Morgunblaðið - 14.09.2005, Qupperneq 36
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
ÞÚ GETUR EKKI FENGIÐ
ALLT SEM ÞÚ VILT
EN ÉG
GET ÞAÐ
VIÐ ÆTLUM
AÐ GERA
SVOLITLA
TILRAUN
KYLFINGURINN OKKAR
HEFUR HANNAÐ NÝJAN ORKU-
DRYKK SEM MUN KOMA Í
VEG FYRIR ÓÞARFA
VÖKVATAP
FARIÐ Í RÖÐ. ÞIÐ FÁIÐ ÖLL
EINN SOPA AF ÞESSUM
UNDRADRYKK
GETURÐU EKKI HAFT
HANN AFTAST Í RÖÐINNI
HÉRNA ER TVÖ HUNDRUÐ
KALLINN ÞINN, KALVINN
EINHVER KJAFTAÐI. EF
ÉG KEMST AÐ ÞVÍ HVER
ÞAÐ ER ÞÁ LÚBER
ÉG HANN
ÉG ÆTTI AÐ NOTA TVÖ
HUNDRUÐ KALLINN MINN
TIL AÐ HRINGJA Í
TRYGGINGARNAR
HVOR EYRNALOKKURINN FER
BETUR VIÐ ÞENNAN KJÓL?
SÁ BLEIKI
ÞESSI ER
RAUÐUR... ... OG ÞESSI ERGULUR
ÉG ER ENGINN
TÍSKU-
SÉRFRÆÐINGUR
GANG-
BRAUT
HVAÐ
ERTU AÐ
GERA?
SETJA
VASELÍN Í
HÁRIÐ
AF
HVERJU?
ÞVÍ ÉG VIL
EKKI VERA
VALINN TIL AÐ
SITJA Í
KVIÐDÓMNUM
ÞANNIG
AÐ ÞÚ
ÆTLAR AÐ
KLÆÐA ÞIG
EINS OG
ÓÞOKKI?
ÉG MÁ
EKKI VIÐ ÞVÍ
AÐ TAKA
MÉR FRÍ FRÁ
VINNUNNI
HVAÐ
MEÐ
SJÁLFS-
VIRÐINGUNA
VONANDI
ER ÉG EKKI
BÚINN AÐ
HENDA
HAUSKÚPU-
BOLNUM
ÉG ÆTLA AÐ
DRÍFA MIG MEÐ
MYNDINA
ERTU AÐ
GLEYMA ÞVÍ AÐ
ÉG TÓK HANA?
EN EF ÞÚ VILT FÁ
HEIÐURINN, ÞÁ...
ÞETTA ER Í GÓÐU LAGI. ÉG
VAR AÐ MUNA EFTIR TÖSKU
SEM MIG LANGAR Í
VIÐ FENGJUM MUN MINNA FYRIR
HANA EF JAMESON VISSI AÐ ÞÚ
HEFÐIR TEKIÐ HANA...
Dagbók
Í dag er miðvikudagur 14. september, 257. dagur árs-
ins 2005
Víkverji hefur veriðað undra sig á því
að hvorki hósti né
stuna hefur heyrst í
fjölmiðlum eftir tón-
leika Gospelkórs
Reykjavíkur og Páls
Rósinkranz í Laug-
ardalshöll á dögunum.
Höllin var nánast troð-
full og meðal hátt í
þrjú þúsund gesta var
Víkverji. Þetta var
strax í kjölfar lands-
leiks Íslendinga og
Króata í Laug-
ardalnum, þar sem
litlu fleiri áhorfendur
mættu.
Þetta voru satt best að segja frá-
bærir tónleikar. Litlu munaði að Vík-
verji hreinlega frelsaðist, því hann
hefur nú ekki verið viðstaddur tón-
leika með þessum ágætu andans
listamönnum fyrr, nema þá fyrir
framan sjónvarpið á jólum.
Kórinn, stjórnandinn Óskar Ein-
arsson, stórsveitin og Páll fóru á
kostum í Höllinni. Sér í lagi Óskar
sem var algjör hamhleypa á sviðinu.
Stökk oft hæð sína í loft upp. Og það
er ekkert ofsögum sagt að stórsveitin
er í heimsklassa. Þvílíkt og massað
band!
Páll er einnig í heimsklassa en
hefði bara að mati Vík-
verja mátt syngja
meira, nógu kröft-
uglega var hann klapp-
aður upp, drengurinn.
Fyrst Víkverji er á
annað borð sestur
tímabundið í sæti list-
gagnrýnanda langar
hann að koma á fram-
færi smávegis at-
hugasemdum til lista-
manna og tónleika-
haldara.
Ekki veit Víkverji
nákvæmlega af hverju
hver einasti kórfélagi
er með míkrafón í
hendi en þegar kom að hæstu tónum
flöttust þeir út og virkuðu hreinlega
sem skrækur í eyrum Víkverja.
Kannski voru græjurnar bara of hátt
stilltar, enda kvörtuðu víst einhverjir
tónleikagestir í hléinu yfir hávaða. Að
öðru leyti skilaði ómþýður söngurinn
sér mjög vel.
Þá skilur Víkverji ekki hvernig
hægt er að selja í pallana milli gólfs
og stúku á hæsta verði því þar er
þröngt og óþægilegt að sitja. Ágætt
útsýni og tónlistarvíma spillist vegna
óþæginda í afturenda og útlimum.
Þetta mætti gjarnan hinn ötuli Einar
Bárðarson hafa í huga, næst þegar
hann fyllir Höllina.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Borgarleikhúsið | Barnaleikhúsmessa var haldin í Borgarleikhúsinu í gær. Á
Nýja sviðinu voru sýnd atriði úr 14 leiksýningum sem eru fyrir börn og ung-
linga. Yfir 20 leikverk voru kynnt, ýmist sem leikbrot á sviði eða í anddyri
Borgarleikhússins. Þeir sem tóku þátt í barnaleikhúsmessunni eru allt at-
vinnumenn í dans- og leiklist.
Barnaleikhúsmessa er nýbreytniverkefni sem er ætlað tengiliðum í leiklist
í leik- og grunnskólum í Reykjavík. Hún veitir áhorfendum tækifæri til að
njóta fjölbreyttra sýningaratriða og um leið tækifæri til að velja sýningar
fyrir sína skóla fyrir yfirstandandi skólaár.
Morgunblaðið/Þorkell
Barnaleikhúsmessa
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.600 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Vakna þú, sál mín, vakna þú harpa og gígja, ég vil vekja morgunroð-
ann. (Sálm. 57, 9.)