Morgunblaðið - 14.09.2005, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 14.09.2005, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2005 9 FRÉTTIR Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • sími 581 2141 Vesti - Ný sending ◆ ◆ ◆ ◆ ◆ ◆ ◆ ◆ ◆ ◆ ◆ ◆ Námskeið á haustönn byrja 26. og 28. september Byrjendur: Hefst 26. september, 10 mánudagskvöld. Framhald: Hefst 28. september, 10 miðvikudagskvöld. Upplýsingar og innritun í síma 564 4247 milli kl. 13 og 18 daglega. BRIDSSKÓLINN Pils og bolir Opið virka daga frá kl. 11-18, laugardaga 11-15 Hlíðasmára 11 • Kópavogi sími 517 6460 • fax 517 6565 www.belladonna.is Heimsferðir bjóða frábært tilboð til Króatíu 22. september. Króatía hefur svo sannarlega slegið í gegn hjá Íslendingum. Þú bókar og tryggir þér sæti og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Stökktu til Króatíu 22. september frá kr. 29.990 Síðustu sætin Verð kr. 29.990 í viku Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, í íbúð í viku. Flug, skattar, gisting og íslensk fararstjórn. Verð kr. 34.990 í viku Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi/stúdíó/íbúð í viku. Flug, skattar, gisting og íslensk fararstjórn. Munið Mastercard ferðaávísunina FYRIR smámynt frá íslenskum kaffihúsagestum á 28 kaffihúsum, alls um 400 þúsund krónur, hafa verið gerðir fjórir vatnsbrunnar í Mósambík. „Fyrir utan að umbylta heilsufari íbúa þurfa konur og stúlkur að verja minni tíma í að sækja vatn langar leiðir og konur fá meiri tíma til að hugsa um börn sín og stúlkur geta sótt skóla,“ seg- ir Anna M.Þ. Ólafsdóttir, fræðslu- og upplýsingafulltrúi Hjálparstarfs kirkjunnar, um þessa sérstöku söfnunarherferð sem hún segir að hafi farið hljótt hérlendis en vakið því meiri fagnaðarlæti hjá þiggj- endum. Hjálparstarf kirkjunnar hefur samvinnu við Lútherska heims- sambandið í Mósambík og sam- kvæmt upplýsingum frá Önnu er um leið lögð áhersla á að virkja alla íbúa til þátttöku, að meta stöðuna og koma með tillögur um hvað sé brýnast. Fólkið leggur fram vinnu og í þessu tilviki er greitt með íslenska söfnunarfénu fyrir ráðgjöf, sement, steypumót, dælu varðandi brunn- gerðina og síðan þjálfun og fræðslu. Kaffitár reið á vaðið og hefur frá því í desember 2002 verið safnað smámynt í bauka sem starfsfólk kaffihúsanna kemur síðan í banka. Gestir Kaffitárs hafa frá árinu 2003 safnað fyrir tveimur brunnum og smám saman hafa fleiri kaffihús bæst við. Segir Anna þessa söfn- unaraðferð ákaflega ódýra og hent- uga, ekki þurfi að gera annað en koma framlögunum inn á reikning Hjálparstarfsins sem síðan sendir þau áfram til Mósambík. Fyrir smámynt frá kaffihúsagestum á Íslandi hefur Hjálparstarf kirkj- unnar látið útbúa vatnsbrunna í Mósambík. Brunnar í Mósambík fyrir smámynt frá Íslandi METVEIÐI var í Haffjarðará í sumar og er Einar Sigfússon, annar eigenda árinnar, afar ánægður með útkomuna. „Í ánni veiddust fast að 1.300 laxar. Það er búið að loka hús- inu en við eigendurnir eigum eftir að veiða í einn, tvo daga þannig að ein- hverjir fiskar gætu veiðst til við- bótar,“ sagði Einar. „Skilyrðin síðustu vikurnar voru erfið, býsna kalt, en samt veiddist umfram væntingar. Þetta var met- sumar og mikið af fiski í ánni. Stærðardreifingin var líka góð, stærsti laxinn var 19 pund og tals- vert af fiski átta til fimmtán pund. Það var þó ekki alveg eins mikið af tveggja ára fiski og við höfðum gert okkur vonir um, en samt betra en víða annars staðar. Það ber að hafa í huga að þetta er algjörlega gamli náttúrulegi stofninn í ánni og í hana er aldrei sleppt seiðum.