Morgunblaðið - 14.09.2005, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 14.09.2005, Blaðsíða 16
DÖNSK HÚSGAGNAHÖNNUN Ef þú hefur áhuga á danskri húsgagnahönnun í hæsta gæðaflokki, skoðaðu þá heimasíðu okkar á www.soeborg-moebler.dk og fáðu nánari upplýsingar eða bæklinga og tilboð frá fyrirtæki okkar. Næst þegar þú ert í Kaupmannahöfn, ertu velkomin/n að heimsækja okkur í sýningarsal okkar (800 m2), sem er í aðeins 6 km fjarlægð frá miðbænum. A/S Søborg Møbelfabrik, Gladsaxevej 400, 2860 Søborg, sími +45 39 69 42 22, www.soeborg-moebler.dk Opnunartímar: mánudag-þriðjudag 8.30-16.30, föstudag 8.30-15 Akureyri | „Það er ekkert að veðrinu, við erum ýmsu vanar og þetta er í góðu lagi,“ sögðu þær Guðrún Kristín Björgvinsdóttir og Margrét Sigurðardóttir, starfsmenn umhverfisdeildar einum rómi, er ljósmyndari Morgunblaðsins rakst á þær í gær. Þær voru þá að grisja tré í gróðurreit milli Seljahlíðar og Skarðshlíðar, svona hefðbundin haustverk en einnig hafa þær verið að klippa gróður frá götu- og umferðarskiltum og ýmislegt fleira. Þótt þær stöllur hafi verið sáttar við veðrið í gær, var það bæði blautt og kalt. Þær sögðu að samkvæmt veðurspánni væri bjartara framundan „en það er nú sjaldnast að marka veð- urspána,“ sagði Guðrún. Morgunblaðið/Kristján Það er ekkert að veðrinu Haustverkin Akureyri | Höfuðborgin | Landið | Suðurnes Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Úr bæjarlífinu HÉÐAN OG ÞAÐAN Heimavist til sölu | Heimavist Verk- menntaskólans á Akureyri á Dalvík hefur verið auglýst til sölu. Það eru Ríkiskaup sem auglýsa eignina en vefmiðillinn dagur.net segir frá þessu. Húsið var byggt árið 1973 og þá sem heimavist fyrir nem- endur frá Hrísey og víðar að sem komu til náms í grunnskólanum á Dalvík. Síðar eignaðist ríkið hús- ið að fullu og nýtti það sem heimavist og að hluta kennsluhúsnæði fyrir útvegssvið VMA á Dalvík. Á sumrin hefur verið hótelrekstur í húsinu. Tilboð í húsið eiga að berast fyrir 21. september nk. Brunabótamat hússins er 139.432.000 kr. en fasteignamat 56.763.000 kr.    Sjoppan farin | Hús Vídeóleigunnar á Kópaskeri var selt og fjarlægt um helgina. Verður það notað sem sumarhús í Mývatns- sveit í framtíðinni. Til að flytja það á áfangastað þurfti að fara upp á hálendið, að Upptyppingum, til að finna nógu breiða brú fyrir húsið. Þetta kemur fram á vef sveitar- félagsins.    kvæmda frá og með sunnudeginum 18. sept- ember nk. Þeir sem vilja fá gist- ingu í þessum skálum, geta fengið lykil gegn tryggingu hjá FFA. Vin- Ferðafélag Ak-ureyrar (FFA)mun læsa skálum sínum við Drekagil og í Herðubreiðarlindum vet- urinn 2005–2006. Lok- unin kemur til fram- samlega sendið félaginu tölvupóst með beiðni um gistingu á netfangið: ffa@ffa.is eða hringið í formann FFA, Ingvar Teitsson, í síma 462 7866, eftir kl. 19 á kvöldin. Skálar Ferðafélags Akureyrar við Drekagil í Ódáðahrauni. Ferðafélagsskálum læst Á nýafstöðnu Lands-móti hagyrðingaorti Hjálmar Jóns- son um Baug: Á nú að fjalla enn um Baug allt frá bát að káli. Það er engin ærleg taug eftir í þessu máli. Vítt um heiminn fréttin flaug um ferli viðskiptanna. Eitt er það sem er ort um Baug annað hvað má sanna. Um Vatnsmýrina orti