Morgunblaðið - 19.09.2005, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2005 43
DAGBÓK
Brynhildur Ólafsdóttir fréttamaður, semsinnir starfi forstöðumanns Alþjóða-málastofnunar og Rannsóknarsetursum smáríki við Háskóla Íslands næsta
árið, í fjarveru Ásthildar Elvu Bernharðsdóttur,
er ánægð með að víkka sjóndeildarhringinn og
efla andann með tímabundinni breytingu. „Ég
verð í hlutastarfi á Stöð 2 á meðan ég verð hér.
Verð aðeins með puttana í erlendu fréttunum þó
ég gangi ekki vaktir. En að ári liðnu fer ég aftur
„heim“ á Stöð 2,“ segir Brynhildur.
Það stóð þá aldrei til að hætta í frétta-
mennsku?
„Nei. Ég held maður sé orðinn svolítið háður
hraðanum í því starfi og það tekur tíma að venj-
ast því sem ég er að gera núna. Ég var vön að sjá
alltaf eitthvað liggja eftir mig á hverju kvöldi, en
hér tekur allt lengri tíma; alltaf er verið að und-
irbúa eitthvað sem kemur svo í ljós síðar. En það
er líka ágætt að breyta til vegna þess að í frétta-
mennskunni krafsar maður aðallega í yfirborð-
inu, sérstaklega í sjónvarpsfréttum, en í þessu
starfi fær maður tækifæri til að kafa dýpra og
skoða málin nánar. Það er því ágætt að blanda
þessu saman.“
Þannig að þér hlotnast ef til vill góð reynsla
fyrir áframhaldið í gamla starfinu eftir ár?
„Já, þetta styður mjög vel hvað við annað. Ég
hef verið í stundakennslu hér við háskólann und-
anfarin ár og hefur fundist það voða gaman,
vegna þess að það gefur mér tækifæri til að halda
tengslum við fræðin og fá þá djúpu nálgun sem
mér finnst oft vanta í fréttirnar. Ég held það sé
bæði gott fyrir háskólasamfélagið að fá ut-
anaðkomandi inn í turninn og öfugt, að fá fræði-
legt blóð inn í fréttaumfjöllunina.“
Í hverju felst nýja starfið?
„Það er margvíslegt. Þetta eru tvær stofnanir;
Alþjóðamálastofnun og undir henni er svo Rann-
sóknarsetur um smáríki. Þverfaglegar stofnanir
og vettvangur fyrir rannsóknir, en Ísland er að
verða helsta miðstöð smáþjóðarannsókna í heim-
inum. Hér er líka blómleg útgáfustarfsemi og
þrjár bækur væntanlegar eftir áramót; í fyrsta
lagi bók um smáríkjafræði, síðan mjög spennandi
bók um utanríkisstefnu Íslands eftir lok kalda
stríðsins – bók sem á eftir að vekja umræðu því
þar eru mjög beittar og gagnrýnar greinar – og
síðan bók um alþjóðamál almennt þar sem ungir
fræðimenn fá tækifæri til að koma sínum verkum
á framfæri. Loks tökum við þátt í ýmiskonar ráð-
stefnuhaldi og málstofum. Sendum til dæmis ís-
lenska fræðimenn til Líbanon í lok mánaðarins
og ætlum að koma á samstarfi við líbanska fræði-
menn. Þótt annað kunni að virðast eiga löndin
margt sameiginlegt; hvort tveggja lítil lönd í jaðri
hins stóra og sterka Evrópusambands.“
HÍ | Forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar og Rannsóknarseturs um smáríki
Kafa dýpra í málin næsta árið
Brynhildur Ólafs-
dóttir er Grundfirðingur
í húð og hár, fædd 1967.
Hún er stjórnmála-
fræðingur frá HÍ og með
mastersgráðu í al-
þjóðastjórnmálum frá
Columbia-háskóla í
New York í Bandaríkj-
unum. Brynhildur hefur
undanfarin 17 ár starf-
að við fjölmiðla; á dag-
blöðum, í útvarpi og sjónvarpi og hefur síðustu
árin verið yfirmaður erlendra frétta á frétta-
stofu Stöðvar 2. Unnusti og verðandi eig-
inmaður hennar er Róbert Marshall for-
stöðumaður fréttasviðs 365 ljósvakamiðla.
