Morgunblaðið - 14.09.2005, Page 35

Morgunblaðið - 14.09.2005, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2005 35 Mat á umhverfisáhrifum Ákvörðun Skipulagsstofnunar um mats- skyldu framkvæmda Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að eftirtaldar framkvæmdir skuli ekki háðar mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/ 2000 um mat á umhverfisáhrifum. Náma í Laugarfelli í Fljótsdalshreppi Norðausturvegur, Arnarstaðir-Brekka í Öxarfjarðarhreppi Ákvarðanirnar liggja frammi hjá Skipulags- stofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þær er einnig að finna á heimasíðu Skipulagsstofn- unar: www.skipulag.is . Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til um- hverfisráðherra og er kærufrestur til 12. októ- ber 2005. Skipulagsstofnun. Efling-stéttarfélag Fulltrúakjör til ársfundar Starfs- greinasambands Íslands og ársfundar Alþýðusambands Íslands Allsherjaratkvæðagreiðsla verður viðhöfð við kjör fulltrúa á ársfund Starfsgreinasambands Íslands sem haldinn verður á Akureyri dagana 6.—7. október nk. og ársfund Alþýðusambands Íslands, sem haldinn verður í Reykjavík dagana 20.—21. október nk. Tillögur vegna ársfundar Starfsgreinasam- bands Íslands með nöfnum 46 aðalfulltrúa og jafnmörgum til vara, ásamt meðmælum 120 fullgildra félagsmanna, skulu hafa borist skrif- stofu Eflingar-stéttarfélags fyrir kl. 16.00 mið- vikudaginn 21. september nk. Tillögur vegna ársfundar Alþýðusambands Íslands með nöfnum 52 aðalfulltrúa og jafn- mörgum til vara, ásamt meðmælum 120 full- gildra félagsmanna, skulu hafa borist skrif- stofu Eflingar fyrir kl. 16.00 miðvikudaginn 28. september nk. Kjörstjórn Eflingar-stéttarfélags. Vegur um Arnkötludal og Gautsdal í Hólmavíkur- hreppi og Reykhólahreppi Mat á umhverfisáhrifum - úrskurður Skipulagsstofnunar Skipulagsstofnun hefur úrskurðað samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrif- um. Fallist er á, með skilyrðum, lagningu vegar um Arnkötludal og Gautsdal í Hólmavík- urhreppi og Reykhólahreppi. Úrskurðurinn í heild liggur frammi hjá Skipu- lagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Úrskurðinn er einnig að finna á heimasíðu Skipulagsstofnunar: www.skipulag.is . Úrskurð Skipulagsstofnunar má kæra til um- hverfisráðherra og er kærufrestur til 14. októ- ber 2005. Skipulagsstofnun. Félagslíf Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í kvöld kl. 20.00. Raðauglýsingar 569 1100 Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn Atvinnuauglýsingar augl@mbl.is UM síðustu helgi fór fram At- skákmót Íslands sem haldið var í húsakynnum Taflfélags Reykjavík- ur í Faxafeni 12. Teflt var með breyttu sniði þannig að engin und- ankeppni var haldin áður en komið var að 16 manna úrslitum heldur var mótið frá upphafi opið öllum. Þrátt fyrir það var teflt eftir út- sláttarfyrirkomulagi og skráði sig alls 51 keppandi sig til leiks og hófst taflið á föstudagskvöldið þar sem þeir sem voru í stigahærri hópnum samkvæmt íslenska at- skákstigalistanum tefldu við þá stigalægri. Óvæntustu úrslit kvöldsins voru þau þegar Kristján Örn Elíasson (1.875) sló út gamla brýnið Ingvar Ásmundsson (2.235). Þegar kom að annarri umferð voru 32 skákmenn eftir og bar þá helst til tíðinda að Halldór