Morgunblaðið - 14.09.2005, Side 31

Morgunblaðið - 14.09.2005, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2005 31 MINNINGAR nógu margar sögur þaðan. Siggi var frábær bróðir, stríðinn stund- um en aldrei svo að særði. Hann gerði létt grín að mér þegar ég 10 eða 11 ára gerði tilkall til Mogg- ans sem virtist alltaf vera í hönd- um einhvers annars en mín. En þá var framhaldsagan Anna Farley í blaðinu sem nauðsynlegt var að lesa ef maður átti að vera sam- ræðuhæfur í skólanum. Honum fannst þetta algjört grín, krakkinn farinn að lesa Moggann. Við rifj- uðum þetta upp saman viku áður en hann kvaddi og ég sagði að hann hefði nú náð í sína Önnu þó að ekki hafi nú verið sagan um hana. Hann sagði mér að það hefði líka verið það gáfulegasta sem hann hefði gert um ævina að gift- ast henni Önnu. Það vita reyndar allir sem Önnu þekkja. Það sem stendur ef til mest upp úr í göml- um minningum er þegar hann sótti mig á hjóli í slíku óveðri að varla var stætt úti og sá ekki út úr aug- um, leiðin var löng frá Urðarstígn- um að Suðurgötu lengst sunnan við sjúkrahúsið. Kennsla hafði fall- ið niður vegna veðurs og mér bjargað þarna í hús þar sem ég var orðin villt en ætlaði í strætó, en endastöð strætó var þá við enda Suðurgötu eða nánast þar nú er Sundlaug Suðurbæjar. Mér fannst hann algjör hetja þar sem hann með klaka í hári bauð óveðr- inu birginn á hjóli. Alltaf flottur. Þeir áttu ýmislegt sameiginlegt feðgarnir, faðir okkar og Siggi, fyrir utan öll félagsstörfin, t.d. lágu þeir ekki á sjúkrahúsi fyrr en við ævilok en þeir máluðu þar báð- ir og kunnu hvorugur við sig þar öðruvísi. Þeir reyndu báðir óhefð- bundnar leiðir til að komast þaðan og tókst öðrum en ekki hinum. Svo vef ég í angurværðir óðs inn andaðan, í línur táraglaðar. Í englaröðum glaðværðar og góðs minn gestur verður – hvergi annars staðar! Ég kveð þig ugglaus, um það lokast sárin. Á eftir blessun, þakkirnar og tárin. (Stephan G. Steph.) Ég kveð bróður minn með sökn- uði, en jafnframt með þakklæti fyrir öll góðu árin og bið Guð að blessa hann. Við hjónin sendum Önnu, börnum og fjölskyldum þeirra innilegustu samúðarkveðj- ur. Þórdís Kristinsdóttir. „Ég ætla að verða stjórnmála- maður eins og Siggi frændi,“ Þetta mun hafa hrokkið upp úr mér, þá sennilega fimm ára, einhvern tíma þegar Siggi frændi hafði setið í eldhúskróknum heima hjá mér og farið víðan um málefni dagsins. „Það er þá einhver sem hefur trú á mér,“ sagði Siggi víst og hafði gaman af. Þetta var reyndar ekki eina skiptið sem ég hafði „trú“ á honum frænda mínum og ég var oft stolt- ur af honum. Enda þegar maður er lítill drengur og á frænda sem er hár og herðabreiður, grannur og spengilegur, beinn í baki og með hrafntinnusvart hárið slétt- greitt og ekki síst með hressilega framkomu geislandi af sjálfsöryggi – þá er maður montinn af frænda sínum. Það kom fyrir að fólk ruglaðist á Sigga og bróður hans, pabba mín- um, og skólafélagar hnipptu kannski í mig og bentu mér að þar færi pabbi minn. „Nei,“ sagði ég þá, „þetta er Siggi frændi.