Morgunblaðið - 14.09.2005, Síða 48

Morgunblaðið - 14.09.2005, Síða 48
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Opið 8-24 alla daga í Lágmúla og Smáratorgi LEITIN að Friðriki Ásgeiri Her- mannssyni, sem saknað er eftir að skemmtibáti hvolfdi á Viðeyjarsundi á laugardag, bar ekki árangur í gær, og er hann formlega talinn af. Að sögn Þor- valdar Friðriks Hallssonar hjá svæð- isstjórn björgunarsveita var leitað frá morgni langt fram á kvöld. Leitað var með sónartækjum, eða botnsjám úr björgunarskipinu Baldri frá Landhelgisgæslunni, auk þess sem notast var við neðansjávarmyndavél úr björg- unarbátnum Ásgrími S. Björnssyni. Alls tóku um 30 manns þátt í leitinni. Síðdegis í gær var farið yfir stöðuna og metið hvernig leit skyldi háttað næstu daga. Jónas Hallsson, aðstoðaryfirlög- regluþjónn hjá Lögreglunni í Reykjavík, segir að leit verði haldið áfram á morg- un, en ef hún beri ekki árangur verði væntanlega gert hlé á formlegri leit þar til um helgina þegar viðamikil leit verði sett í gang. Í dag er ráðgert að hefja leit í fjörum með litlum bátum kl. 9, auk þess sem Jón- as segir trúlegt að vinir og ættingjar Friðriks leiti hans áfram af landi. Hugs- anlega verði beitt hægfara flugvél sem ættingjarnir fá aðgang að. Rannsókn lögreglunnar stendur enn yfir og stóð til í gær eða í dag að taka skýrslur af hjónunum sem komust lífs af úr slysinu. Rannsókn lögreglu miðar m.a. að því að upplýsa atburðarásina fyrir slysið. Við rannsóknina verða sigl- ingatæki bátsins skoðuð auk allra ann- arra gagna sem komið geta að gagni við rannsóknina. Morgunblaðið/Kristinn Leitað var frá björgunarskipinu Baldri (nær) og Ásgrími S. Björnssyni með són- artækjum og neðansjávarmyndavélum. Árangurslaus leit fram eftir kvöldi á Við- eyjarsundi SÍÐASTI Íslendingurinn sem sakn- að var eftir hamfarirnar í Bandaríkj- unum, Rita Daudin, sem búsett var í New Orleans, hefur nú látið vita af sér. Ekkert amaði að henni enda flúði hún borgina áður en fellibylurinn skall á. Þar með hafa allir Íslendingarnir sem vitað var um að hefðu verið á flóðasvæðunum í Bandaríkjunum þegar hamfarirnar urðu látið vita af sér og ljóst að enginn Íslendingur lést eða slasaðist alvarlega, segir Pét- ur Ásgeirsson, skrifstofustjóri í utan- ríkisráðuneytinu. Hann segir að eng- ar fregnir hafi borist af því að Íslendingar hafi misst aleiguna í hamförunum þótt einhverjir hafi misst hús sín. Allir Íslend- ingarnir hólpnir FISKSÖLUFYRIRTÆKIÐ Atl- antis Group undirritaði í gær samn- ing við Daito Gyorui í Japan, sem er stærsti fiskmarkaðurinn í Tókýó og sá annar stærsti í heimi. Samning- urinn snýst um kaup Japana á fiski frá Atlantis næstu fimm árin, að- allega eldisfiski eins og laxi og tún- fiski. Nemur andvirði samningsins um 40 milljörðum jena, eða rúmum 22 milljörðum króna, þannig að um umfangsmikil viðskipti er að ræða. Óli Valur Steindórsson, forstjóri Atlantis Group, undirritaði samn- inginn fyrir hönd fyrirtækisins en viðstaddur var Davíð Oddsson ut- anríkisráðherra og margir úr við- skiptasendinefndinni sem nú er á ferð um Japan. Gærdagurinn hófst einmitt hjá nefndinni með heim- sókn á fiskmarkaðinn í Tókýó. Veltan fer í 16 milljarða Atlantis er fjölþjóðlegt fiskeldis- og fisksölufyrirtæki með starfs- stöðvar í 14 löndum en höfuðstöðv- ar eru á Íslandi. Fyrirtækið sér- hæfir sig í eldi og sölu á laxi