Brynjar Hall- dórsson (2.225) sló út alþjóðlega meistarann Jón Viktor Gunnarsson (2.460). Halldór Brynjar lét ekki staðar numið þar því að í næstu um- ferð vann hann Friðrik Ólafsson (2.490) eftir bráðabana. Kollegi Friðriks í stórmeistarastétt, Þröst- ur Þórhallsson (2.480), datt einnig út í sextán manna úrslitum þegar hann þurfti að lúta í lægra haldi fyrir alþjóðlega meistaranum Braga Þorfinnssyni (2.295). Einnig var það óvænt að Guðmundur Kjartansson (2.040) vann Stefán Kristjánsson (2.490) en í átta manna úrslitum tapaði Guðmundur fyrir höfundi þessara lína þegar hann fékk hálfan vinning úr tveim skákum. Halldór Brynjar byrjaði átta manna úrslitin vel þegar hann vann fyrri atskákina gegn Henrik Daniel- sen (2.511) en tapaði svo einvíginu eftir bráðabana. Í undan- úrslitunum mættust annars vegar Jóhann Hjartarson (2.620) og Henrik Danielsen og hinsvegar Hannes Hlífar (2.595) og Helgi Áss (2.560). Skemmst er frá því að segja að Hannes fékk yfirburðartafl snemma tafls í fyrri atskákinni gegn mér en eigi að síður tókst mér að halda lífi í stöðunni. Seigla Hannesar bar mig að lokum ofurliði svo að í næstu viðureign var að duga eða drepast fyrir mig. Hvítt: Helgi Áss Grétarsson Svart: Hannes Hlífar Stefánsson 1. c4 Rf6 2. g3 c6 3. Bg2 d5 4. Rf3 Bg4 Í stuttu máli þá var fræðilegri þekkingu minni á byrjuninni lokið þegar hér var komið sögu. Mér til huggunar vissi ég að andstæðing- urinn væri ekki heldur vanur þess- ari stöðu svo að ég vildi láta reyna á þá hugmynd sem kviknaði yfir borðinu og fólst í níunda leik hvíts. 5. Re5 Bf5 6. cxd5 cxd5 7. Da4+ Rbd7 8. Rc3 e6 9. g4! Stöðulega gengur þessi leikur út á það að ef svartur hörfar með bisk- upinn á g6 að þá komi h2-h4 og vegna hótunarinnar h4-h5 verði svartur að leika h-peðinu sínu en þá splundrast peðastaða hans eftir Re5xg6. Svartur afréð því að leika 9. … Bc2 10. Rxf7! Öflugasta framhaldið þar sem eftir 10. … Bxa4 11. Rxd8 Hxd8 12. Rxa4 Rxg4 13. Bh3 verður hvítur óumflýjanlega peði yfir. 10. … Kxf7 11. Dxc2 Rxg4 12. Rxd5! Þessi leikur er áferðarfallegur þar sem svartur má ekki taka manninn sbr. t.d. 12. … exd5 13. Bxd5 Kf6 14. De4 Rge5 15. d4 og hvítur vinnur. 12. … Dh4 13. Dc7 Hd8?? Tölvuheili hefur bent á að 13. … Ke8 hefði haldið spennu í stöðunni þó að hvítur standi betur að vígi eft- ir 14. Dxb7 Dxf2+ 15. Kd1 Hb8 16. Dc6 exd5 17. De6+ Be7 18. Dxg4. 14. Df4+ og svartur gafst upp enda staðan ófögur á að líta eftir 14. … Kg8 15. h3. Ég vona að vinur minn Hannes fyrirgefi mér að ég birti skák þessa en það verður ekki af honum tekið að hann sýndi mikinn sigurvilja í bráðabanaskákunum okkar þar sem í fyrri skákinni var hann kominn í umtalsverð vandræði en náði jafn- tefli og í þeirri síðari stóð hann einnig lakar þegar hann hristi úr erminni fórn sem ég brást ekki rétt við og í framhaldinu bar Hannes sigur úr býtum. Meðan á skákum okkar Hannesar stóð sigraði Jó- hann Henrik Danielsen með einum og hálfum vinningi gegn hálfum. Því er það svo að rétt eins og á síð- asta ári munu Jóhann Hjartarson og Hannes Hlífar Stefánsson tefla til úrslita um Íslandsmeistaratitil- inn í atskák. Einvígið mun fara fram í sjónvarpssal Ríkisútvarpsins og má þá hafa í huga hið fræga leik- rit – á sama tíma að ári. Rimaskóli lenti í þriðja sæti á NM Skáksveit Rimaskóla hafnaði í 3. sæti á Norðurlandamóti barna- skólasveita sem fram fór um helgina í Ósló í Noregi. Lokastaða keppninnar varð þessi: 1. Svíþjóð 14½ vinning af 20 mögulegum. 