Morgunblaðið - 14.09.2005, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2005 45
KRINGLAN AKUREYRI KEFLAVÍK
NÝ GAMANMYND FRÁ
LEIKSTJÓRA
ÍSLENSKA DRAUMSINS
OG MAÐUR EINS OG
kl. 6 B.i. 16
kl. 10.40 B.i. 16
m/ísl.tali. kl. 3.50 - 6
m/ensku kl. 6 - 8.15 - 10.30
kl. 8.15 - 10.30
m/ísl.tali. kl. 4
CHARLIE AND THE CHOCOLATE FACTORY
kl. 5.45 - 8 - 10.15
STRÁKARNIR OKKAR kl. 8 - 10 b.i. 14
DUKES OF HAZZARD kl. 8.15 10.30
RACING STRIPES m/ísl.tali. kl. 5.50
BATMAN BEGINS kl. 5.45 B.i. 12 ára.
CHARLIE AND THE CHOCOLATE FACTORY
kl. 6 - 8 - 10
RACING STRIPES kl. 6
STRÁKARNIR OKKAR kl. 8 - 10 b.i. 14
CHARLIE AND THE CHOCOLATE
kl. 8 - 10.15
DECK DOGZ kl. 8
DUKES OF HAZZARD kl. 10.15
S.V. / Mbl.
Með hinum eina sanna Johnny Depp (“Pirates of the Caribbean”) og
frá snillingnum Tim Burton kemur súkkulaðiskemmtun ársins.
i i ( i t f t i )
f illi i t l i t i .
H.J. / Mbl.
TOPP5.IS
KVIKMYNDIR.COM
KVIKMYNDIR.IS Ó.H.T. / RÁS 2
DV
Búið ykkur undir bragðbestu skemmtun ársins. Sat tvær vikur á toppnum í USA.i i t t i . t t i t í .
Kalli og sælgætisgerðin
LANG VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG
NÝ GAMANMYND FRÁ LEIKSTJÓRA ÍSLENSKA
DRAUMSINS OG MAÐUR EINS OG ÉG
TILURÐ þessarar bráðskemmti-
legu plötu er sú að nokkrir meðlimir
í Vélhjólaíþróttaklúbbnum voru
fengnir til að skemmta með tónlist á
árshátíð klúbbsins árið 1998. Sveitin
var þá óspilandi með öllu en grínið
heppnaðist vel og vatt upp á sig með
ári hverju. Að endingu var afráðið að
Stimpilhringirnir, eins og þeir fé-
lagar kalla sig, myndu spila upp-
safnað efni inn á plötu því „annars
myndi þessi „steypa“ einfaldlega
gleymast“ eins og fram kemur í
bæklingi plötunnar.
Höfuðpaur Hringjanna er Heimir
nokkur Barðason sem á sér nokkuð
merkilega fortíð í íslensku tónlistar-
lífi. Heimir var nefnilega meðlimur í
síðpönksveitinni Jonee Jonee sem
átti eftirminnilegt innslag í Rokk í
Reykjavík og kom meira að segja
breiðskífu út, Svonatorrek. Tónlist
Stimpilhringjanna ber nokkur merki
þessa baklands en hún er í grunninn
keyrslupönk með dassi af tilrauna-
starfsemi þeirri sem síðpönkið bar
með sér. Minnir stundum á S/H
Draum í upphafi ferilsins. Græsku-
laust árshátíðarflippið er orðið að
hinu burðugasta rokki og róli og þó
að platan sé ekki nema átta laga og
örstutt að lengd heldur hún fullri
keyrslu allan tímann. Fimm hundr-
uð sé sé“ og „Hafsteinn hestafl“ eru
skítugir tuddarokkarar og „Til-
hlökkunarskita“ er sýrt og beyglað,
vel heppnað tilraunarokk. Hljóð-
færaleikur er hrár og lifandi og
söngur Heimis er kraftmikill og nett
geðveikur þegar það á við. Textarnir
eru glenskenndir þar sem á skiptast
skin og skúrir. Undir öllu er þó blind
ástríða fyrir vélfákum og hlustendur
fá ágæta innsýn í tilvist hins einarða
vélhjólamanns.
Frágangur plötunnar, umslags-
hönnun og slíkt er vandað og fag-
mannlegt og Í botni … er dásamleg
sönnun þess að stundum er vel þess
virði að þrykkja „steypunni“ á plast.
Stimpil-
hringjastuð
TÓNLIST
Íslenskar plötur
Stimpilhringirnir eru Heimir Barðason
(Lopi) en hann syngur og leikur á kassa-
bassa, gítara og fleiri hljóðfæri. Jón B.
Bjarnason (Guð) sér þá um trommuslátt,
Þorvarður Björgúlfsson (Varði) leikur á
kassagítar og Þorsteinn Marel Þor-
steinsson (Steini Tótu) leikur á raf-
magnsgítar. Þeim til aðstoðar voru Eyjólf-
ur Þorleifsson (baritón saxafónn),
Halldór Kristinn Júlíusson (rafmagns-
gítar) og Hjörvar Hjörleifsson (rafmagns-
gítar). Upptökustjórn var í höndum Hjörv-
ars. Lög og textar eru eftir Heimi
Barðason utan að Magnús Þór Sveinsson
á einn texta. Plötuna er hægt að nálgast
í JHM Sport Stórhöfða 35 og Moto, Net-
hyl 1 eða með því að senda tölvupóst á
heimir@frisk.is
Stimpilhringirnir – Í botni …
Arnar Eggert Thoroddsen