og túnfiski. Það er að þriðjungi í eigu Óla Vals Steindórssonar en aðrir eigendur koma m.a. frá Japan og Ástralíu. Þá á Íslandsbanki 15% hlut, sem samkvæmt upplýsingum blaðsins er tímabundin eign bank- ans. Atlantis hefur nýlega kynnt áætl- anir um veltuaukningu úr 180 millj- ónum Bandaríkjadala á þessu ári í 250 milljónir dollara á því næsta, eða um 16 milljarða króna, og tryggir samningurinn í Japan stærstan hluta þeirrar veltuaukn- ingar. Að sögn Árna Páls Einarssonar, sölustjóra Atlantis í Japan, kemur eldisfiskurinn að mestu frá Króatíu, Chile og Mexíkó. Ekki séu uppi áform um að svo stöddu að flytja út eldisfisk frá Íslandi, hvað sem síðar gerist. Stór áform í Asíu Eins og kom fram í Kínaheim- sókn Ólafs Ragnars Grímssonar sl. vor þá hefur Atlantis uppi stór áform um fisksölu í Asíu. Í þeirri heimsókn var einmitt undirritaður samningur um byggingu stærðar- innar frystigeymslu í Kína sem á að geta hýst um 50 þúsund tonn af fiski í einu. Mun Samskip sjá um rekstur geymslunnar fyrir Atlantis og kínverskt fyrirtæki. Þaðan stendur til að dreifa fiski til Japans, Kína, Kóreu og Ástralíu. Risasamningur Atlantis Group við einn stærsta fiskmarkað í heimi Fisksölusamningur við Japani upp á 22 milljarða Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is ÁKAFINN bætti stærðarmuninn upp í þessu annars óhefðbundna reiptogi sem fór fram í frímínútum í Laugarnesskóla í gær, þó að ekki fylgi sögunni hver stóð uppi sem sigurvegari þegar bjallan hringdi. Kennarinn hafði þó að sjálfsögðu vökult auga með leiknum þar til kennslan hófst á ný. Morgunblaðið/Ásdís Reiptog með frjálsri aðferð í frímínútunum SAKSÓKNARI í Baugsmálinu krafðist þess fyrir dómi í gær að ákæran í málinu yrði látin standa óbreytt, verknaðarlýsingar sem þar kæmu fram væru fullnægjandi og því ekki ástæða til að vísa málinu frá dómi. Verjandi Jóns Ásgeirs Jó- hannessonar sagði gallana á ákær- unni aftur á móti svo mikla að mál- inu ætti að vísa frá í heild sinni og að ákæran bæri þess greinileg merki að vera unnin í miklum flýti. Úrskurður verður væntanlega kveðinn upp á þriðjudaginn kemur. Jón H. Snorrason, saksóknari og yfirmaður efnahagsbrotadeildar rík- islögreglustjóra, sagði m.a. að hægt væri að lýsa fjárdrætti með ýmsum hætti og í ákæru þyrfti ekki að fara nákvæmlega eftir orðalagi í lögum. Benti Jón dómurum á nokkra hér- aðs- og hæstaréttardóma máli sínu til stuðnings. Þá benti hann á að í mörgum málum hefðu gallar í ákæru ekki komið í veg fyrir að hægt væri að kveða upp dóm, aðalatriðið væri að sakborningar gerðu sér grein fyr- ir þeim sökum sem bornar væru á þá. Dómarar spurðu fárra spurninga og í viðtali við fréttamenn að loknu þinghaldi játaði Jón því að erfitt hefði verið að gera grein fyrir mál- inu og sagði að það væri óljóst hvaða hugmyndir dómararnir hefðu. Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ás- geirs Jóhannessonar, sagðist telja að slíkir annmarkar væru á málinu að því yrði að vísa frá í heild sinni en að hugsanlega gæti ákæruvaldið höfðað mál vegna þeirra ákæruliða sem ekki hefði verið gerðar athuga- semdir við. Saksóknari segir ekki annmarka á ákærunni í Baugsmálinu Krefst þess að ákæran í málinu verði óbreytt Verjandi sagði gallana á ákærunni svo mikla að vísa eigi málinu frá í heild  Verjandi vill/24

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.