Morgunblaðið - 26.08.2005, Page 56

Morgunblaðið - 26.08.2005, Page 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Næring ekki refsing Opið 8-24 alla daga í Lágmúla og Smáratorgi Mundu eftir ostinum ... í nestisboxið KULDI, rigning og rok hefur verið víða um norðan- og austanvert land að undanförnu. Víða er farið að verða vart við snjó í fjöllum og haustið virð- ist vera að gera vart við sig. Samkvæmt upplýsingum hjá Veð- urstofu Íslands hefur hitastig á Norður- og Austurlandi víðast hvar verið um 4–8 gráður að undanförnu. Klukkan 18 í gærkvöldi var hitinn á Hveravöllum ein gráða og sex gráð- ur á Akureyri og Raufarhöfn en á síðastnefnda staðnum var vindur 15 metrar á sekúndu. Spáð var slyddu til fjalla á sumum stöðum í nótt. Veð- ur hefur hins vegar verið betra á Suður- og Vesturlandi síðustu daga og var hitinn í Reykjavík um 11 gráð- ur í gærkvöldi. Í gærmorgun var við frostmark á Akureyri og kalt. Mikil rigning var í gærdag og slydda til fjalla. Veðurfræðingar vilja þó ekki slá því föstu að haustið sé komið þótt sumri sé farið að halla. Ljósmynd/Pétur Kristjánsson Snjór er í fjöllum við Seyðisfjörð. Haustveður og snjór í fjöllum ÁTTA sýningar verða settar á svið hjá Leikfélagi Akureyrar í vetur, þar á meðal rokksöngleikurinn Litla hryllingsbúðin – viðamesta verkefni vetrarins – gamanleikurinn Full- komið brúðkaup og nýtt rússneskt verk, Maríubjallan, sem sýnt verður í nýju leikrými LA, Húsinu. Magnús Geir Þórðarson, leik- hússtjóri LA, segir leikárið einkenn- ast af fjölbreytni og hann stefnir að því að laða enn fleiri áhorfendur á sýningar en á síðasta vetri en aðsókn þá var ein sú mesta í sögu leikhúss- ins. Fjórir nýir leikarar eru fastráðnir hjá LA í vetur; Álfrún Örnólfsdóttir, Esther Thalia Casey, Guðjón Davíð Karlsson og Jóhannes Haukur Jó- hannesson. „Stefna LA er að fá til liðs við okkur unga leikara sem eru að stíga sín fyrstu skref og eru að springa af metnaði; leikara sem fá bitastæð hlutverk, vinna mikið og leggja allt í listina meðan þeir eru hér,“ segir Magnús Geir. | 24 Morgunblaðið/Kristján Þráinn að hefja 50. leikárið Fjölbreytt verkefni hjá LA í vetur STARFANDI dagforeldrar í Reykjavík eru nú um 140 talsins og hefur fækkað um 20 í sumar. Alls mættu yfir 100 dagmæður og -feður á fund sem félag dagforeldra, Barna- vistun, stóð fyrir í fyrrakvöld. Þar var lýst þungum áhyggjum af starfs- umhverfi dagforeldra en borgaryfir- völd hafa ekki orðið við þeirra ósk um að niðurgreiðslur verði auknar til foreldra sem eru með börn í þessari vistun. Einnig er óánægja með hert eftirlit og álögur skattayfirvalda. Rut Kjartansdóttir dagmóðir er í stjórn Barnavistunar. Hún segir að ófremdarástand ríki í þessum málum víða í borginni og staðan hafi ekki verið jafnslæm í þau 17 ár sem hún hafi starfað á þessum vettvangi. Verst sé staðan í Árbænum og Vest- urbænum. Ef engin breyting verði á aðbúnaði dagforeldra muni enn fleiri hætta störfum. Í allri umræðu um dagvistunarmál og leikskólapláss hafi málefni dagforeldra gleymst. „Þetta er orðið skelfilegt ástand. Foreldrar yngri barna eru í algjör- um vandræðum. Sem dæmi get ég nefnt að daglega fæ ég margar hringingar frá konum sem þurfa að koma börnum sínum í gæslu. Sam- kvæmt reglugerð megum við aðeins hafa fimm börn hver. Við erum stöð- ugt að vísa fólki frá og það nánast stendur hérna við dyrnar með börn- in, bíðandi eftir plássi,“ segir Rut. Stefán Jón Hafstein, formaður menntaráðs, sat fundinn með dag- foreldrum í fyrrakvöld. Hann segir að borgin geti ekki lofað neinu varð- andi kröfur um auknar niður- greiðslur. Engar skyndilausnir séu til staðar en ljóst sé að styrkja þurfi stöðu dagforeldra á margan hátt, bæði með aðkomu Reykjavíkurborg- ar og ríkisins. Hart sé að þeim vegið í skattamálum og réttlátt að dagfor- eldrar fái meiri skattafrádrátt vegna kostnaðar við reksturinn. Ófremdarástand sagt hjá dagforeldrum í borginni Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is  