Morgunblaðið - 14.09.2005, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 14.09.2005, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR edda.is „Roy Jacobsen er sagnameistari af guðs náð.“ – Dagbladet „Frost hefur allt, glæsileg skáldsaga og frábært ævintýri.“ - Aftenposten Mögnuð saga byggð á efni úr Íslendingasögum. Bókmenntahátíðin: Roy Jacobsen les úr bók sinni í IÐNÓ í kvöld klukkan 20 - Aðgangur ókeypis! Tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. „Þessi bók er algjör gullnáma“ - VG ATVINNULEYSI í ágústmánuði reyndist vera 1,8% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði og hefur ekki verið minna í einstökum mán- uði frá því í nóvembermánuði 2001. Þetta kemur fram í nýjum tölum Vinnumálastofnunar um atvinnu- leysið í ágúst. Atvinnuleysið var 2% af mannafla í júlímánuði og því er um talsverða lækkun að ræða milli mánaða. Segir Vinnumála- stofnun að gera megi ráð fyrir að atvinnuleysi minnki enn í septem- bermánuði og fari niður í allt að 1,6% af mannafla á vinnumarkaði. Gangi það eftir hefur atvinnuleysi á þessum árstíma ekki verið lægra frá árunum 1999–2001. 1,8% atvinnuleysi DAVÍÐ Oddsson utanríkisráðherra átti í gær fund með japönskum starfsbróður sínum, Nobutaka Mac- himura. Meðal þess sem kom til tals voru fríverslunartvísköttunarsamn- ingar milli landanna sem og áform um nýjan loftferðasamning sem gerir íslenskum flugfélögum kleift að hefja áætlunarflug til Japans, ekki ein- göngu leiguflug, og þá til fleiri áfangastaða en Tókýó. Davíð sagði í samtali við Morg- unblaðið að fundurinn með Machim- ura hefði verið stuttur en ánægju- legur. Farið hefði verið yfir sameiginleg hagsmunamál þjóðanna, sem og málefni öryggisráðs Samein- uðu þjóðanna. Þar deildu ríkin áhyggjum af endurskipulagningu ráðsins. Davíð sagði íslensk stjórnvöld hafa verið að reyna að ýta á eftir Japönum með gerð fríverslunarsamnings. Þeir væru reyndar á kafi við annan slíkan samning en á fundinum hefði verið rætt að fara í alvöru viðræður milli ríkjanna eftir eitt eða tvö ár. Um loftferðasamninga sagði Davíð þá hafa verið í undirbúningi um nokk- urt skeið. Áhugi væri fyrir því að binda slíka samninga ekki eingöngu til leiguflugs til Tókýó heldur til áætl- unar- og vöruflugs þangað og á fleiri flugvelli, t.d. í Osaka og Nagoya. „Einnig ræddum við tvískött- unarsamninga milli Íslands og Jap- ans og ég hafði á tilfinningunni að því yrði vel tekið að setja slíka samninga í gang,“ sagði Davíð. Miklir möguleikar í Japan Aðspurður um möguleika íslenskra fyrirtækja í Japan sagði Davíð þá vera mikla. Mörg fyrirtæki væru nú þegar búin að koma sér vel fyrir. Jap- anskt efnahagslíf væri á ný að taka við sér, gert væri ráð fyrir hagvexti upp á 3% á þessu ári. Því mættu ís- lensk fyrirtæki horfa í auknum mæli í átt til Japans. Davíð Oddsson hitti Nobutaka Machimura, utanríkisráðherra Japans, í gær Morgunblaðið/Jónas Hallgrímsson Nobutaka Machimura, utanríkisráðherra Japans, og Davíð Oddsson á fundi sínum í Tókýó í gær, að viðstöddum túlki. Ræddu loftferðasamning um áætlunarflug milli landanna Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is TINNA Gunnarsdóttir list- hönnuður hefur verið með bás í norræna skálanum á heimssýningunni í Aichi í Japan og meðal þeirra sem kynntu sér hönnun hennar voru utanríkisráðherra- hjónin, Davíð Oddsson og Ástríður Thorarensen, er þau heimsóttu skálann í vikunni í fylgd Kristínar Ingvarsdóttur, kynning- arstjóra norræna skálans. Tinna verður á heimssýn- ingunni til 17. september en þetta er hennar þriðja sýning í Japan. Hún hefur farið víða um heim með listmuni sína, m.a. til Lond- on, New York, Amsterdam og Mílanó. Kynntu sér hönnun Tinnu Gunnarsdóttur YFIRVÖLD í Danmörku hafa sam- þykkt kaup Fons Eignarhaldsfélags, sem er í eigu þeirra Pálma Haralds- sonar og og Jóhannesar Kristinsson- ar, á Maersk Air í Danmörku. Hið sameinaða félag heitir Sterling Air- lines A/S og það mun verða markaðs- sett undir nafni Sterling. „Ég er auðvitað afar ánægður með að þessi samruni sé nú formlega orð- inn að veruleika. Þetta hefur verið löng og ströng törn,“ sagði Almar Örn Hilmarsson, forstjóri Sterling, í sam- tali við Morgunblaðið í gær. Almar Örn sagði að það væri