“ Ekki lítið upp með mér af því að eiga ekki bara flott- an pabba heldur líka frænda. Reyndar voru kynni mín af Sigga og Önnu Daníelsdóttur, konu hans, alltaf mikil því tals- verður samgangur var á milli heimilanna. Pabbi og Siggi byggðu saman hús á Hringbraut 9 og þar bjuggu báðar fjölskyldurnar um árabil og oft opið á milli hæða skilst mér. Reyndar fluttum við á brott skömmu áður en ég náði því viti að muna eitthvað, þannig að mér bregst minni um þetta sam- býli. Siggi varð kannski aldrei „stjórnmálamaður“ í þeim skiln- ingi sem við leggjum oftast í orðið, þ.e. hann sat aldrei í bæjarstjórn eða á alþingi, en var annars virkur í Sjálfstæðisflokknum og gegndi þar ýmsum trúnaðarstörfum. Stærstu fótsporin skildi hann hins vegar eftir á vettvangi fagsins og í málefnum iðnaðarmanna, en hann var bæði formaður Iðnaðar- mannafélags Hafnarfjarðar og svo um árabil forseti Landssambands iðnaðarmanna. Nú er Siggi dáinn og þá lítum við eftirlifendur um öxl og rifjum upp. Og þá er í mörg horn að líta og ég er viss um að það verða aðrir til að gera grein fyrir ætt og uppruna, börnum og barnabörnum. Enn- fremur munu vafalaust aðrir fjalla um fagmanninn, málarann Sigurð, og enn aðrir rifja upp afskipti hans af félagsmálum. Því ætla ég að hafa þetta stutt og minnast aðeins frændans flotta. Glampans í augunum, kímni og smástríðni sem aldrei var langt undan og ég varð feginn því þegar ég heimsótti hann á spítalann fyrir röskum hálfum mánuði, að þessi erfiði sjúkdómur hafði ekki slegið á glettnisglampann og að þrátt fyrir að skrokkurinn hafði eitthvað látið á sjá var viljinn eins sterkur og alltaf áður. Allir þeir sem best þekktu frænda geta ekki annað en verið þakklátir fyrir það hvernig hans andlát bar að garði þrátt fyrir að því hefði gjarna mátt fresta um langt árabil, en hann var ekki mað- ur til að liggja á spítala. Þetta gekk hratt fyrir sig, frá sjúkdómsgreiningu og þar til hann var allur, og held ég að það sé nokkuð í stíl við það hvernig hann vildi hafa hlutina. Frændi minn hafði gaman af því að þrasa við mig þegar ég á menntaskólaárum gerðist róttæk- ari en flest það sem róttækt var – kominn af þessari miklu fjölskyldu sjálfstæðismanna. Og þegar hann kom mér á flug sá ég alltaf glamp- ann – og vissi að nú skemmti hann sér vel. En það var sama hversu langt til vinstri ég fór í rökræðum, alltaf voru umræðurnar málefna- legar og ég hafði það á tilfinning- unni, að þó svo hann væri ekki sammála mér bæri hann fulla virð- ingu fyrir rökum og skoðunum mínum. Og það er ekki ónýtt fyrir ung- linga sem eru að móta lífsskoðanir sínar að fá að rökræða með fullri alvöru við fullorðna menn sem taka manni sem jafningja en eru marg- skólaðir í þrætubókarlist og þrasi eftir áratuga félagsmálastúss. Ég fékk skellinöðrubakteríu á unglingsárum og þá var Daníel, sonur Sigga og Önnu, ein mín helsta hetja enda eigandi flottasta jeppans á landinu að því er mér fannst. Þá var bílskúrinn á Hring- braut 9 nokkurs konar félagsmið- stöð bíladellugæjanna í Hafnar- firði og svo mín, sem var tekinn í hópinn sem skjólstæðingur frænda minna Alla og Danna, eins og þeir bræður voru kallaðir. Þá var oft þröngt setinn bekk- urinn í eldhúsinu á Hringbrautinni þegar komið var inn í kaffi og allt- af tóku þau Siggi og Anna á móti öllum hópnum eins og vinum og því var það að á þessum mótunar- árum unglingsins sat ég löngum í skjóli þeirra. Þá kynntist ég mörg- um hliðum frænda míns – ekki bara þeirri sem snýr að fjölskyldu- boðum og