YFIRÞYRMANDI HVAÐ UM EINN MIÐA TIL SPÁNAR, AÐRA LEIÐ? HVAÐ GETUM VIÐ GERT Í ÞVÍ? ÉG SKIL Dagbók Í dag er föstudagur 26. ágúst, 238. dagur ársins 2005 Víkverji vill gjarnanbæta við leiðbein- ingar sínar til ferða- langa í Kaupmanna- höfn, sem hann birti um daginn. Fyrir ut- an að tala ekki illa um náungann á Strikinu og ýmislegt fleira, er eins gott að passa sig á því, eftir vel heppn- aðan verzlunarleið- angur, hvað maður tekur með sér í flug- vélina. Víkverji átti smástund aflögu í Kaupmannahöfn á dögunum og rak auð- vitað nefið inn í hið íslenzka Illum. Þar fann hann m.a. 68 hluta hnífa- parasett á frábæru tilboðsverði og skellti sér á það eins og sönnum Ís- lendingi sæmir. Eitthvað fór kass- inn illa í tösku Víkverja þannig að hann ákvað að hafa hann bara með sér í handfarangri. Á Kastrup var honum vinsamlega bent á að hann væri með 12 eggvopn (borðhnífa) og a.m.k. 24 oddhvassa hluti (köku- og matargaffla) í handfarangrinum sínum! Í heimi, þar sem barna- naglaklippur eru álitnar hættuleg morðvopn, leit þetta illa út. Allt fór þó á bezta veg og Víkverji gat kom- ið hnífapörunum sínum í kassa, sem fór í farangurslestina. Víkverja er ljúft ogskylt að birta leiðréttingu frá Eiríki Þorlákssyni, for- stöðumanni Lista- safns Reykjavíkur, vegna pistils síns fyr- ir viku. Þar sagði Vík- verji að ekki væri hægt að komast á kaffihúsið á Kjarvals- stöðum án þess að borga sig inn á safnið. Eiríkur segir m.a.: „Það kostar ... ekkert að sækja heim kaffi- teríur safnsins á Kjarvalsstöðum og í Hafnarhúsi; þá nefna gestir aðeins að þeir ætli sér að setjast í viðkom- andi kaffiteríu, og er þá vísað þangað, en þurfa ekki að greiða að- gangseyri í safnið. Gestir eru ætíð velkomnir í kaffisopann, og í Hafnarhúsinu geta þeir notið út- sýnis yfir höfnina, og á Kjarvals- stöðum útsýnis yfir Miklatún; á góðviðrisdögum er einnig hægt að setjast þar út á stétt og njóta veð- urblíðunnar – án þess að greiða að- gangseyri að safninu.“ Þetta finnst Víkverja gott að heyra – en aldrei hefur hann heyrt það áður og honum finnst að þessi möguleiki mætti vera betur aug- lýstur af hálfu listasafnsins. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is        Leikhús | Leikfélagið Hugleikur er nýkomið til landsins af alþjóðlegri leik- listarhátíð sem haldin var í Mónakó. Þar setti leikfélagið upp verkið Undir Hamrinum. Verkið fékk enska titilinn Country Matters og hlaut á hátíðinni lof bæði gagnrýnenda og hátíðargesta. Af þessu tilefni verður haldin auka- sýning á laugardag í Möguleikhúsinu við Hlemmtorg og hefst hún kl. 20. Að- eins verður þessi eina sýning. Á myndinni má sjá Huldu Björg Hákonardótt- ur og Sigríði Birnu Valsdóttur í hlutverkum sínum sem Manga og Bergþóra. Morgunblaðið/Jim Smart Aftur Undir hamrinum MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.600 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Hjartað eitt þekkir kvöl sína, og jafnvel í gleði þess getur enginn annar blandað sér. (Orðskv. 14, 15.)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.