Jákvæð hugsun.
Norður
♠97642
♥KD5
♦4
♣ÁD103
Suður
♠ÁG3
♥Á
♦Á9876532
♣G
Suður verður sagnhafi með sex tígl-
um og fær út smátt lauf.
Hvernig er best að spila?
Oft er auðveldara að spila veika
samninga, því þá þarf að gefa sér já-
kvæðar forsendur varðandi leguna. Í
þessu tilfelli er það augljóslega skilyrði
að trompið komi 2-2. En það eitt dugir
ekki eftir þetta eitraða útspil, því eitt-
hvað verður að gera við tapslagina
heima á spaða.
Nú, það verður að halda áfram að
hugsa jákvætt – vestur þarf að eiga
laufkóng.
Norður
♠97642
♥KD5
♦4
♣ÁD103
Vestur Austur
♠D108 ♠K5
♥10972 ♥G8643
♦KG ♦D10
♣K764 ♣9852
Suður
♠ÁG3
♥Á
♦Á9876532
♣G
Laufdrottningu er svínað, hjartaás
hent í laufás (sem er alltaf gaman), og
svo fara þristur og gosi í spaða niður í
hjartahjónin. Allt gengur þetta að ósk-
um og þá er bara að spila tígulás og
tígli.
Vinningslíkur eru tæplega 20%.
(Líkur á 2-2 legu eru 40%, sem lækkar
í 20% þegar vestur þarf að eiga lauf-
kóng, og einhver stunguhætta er líka
til staðar.)
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Leikfimi kl. 9 með
Guðnýju, boccia kl. 10, vinnustofa
opin frá kl. 9–16.30. Félagsvist alla
mánudaga kl. 14. Allir velkomir.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–14. Handa-
vinna kl. 9–16.30. Smíði/útskurður
kl. 9–16.30. Félagsvist kl. 13.30.
Púttvöllur kl. 10–16.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, bútasaumur, fótaaðgerð,
samverustund.
Dalbraut 18 – 20 | Félagsstarfið er
öllum opið kl. 9–16. Fastir liðir eins
og venjulega. Skráning stendur yfir
í postulíns- og framsagnarnám-
skeið. Komdu í heimsókn, kíktu í
blöðin, fáðu þér kaffisopa og
kynntu þér haustdagskrána. Við
getum líka sent þér netbréf. Sím-
inn okkar er 588 9533.
FEBÁ, Álftanesi | Haukshús,
mánudagur 19. sept. kl. 13–16. Ilm-
andi kertagerð í umsjón Vilborgar.
Kaffiveitingar að hætti Álftnesinga.
Félag eldri borgara í Kópavogi |
Skrifstofan er opin í dag frá kl. 10.
til 11.30. Félagsvist verður spiluð í
kvöld í Gullsmára kl 20.30.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 |
Gullsmárabids. Bridsdeild FEBK í
Gullsmára spilar alla mánu- og
fimmtudaga. Þátttökugjöld kr. 200.
Skráning kl. 12.45. Spil hefst
stundvíslega kl. 13. Kaffi og heima-
bakað meðlæti fáanlegt í spilahléi.
Allir eldri borgarar velkomnir.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Kvennaleikfimi kl. 9, 9.45, 10.30 og
11.15 í Kirkjuhvoli. Glerskurður og
postulínsmálun kl. 13 í Kirkjuhvoli.
Tölvur kl. 17 í Garðaskóla. Opið í
Garðabergi kl. 12.30–16.30.
Félagsstarfið Langahlíð 3 | Nám-
skeið í geisladiskasaum kl. 9–12.
Námskeið í postulínsmálun kl. 13–
17. Handmennt í iðjustofu kl. 13–17.
Gerðuberg, félagsstarf | Kl. 9–
16.30 vinnustofur opnar, m.a. al-
menn handavinna, umsjón Eliane
Hommersand. Frá hádegi spilasalur
opinn. Kl. 14.45 kóræfing hjá
Gerðubergskór, stjórnandi Kári
Friðriksson, nýir félagar velkomnir.
Allar uppl. á staðnum og í síma
575 7720.
