Morgunblaðið - 26.08.2005, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2005 49
MENNING
Tímaritið
Lifun fylgir
Morgunblaðinu
á morgun
fyrir fagurkera á öllum aldri
lifun 1
lifun
tímarit um heinili og lífsstíl - 06 2005
hlýlegt haust
ljós í rökkrinu
þök með hlutverk
hönnun í hávegum
á mótum tvennra tíma
uppskerutíð í eldhúsinu
himnesk bláberjaterta
SEGJA má að árlegur viðburður
verði til á Skógum nú um helgina
en þá verður haldin öðru sinni
djasshátíðin Jazz undir fjöllum.
Sigurður Flosason er einn af
umsjónarmönnum hátíðarinnar:
„Það sem er ekki hvað síst
skemmtilegt við hátíðina er að
núna er hún að verða árlegur við-
burður. Við héldum hana fyrst í
fyrra og gekk það frábærlega. Á
fjórða hundrað manns mættu og
varð gífurlega skemmtileg stemn-
ing.“
Dagskráin stendur á laugardag
og sunnudag og haldnir verða
þrennir tónleikar með einvalaliði
íslenskra djasstónlistarmanna:
„Við Íslendingar eigum svo mikið
af fínum djassleikurum. Japanskur
tónlistarfræðingur, sem hafði
kannað íslenskt tónlistarlíf, hélt
því fram við mig að mikið væri af
fínum tónlistarmönnum í íslensku
poppi og klassík en hlutfallslega
væri langmest af frábærum djass-
leikurum á Íslandi. Ég sel það
ekki dýrara en ég keypti það, en
ég held það sé sannleikskorn í því:
við höfum mjög háan gæðastand-
ard. Það má segja við séum með
úrtak af landsliðinu hjá okkur í
ár.“
Stórskotalið djassheimsins
Þeir sem spila á Skógum um
helgina verða Björn Thoroddsen
gítarleikari, Gunnar Gunnarsson
orgelleikari, Matthías Hemstock
trommuleikari, Ómar Guðjónsson
gítarleikari, Óskar Guðjónsson
saxófónleikari, Pétur Grétarsson
trommu- og slagverksleikari, Sig-
urður Flosason saxófónleikari og
Tómas R. Einarsson kontrabassa-
leikari.
Skógar eru landsmönnum vel
kunnir fyrir fegurð, segir Sig-
urður: „En ekki hefur verið haldin
nein sambærileg tónlistarhátíð í
þessu sveitarfélagi. Það þótti til-
valið að slá tvær flugur í einu
höggi: vekja athygli á þessum fal-
lega stað og leyfa gestum og
heimamönnum að heyra skemmti-
lega tónlist.“
Sigurður segir að haft hafi verið
að leiðarljósi að hafa dagskrána
aðgengilega og létta og er miða-
verði stillt mjög í hóf. Síðdegistón-
leikar sem haldnir verða í Byggða-
safninu á Skógum á laugardegi og
sunnudegi kl. 15 kosta t.d. ekki
annað en aðgangsmiða að safninu.
Á laugardag kl. 21 eru síðan tón-
leikar í Fossbúð og aðgangseyrir
sömuleiðis hófstilltur.
Á laugardagskvöld verður
kvöldverður í boði í félagsheim-
ilinu og segir Sigurður aldrei að
vita nema þar bresti á músík
óundirbúið.
„Það er um að gera fyrir tjald-
vagnaóða Íslendinga að stefna
suður þennan fína malbikaða veg.
Hér er nóg pláss, Hótel Skógar
opið og allir velkomnir.“
Tónlist | Djasshátíðin Jazz undir fjöllum haldin öðru sinni á Skógum
Erum með úrtak úr landsliðinu
Havanaband Tómasar R. Einarssonar verður meðal gesta á hátíðinni á Skógum. Björn Thoroddsen gítarleikari.
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
RITHÖFUNDURINN og ljóð-
skáldið Sjón, handhafi Bókmennta-
verðlauna Norðurlandaráðs árið
2005, er nýkominn frá Helsinki í
Finnlandi en þar var hann í tilefni af
útgáfu skáldsögu sinnar Skugga-
Baldurs á finnsku. Að sögn Sjóns
hefur skáldsagan fengið góða dóma
og er mikill áhugi fyrir henni þar í
landi.
„Ég kom einnig fram á árlegri
ljóðahátíð sem
haldin er í
tengslum við
Listahátíð í Hels-
inki en hún er
fastur punktur í
menningarlífi
Finna,“ sagði
Sjón.
Nýlega var
Skugga-Baldur
einnig gefinn út á
norsku af bókaforlaginu Tiden, sem
einbeitir sér að útgáfu verka eftir
unga höfunda, en áður hefur bók
Sjóns, Augu þín sáu mig, verið gefin
út í Noregi.
Hinn 16. september næstkomandi
verður frumsýnt dansverkið Rökk-
urglóð (Hämärän Hohde) eftir
finnska danshöfundinn Tetri Kek-
oni, við tónlist júgóslavneska tón-
skáldsins Jovanka Trbojevic.
Í verkinu, sem er 50 mínútur að
lengd, er fléttað saman tónlist
Trbojevic og texta eftir Sjón.
„Ég hitti þá sem að sýningunni
koma fyrst í október á síðasta ári og
kláraði minn hlut í vor en textann las
ég inn á band sem spilað er af í sýn-
ingunni,“ útskýrir hann.
Það er Avanti-kvartettinn sem
flytur tónlistina í Rökkurglóðum.
Verkið verður sýnt út september í
Stoa, menningarmiðstöð Helsinki en
einnig er verið að skipuleggja ferða-
lag með það um heiminn.
Sjón er nú staddur í Visby í Got-
landi á alþjóðlegri ljóðlistarhátíð.
Sjón á ferð
og flugi
Sjón