Þetta er | 10 „VINIR okkar eru farnir að kvíða haustinu því þá birtumst við með fullar körfur af vínberjum,“ segir Guðrún Pétursdóttir en hún og eig- inmaður hennar, Ólafur Hannibals- son, eiga stærðarinnar vínvið sem gefur af sér ríkulegan ávöxt. Guðrún og Ólafur keyptu hús í Árbænum fyrir nokkrum árum og fylgdi því vínviðarplanta og heil- mikið af rósum. „Vínviðarplantan lét ekki mikið fyrir sér fara á þeim árstíma sem við kynntumst henni fyrst en svo þegar fór að vora spruttu á hana hinir lengstu angar í allar áttir svo hún þakti 30 fermetra loftið í garðskálanum.“ Nú er svo komið að árlega tína þau hjónin 40 kg af vínberjum en Guðrún segir að ekkert þurfi að gera fyrir plöntuna annað en að vökva hana af og til samhliða rós- unum. „Þetta köllum við að breyta vatni í vín,“ segir Guðrún en þau hjónin hafa gert tilraunir með að leggja í vín auk þess að sulta heil ósköp. „Þetta er æðislega gaman. Berin eru fjólublá, sæt og safamikil og lífrænustu vínber sem þú finnur.“ Vatni breytt í vín í Árbænum Morgunblaðið/Kristinn HARÐUR árekstur tveggja bíla varð á gatnamótum Strandgötu og Gler- árgötu á Akureyri í gærkvöldi. Sam- kvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri festust þrír í bílunum en vel gekk að ná þeim út. Sjö voru fluttir á FSA (Fjórðungssjúkrahúsið á Akur- eyri) en meiðsli fólksins reyndust minni en óttast var í fyrstu. Harður árekstur á Akureyri sækjast eftir efsta sætinu. „Mér sýn- ist sem ákveðnir stuðningsmenn mín- ir séu komnir alllangt fram úr sjálfum sér, en ég bíð spennt eftir því að þeir hafi samband við mig,“ segir hún. Vill óflokksbundna með Hátt í hundrað manns voru á fund- inum í gærkvöld, að sögn Þorláks, þar á meðal þingmenn og ráðherrar flokksins. Hann segir að góður andi hafi ríkt á fundinum og mikil stemmning fyrir því að flokkurinn bjóði fram undir eigin merkjum í böndunum verður m.a. falið að útfæra það nánar, að sögn Þorláks Björns- sonar, formanns kjördæmissam- bands framsóknarfélaganna í Reykjavík norður. Alfreð Þorsteinsson, oddviti fram- sóknarmanna í borgarstjórn, kveðst munu gefa kost á sér í efsta sæti framboðslistans í Reykjavík. „Að öllu óbreyttu mun ég gefa kost á mér í efsta sætið,“ segir Alfreð. Anna Kristinsdóttir, borgarfulltrúi fram- sóknarmanna, segist aðspurð ekki hafa ákveðið hvort hún hyggist einnig KJÖRDÆMISSAMBÖNDUM framsóknarfélaganna í Reykjavík hefur verið falið að undirbúa framboð framsóknarmanna í næstu borgar- stjórnarkosningum. Þetta var ein meginniðurstaða almenns fé- lagsfundar framsóknarmanna í Reykjavík í gærkvöld. Á fundinum kom fram vilji til þess að velja fram- bjóðendur flokksins í Reykjavík með opnu prófkjöri en kjördæmissam- komandi borgarstjórnarkosningum. Menn hafi almennt talað fyrir opnu prófkjöri en haft mismunandi skoð- anir á því hversu opið það ætti að vera. Þá hafi Alfreð Þorsteinsson varpað fram hugmynd um að óflokks- bundnir fengju að vera með á fram- boðslista framsóknarmanna. Ekkert hafi þó verið ákveðið í þeim efnum. Kjördæmissamböndunum hafi hins vegar verið falið að taka ákvörðum – á sameiginlegum fundi sem haldinn verður á allra næstu vikum – um end- anlegt prófkjörsfyrirkomulag. Framboð undir eigin merkjum Morgunblaðið/Kristinn Anna Kristinsdóttir borgarfulltrúi á tali við Alfreð Þorsteinsson, oddvita framsóknarmanna í borgarstjórn,við upphaf fundarins í gær. Eftir Örnu Schram arna@mbl.is HÖRÐ gagnrýni kom fram á þá Sig- urjón Sighvatsson og Sigurð Gísla Pálmason, eigendur Eiða, á fundi með heimamönnum í fyrrakvöld. Voru þeir sakaðir um vanefndir á lof- orðum um uppbyggingarstarf, sem gefin voru við kaup á Eiðum á sínum tíma. Sigurjón svaraði gagnrýninni þannig til að hann hefði eytt tals- verðum peningum í staðinn en ekki hefði staðið til að fara í mikla starf- semi strax frá byrjun. Eigendur Eiða gagnrýndir  Hitafundur | 6 ♦♦♦ ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.