“ Góð sjóbirtingsskot Sjóbirtingurinn er að ganga í ár í Skaftafellssýslum, fréttir hafa verið að berast af góðri veiði í síðustu holl- um í Geirlandsá, Tungufljóti og Vatnamótunum. Síðasta holl í Geir- landsá mun hafa fengið yfir 20 birt- inga og samkvæmt fréttavef SVFR náðu veiðimenn í síðasta holli í Tungufljóti 13. Voru þetta vænir fiskar eins og vant er á þeim slóðum, frá hálfu sjötta pundi að tíu pundum. Veiddust flestir við Syðri-Hólma og í Breiðufor. Lítið hafði sést af fiski dagana á undan. Að sögn Ragnars Johansens á Hörgslandi er mikið af fiski í Vatna- mótunum. „Veiðimenn hafa samt verið misheppnir, sumir eru of dug- legir með stóru spúnana finnst mér. Síðasta holl náði ellefu fiskum á ein- um og hálfum degi, þar af voru tveir níu punda.“ Þá sagði Ragnar einnig ágæta veiði í Hörgsánni en veiði- maður sem var þar í fyrradag náði þremur vænum fiskum. Sagði hann stefna í töluvert meiri veiði en í fyrra, ef veður helst skaplegt. Kajakræðarar í hylnum Og birtingurinn veiðist víða þessa dagana. Á laugardaginn var hófust svokallaðir sjóbirtingsdagar í Laxá í Kjós. Mikið vatn var í ánni um morg- uninn en þegar sjatnaði í henni tók fiskurinn að taka. Kristinn Á. Ing- ólfsson veiddi þá á stuttum tíma í Pokahyl fallegan 10 punda sjóbirt- ing og tvo laxa sem voru rétt tæp sjö pund. Þá missti hann tvo fiska til. Félagar hans voru einnig í góðum málum, settu í talsvert marga fiska en misstu þó flesta, því þeir tóku grannt. Veiðimaður sem veiddi í Varmá um helgina sagði nokkuð af fiski í ánni, og greinilega nýgenginn því fiskar sem hann fékk í Stöðvarhyl og þar fyrir neðan voru lúsugir. En minna varð af veiði við Reykjarfoss, því þegar hann var að kasta þar birt- ust tveir kajakmenn á fossbrúninni og skelltu sér niður fossinn, ekki einu sinni heldur tvisvar. „Þeir fóru þegar ég bað þá um það og sigldu á næstu veiðimenn sem voru ekki langt frá.“ Ekki þarf að taka fram að fiskar voru ekki tökuglaðir eftir þennan gusugang í hylnum. Veiðimenn hafa talað mikið um aflabrest á sjóbleikju í ár en Gufu- dalsá í A-Barðastrandarsýslu rétti þó heldur úr kútnum ef veiðin í ár er borin saman við sumarið 2004. Þeg- ar veiði lauk um helgina höfðu veiðst tæplega 900 bleikjur, sem er veiði- aukning um 200 fiska. Þá veiddust 19 laxar í Gufudalsá. Metveiði í Haffjarðará Brynjar Svansson með 12 punda sjóbirting sem hann veiddi í Vatnamótum. veidar@mbl.is STANGVEIÐI HEILDARÚTGJÖLD Íslendinga til menntamála námu 7,4% af vergri landsframleiðslu árið 2002 og er Ís- land komið í efsta sæti meðal OECD ríkja hvað þessi útgjöld varðar. Næst koma Bandaríkin með 7,2%. Meðaltal OECD-ríkja árið 2002 er 5,8%. Þetta kemur fram í nýút- komnu riti OECD um menntunar- mál er nefnist Education at a Glance. Útgjöld og góður árangur fara ekki saman Að því er fram kemur í ritinu hafa heildarútgjöld Íslendinga til menntamála aukist úr 6,7% af vergri landsframleiðslu árið 2001. Ef ein- göngu eru skoðuð opinber útgjöld til menntunar er Ísland í 5. sæti meðal OECD ríkja og fara 15,6% opinberra útgjalda til menntunar hér á landi. Þegar útgjöld á nemanda frá grunn- skóla til háskóla eru skoðuð er Ís- land í 9. sæti OECD ríkja með 7.548 bandaríkjadali á hvern nemanda í fullu námi en meðaltal OECD ríkja er 6.687 bandaríkjadalir. Ísland ver talsvert yfir meðaltali OECD ríkja til menntunar á grunnskólastiginu en er rétt undir meðaltali hvað varð- ar útgjöld á nemanda á framhalds- skólastigi, þ.e. í 14. sæti. Ísland ver 8.251 bandaríkjadölum á nemanda á háskólastigi sem er um 2.400 banda- ríkjadölum undir meðaltali OECD ríkja og er þar með í 17. sæti. Fram kemur í ritinu að í mörgum OECD löndum er fjármögnun menntunar að breytast. Þannig treysta margir háskólar nú meira á einkafjármagn en áður, t.d. með inn- heimtu skólagjalda. Einnig bendir OECD á að útgjöld og góður árang- ur nemenda fari ekki alltaf saman. Þannig eyða t.d. Finnland, Holland, Japan og Kórea nálægt meðaltali OECD ríkja til grunnskólans en samt sýna nemendur þeirra mjög góðan árangur í PISA rannsókninni sem framkvæmd er á 15 ára nem- endum. Útgjöld til menntamála aukast

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.