2. Noregur I 13 v. 3. Ísland, Rimaskóli 12½ v. 4. Noregur II 11 v. 5. Danmörk 7 v. 6. Finnland 2 v. Varamaður Rimaskóla, Júlía Guðmundsdóttir, tefldi enga skák á mótinu en hinir fjórir sveitarmeð- limirnir tefldu fimm skákir og var árangur þeirra eftirfarandi: 1. borð: Hjörvar Steinn Grétarsson 3 v. 2. borð: Hörður Aron Hauksson 3 v. 3. borð: Sverrir Ásbjörnsson 3 v. 4. borð: Júlía Rós Hafþórsdóttir 3½ v. Nánari upplýsingar um keppnina er að finna vefsíðunni www.skak.is. Róbert lenti í 2.–4. sæti í Ungverjalandi Þegar tveim umferðum var ólokið á alþjóðlegu móti í Ungverjalandi þurfti Róbert Harðarson á tveim sigrum á að halda til að ná áfanga að alþjóðlegum meistaratitli. Hann fékk hins vegar aðeins hálfan vinn- ing og lauk því keppni með 5½ vinn- ing af 9 mögulegum og lenti í 2.–4. sæti. Lokastaða mótsins varð ann- ars þessi: 1. Zdenko Stupavski (2.337) 7 v. 2.-4. Róbert Harðarson (2.361), Evarth Kahn (2.307), Gabor Pirisi (2.294) 5½ v. 5. Bela Lengyel (2.284) 5 v. 6.-7. Svetlana Vasilkova (2.308) og Juergen Brustkern (2.250) 4½ v. 8. Sandor Farago (2.284) 4 v. 9. Dr. Freerk Bulthaupt (2.185) 2½ v. 10. Laszlo Mihok (2.201) 1 v. Nánari upplýsingar um mótið er að finna á heimasíðu þess, firstsat- urday.freeweb.hu. Á sama tíma að ári SKÁKSkáksamband ÍslandsATSKÁKMÓT ÍSLANDS 9.–11. september 2005 HELGI ÁSS GRÉTARSSON daggi@internet.is Jóhann Hjartarson Hannes Hlífar Stefánsson HÚSGAGNAHÖLLIN opnaði 23. júlí sl. þriðju hæð verslunarinnar. Í tengslum við opnunina var opnunarleikur á hverri hæð sem stóð yfir í 3 vikur. Dregið hefur verið í leiknum og á myndinni má sjá vinnings- hafana. Talið frá vinstri er Birgir Frið- jónsson, rekstrarstjóri Húsgagnahall- arinnar, Kári Friðriksson og fjölskylda, en hann vann vikuferð fyrir 4 til Flórída með Icelandair ásamt gistingu og miðum í Disney World og Guðríður Harðardóttir og fjölskylda, en hún vann helgarferð til Kaupmannahafnar með Icelandair ásamt gistingu og miðum í Tívolí. Á myndina vantar Guðbjörgu Helgadóttur sem vann 100.000 kr. inneign í Húsgagnahöllinni. Vann ferð fyrir fjóra til Flórída ALÞJÓÐAHÚSIÐ hefur opnað nýja vefsíðu www.ahus.is. Á henni má finna fjölbreyttar upplýsingar um íslenskt samfélag: eyðublöð til að panta túlk á Netinu, eyðublað til að skrá sig í tungumálaskipti, upplýsingar um menningar– og trúfélög, upplýsingar um reglur varðandi dvalar- og atvinnuleyfi, eyðublöð til að skrá sig á tölvu- póstlista og verða áskrifandi að blaði Alþjóðahússins. Vefsíðan er á íslensku og ensku, einnig má finna upplýs- ingar um starfsemi Alþjóðahúss á 10 tungumálum til viðbótar, pólsku, spænsku, víetnömsku, taí- lensku, arabísku, serbnesku, alb- önsku, króatísku, rússnesku, og frönsku. Upplýsingar á tólf tungumálum Kynningarstjóri norræna skálans RANGT var farið með starfsheiti Kristínar Ingvarsdóttur, starfs- manns á heimssýningunni í Japan, í blaðinu í gær. Hið rétta er að Kristín er kynningarstjóri norræna skálans. Beðist er velvirðingar á rangherm- inu. Leiðrétt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.