Hraunbær 105 | Kl. 9 perlusaumur,
kaffi, spjall, dagblöðin. Kl. 10 fóta-
aðgerð, bænastund. Kl. 12 hádeg-
ismatur. Kl. 13 skrautskrift. Kl. 15
kaffi.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnu-
stofa kl. 9–16 hjá Sigrúnu, silki- og
glermálun, kortagerð. Jóga kl. 9–11.
Böðun virka daga fyrir hádegi.
Frjáls spilamennska kl. 13–16. Fóta-
aðgerðir 588 2320.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er
opið öllum 9–16. Fastir liðir eins og
venjulega. Skráning á tölvu-, list-
þæfingar- og framsagnarnámskeið
stendur yfir. Síminn er 568 3132.
Korpúlfar, Grafarvogi | Sund-
leikfimi í Grafarvogssundlaug á
morgun kl. 9.30.
Laugardalshópurinn í Þróttar-
heimilinu | Leikfimi í dag kl. 14 í
Þrótti.
Norðurbrún 1, | Kl. 9 smíði, kl. 10
ganga, kl. 13–16.30 opin vinnustofa.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir. Kl. 9.15–15.30
handavinna. Kl. 9–10 boccia. Kl. 11–
12 leikfimi. Kl. 11.45–12.45 hádeg-
isverður. Kl. 13–16 kóræfing. Kl.
13.30–14.30 leshópur. Kl. 14.30–
15.45 kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðjan,
bókband og bútasaumur kl. 9,
morgunstund kl. 9.30, boccia kl. 10,
handmennt, glerbræðsla og frjáls
spil kl. 13.
Kirkjustarf
Árbæjarkirkja | STN – 7–9 ára
starf. Hittumst í skóla Norð-
lingaholts á mánudögum kl. 15.00.
Söngur, sögur, leikir og ferðalög
fyrir hressa krakka. Helgi- og fyr-
irbænastund í Hraunbæ 103 alla
mánudaga 10–10.30. Umsjón sr. Þór
Hauksson og Krisztina Kalló Sklen-
ár, organisti.
Fella- og Hólakirkja | Stelpustarf,
6.–7. bekkur, alla mánudaga kl.
16.30–17.30. Æskulýðsstarf – KGB,
8.–10. bekkur, alla mánudaga kl.
20–22.
Grafarvogskirkja | Haustferð eldri
borgara verður farinn 20. sept. kl.
10 frá Grafarvogskirkju. Farið verð-
ur í Stykkishólm, norska húsið og
kirkjan skoðuð. Komið verður við í
Bjarnarnesi á leiðinni heim.
Hafnarfjarðarkirkja | Alfa-
námskeið. Á námskeiðinu er rætt
um 14 veigamiklar spurningar um
tilgang lífsins og kristna trú. Kynn-
ingarkvöld verður haldið í Hafn-
arfjarðarkirkju mánudaginn 19.
sept. kl. 19, námskeiðið hefst síðan
mánudaginn 26. sept. kl. 19. Skrán-
ingar í símum 821 6466, 555 4166,
862 5877.
Hjallakirkja | Æskulýðsfélag fyrir
8. bekk er með fundi á mánudög-
um kl. 20–21.30.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Kl.
19 er Alfa 2 námskeið. Ef þú hefur
ekki enn skráð þig láttu þá sjá þig,
það eru enn laus pláss – eða
hringdu í síma 535 4700 og
skráðu þig. www.gospel.is.
Laugarneskirkja | Vakin er athygli
á tónleikunum „Sorgin og lífið“
sem fram munu fara í Laugarnes-
kirkju fimmtudagskvöldið 22. sept.
kl. 20. Þar mun Erna Blöndal,
ásamt hljómsveit, flytja sálma sem
orðið hafa henni til styrktar í sorg.
Að tónleikum loknum býður sókn-
arprestur til samtals í safnaðar-
heimilinu.
Gamla kerfið aftur á?
ÉG er komin á þá skoðun að af
tvennu illu er gamla strætókerfið
skárra. Ég er ein af þeim sem eru bú-
in að gefast upp á nýja kerfinu. Ég á
barn sem gengur í skóla í öðru hverfi
og nú er ég farin að taka leigubíl
fram og til baka með barnið mitt í
skóla því ég er búin að gefast upp á
strætókerfinu, það tekur það mig
einn og hálfan tíma að fara með
strætó því ég þarf að ganga langa
leið.