veisluhöldum – og varð ekki fyrir vonbrigðum. Siggi lét oft sem hann hefði horn í síðu langskólagenginna manna – en var furðu spurull um bræður mína, sem báðir voru í há- skólanámi þegar ég var eins og húsgangur á heimili hans og var ánægður með þeirra árangur. Enda held ég að þetta hafi verið mest í nösunum á honum og lykt- aði kannski dálítið af því að hann hafði sjálfur haft alla burði til að sækja menntun og frama en þjóð- félagsaðstæður ekki boðið upp á slíkt á þeim tíma. Og ég man að hann átti ágætt safn bóka og var vel lesinn og eitt sinn á mennta- skólaárum mínum þurfti ég á sunnudegi að komast í gott al- fræðisafn og bentu þá foreldrar mínir mér á Sigga og fór ég þang- að og fékk að fletta í Britannicu. Þetta held ég að þeim Sigga og Önnu hafi þótt hið besta mál og var umsvifalaust hellt uppá kaffi og gerðar pönnukökur og þetta er- indi mitt, sem aðeins átti að taka hálftíma, tók á endanum marga klukkutíma og heim kom ég með um það bil eina málsgrein af fróð- leik úr bókinni, fullan maga af pönnsum og búinn að ræða Nató og verðbólgu og flest annað í góða stund. Aðra sögu kann ég, sem kannski lýsir manninum vel. Einu sinni ætluðum við Danni frændi, sonur Sigga, í bíó, og vorum að verða seinir. Gallinn var sá að Danni var að vinna á körfubíl pabba síns, 16 hjóla gömlum GMC-trukki, en var líka á jeppanum sínum, og ég var bara 16 ára. Úr varð að ég ók trukknum heim á Hringbraut og sagði Danni mér að beygja mig bara niður ef ég mætti lögregl- unni, þá myndu þeir halda að Alli bróðir hans væri á bílnum. Þetta gerði ég og ók trukknum alla leið en þegar ég stoppaði fyrir utan húsið stóð Siggi þar. Hann horfði á mig hoppa út – og ég skammaðist mín svo mikið að ég vissi hreinlega ekki hvað ég ætti að taka til bragðs. Siggi hefur sennilega séð hvað mér leið, því allt í einu glotti hann út í annað, lyfti hendinni til kveðju og fór svo inn. Siggi skilur eftir góðar minn- ingar og ég vona að hann hafi ver- ið sáttur þegar hann leit yfir far- inn veg. Enda – ekki yfir neinu að kvarta. Stór hópur barna og barnabarna og þaðan af meira. Virtur sem vandaður fagmaður og traustur félagi konu sinnar. Hann skilur ekki eftir neitt nema góðar minningar – og að biðja um meira er bara oflátungsháttur – og það var honum ekki að skapi. Farðu vel frændi og kærar þakkir fyrir minningarnar. Sverrir Albertsson. Kveðja frá Rótarýklúbbi Hafnarfjarðar Félagi okkar og vinur, Sigurður Kristinsson, málarameistari, lést á heimili sínu sunnudaginn 4. sept- ember sl. Sigurður fæddist 27. ágúst 1922. Eftirlifandi eiginkona Sigurðar er Anna Dagmar Daní- elsdóttir og eignuðust þau sjö börn. Ungur að árum fór Sigurður að læra málaraiðn hjá föður sínum, sem var á þeim tíma með þekktari íbúum bæjarins. Sveinsprófi lauk Sigurður 1945 og 1950 fékk hann svo meistararéttindi í iðninni. Sigurður naut trausts og við- urkenningar í störfum sínum sem málari. Snemma vaknaði áhugi Sigurðar fyrir félagsmálum og segja má að hann hafi strax ratað í forustusveit iðnaðarmanna. 