Hjálmar svo: Af öllum mýrum öðrum hún bar en ei má nú verjast tári; neyðin er mikil því nú eru þar Norræna húsið og Kári. Daginn eftir kveðju Davíðs tafðist útburður Mbl. Ólafur G. Krist- jánsson orti: Fréttin um Davíð varð mörg- um um megn og Morgunblaðsprentvélar hrundu. Hún þyngdi svo blaðið sú þungbæra fregn að þrautpíndir blaðberar stundu. Af Baugi pebl@mbl.is Dalvíkurbyggð | Reykjavíkur-flugvöllur er sameign þjóðarinnar allrar, en ekki að- eins þess hluta hennar sem byggir höf- uðborgarsvæðið. Þetta segir í ályktun frá Áfram, Hagsmunasamtökum íbúa í Dal- víkurbyggð. „Afmarkaðir hópar, s.s. kjós- endur borgarinnar geta fráleitt tekið sér einhliða ráðstöfunarrétt á þessum flug- velli, eða ákvarðað framtíð hans án tillits til þarfa eða öryggishagsmuna lands- byggðarinnar,“ segir í ályktuninni. Stærstu og best búnu sjúkrahús lands- ins eru innan borgarmarkanna og segir í ályktuninni að þau séu einnig eign allra landsmanna, „sem þar með eiga sama rétt á greiðu aðgengi þeirra, þegar á þarf að halda.“ Reykjavíkurflugvöllur er tenging landsbyggðarinnar við sjúkrahúsin, innan við fimm mínútur tekur að aka frá flugvelli og að þeim. Hins vegar tekur hálftíma að aka frá Keflavíkurflugvelli og að sjúkra- húsunum í Reykjavík, miðað við bestu skilyrði en þar við bætist um tíu mínútum lengri flugtími. „Því má ljóst vera að úti- lokað er með öllu að Keflavíkurflugvöllur geti þjónað sjúkraflugi. Þar sem sjúkra- húsin eru, þar verður flugvöllur að vera.“ Nauðsynlegt er því að mati hagsmuna- félagsins, að landsbyggðarfólk sameinist um að standa á þeim rétti sínum að að- gengi þess að þjónustu sjúkrahúsanna í Reykjavík verði um ókomna tíð með jafn- greiðum hætti og nú er. „Það að bæta rúmum hálftíma við flutningstíma bráð- veikra og slasaðra utan af landi til þessara sjúkrahúsa, er ekki og verður aldrei val- kostur.“ Útilokað að Keflavíkurflug- völlur þjóni sjúkraflugi Hofsós | Jón Rúnar Hilmarsson tók á dögunum við starfi skólastjóra við grunnskólann á Hofsósi. Jón er Keflvík- ingur að uppruna en kom frá Bakkafirði þar sem hann gegndi starfi skólastjóra. Á Hofsósi tók Jón við starfinu af Birni Björnssyni sem þar hafði starfað í nokk- ur ár og áður verið mörg ár skólastjóri á Sauðárkróki. Í Hofsósskóla eru nú 45 nemendur og kennt í bekkjadeildum frá 1 til 10. Auk þess er Sólgarðaskóli í Fljótum útibú frá skólanum á Hofsósi, þar eru nú 12 nem- endur. Nýr skólastjóri ♦♦♦ Töfragarði lokað | Nú er komið að lokun Töfragarðsins á Stokkseyri og fer hver að verða síðastur að heimsækja hann í ár en garðinum verður lokað á sunnudag, 18. september. Viðtökurnar í sumar hafa verið hreint frábærar en um 13.000 gestir hafa komið við í Töfragarðinum þetta fyrsta sumar sem hann er opinn. Ýmislegt hefur verið um að vera í Töfragarðinum í sumar, t.d. fór Tommi bangsi, sem býr í Töfragarð- inum, reglulega um garðinn og fræddi krakkana um dýrin sem þar búa , en þau eru: refir, kanínur, kindur, geitur, kálfar, hestar, grísir, hænur, kalkúnar, endur, gæsir, naggrísir og páfagaukar. Einnig nutu leiktækin í garðinum mikilla vinsælda. Töfragarðurinn verður opnaður á ný í byrjun maí á næsta ári.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.