mjög ánægjulegt, að þetta ferli hefði ekki með nokkrum hætti komið niður á farþegum félagsins. Almar Örn segir að nú hefjist 90 daga áætlun, við að hrinda nauðsyn- legum breytingum í framkvæmd. Reikna megi með því að í upphafi verði 150 til 200 starfsmönnum sagt upp störfum og á næstu 12 mánuðum verði gripið til ýmissa hagræðingar- aðgerða og hugsanlega verði þá um frekari fækkun starfsmanna að ræða. Ætla megi að kostnaðurinn við sam- runa félaganna geti losað um milljarð króna, leggja þurfi í umtalsverða fjár- festingu í hugbúnaði og þá þurfi að koma merki Sterling á flugvélar, bif- reiðar, byggingar o.s.frv. hjá Maersk. En á móti vegur ýmis sparnaður sem ná á fram í sameinuðu félagi. „Við sjáum þegar fyrir okkur sam- legðaráhrif upp á hundruð milljóna króna. Við munum endurskipuleggja leiðakerfi okkar og fækka ferðum í þeim tilvikum þar sem Sterling og Maersk hafa verið að fljúga á svip- uðum eða sömu leiðum,“ sagði hann. Þrátt fyrir að mikil vinna blasi við að samhæfa reksturinn hafa stjórn- endur Sterling alls ekki lagt á hilluna hugmyndir sínar um að fljúga til Am- eríku. Í raun telja þeir þær vera orðn- ar áhugaverðari þar sem félagið fljúgi nú á fleiri staði og tiltölulega auðvelt sé að bæta inn flugleiðum frá Kaup- mannahöfn, Ósló og Stokkhólmi vest- ur um haf til Bandaríkjanna. Almar Örn útilokar þannig ekki að slíkt flug geti orðið að veruleika næsta sumar. Stjórnendur Sterling hafa unnið ít- arlega samrunaáætlun fyrir félögin tvö og er reiknað með að það taki um það bil 18 mánuði að hrinda henni að fullu í framkvæmd. „Loks getum við nýtt þau tækifæri og kosti sem við okkur blasa. Í dag fagna allir starfs- menn því að hið nýja Sterling-félag er orðið að veruleika og farþegum í fyrstu ferðum hins sameinaða félags verður að sjálfsögðu boðið upp á kampavínsglas,“ segir Almar Örn. Kaupin á Maersk í höfn Eftir Agnesi Bragadóttur og Arnór Gísla Ólafsson ÞRJÁR alþjóðlegar tískuverslanir verða á næstu vikum opnaðar hver á fætur annarri í Kringlunni þar sem áður var Hard Rock Café. Um er að ræða verslanirnar Warehouse, All Saints og Whistles auk þess sem Shoe Studio opnar á ný eftir tíma- bundna lokun vegna endur- skipulagningar á svæðinu þar sem áður var Hard Rock Café. Aðspurður segir Hermann Guð- mundsson, markaðstjóri Kringl- unnar, það hafa mjög jákvæð áhrif fyrir Kringluna að fá þar inn þrjár nýjar tískuverslanir sem ekki eru á landinu nú þegar. „Þetta eru versl- anir sem margir Íslendingar þekkja frá Englandi og við höfum heyrt það á markaðnum að fólk kann vel við það úrval sem þessar verslanir hafa upp á að bjóða. Þannig að ég held að þetta komi til með að styrkja Kringl- una verulega og auki enn á það breidd sem við viljum bjóða upp á og muni þannig festa Kringluna enn betur í sessi sem miðstöð tískuversl- ana á Íslandi.“ Að sögn Hermanns eru nýju tísku- verslanirnar allar samnefndum tískukeðjum en hafa að öðru leyti gjörólíkar áherslur og höfða til mis- munandi hópa. „Whistles er hátísku- hús sem höfðar til kvenna sem vilja klæðast tískufatnaði með sígildu yf- irbragði. Keðjan er í eigu Mosaic Fashions og vakti haustlína hennar mikla athygli á tískusýningunni Cool Fashion í Skautahöllinni í sum- ar. Warehouse leggur áherslu á mikla fjölbreytni en þar er að finna þá fatastíla sem ber hæst hverju sinni á mjög hagkvæmu verði. All Saints hefur vakið athygli í Bret- landi fyrir framsækna og villta tísku fyrir konur og karla,“ segir Her- mann og bendir á að verslunin í Kringlunni verði sú eina í All Saints keðjunni sem er utan Bretlandseyja. Þrjár alþjóðlegar tískuverslanir í Kringluna BROTIST var inn í tölvuverslunina Start í Bæjarlind í Kópavogi um fimmleytið í gærmorgun. Ekki er vitað hversu margir voru að verki. Innbrotið þykir óvenjulegt í meira lagi en við verknaðinn var notuð stóreflis vinnuvél með ámoksturstækjum, sem stolið var fyrr um nóttina í Jörfalind. Var gröfunni ekið að versluninni og armur hennar notaður til að brjóta þjófunum leið inn í verslunina. Að sögn lögreglunnar var tölvubúnaði stolið og þjóf- arnir flúnir þegar lögregluna bar að. Málið er í rannsókn. Notuðu stolna gröfu við innbrot Morgunblaðið/Júlíus

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.