1973 er Sigurður kosinn forseti Landssambands iðn- aðarmanna og gegndi hann því starfi til 1985. Á þessum árum voru gerðar miklar breytingar á uppbyggingu landssambandsins og umsvif þess voru aukin verulega. Sigurði farnaðist vel í forsetastól. Hann þótti ræðumaður góður, var ábyrgur og samvinnuþýður. Sigurður var bæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Hafnarfirði, á árunum 1962–1970. Sigurður gekk í Rótarýklúbb Hafnarfjarðar 14. maí 1964 og hef- ur verið virkur félagi í klúbbnum síðan. Þar starfaði hann af þeirri félagslegu ábyrgð sem honum var eiginleg. Sigurður hefur gegnt flestum trúnaðarstörfum fyrir klúbbinn og forseti klúbbsins var hann starfsárið 1969–1970. Sigurð- ur var sæmdur Paul Harris orðu rótarý, 14. júní 1990, fyrir góð störf í þágu klúbbsins. Kjörorð Rótarýhreyfingarinnar er „Þjónusta ofar eigin hag“. Þetta kjörorð markaði viðhorf Sigurðar vinar okkar. Hjá honum var hug- takið um góða þjónustu í fyrir- rúmi. Í Rótarý eru félagar fulltrú- ar mismunandi starfsgreina. Sigurður var fulltrúi fyrir starfs- greinina „málaraiðn“, og var hún vel setin með Sigurði. Til gamans má geta þess að þegar Sigurður gekk í klúbbinn 1964, þá var hann fulltrúi fyrir starfsgreinina „rit- stjórn“, en hann var þá ritstjóri Hamars. Það er skarð fyrir skildi hjá okkur í Rótarýklúbbnum, við söknum góðs félaga og vinar. Við rótarýfélagar sendum eig- inkonu hans Önnu, börnum og fjöl- skyldum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðjur. Þeirra missir er mikill. Minningin um góðan dreng og vin lifir. Kristján Stefánsson, forseti Rótarýklúbbs Hafnarfjarðar.  Fleiri minningargreinar um Sig- urð Kristinsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: Telma Rós, Þórleifur Jónsson, Sveinn Hannesson og Har- aldur Sumarliðason. Konan mín, móðir okkar og systir, GUÐRÚN SIGRÍÐUR HAFLIÐADÓTTIR, Álftamýri 41, Reykjavík, andaðist á Landspítalanum í Fossvogi miðvikudaginn 7. september. Minningarathöfn verður í Háteigskirkju föstudaginn 16. september kl. 11.00 Jarðarför fer fram frá Oddakirkju á Rangárvöllum sama dag kl. 14.00. Arngrímur Jónsson, Hafliði Arngrímsson, Kristín Arngrímsdóttir, Snæbjörn Arngrímsson, Kristján Hafliðason og fjölskyldur. Ástkær faðir okkar, ÞORBJÖRN ÓLAFSSON, Hringbraut 50, andaðist sunnudaginn 4. september sl. Jarðarförin hefur farið fram. Guðrún Þorbjarnardóttir, Þór Ingimar Þorbjörnsson. Ástkær sonur okkar, bróðir, mágur og frændi, DAÐI ÞÓR GUÐLAUGSSON, Mávahlíð 6, Reykjavík, sem lést af slysförum mánudaginn 5. september síðastliðinn, verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju fimmtudaginn 15. september kl. 13:00. Guðlaugur S. Helgason, Margrét Á. Gunnarsdóttir, Helgi G. Guðlaugsson, Ágústa J. Sigurjónsdóttir, Ástrós Guðlaugsdóttir, Hilmar Höskuldsson, Símon S. Guðlaugsson, Ásta Rún Agnarsdóttir, Guðlaug Embla Helgadótir, Eiginmaður minn og faðir okkar, HÖRÐUR ÁGÚSTSSON listmálari, lést á Landspítala við Hringbraut aðfaranótt laugardagsins 10. september. Sigríður Magnúsdóttir, Gunnar Ágúst Harðarson, Steinunn Harðardóttir, Guðrún Harðardóttir. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SVEINBJÖRG GEORGSDÓTTIR, Hæðargarði 35, Reykjavík, lést á Landspítala Fossvogi fimmtudaginn 8. september. Ólöf Haraldsdóttir, Stefán Aðalsteinsson, Einar Haraldsson, Guðrún Ásgeirsdóttir, Ólafur Haraldsson, Jóna Jóhannsdóttir, Helgi Már Haraldsson, Ingibjörg Heiðrún Sigfúsdóttir, Magnús Þór Haraldsson, Þórey Magnúsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.