Morgunblaðið - 14.09.2005, Page 23

Morgunblaðið - 14.09.2005, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2005 23 UMRÆÐAN MÁLIÐ MOGGANU M Á MOR GUNMÁLIÐ FY LGIR MEÐ UNNUR B IRNA VILHJÁLM SDÓTTIR Í NÝJU LJ ÓSI EINKAVIÐ TAL VIÐ R USSEL CR OWE NÝRÁÐINN bæjarstjóri á Álftanesi reiðir hátt til höggs í fjölmiðlum í þeim tilgangi að berja niður meintar skoðanir mínar um að staðsetja nýjan flugvöll á Álfta- nesi. Hann vísar til yfirlýsinga sem hann telur mig hafa viðhaft í nýlegu sjónvarps- viðtali um innan- landsflugvöll á Álfta- nesi. Formaður Samfylkingarfélags- ins á Álftanesi skrifar í kjölfarið grein í Morgunblaðið þar sem hún, rétt eins og bæjarstjórinn, heldur því fram að ég hafi í sama viðtali snúið við blaðinu og reifað eig- in hugmyndir um flutning Reykja- víkurflugvallar út á Álftanes. Bæði eru þau á villigötum og nokkuð ljóst að hvorugt þeirra hefur séð viðtalið sem þau gera að umtalsefni, eða að minnsta kosti ekki heyrt hvað þar var sagt. Í upphrópunum sínum fara þau með staðlausa stafi með því að leggja mér orð í munn og því er réttast að rifja upp fyrir þeim, og öðrum áhugasömum, orðrétt það sem ég sagði í viðtali sem Stöð 2 átti við mig. ,,...ef við finnum leið sem er betri en sú að hafa völlinn í Vatns- mýrinni þá er ég tilbúinn til þess að skoða það.“ Á öðrum stað í við- talinu sagði ég aðspurður um flutning vallarins úr Vatnsmýrinni „Ef það eru fjárhagslegar for- sendur fyrir því að þá tel ég að samgönguráðherra hver sem hann yrði á þeim tíma að hann gæti ekki vikist undan því að fara í samn- ingaviðræður við borgina um það. Ég tel að við verðum að ná sam- komulagi og þess vegna fagna ég þessum mikla áhuga sem er núna hjá frambjóðendum til borg- arstjórnar að ganga til þessa verks en þeir geta ekki tekið neinar ákvarðanir fyrr en að búið er að stilla upp kostum og þið eruð að láta kjósa núna hér um hvar völlurinn eigi að vera og það er nú þrautin þyngri fyrir áhorfendur að gera það vegna þess að þeir vita ekki hvort að þetta er raunhæft með Lönguskerin. Þeir vita ekki hvort það er raunhæft með Álftanesið. Vegna þess að bæjaryfirvöld þar þau ráða þeirri för, hvort það verður byggður flugvöllur á Álfta- nesi eða ekki.“ Nýlega var gert samkomulag milli mín og borgarstjórans í Reykjavík um sérstakan vinnuhóp sem nú starfar undir stjórn Helga Hallgrímssonar verkfræðings að því að endurskoða landnotkun og skipulag flugvallarsvæðisins og meta hagkvæmni þeirra kosta sem til greina koma. Í þeirri vinnu verða allir valkostir skoðaðir og m.a. rætt við fulltrúa allra sveit- arstjórna á höfuðborgarsvæðinu. Ég hef verið talsmaður þess að innanlandsflugvöllur landsmanna verði á, eða sem allra næst, höf- uðborgarsvæðinu. Sú skoðun mín hefur ekkert breyst og ég hef enga ástæðu til þess að gefa frek- ari yfirlýsingar um framtíð- arstaðsetningu flugvallarins fyrr en niðurstöður vinnuhópsins liggja fyrir og frekari umræða á sér stað um einstaka valkosti í þessum efnum. Vert er að minna á að Reykjavíkurflugvöllur er ný- endurbyggður og var það gert með öllum leyfum borgaryf- irvalda. Enginn fótur er þess vegna fyr- ir því að ég stefni sérstaklega að því að ,,þröngva flugvelli upp á Álftnesinga“ eins og formaður Samfylkingarinnar á Álftanesi heldur fram í Morgunblaðsgrein sinni. Upphlaup formannsins og sömuleiðis bæjarstjórans á Álfta- nesi eru óskiljanleg vindhögg. Staðlausir stafir frá Álftanesi Sturla Böðvarsson svarar bæj- arstjóranum á Álftanesi ’Formaður Samfylking-arfélagsins á Álftanesi skrifar í kjölfarið grein í Morgunblaðið þar sem hún, rétt eins og bæj- arstjórinn, heldur því fram að ég hafi í sama viðtali snúið við blaðinu og reifað eigin hug- myndir um flutning Reykjavíkurflugvallar út á Álftanes.