Ég er sammála konu sem skrifar í
Velvakanda um vöntun á strætó í
Álfheima og Sólheima. Ég er viss um
að ef hlustað væri meira á strætó-
vagnsbílstjórana mundi kerfið stór-
lagast. Þeir eru jú að keyra vagnana
allan daginn og þekkja þarfir farþeg-
anna.
Ég vil líka koma á framfæri að nú
ganga sumir vagnar á 10 mín. fresti
og aðrir á 20 mín fresti – en því ekki
að láta jafnt yfir alla ganga og allir
vagnar gangi á ca. 15 mín. fresti.
Fyrir okkur sem erum háð strætó
sem samgöngutæki er nýja kerfið
ekki að virka.
Farþegi.
Leikið var á mig
ÉG var orðinn nokkuð ellimóður
þegar ég flutti í Sólheimana. Ég ók
bíl og ætlaði að halda því áfram í
lengstu lög. En svo fóru börnin mín
að nudda í mér. Ég hefði svo ágætar
strætisvagnasamgöngur, leið 2 flytti
mig fljótt og vel í Glæsibæ og heim
og niður í bæ, ef ég vildi. Ég fór illu
heilli að ráðum þeirra og seldi bílinn.
Borgin plataði mig illilega þegar
hún tók strætisvagninn úr götunni.
Nú verð ég að fara að keyra aftur og
kaupa mér notaðan bíl. Ég er orðinn
sjóndapur og veld vonandi ekki slysi.
Fleiri en ég hafa lýst yfir von-
brigðum með að missa strætisvagn-
inn héðan. Þarf nú ekki borgin að
átta sig á mistökum sínum?
Vonsvikinn og gamall.
Enn um leiðakerfi strætós
ÉG vil koma á framfæri kvörtun
vegna breytinga á leiðarkerfi Strætó
bs. í Hamrahlíð. Þar er bæði
Menntaskóli og Blindrafélagshúsið
við götuna og kemur það sér mjög
illa fyrir blinda fólkið og nemendur í
skólum við götuna. Nú ekur leið 13
aðra leið og fer hringtorgið við
Lönguhlíð og fyrir ofan Fossvogs-
kirkjugarð og framhjá Veðurstof-
unni. Það eru fáir sem taka vagninn á
þessari leið. Ég þarf að fara öðru
hvoru í Borgarspítalann og nú er bú-
ið að fjarlægja strætóskýlið sem var
við spítalann og færa það fyrir utan
lóðina.
Hugsa ég til þess með hryllingi að
þurfa að ganga alla þessa leið í
strætó eftir breytingarnar.
Vilhjálmur Sigurðsson.
Fallegt á Djúpuvík
FYRIR stuttu síðan fór ég fljúgandi
norður á Gjögur og kom við á Norð-
urfirði og á Djúpuvík. Djúpavík er
mjög fallegur staður og þar fékk ég
alveg frábærar móttökur á hótelinu.
Allir voru mjög vinalegir og hreifst
ég mjög af staðnum. Vil ég hvetja
fólk til að koma þarna við og skoða
staðinn.
Unnur Elíasardóttir.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Sverrir
ANNAÐ kvöld kl. 20 sýnir Kvik-
myndasafnið amerísku myndina
Woman of the Year frá 1942 í leik-
stjórn George Stevens. Þetta er
fyrsta myndin sem hið ódauðlega
kvikmyndapar Katherine Hepburn
og Spencer Tracy léku í. Þetta er
gamanmynd um baráttu kynjanna.
Tess (Hepburn) er frægur dálka-
höfundur á dagblaði í New York
sem gerir grín að Sam (Tracy) sem
skrifar um íþróttir fyrir sama blað.
Þegar leiðir þeirra liggja saman til
þess að þau megi ná sáttum verða
þau yfir sig ástfangin.
Sýningar Kvikmyndasafnsins
fara að vanda fram í Bæjarbíói,
Strandgötu 6, Hafnarfirði á þriðju-
dagskvöldum kl. 20 og er sama
mynd endursýnd á laugardögum kl.
16. Ný mynd er tekin til sýninga í
hverri viku. Miðaverð er kr. 500 og
miðasala er opnuð hálftíma fyrir
sýningu.
ZUMA Press
Hepburn og Tracy í
Kvikmyndasafninu