‘ Sturla Böðvarsson Höfundur er samgönguráðherra. Jónína Benediktsdóttir: Sem dæmi um kaldrifjaðan sið- blindan mann fyrri tíma má nefna Rockefeller sem Hare tel- ur einn spilltasta mógúl spillt- ustu tíma. Sturla Kristjánsson: Bráðger börn í búrum eða á afgirtu svæði munu naumast sýna getu sína í verki; þeim er það fyrirmunað og þau munu trúlega aldrei ná þeim greindarþroska sem líf- fræðileg hönnun þeirra gaf fyr- irheit um. Kristján Guðmundsson: Því miður eru umræddar reglur nr. 122/2004 sundurtættar af óskýru orðalagi og í sumum til- vikum óskiljanlegar. Sigurjón Bjarnason gerir grein fyrir og metur stöðu og áhrif þeirra opinberu stofnana, sem heyra undir samkeppnislög, hvern vanda þær eiga við að glíma og leitar lausna á honum. Þorsteinn H. Gunnarsson: Nauðsynlegt er að ræða þessi mál með heildaryfirsýn og dýpka umræðuna og ná um þessi málefni sátt og með hags- muni allra að leiðarljósi, bæði núverandi bænda og fyrrver- andi. Aðsendar greinar á mbl.is www.mbl.is/greinar UM ÞESSAR mundir eru skoð- anaskipti á milli Sigurðar Jónssonar, framkvæmdastjóra SVÞ og fyrrum starfsmanns Kred- itkorta hf. (Mbl. 9/9 þ.m.) og hinsvegar Ragnars Önund- arsonar, fram- kvæmdastjóra Kred- itkorta hf. (Mbl. 11/9 þ.m.). Deiluefni þeirra snýst fyrst og fremst um bannregluna í samningum beggja kreditkortafyrirtækj- anna. Regluna sem Euro Commerce, sem eru samtök verslana í Evrópu kalla „Reglan um að notandinn borgar ekki.“ Þeir kaupmenn og aðrir greiðsluviðtak- endur sem undirrita samninga við svikamyll- una sem greiðslukorta- fyrirtækin vissulega eru, eru í reynd að af- sala sér frelsinu. Frels- inu til að haga við- skiptum og verði í samræmi við markaðs- hagkerfið með samkeppni að leið- arljósi. Korthafar eru viðskiptamenn bankakerfisins og þangað og aðeins þangað eiga þeir að sækja þjónustuna í núverandi kerfi. Kaupmenn eiga ekki að vera hórur fyrir bankakerfið og borga með sér að auki. Bankakerfið á að rukka sína eigin viðskiptamenn, þ.e. korthafa. Þannig og aðeins þannig nást markmið samkeppnislaga um gegnsæ viðskipti og grundvöllur skapast fyrir eðlilega og heiðarlega samkeppni. Greiðslumiðlunarkerfið er nú mið- stýrt sósíalskt fyrirbæri sem setur kaupmenn og aðra greiðsluviðtak- endur í hlutverk félagsmálastofnunar við að úthluta einhverjum félagsmála- pökkum (niðurgreiðslurnar sem kaup- menn standa straum af). Miðstýringin nær beint inn í Reiknistofu bankanna og er stjórnað þar af öllum bönkunum sameiginlega (allir bankarnir eiga hluti í báðum kreditkortafyrirtækjunum) og með ólögmætu samráði. Auk þess fer þessi starfsemi fram undir stjórn tveggja erlendra auðhringa, Visa Int- ernational og Mastercard. Hér eru á ferðinni stærstu, mestu og alvarleg- ustu brot á samkeppnislögum sem hægt er að hugsa sér. Mál olíufélag- anna sem eru alvarleg munu líta út eins og krækiber í helvíti í samanburð- inum. Samkeppnisyfirvöldum ber skylda til að brjóta upp miðstýringuna, samstarfið og samráðið nú þegar. Bullið í Ragnari um það ef kaup- mönnum væri heimilt að innheimta kostnað af korthöfum (ath. þeir eru framleiðendur að kostn- aði á hendur kaup- mönnum í núverandi kerfi), þ. e. kortaverðlag plús þóknun venga korta, fellur um sjálft sig EF markaðshagkerfið er virkt, samkeppnin sér til þess. Því miður er mark- aðshagkerfið ekki virkt í dag vegna áhrifa greiðslumiðlunarkerf- isins með debet- og kred- itkortum. Engin sam- keppni er á milli einstakra banka eða fjár- málafyrirtækja á þessum markaði. Það sem verra er: Enginn grundvöllur er fyrir slíku í núverandi kerfi vegna miðstýring- arinnar, samráðsins, samstarfsins og nið- urgreiðslnanna sem kaupmenn eru neyddir til að taka á sig. Hér er sami graut- urinn í sömu skálinni eða er einhver munur á kúk og skít? Greiðslukortin eru í dag tæknivæddur þjófnaður og ekkert annað. Kæri Sigurður og kæri Ragnar, reynið nú að sjá skóginn fyrir trjám. Skoðið heildarmyndina. Enn um rugl og rangindi Sigurður Lárusson svarar Sig- urði Jónssyni og Ragnari Ön- undarsyni Sigurður Lárusson ’Kæri Sigurðurog kæri Ragnar, reynið nú að sjá skóginn fyrir trjám. Skoðið heildarmynd- ina.‘ Höfundur er kaupmaður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.